Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2000, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000
I>V
7
Fréttir
DV-MYND GARÐAR
Ekta strákar!
Þrír ungir herramenn á Stöðvarfirði, svona eins og strákar eiga að vera. Maður veltir fyrir sér hvar þeir muni velja
sér heimkynni - á Austurlandi eða suður í höfuðborginni? Þessir efnisstrákar munu án efa þurfa að
vetta þeirri spurningu fyrir sér eftir fáein ár.
Austfirðingar bjartsýnir á framtíð byggðar:
Unga fólkið íhug-
ar brottflutning
- samkvæmt skoðanakönnun Háskólans á Akureyri
DV, EGILSSTODUM:_____________________
Samkvæmt könnun RHA - Rann-
sóknastofnunar Háskólans á Akur-
eyri eru nær 50% fólks á aldrinum
18-25 ára að hugleiða flutning frá
Austurlandi á næstu 2-3 árum. Þeg-
ar flokkað er eftir námi kom í ljós
að 40% þeirra sem eru með stúd-
entspróf hyggjast flytja. Flestir, eða
liðlega þriðjungur, nefndu nám sem
ástæðu fyrir búferlaflutningi og það
vekur athygli að af þeim ætla flestir
til Akureyrar. Þá vaknar spuming:
Kemur unga fólkið aftur heim?
í nær öllum byggðarlögum á
Austurlandi er atvinnan sá þáttur
sem flestir telja í ólestri. Meirihluti
fólks er mjög eða frekar óánægt með
þau atvinnutækifæri sem í boði eru
og er óánægjan mest meðal ibúa í
Vopnafírði og Bakkafirði. Stöðvar-
fjörður sker sig úr þvi þar eru menn
yfirleitt ánægðir með atvinnufram-
boð. Eins er háskólamenntað fólk
tiltölulega ánægt.
Þetta kom fram í könnun sem
RHA gerði um viðhorf manna á
Austurlandi varðandi verslun,
menningarstarfsemi, atvinnutæki-
færi, heilbrigðisþjónustu, menntun
og fullorðinsfræðslu. Niðurstaðan
var sú að í nálega öllum sveitarfé-
lögum var meirihlutinn mjög eða
frekar ánægður með alla þessa
þætti, nema atvinnumálin. Stöðfirð-
ingar voru þó ekki sáttir við versl-
un og heilbrigðisþjónustu og Fá-
skrúðfirðingar voru ósáttir við
menningarstarfsemina. Hvað
menntun varðar skiptir þó nokkuð í
tvö horn um viðhorf íbúa. Þar töldu
ibúar Suðuríjarða sig einkum af-
skipta hvað möguleika til menntun-
ar snerti.
Mikil bjartsýni
Þrátt fyrir miður góðar horfur í
atvinnumálum að mati heima-
manna og fyrirsjáanlega mikinn
brottflutning ungs fólks frá Austur-
landi eru 74% íbúa þar bjartsýn um
þróun byggðarlaga sinna á næstu
árum. Homflrðingar skera sig
þarna úr þar sem yfir 90% þeirra
sem búa í sveitarfélaginu Horna-
firði hafa mjög mikla eða mikla trú
á jákvæðri þróun byggðarlagsins í
náinni framtíð. -SB
Bæjarráð Akureyrar:
Ásgeir áfram formaður
Þórarinn B. Jónsson og Vil-
borg Gunnarsdóttir, Sjálf-
stæðisflokki, Jakob Bjöms-
son, Framsóknarflokki, og
Oddur Helgi Halldórsson,
frá L-listanum.
Þá hefur Sigurður J. Sig-
urðsson, Sjálfstæðisflokki,
verið endurkjörinn forseti
bæjarstjómar. -gk
DV, AKUREYRI:____________
Ásgeir Magnússon, frá
Akureyrarlistanum, hefur
verið endurkjörinn formað-
ur bæjarráðs Akureyrar til
eins árs.
Aðrir í bæjarráði eru
Ásgeir Magnússon,
formaður bæjarráðs.
Hrefnu- Konni fyrstur á miðin þegar hvalveiðibanni linnir :
Ritari hval-
veiðiráðsins
verður rekinn
- sagði Konráð Eggertsson
Einn fremsti hrefnuveiði-
maður íslands, Konráð Egg-
ertsson eða Hrefnu-Konni
eins og gárungarnir kalla
hann, neitar að hafa
nokkurn tíma brotið bann
íslenskra stjórnvalda við
hvalveiðum.
„Því miður þá skorti mig
alltaf kjark til þess að taka
þátt í veiðum sæfaranna.
Um þessar mundir stunda
ég bara rækjuveiðar. Því er
þó ekki að neita að menn
hafa verið að fá hrefnu í
veiðarfærin hjá sér linnu-
laust - sögur berast jafnvel
af því að menn hafa fengið
hrefnu á línu,“ sagði Kon-
ráð í samtali við DV. Þegar
Konráð var spurður álits um nýaf-
staðnar yfirlýsingar ritara Alþjóða-
hvalveiðiráðsins um að ráðið verði
að leyfa veiðar innan tveggja ára
var hann ekki í nokkrum
vafa um væntanlegar af-
leiðingar.
„Þessi maður verður rek-
inn áður en langt um líður.
Innan þessarar stofnunar
eru öfl sem ekki líða yfir-
lýsingaglaða menn á borð
við þennan og við þurfum
ekki að bíða þess lengi að
brottvikningin verði til-
kynnt. Það sem er aftur á
móti meira spennandi er yf-
irlýsing Alþingis íslendinga
um að hvalveiðar skuli
hefjast ekki seinna en á ár-
inu 2000. Ég trúi því og
vona að sjávarútvegsráð-
herra okkar íslendinga
fylgi því máli i gegn og
veiðar hefjist fyrir árslok. Ég skal
verða fyrstur manna til þess að
stefna á miðin þegar það næst i
gegn,“ sagði Konráð. -ÓRV
Skortir kjark
Konráö Eggerts-
son eða Hrefnu-
Konni segir sig
skorta kjark til
þess að feta í
fótspor þeirra
sæfara sem
stunda hval-
veiðar nú.
B BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
i BORGARTÚN 3-105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík
Kaplaskjólsvegur 2
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 er hér með auglýst til kynningar tillaga að
breytingu á skipulagi við Kaplaskjólsveg/Hringbraut.
Afmörkuð er 280m2 lóð fyrir Kaplaskjólsveg 2, en þar
stendur hús byggt 1906, sem háð er þjóðminjalögum
um breytingar. Gert er ráð fyrir að húsið standi sem
næst óbreytt, en leyfa má smávægilegar breytingar
innan byggingarreits, í samræmi við byggingarstíl
þess.
Tillagan liggur frammi í sal Borgarskipulags og
Byggingarfulltrúa Reykjavíkur, Borgartúni 3, 1. hæð,
virka daga kl. 10:00 - 16:00 frá 14. júní til 12. júlí
2000.
Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til
Borgarskipulags Reykjavíkur eigi síðar en 26. júlí
2000.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan
tilskilins frests, teljast samþykkir.
Nú eru
Drífðu þig í dag og fáðu dágóðan afslátt!
VERSLUNIN
Eggjabakka-, svamp-,
latex- og springdýnur
og margt f leira með
rt—~ f5-30°/o afslaetti!
Skútuvogi 11 • Sími 568 5588