Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2000, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000
I>V
Fréttir
9
Sjónvarpskringlan auglýsir sjónvarpstæki viö baðkerið:
Glæfralegt og
óforsvaranlegt
- segir Jóhann Ólafsson hjá rafmagnsöryggisdeild Löggildingarstofunnar
„Þetta er stórhættulegt fordæmi en
það þarf alltaf einhver að deyja til
þess að það sé gert eitthvað i þessu,“
segir Jón Baldur Baldursson rafvirki
vegna auglýsingar Sjónvarpskringl-
unnar þar sem mælt er með því við
áhorfendur að kaupa sjónvarp og
hafa það á hillu fyrir ofan baðkarið.
Það er á flestra vitorði að sjón-
vörp og baðkör fara ekki saman og
segist Jón Baldur hafa horft oft á
þessa auglýsingu og vonað að fólk
færi ekki að fylgja henni.
„Sjónvörp og önnur slík raftæki
eiga alls ekki að vera inni á baðher-
bergjum og þá allra síst við baðkarið.
Það er ekki gert ráð fyrir því og það
þyrfti sérstaka framlengingarsnúru í
DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON
Löng sigllng fram undan
Sveinn Jónsson KE 9 viö bryggju á Akranesi í gær. Fram undan er löng
og ströng sigling til Suöur-Afríku.
HB selur skip til
Suður-Afríku
DV, AKRANESI:
Haraldur Böðvarsson hf. hefur selt
ísfisktogarann Svein Jónsson KE 9
sem er 234 brúttólestir og smíðaður í
Noregi árið 1973. Kaupandi skipsins
er fyrirtækið Ventrade Twenty i
Höfðaborg í Suður-Afríku og er
kaupverðið ekki gefið upp. Sveinn
fer í slipp á Akranesi næstu daga til
yfirferðar og að því loknu verður
honum siglt hina löngu leið til
Höfðaborgar í Suður-Afríku. -DVÓ
DV-MYND ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
Áfanga náð
Stúdentar Fjölbrautaskóla Noröurlands vestra voriö 2000 ásamt
Jóni F. Hjartarsyni skóiameistara aö loknum skólaslitum.
Sauðárkrókur:
Fjölbrautaskólanum slitið
í tuttugasta sinn
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra var slitið síðastliðinn laugar-
dag i 20. sinn að viðstöddu miklu
fjölmenni í hátíðarsal bóknáms-
hússins.
Skólameistarinn, Jón F. Hjartar-
son, brautskráði 72 nemendur, þar
af 42 stúdenta og 17 meistara en aðr-
ir voru af sjúkraliðabraut, uppeldis-
braut, viðskiptabraut, grunndeild
rafiðna og í samningsbundnu iðn-
námi. Fram kom í máli skólameist-
ara við skólaslitin að hann hefði
fengið ársorlof og við störfum hans
tekur Ársæll Guðmundsson aðstoð-
arskólameistari næsta haust. Jón F.
Hjartarson kvaðst mundu sækja fyr-
irlestra í háskóla erlendis um
stjómunarfræði.
Hefur Jón starfað við skólann í
rúma tvo áratugi eða allt frá stofn-
un hans 1979.
Skólameistari fjallaði í kveðjuorð-
um til nemenda um Max Weber og
sagði : „Megi eldmóður ykkar vera
málefnalegur, eldlegur trúnaður við
góðan málstað og þann guð eða
anda sem fyrir honum ræður. Megi
gæfa og hamingja fylgja ykkur alla
tíð og megi hvert ykkar finna sitt
töfrahnoða og ganga staðfastlega
sinn ævistig". Að venju var tónlist-
in í hávegum höfð við skólaslitin.
Þau hófust með samleik á flygil þar
sem þær léku fjórhent á píanó syst-
urnar Signý og Unnur Sigurðardæt-
ur norskan dans eftir Edvard Grieg.
Einnig söng kór Fjölbrautaskólans
nokkur lög undir stjóm Hilmars
Sverrissonar. -ÞÁ.
sjónvarpið sem myndi auka enn á
hættuna," segir Jón.
Að sögn Jóhanns Ólafssonar, deild-
arstjóra rafmagnsöryggisdeildar hjá
Löggildingarstofunni, er það ekki for-
svaranlegt að leggja til slíka glæfra-
lega notkun á rafmagnstækjum.
„Við höfðum samband við fyrir-
tækið fyrir hálfum mánuði og aftur
í gærdag og þeir tóku ábendingunni
vel en báðu um frest. Við reynum
að fara að mönnum með góðu í upp-
hafi en þeir verða að taka þessa
auglýsingu úr sýningu í hvelli,“
segir Jóhann.
í samtali við DV sagði starfsmað-
ur Sjónvarpskringlunnar, sem ekki
vildi segja til nafns sins en tók fram
að hann væri aðilinn til að tala við
um málið, að fólki væri kunnugt
um að það ætti að fara varlega með
rafmagnstæki í kringum vatn.
„Það er ekki verið að tala um að
setja sjónvarpið ofan í baðkerið og
þau eru rakavarin, þannig að gufan
hefur ekki áhrif á þau og þess
vegna eru þau svona hentug í bað-
herbergin," segir starfsmaðurinn
nafnlausi. -jtr
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. júní 2000 hefst innlausn á útdregnum
húsbréfum í eftirtöLdum flokkum:
4. flokki 1992 - 26. útdráttur
4. flokki 1994 - 19. útdráttur
2. flokki 1995 - 17. útdráttur
1. og 2. flokki 1998 - 8. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
mióvikudaginn 14. júní.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf.
*
Ibúðalánasjóður
Borgartúni 21 I 105 Reykjavík I Sími 569 6900 I Fax 569 6800
Sá brosir best
sem eignast Olympus APS myndavél
Olympus myndavélar eru þekktar um allan heim. Fyrirtækið hefur alltaf lagt mikið upp úr
tækniþekkingu og nákvæmni í framleiðslu á linsum og hátæknibúnaði sem skilar sér í frábærum
vörum sem eru handhægar og auðveldar í notkun fyrir hvern sem er.
OIYMPUS APS I zoom 7i
OLYMPUS APS Newpix xb
.900
stgr.
l'N
verð
5.1900
Alsjálfvirk • Linsa 28-60mm • Möguleiki á þremur
myndstærðum • 6 stillingar á flassi • Landslagsstilling
Dagsetning • Hægt að nota fjarstýringu
Þægileg fyrir þá sem nota gleraugu
Taska og filma fylgir
OIYMPUS APS I zoom 60
stgr.
Alsjálfvirk • Linsa 24mm
Möguleiki á þremur myndstærðum
4 stillingar á flassi • Taska og filma fylgir
OIYMPUS APS Newpix 600
Alsjálfvirk • Linsa 28-75mm
Möguleiki á þremur myndstaerðum
6 stillingar á flassi • Dagsetning
Hægt að nota fjarstýringu
Þægileg fyrir þá sem nota gleraugu
.900
stgr.
Alsjálfvirk • Linsa 30-60mm'
Möguleiki á þremur myndstærðum
6 stillingar á flassi • Landslagsstilling
Dagsetning • Taska og filma fylgir
FRIHOFNIN
LEIFSSTÖÐ KEFLAVÍKURFLUGVELLI
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is