Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2000, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2000, Síða 13
13 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 DV__________________________________________________________________________________________________________________________Menning Umsjön: Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir Mikilsverð uppgötvun í listaheiminum: Áður óþekkt verk Louisu og Steins Komiö hafa í leitimar níu áður óþekktar myndskreytingar eftir Louisu Matthíasdóttur, við áður óþekktan Ijóðabálk eftir Stein Steinarr. í nýrri bók um Louisu minnist listakonan á það að hún hafi eitt sinn gert mynd- ir við texta eftir Stein Steinarr fyrir Ragnar Jónsson í Smára en Ragnar hafi síðar týnt þessu handriti. Gylfi Gröndal, sem er að grennslast fyrir um skáldskap Steins, hafði pata af handriti eft- ir hann í einkaeigu og þegar hann sá það hjó hann eftir því að forsíðumynd þess er nánast eins og mynd sem birst hafði í bók- inni um Louisu. Mun Ragnar hafa gefíð núverandi eigendum handritið. Þar sem handritið var ómerkt töldu eigendurnir að myndimar væru eftir Ninu Tryggvadóttur en ljóðið eftir óþekktan höfund. Vélritaður texti handritsins er ljóðabálkur fyrir börn sem nefn- ist Halla og er klárlega eftir Stein Steinarr, að sögn þeirra sem gerst þekkja; m.a. eru stíll og bragarháttur sláandi líkir ljóðinu Tindátarnir en Nína Tryggvadóttir gerði frægar myndir við það. Aðalsteinn Ing- ólfsson, sem er einn höfunda að Steinn Steinarr skáld. Louisa Matthíasdóttir llstakona. að myndimar og ljóðin hafi orðið til um og eftir 1940,“ segir Aðalsteinn enn fremur. Snilldin leynir sér ekki Sérlegur Steinsfræðingur DV, Silja Aðalsteinsdóttir, fékk kvæðið í hendur og bar það saman við önnur ljóð skáldsins, einkum Tindátana. Segir Silja að handbragð Steins sé vel sýnilegt: „Á kvæðinu um Höllu er sami bragarháttur og sama frjáls- lega stuðlasetningin, þó að hún sé vandaðri í Tindátunum. Kímnin er líka svipuð, sem og orðalag." En foringjanum gleymdist eda gœtti ei þess í svip, aö enginn fer á sjóinn ef ekki er til neitt skip. (Úr Tindátunum) Aö vísu er margs að gœta og vont er oft í sjó. Og engan skyldi furöa þótt einhver fengi nóg. (Úr Höllu) Þessi brot má nefna sem dæmi um sýnilegan skyldleika ljóðanna. Sömu aðferð er beitt I báðum kvæð- um að sögn Silju: „Allar tengingar í kvæðinu um Höllu eru þó fremur óljósar og aðferðin er faktískt full- komnari í Tindátunum. En snilldin, hún leynir sér ekki.“ Mynd Louisu Matthíasdóttur af Höllu sem birtist í nýtegri bók um listakonuna. Fullvíst þykir nú að Ragnar í Smára hafi ætlaö aö gefa út Ijóöabálk Steins Steinarrs meö myndskreytingum Louisu. bókinni um Louisu Matthíasdóttur, staðfesti að myndirnar níu í handritinu, sem allar eru klippimyndir, væru eftir listakonuna og bætti við að óvenjulegt væri að finna myndir af því tagi eftir Louisu. „Það er skemmtilegt að Steinn skuli hafa ort ljóð af þessu tagi fyrir þær stöllur báðar, Louisu og Nínu. Er líklegt Kvæðið um Höllu fjallar um stúlku sem býr hjá afa sínum við þröngan kost þar til hann sendir hana i sveit til þess að hún fái nóg að bíta og brenna. í sveitinni sakn- ar Halla afans, vill halda heimleiðis og leggur á sjóinn i vondu veðri. Af- inn fréttir af ferðalaginu og bjargar stelpunni úr bráðum háska. Handritið og myndimar verða til sýnis í Hafnarborg, þar sem nú fer fram sýning á verkum Louisu, Lelands Bell og Temmu Bell, frá og með deginum í dag til loka sýningarinn- ar, 3. júlí. Bókmenntir Ævintýraleg kristnisaga Ritverkið Kristni á íslandi er hálfgert ævin- týri. Fjölda virtra fræðimanna tókst að koma út einu stærsta og vandaðasta yfirlitsriti sem sést hefur hér á landi á réttum tíma, á þúsund ára afmæli kristnitöku. Öll fjögur bindin komu út í einu, verkið er á viðráðanlegu verði, bækumar eru ekki svo óþægilegar að stærð og þyngd aö ekki sé hægt að lesa þær og útlitið er hið glæsi- legasta sem undirritaður man eftir á íslensku yfirlitsriti. Öll bindin fjögur eru heildstæð höf- undarverk. Að vísu eru þau brotin upp meö yfirlitsköflum sem sumir em eftir höfundana, aðrir eftir aðra sérfræðinga. Það er bara til góðs og í anda erlendra yfirlitsverka. Eftir sem áður er mikil heild í þessu verki. Eina efamálið er hvort rétt hafi verið að líta á „kvenna- sögu“ sem sérstakt undirefni. Tíminn mun leiða það í ljós. Sem betur fer kem- ur það ekki i veg fyrir að þáttur kvenna í íslenskri kristni sé einnig ræddur á öðrum síðum bókanna. Áherslur í þessu verki eru nýstárleg- ar miðað við eldri yfirlitsverk um kristni. Þungamiðjan í ritverkinu er á félags- og menningarsögu, i takt við breytt áhugamál sagnfræðinga. Þannig tekst ritinu að vera farvegur fyrir nýjar H_____ áherslur í íslenskum sagnfræðirann- sóknum síðari ára; ekki sist í fyrri bind- 5-«»» um verksins þar sem kristnisagan er í raun íslandssaga. Það er ógjömingur að rita íslandssögu fram til 19. aldar án þess að kristni og kirkja séu þar í aöalhlutverki. Frá heiðni til kristni Hönnuðir bindanna fjögurra geta verið stoltir af; þau era sérdeilis smekkleg og falleg og segja má að hér verði bylting í útliti yfirlitsrita; rit- verkin Saga íslands og íslensk bókmenntasaga sem enn era að koma út eru eins og frá annarri öld við hlið þessa verks. Myndaritstjóramir Guðbjörg Kristjánsdóttir, Þóra Kristjánsdóttir og Inga Lára Baldvinsdóttir hafa staðið sig með mikilli prýði. Án mynda væri verkið ekki svip- ur hjá sjón enda tala þær ekki síður sínu máli en textinn. Sérstaklega vel til fundið er hvemig þriðja bindið fær heildarsvip af myndum guð- spjallamannanna fjögurra af predikunarstól kirkjunnar á Bæ á Rauöasandi. Fyrsta bindið snýst um sjálfa kristnitökuna og trúarbragðaskiptin, frá heiðni til kristni. Hjalti Hugason segir þessa sögu á nýstárlegan hátt, lýsir fyrst hinu evrópska samhengi en fær- ir sig síðan á norrænar slóðir og greinir frá nor- rænni heiðni og samfélagshlutverki hennar, síð- an segir hann frá kristnitökunni á Alþingi árið 1000 (eða 999) en ræðir síðan aðrar sagnir um kristniboð, um Þorvald víðforla, Þangbrand og félaga. Meö þessari aðferð næst fram meiri túlk- im heimilda og heimildarýni. Grundvallarrit um katólskan sið á ís- landl Heildstæðustu bindin era 2. bindi eftir Gunn- ar F. Guðmundsson og 3. bindi eftir Loft Gutt- ormsson. í báðum er tekist á við íslenskt samfé- lag sem heild og þar næst skemmtileg samfella þar sem fyrst er greint frá kirkjunni sem stofn- un og dregin er upp heildarmynd af tímabilinu, þá koma hin félagssögulegu og menningarsögu- legu yfirlit. Verk Gunnars mun lengi veröa grundvallarrit um katólskan sið á íslandi. Þar er áhersla á hið tvöfalda kerfi á há- og síðmið- öldum; þar sem konungsvald og kirkja voru yf- irþyrmandi öfl í samfélaginu. Verk Lofts Guttormssonar sameinar það að vera bæði vandað og stór- skemmtilegt og Loftur hefur mikla heildaryfirsýn. Hann lýsir siðskiptum, réttrúnaði og píet- isma sem brúaði bilið milli rétt- trúnaðar og upplýsingar. Það gerir hann á einstaklega skemmtilegan og lifandi hátt en nær um leið að draga upp mynd sem mun vera afar nýstárleg fyr- ir flesta lesendur kristnisögunn- ar. Þórunn Valdimarsdóttir segir sögu byltingaraldarinnar miklu, 19. aldar, þegar nýjar hugmyndir sneru öllu á haus. Ritfærni henn- ar kemur ekki á óvart. Rými hennar er þó heldur minna en Gunnars og Lofts og því ekki unnt að ná sömu heildaráhrif- um. Síðasta hlutann ritar Pétur Pétursson og sker sá hluti sig mest úr enda kristnisaga 20. aldar ekki þjóðar- saga á sama hátt og kristnisaga hinni fyrri alda. Það er ástæða til að óska öllum sem komu að þessu verki til hamingju. Alþingi gerði vel i að standa að þessari útgáfu og sú fagmennska sem þarna má sjá í hverjum krók og kima er til fyr- irmyndar. Kristni á íslandi í þúsund ár verður ekki betur minnst en með þessu ágæta riti. Ármann Jakobsson Hjalti Hugason, Gunnar F. Guömundsson, Loftur Gutt- ormsson, Þórunn Valdlmarsdóttir og Pétur Pétursson: Kristni á Islandi I—IV. Alþingi 2000. Af dyggðum Islendinga Annað hefti Tímarits Máls og menningar 2000 er komið út. Aðalþema heftisins tengist kristnitökuár- inu og ber yfir- skriftina Dyggð- imar sjö að fornu og nýju. Undir lok síðasta árs gerði Gallup skoðanakönnum meðal íslendinga þar sem þeir voru spurð- ir að því hvað þeir mætu mest í líf- inu, hvað þeir teldu vera dyggð, og var hugmyndin sú að kanna hvert gildismat íslendinga væri nú á ári árþúsundamóta. Þegar niðurstöður lágu fyrir voru fjórir fræðimenn, þau Jón Proppé, Salvör Nordal, Þór- unn Valdimarsdóttir og Gottskálk Þór Jensson, fengnir til að setja könnunina í hugmyndalegt, sögu- legt og bókmenntalegt samhengi við íslenska menningu frá upphafi til nútímans. Afraksturinn er forvitni- leg athugun á þjóðarsál og trúarvið- horfum íslendinga. í niðurstöðum Jóns Proppé kem- ur m.a. fram að langflestum þykir sterk fjölskyldu- og vinabönd mikil- vægust í hamingjusömu lífi, en fáir telja hins vegar starfsframa skipta sig miklu máli. Segir Jón einnig að íslendingar treysti á að þeir komist allt á dugnaði og vilja, að minnsta kosti með hjálp ættingja og góðra vina, en það eina sem þeir virðist hræðast er að missa heilsuna. Þórunn Valdimarsdóttir kemst að því að veröldin hefur lítið breyst og aö „samtímamenn íslenskir halla sér enn að næstum því sömu dyggð- um og kristnir módelmenn Evrópu gerðu gegnum aldirnar". Hún segir að Gallup bjóði upp á nýtt „dyggða- módel“ sem hún svo dýpkar með því að stilla því saman við það forna á einkar skemmtilegan hátt. Segir Þórunn að eftir því módeli geti hver og einn hnýtt sér sinn „dyggða- krans“. Guðbergur Bergsson birtir fjögur ljóð i þessu hefti tímaritsins og eru þau hnýsileg í meira lagi. Jóhann Hjálmarsson birtir einnig ljóð og í heftinu er að fmna þýðingu þeirra Böðvars Guðmundssonar og Mar- grétar Jónsdóttur á klassísku ljóði eftir eitt helsta skáld Argentínubúa, José Hernández. Sænski rithöfund- urinn Göran Tunström lést fyrr á þessu ári og af því tilefni birtist í tímaritinu kafli úr minningabók hans, Undan tímanum, í þýðingu Þórarins Eldjáms. Ættjarðarljóð á atómöld Vaka-Helga- fell hefur gefið út ljóðabókina Ættjarðarljóð á atómöld eftir Matthías Jo- hannessen á geisladiski og snældu og les skáldið sjálft ljóðin. Einnig fylgja á öðrum diski en í sama pakka ljóð úr þremur eldri bókum Matthíasar, fyrstu bók hans Borgin hló, Jörð úr ægi og Hólmgönguljóð- um. Ættjarðarljóðin hlutu afar góðar viðtökur þegar þau komu út fyrir jólin. Meðal annars sagði Sigríður Albertsdóttir hér í DV að þau hittu „beint í hjarta lesanda. Þau eru frá- bærlega ort, sterk, mögnuð og skemmtileg. Margir munu njóta þess að lesa þau á myrkum vetrar- kvöldum." Ekki er að efa að sumar- kvöldin henti alveg jafnvel til að hlusta á skáldið lesa þau. Þess má geta til gamans að vin- sælasta ljóðabókin árið 1999 miðað við útlán bókasafna var Árstíðar- ferð um innri mann sem Matthías Johannessen gaf út 1992, en næstir á eftir honum komu í þessari röð: Einar Már Guðmundsson, Hallgrím- ur Helgason, Hannes Pétursson og Jón úr Vör.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.