Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2000, Qupperneq 10
10
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000
I>V
Kjarnorkuleynd-
armálum stolið
I—^ex starfsmenn
I kjarnorkurann-
sóknarstöðvarinn-
ar í Los Alamos í
Bandaríkjunum
hafa verið ieystir
frá störfum eftir að
upp komst að tveir
harðir tölvudiskar
með kjarnorku-
leyndarmálum voru horfnir. Banda
ríska alríkislögreglan FBI rannsak
ar nú málið.
Bill Richardson orkumálaráð
herra, sem hefur sætt gagnrýni
repúblikana á þingi fyrir ónógt ör-
yggi í Los Alamos, sagði að ekki
væri talið að um njósnir væri að
ræða. Hann hélt því að þeim yrði
refsað sem bæru ábyrgð á hvarfinu
Talsmaður orkumálaráðuneytis
ins sagði að starfsmennirnir hefðu
verið leystir frá störfum þar sem
þeir hefðu ekki tilkynnt hvarf
hörðu diskanna um leið og það upp-
götvaðist þann 7. maí. Starfsmenn-
irnir segjast ekki hafa komist inn í
hvelfinguna þar sem diskanir voru
fyrr en 24. maí. Þá var stöðin opnuð
aftur eftir skógareldana sem ollu
umtalsverðu tjóni. Ekkert fannst
þrátt fyrir mikla leit en yfirmaður
öryggismála í Los Alamos var ekki
látinn vita af hvarfinu fyrr en 31.
maí. Stjómvöld fengu að vita það
daginn eftir.
Orkumálaráðherrann sagðist í
gær vera yfir sig hneykslaður á
málsmeðferðinni.
Eli Ylshai
Leiötogi Shass-flokksins er hættur
samstarfi viö Ehud Barak.
Stjórnarkreppa
vofir yfir í ísrael
Mikilvægasti samstarfsflokkur
Ehuds Baraks, forsætisráðherra
ísraels, rétttrúnaðarílokkurinn
Shass, ákvað í gær að hætta stjórn-
arsamstarfi. Ráöherrar flokksins,
sem fara að skipunum ráðs rabbína,
tilkynntu að þeir myndu afhenda
uppsögn sína á næsta ríkisstjómar-
fundi. Ekki er vitaö hvort Shass er
alvara eða hvort tilgangurinn sé að
þvinga stjómina tO að samþykkja
síðustu skilyrði flokksins. Shass
krefst þess að Barak reki Yosi Sarid
menntamálaráðherra og lögleiði sjó-
ræningjaútvarpsstöðvar flokksins.
Sé Shass alvara er staða Baraks
slæm. Hann getur náð meirihluta
meö 1 eða 2 atkvæðum án Shass en
þá þarf hann að treysta á arabíska
þingmenn. Barak veit hins vegar
hvað bíður hans semji hann um frið
við Palestínumenn með aðstoð þing-
manna sem ekki em gyöingar.
Ekki er taliö útilokaö að Shass-
flokkurinn telji, eins og margir
aðrir, daga stjómarinnar talda. Þess
vegna sé Shass að skapa sér ímynd
fyrir næstu kosningar.
Viö erum best í því sem
viö erum aö gera
- aö bæta kynlífið.
Opiö
mán.-fös.10-18
laug.10-16
Fákafeni 9 • 8. 553 13CD
Arabaheimurinn:
Krókódílstár
vegna Assads
Um 1 milljón Sýrlendinga fyllti
götur Damaskus í Sýrlandi í gær
þegar Hafez al-Assad forseti, sem
lést á laugardaginn, var borinn til
grafar. Þúsundir örvæntingarfullra
syrgjenda reyndu að komast í
gegnum fylkingar lögreglu og
hermanna til þess að sjá kistu
Assads. Karlar og konur grétu og
börðu á brjóst sér.
Um allan arabaheiminn sendu
sjónvarps- og útvarpsstöðvar út
vers úr Kóraninum í staö
skemmtiþátta. Sjónvarpið í
Sýrlandi hefur undanfarna daga
sýnt myndir af grátandi
Sýrlendingum.
Stjómmálaskýrendur segja erfitt
að meta hvort sorgin sé ekta meðal
þeirra sem ekki tilheyra þeim 25
prósentum þjóðarinnar sem eru inn
undir hjá stjórninni, það er
hemum, þingmönnum og
alawitíska minnihlutanum.
Stjómmálaskýrendur fullyrða að
annars staðar i arabaheiminum felli
menn krókódílstár. Dagblöð í
Tyrklandi birtu fréttina af andláti
Assads undir fyrirsögnunum
Verndari hryðjuverkanna hefur
gefið upp andann og Félagi Öcalans
er farinn til feðra sinna.
Með tilliti til þess hversu oft
Assad niðurlægði Yasser Arafat,
leiötoga Palestínumanna, þótti
Arafat standa sig vel þegar hann
lýsti yfir hryggð sinni vegna fráfalls
Assads. Meira að segja handan
grafarinnar tókst Assad að
niðurlægja Arafat.
Palestínuleiðtoginn þurfti að bíða
fram á mánudagskvöld eftir grænu
ljósi til að fá að vera viðstaddur
útför Sýrlandsforseta.
Borinn tll grafar
Sýrlendingar grétu og börðu á brjóst
sér þegar Assad var borinn til grafar.
Veisluglaumur í konungshölllnnl
Vladímír Pútín Rússlandsforseti og Soffia Spánardrottning stungu saman nefjum í heljarinnar kvöldveröarboöi í kon-
ungshöllinni í Madríd í gærkvöld og var ekki annaö aö sjá en aö vel færi á meö þeim. Pútín kom í heimsókn til Spán-
ar í gær. Þar ætlar hann meöal annars aö reyna aö lokka fjárfesta til Rússlands.
Tímamótafundur leiðtoga Kóreuríkjanna tveggja:
Sundraðar fjölskyldur og
efnahagsmál á dagskrá
Leiðtogar kóresku ríkjanna
tveggja voru afslappaðir í morgun
fyrir aðra lotu sögulegs fundar
þeirra í Pyongyang, höfuðborg
Norður-Kóreu, þar sem ætlunin er
að reyna að draga úr spennunni
sem ríkt hefur milli þeirra í hálfa
öld.
Kim Jong-il, leiðtogi Norður-
Kóreu, brosti og gerði aö gamni
sínu við Kim Dae-jung, forseta Suö-
ur-Kóreu.
„Vesturlandabúar virðast hafa
verið forvitnir um hvers vegna ég
lifi eins og einsetumaður. Fyrir til-
stilli heimsóknar þinnar fá þeir for-
vitninni svalað," sagði norður-
kóreski leiðtoginn og hló.
Búist er við að Kim Dae-jung
hvetji norðanmenn til að heimila
Kóreuleiötogar saman
Forseti Suöur-Kóreu er í Noröur-
Kóreu aö ræöa viö leiötogann.
endurfundi rúmlega einnar milljón-
ar fjölskyldna sem sundruðust þeg-
ar Kóreustríðið braust út fyrir
hálfri öld, að sögn suður-kóreskra
blaðamanna i Pyongyang.
Þá er fastlega ráð fyrir því gert að
suður-kóreski forsetinn bjóði
kollega sínum í heimsókn suður yf-
ir landamærin til frekari funda-
halda og að hann leggi áherslu á
nauðsyn þess að viðræður milli
stjórnvalda ríkjanna tveggja haldi
áfram.
Reiknað er með að leiðtogamir
ræði einnig efnahagssamvinnu,
einkum hvernig sunnanmenn geti
aðstoðað granna sína við að endur-
reisa innviði landsins, svo sem vegi
og járnbrautir, og eflt fjárfestingar í
Norður-Kóreu.
Árásarmaður náðaður
Mehmet Ali
Agca, sem reyndi
að ráða Jóhannes
Pál páfa af dögum
1981, hefur verið
náðaður á Ítalíu þar
sem hann hefur set-
ið 19 ár í fangelsi.
Agca var hins veg-
ar fluttur til Tyrklands þar sem
hann þarf að sitja níu og hálft ár í
fangelsi vegna morðs á blaðamanni
1979. Agca var dæmdur til dauða en
dóminum var breytt í 10 ára fang-
elsi.
Olíuborpall á reki
Olíuborpallurinn Bideford
Dolphin er á reki i Norðursjó. Þrjú
af átta akkerum pallsins losnuðu í
miklu óveðri. 51 af 77 manna áhöfn
var bjargað með þyrlum. 26 ætluðu
að dvelja um borð í nótt.
Barnaníðingar
Finnskir karlar eru helstu við-
skiptavinir rússneskra barna sem
selja sig í St. Pétursborg, Viborg,
Sordavala og Petrozavodsk.
Ekki nýr sáttasemjari
Forseti Filippseyja, Joseph
Estrada, hafnaði í gær kröfu mann-
ræningja um nýjan sáttasemjara í
deilunni um gíslana. Talsmaður
hersins sagði herinn hafa fengið
stranga fyrirskipun um að fylgjast
með atburðarásinni án þess að
grípa inn í hana.
60 milljónir fátækar
60 milljónir Rússa búa nú við fá-
tækt eða á mörkum fátæktar. Hefur
fátækum fjölgað um 10 milljónir á
hálfu ári.
Annan áhyggjufullur
Kofi Annan,
framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóð-
anna, hvatti í gær
Öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna til
þess að krefjast
þess að Rúanda og
Úganda kalli heim
hermenn sína frá Kongó. Sagði Ann-
an, sem hefur áhyggjur af bardög-
um í Kongó, ástæðu til að íhuga
refsiaögerðir yrðu hermennirnir
ekki kallaðir heim.
Rætt um dauðarefsingu
Miklar umræður fara nú fram í
Bandaríkjunum um dauðarefsingar
og réttmæti þeirra. Fulltrúar í
nefnd öldungadeildar þingsins fóru
í gær fram á endurbætur í meðferð
afhrota sem dauðarefsing liggur við,
svo sem aukinn aðgang að DNA-
sönnunargögnum.
Forsætisráðherra frá
Forsætisráðherra Salómonseyja
sagði af sér í morgun til að auðvelda
lausn á stjórnmálakreppu í kjölfar
tOraunar til valdaráns og átaka
milli þjóðemisbrota.
Njósnamáli klúðrað
Breska leyniþjónustan klúðraði
máli Melitu Norwood, sem gekk
undir nafninu Rauða amman vegna i
njósna hennar fyrir Sovétrikin, með
því að vísa þvi ekki til saksóknara.
Þetta kemur fram í skýrslu sem I
breska þingið lét gera og gerð var
opinber í gær.