Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2000, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2000, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 11 Utlönd Þriðja lota viðræðna um sjálfstæði Færeyja hefst á morgun: Herstöðvamál í brennidepli Framtíð vamarmála í Færeyjum veröur ofarlega á dagskránni í þriðju lotu samningaviðræðna fær- eyskra og danskra stjómvalda um sjálfstæði eyjanna sem hefst í Kaup- mannahöfn á morgun. Danir hafa til þessa farið með vamarmál Færeyja en Færeyingar krefjast þess nú að fá að fylgjast með hemaðarmannvirkjum á eyj- unum. Þá vilja færeysk stjórnvöld að framtíðarstaða þeirra í varnar- kerfi NATO verði metin. „Við óskum eftir að fá nokkrar skýringar um málið. Vissulega eru einhver hernaðarleg leyndarmál til staðar en það er auðvitað mikilvægt fyrir okkur að vita hvert framtíðar- hlutverk okkar verður," segir Anfinn Kallsberg Færeyski lögmaöurinn vill upplýsing- ar um framtíöarskipan varnarmála. Anfinn Kallsberg, lögmaður Fær- eyja, við Jyllands-Posten. Fastlega er gert ráð fyrir því að dönsk stjómvöld haldi fast í fyrri kröfur sínar um að fjárstuðningur þeirra við Færeyjar falli niður á fjórum árum fái eyjarnar sjálfstæði. Það þýðir að rúmlega níu milljarða íslenskra króna aðstoðin myndi hverfa með öllu árið 2006. Danir krefjast þess líka að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu í Færeyjum um sjálfstæðissamning- inn. Kallsberg lögmaður segir ólík- legt að hann yrði samþykktur ef í honum fælist að fjárhagsaðstoðin legðist niður að fjórum árum liðn- um. Færeyingar ætla að leggja fram nýjar tillögur um efnahagsmálin. Eitriö brennt í Bólivíu Yfirvöld í Bólivíu lögðu eld í átján tonn af kókalaufum viö bæinn Sacaba í gær. Kókalaufin voru gerö upptæk á síö- ustu sex mánuöum í baráttu stjórnvalda gegn fikniefnaviöskiptum. Eins og sjá má logaöi glatt í laufunum. Watson hótar harðari baráttu gegn hvalveiöum Paul Watson og samtök hans, Sea Shepherd, hóta að herða baráttuna gegn hvalveiðum verði banni við veiðunum afLétt. Watson sagði í viðtali við norska sjónvarpsstöð að það kæmi honum á óvart yrði tillaga Rays Gambells, framkvæmdastjóra Alþjóðahval- veiðiráðsins, um afnám veiðibanns samþykkt á fundi ráðsins í Ástralíu í júlí næstkomandi. Verði banninu aflétt ætla Sea Shepherd að gera hvalveiðimönnum lifið leitt. „Hætti hvalveiðiráðið að vernda stórhveli frá hvalveiðiiðnaðinum neyðumst við til að herða barátt- una,“ segir Watson. notaðirbílar w,,wi,rimbor»is #k»brimborgar , m mmmma Volvo 850 st. 2,0 02/96, ssk., 5 d., grænn, ek. 50 þús. km, framdrif. Verð 1.720.000 Volvo V70 XC AWD 2,5 12/98, ssk., 5 d., silfurbeige, ek. 22 þús. km, 4x4. Verð 3.250.000 Jp Volvo 850 2,0 06/95, ssk., 4 d., rauður, ek. 75 þús. km, framdrif. Verð 1.490.000 Ford Puma Sport 05/99, 5 g., 2 d., rauður, ek. 5 þús. km, framdrif. Verð 1.650.000 • '■\ Subaru Legacy st. 2,0 04/99, ssk., 5 d., vínrauður, ek. 18 þús. km, 4x4. Verð 1.920.000 Daihatsu Cuore CX 1,0 09/99, ssk., 5 d., rauður, ek. 2 þús. km, framdrif. Verð 890.000 fP* VW Passat 1,8 04/98, Ford Mondeo Ghia 2,0 12/97, 5 g., 4 d., svartur, ek. 30 þús. km, framdrif. 5 g., 4 d., hvítur, ek. 98 þús. km, framdrif. Verð 1.670.000 Verð 1.300.000 Tilboð 1.030.000 Opið laugardaga 11-16 brimborg Reykjavik • Akureyrl Brimborg Reykjavík, Bíldshöfða 6, sími: 51 5 7000 Brimborg Akureyri, Tryggvabraut 5, sími. 462 2700 Rússland: Fjölmiðlakóngur handtekinn Vladimir Gusinskí, eigandi fjölmiðlafyrirtækisins Media-Most í Rússlandi, var handtekinn í gær. Handtaka Gusinskís kann að leiða til hruns Media-Most, síðasta stóra óháða fjölmiðlarisans í Rússlandi. Gusinskí, sem hóf feril sinn sem „svartur“ leigubílstjóri, er einn ríkasti maður Rússlands. Hann er sakaður um að hafa komið undan tæplega milljarði íslenskra króna í viðskiptum. Fjölmiðlar Gusinskís hafa harðlega gagnrýnt nýju rússnesku ríkisstjómina. í síðasta mánuði lét ríkissaksóknari grímuklædda menn frá öryggislögreglunni og skattalögreglunni gera skyndileit hjá Media-Most. Var öryggisdeild fyrirtækisins meðal annars sökuð um ólöglega hlerun á farsímum. Vladimír Pútín Rússlandsforseti, sem er í Madríd, hefur lýst yfir trú sinni á frjálsa fjölmiðla. Hann kvaðst ekki hafa haft hugmynd um handtöku Gusinskís. Sagðist Pútín Fjölmiölakongur Vladimir Gusinskí rekur óháöa fjölmiöla í Rússlandi. vona að saksóknarar hefðu haft næga ástæðu til handtökunnar. komið út á íslensku! for live í tilefni 60 ára afmælis Veiðimannsins var ákveðið að gefa hið glæsilega NAPP& NYTT 2000 út á íslensku. Bæklingurinn er 142 síður og er honum dreift í eftirfarandi Premium verslunum án endurgjalds: Utilíf og Vesturröst, Reykjavík Veiðilind Akureyri og öllum öðrum verslunum með Abu Garcia veiðivörur. ^Abu Garcia

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.