Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2000, Síða 4
4
Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000
DV
Fundur Stúdentaráðs með alþingismönnum vegna gjaldtöku við MBA-nám í gærkvöld:
Stjórnarliðar ósammála
- Sjálfstæðisflokkur með gjaldtöku. Háskólaráð á gráu svæði
Stúdentaráð Há-
skóla íslands hélt mál-
fund í gærkvöld vegna
fyrirhugaðrar gjald-
töku Háskólans á
MBA-námi. Mættir til
fundarins voru fulltrú-
ar Stúdentaráðs, Sjálf-
stæðisflokks, Samfylk-
ingarinnar, Vinstri-
grænna, Framsóknar-
flokks, ásamt forsvars-
mönnum Endurmennt-
unarstofhunar HÍ sem
námið á að heyra und-
ir.
Forsaga málsins er
sú að nýverið ákvað
Endurmenntunar-
stofnun HÍ að taka til
kennslu MBA-nám
innan sinnar deildar.
Sökum þess að námið
verður kennt innan
Endurmenntunarstofn-
unar á Háskólinn þess kost að fara
fram á greiðslu skólagjalda fyrir
námið. Þessu hafa ýmsir aðilar
hafnað og segja að námið geti ekki
verið flokkað sem endurmenntun að
neinu leyti, heldur sé það skýrt
meistaranám og sé það gefið til
kynna í nafni gráðunnar: MBA
(Master in Business Ad-
ministration). Þessa skýringu virt-
ust fulltrúar þriggja þingflokka,
Vinstri-grænna, Framsóknar og
Samfylkingar, styðja í gærkvöld.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir, hafn-
aði rökum andmælenda gjaldtök-
unnar og vísaði til þess að „treysta
beri þeim sérfræðingum Háskólans
er að málinu koma.“
Ólafur Örn Haraldsson, fulltrúi
Framsóknar, sagðist ætla að beita
sér fyrir því að ríkisstjómin myndi
samþykkja aukafjárveitingu til þess
að hægt væri að koma í veg fyrir
frekari deilur um þetta mál. Hann
bætti því við að honum þætti Há-
skólaráð vera á ansi tæpu vaði er
það nýtti sér nýja heimild í lögum
um Háskóla íslands varðandi gjald-
tökuna, „og hefði verið ráðlegra að
ráðfæra sig betur við löggjafarvald-
ið áður en þessi ákvörðun var tek-
in.“
Þorgeröur vill gjaldtöku
Aðspurð um stuðning Sjálfstæðis-
flokks við tillögu Ólafs sagði Þor-
gerður Katrín að hún væri samþykk
núverandi fyrirkomulagi og vænti
þess ekki að veita þessari tillögu
stuðning sinn.
Gjaldtaka eöa ekkl?
Stjórnarliöar á málfundi meö Stúdentaráöi voru ósammáta um þaö hvort taka eigi gjaid af nemendum i MBA-námi eöa ekki.
Olafur Orn
Haraldasson
- Vill auka-
fjárveitingu.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
- Vill
gjaidtöku.
Gísli S.
Einarsson
- Menntamál
hafa forgang.
Kolbrún
Halldórsdóttir
- Ráöherra
aögeröalaus.
Svanfríður
Jónasdóttir
- Háskólaráö á
gráu svæöi.
Hjalti Hugason
- Háskólinn
í fjár-
svelti.
„Þetta mál mun að sjálfsögðu
verða rætt og ég tek það fram að ég
er mótfallin gjaldtöku við almennt
nám innan Háskólans. Ég tel hins
vegar að þetta nám flokkist ekki
undir almennt nám og er ég því
ekki samþykk aukafjárveitingu.“
Gísli S. Einarsson, fulltrúi Sam-
fylkingarinnar í fjárlaganefnd, benti
á að stjórnarandstaðan hefði aldrei
hafnað tillögum frá ríkisstjórninni
varðandi aukin fjárlög til mennta-
mála.
„Menntamálin hafa forgang inn-
an okkar raða og munu halda for-
gangshlutverki sínu. Tillaga á borð
við þá sem Ólafur nefndi mun vafa-
laust hljóta gott brautargengi innan
okkar raða.“
Svanfríður Jónasdóttir frá þing-
flokki Samfylkingarinnar var
einnig andvíg gjaldtöku við Háskól-
ann.
„Einu gjöldin sem HÍ er heimilt
að taka samkvæmt lögum eru
skráningargjöld. Það er því óhætt
að segja að Háskólaráð er komið inn
á ansi grátt svæði með þessari
ákvörðun um gjaldtöku." Svanfríð-
ur benti einnig á það að mennta-
málaráðherra hefði tekið skýrt fram
í umræðum í vetur að það væri ekki
á færi Endurmenntunarstofnunar
að veita prófgráður vegna náms sem
þar er kennt.
í dag mun hins vegar verða fund-
að í Háskólaráði þar sem rædd
verður tillaga þess efnis að við-
skipta- og hagfræðideild HÍ meti
námsárangur að námi loknu, ásamt
því sem deildin muni veita próf-
gráður til einstaklinga sem stundað
hafa MBA-námið.
Ráðherra aðgerðalaus
í málflutningi Kolbrúnar Halldórs-
dóttur frá þingflokki Vinstri-grænna
kom fram að menntamálaráðherra
„ógnaði Háskóla íslands sem
menntastofnun með aðgerðaleysi
sínu í málinu.“ Það léki enginn vafi
á hugmyndum menntamálaráðherra
á gjaldtöku fyrir menntun. í mál-
flutningi menntamálaráðherra í vet-
ur hefði komið fram að með gjald-
töku fyrir nám hafi skapast ný tæki-
færi og þarna væri viðskipta- og hag-
fræðideildin að fóta sig á nýjum
markaði. „Það er augljóst að hug-
myndir af þessu tagi stríða gegn nú-
verandi lögum um Háskóla íslands.
Það er augljóst að menntamálaráð-
herra hefur ákveðið að grípa ekki til
aðgerða sökum hugmynda hans um
gjaldtöku við nám á íslandi. Stefna
ráðherrans er forkastanleg," bætti
Kolbrún við.
Formaður kennslumáladeildar HÍ,
Hjalti Hugason, sagði ástæður gjald-,
tökunnar vera fjársvelti Háskólans. í
nýjum lögum um HÍ fái skólinn tvi-
þætt skilaboð frá Alþingi. Bæði sé
skólanum ætlað að bjóða upp á fram-
haldsnám til meistara- og doktors-
gráðu gjaldfrjálst, ásamt því sem
heimild skólans fyrir gjaldtöku fyrir
ýmsa þjónustu sé aukin til muna.
Skólanum sé í raun búinn slæmur
kostur og þarna sjái margir talsmenn
gjaldtöku innan skólans „útleið úr
þeirri fjárhagslegu sjálfheldu sem
skólinn hefur lengi verið í.“ -ÓRV
Strandabændur
styðja Guðna
DV. HÖLMAVÍK:
Fulltrúar á aðal-
fundi Búnaðarsam-
bands Stranda-
manna samþykktu
stuðning við þá
ákvörðun landbún-
aðarráðherra að
lækka viðmiðunar-
mörk fyrir eitur-
efnið kadmíum í
tilbúnum áburði,
enda samrýmist
sú aðgerð því að
festa í sessi
gæðaímynd is-
lensks landbúnað-
ar. Þá samþykktu
Guðni Agústs-
son landbúnað-
arráðherra
Fékk góðan
stuöning
Strandabænda.
sömu fulltrúar andstöðu sína við öll
áform um innflutning á erlendum
mjólkurkúakynjum. Guðfmnur
DV-MYND GUÐRNNUR RNNBOGASON
Handsamaðar
Þeséar hraustu útilegukindur voru
handsamaöar viö bæinn Brodda-
dalsá á Ströndum í byrjun maí og
reyndust sprækar vel.
Harðgerður
fjárstofh
DV, HÓLMAVÍK:
Vitað er um átta kindur sem lifðu
veturinn af í útigöngu í landi
Broddaneshrepps. Fyrstu dagana í
maí voru handsamaðar þrjár kindur
við bæinn Broddadalsá, ær og tvö
lömb síðasta vors. Þær voru mjög vel
á sig komnar, ull farin að losna frá
kjálkum og horn höfðu vaxið líkt og
hjá fé sem er innifóðrað.
Til yiöbótar þessu sá Kjartan
bóndi Ólafsson á Sandhólum fimm
kindur á vordögum sem gengið
höfðu úti á svonefndum Brunngils-
dal, þrjár ær og tvö lömb. Af því
hvað orðið var áliðið vors lét hann
ógert að handsama þær þó hann
hefði tök á þvi. Var hans mat að þær
væru betur komnar áfram í úthagan-
um en að vera teknar á innigjöf. Fyr-
ir hefur komið að slíkt reynist
hreinn banabiti útigöngufénu. I
hópnum var einn hrútur svo ætla
má að fjölgun hafi orðið hjá þessu
hrausta útigöngufé. Guðfinnur
VcArift i hvold
Hlýjast fyrir sunnan
Norölæg átt, víðast 5-8 m/s en snýst til
fremur hægrar suðvestlægrar áttar í nótt.
Skýjað og stöku slydduél við norðurströndina
í fyrstu, annars yfirleitt bjartviðri. Hiti 2 til 12
stig og hlýjast sunnanlands.
Sólar#m#ur ojj sjavarfo)!
REYKJAVIK . AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 24.00 00.40
Sólarupprás á morgun 02.56 01.38
Síödegisflóö 17.14 21.47
Árdegisflóö á morgun 05.27 10.00
Skýrfeigar á veðurtáfcMnn
' VINDÁTT
151
~*SV1NDSTVRKUR
í motrum á sekúntíu
iov-Hm
-10°
Nfrost he“
£> . £> O
lírrsKÝJAO hAlf- . SKVJAÐ SKÝJAÐ AtSKÝJAÐ
-V:: | W ]
: RIGNING SKÚRIR SIYDDA SNJÓK0MA
, \ w =
ÉUAGANGUR , PRUMU: . SKAF- ÞOKA
VEÐUR RENNINGUR
I Dettifoss vestan megin
Hálkublettir eru á Hellisheiði eystri og á
Öxafjaröarheiöi. Jeppafært er á
Arnarvatnsheiði úr Miöfirði en ófært
sunnanmegin. Einnig er jeppafært í
Flateyjardal, Heröubreiöarlindir, í Dreka
og Kverkfjöll. Þá er orðið fært um
Þríhyrningsleiö og í Dettifoss vestan
megin.
Voftríft a líiorgun
Kaldast á annesjum norðanlands
Þykknar smám saman upp um sunnan- og vestanvert landið en þurrt að
kalla. Léttir til noröan- og austanlands. Hiti 2 til 12 stig, kaldast á
annesjum noröanlands í fyrstu en hlýjast sunnanlands síðdegis.
Suöaustan og austan 8-13
m/s og rlgnlng síðdegls
suöaustanlands, síöan
elnnlg su&vestan tll. Hlti 7
tll 15 stig, hlýjast í
Innsveltum nor&anlands.
t.»iii*,.irdi«gj
Vindun
8—13 tn/9
Hiti 6° tii 12°
Austan 8-13 m/s og
rlgnlng, síst
su&vestanlands en snýst í
hæga su&læga átt me&
skúrum sunnan- og
vestanlands.
Sninniri.igui
Víndun V
6-10 m/í-/
Hiti 6° til 14°
Fremur hæg su&vestlæg
átt og léttlr tll um nor&an-
og austanvert landlft en
annars dálrtll súld me&
köflum.
SESffiEXl mgrn
AKUREYRI skýjaö 2
BERGSTAÐlR skýjað 3
BOLUNGARVÍK skýjaö 3
EGILSSTAÐIR 5
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjað 5
KEFLAVÍK léttskýjað 6
RAUFARHÖFN snjóél 2
REYKJAVÍK léttskýjaö 6
STÓRHÖFÐI léttskýjaö 4
BERGEN alskýjað 10
HELSINKI hálfskýjaö 14
KAUPMANNAHÖFN skýjað 13
ÓSLÓ léttskýjaö 13
ST0KKHÓLMUR 13
ÞÓRSHÖFN skúrir 8
ÞRÁNDHEIMUR skúrir 7
ALGARVE heiöskírt 21
AMSTERDAM skýjaö 16
BARCELONA hálfskýjaö 17
BERLÍN léttskýjaö 18
CHICAGO hálfskýjaö 24
DUBLIN rigning og súld 9
HAUFAX skýjaö 8
FRANKFURT skýjaö 19
HAMB0RG skýjaö 15
JAN MAYEN snjókoma 1
LONDON alskýjaö 16
LÚXEMB0RG heiöskírt 17
MALL0RCA léttskýjaö 17
M0NTREAL alskýjaö 14
NARSSARSSUAQ skýjaö 3
NEW YORK súld 12
ORLANDO skýjaö 24
PARÍS alskýjaö 16
VÍN léttskýjaö 23
WASHINGTON þokumóöa 19
WINNIPEG þoka 15
■4,iK4MHJiiVi:TLlMll,',i