Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2000, Page 24
44
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000
Tilvera ÐV
lí f±6
Szymon Kuran á
miðvikumóti
Þaö er líkt og venjulega haldið
upp á hin margumræddu mið-
vikumót á Næsta Bar. Að þessu
sinni seiðir fiðluleikarinn
Szymon Kuran inn seinni hluta
vikunnar ásamt ónefndum sítar-
leikara. Tónaflóð hefst kl. 22 og
eins og alltaf er frítt inn.
* Klúbbar_______________________
■ 360' Á 22 Enn á ný er haldiö
360' á veitingastaönum 22 frá 21-
01. Þau Bjössi, Guðný og Exos sjá
fólki fyrir dúndur-drum&bass. 18 ára
aldurstakmark. 300 kall inn, 500
kall eftir 23.
Krár
■ DJUPHUS A THOMSEN Þeir
kumpánar Tommi White og Herb
Legowitz framleiöa Ijúfa djúphús-
tóna á Kaffi Thomsen. Meö rauðvín-
iö á kostakjörum á barnum finnst
, ekki þægilegri staður en Thomsen.
■ FREPRICK GAMARITH Á ROM-
ANCE Lifandi tónlist er á Café Rom-
ance öll kvöld. Fredric Gamarith er
mættur í annað sinn til að skemmta
landanum. Hann skemmtir frá í
kvöld frá 20-1.
Klassík
■ TONLEIKAR T VÁRÍVIÁRSKÓLA
Varmárþing-Mosfellsbær, Menning-
ardagskrá Mosfellinga, sem einnig
er hluti af samstarfsverkefni menn-
ingarborgarinnar og sveitarfélaga,
heldur áfram í dag og stendur til 17.
júní. Meöal viðburöa í kvöld eru tón-
leikar þar sem Diddú kynnir unga
tónlistarmenn úr Mosfellsbæ kl.
20.00 I Varmárskóla.
■ UNGIR EINSÖNGVARAR j SALN-
UM Ungir einsöngvarar koma fram í
Salnum T Kópavogi í kvöld. íslenska
einsöngslagiö frá miöbiki aldarinnar
í öndvegi. Fram koma Þórunn Guö-
mundsdóttir, Ólafur Kjartan Sigurð-
arson, Slgriður Jónsdóttir og Jónas
Ingimundarson. Tónleikarnir hefjast
kl. 20.30 og eru jafnframt hluti af
Tónskáldahátíðinni og Listahátíö.
Leikhús
■ BANNAÐ AÐ BLOTA Þaö er ekki
lítiö sem þær eru búnar að rífast
um þetta verk, stöllurnar Gerður
Kristný og Bergljót Arnalds. Þó
slagnum sé ekki enn lokiö stígur
W Nanna Kristín galvösk á sviöiö í
brúðarkjól í Kaffileikhúsinu í kvöld,
kl. 21, og þrumar einræðunum á
áhorfendurna. Kaffileikhúsiö býður
upp á Ijúffengan málsverð fyrir sýn-
inguna en taka skal fram aö Brúöar-
kjollinn verður aðeins sýndur út júní.
■ LANPKRABBINN Ellismellurinn
Landkrabbinn er marglofaö verö-
launaleikrit eftir Ragnar Arnalds.
Hann er snillingur og fyrrum þing-
maöur, fær sand af seölum í eftir-
laun og þaö eru því hæg heimatökin
hjá honum til að verða viö beiðni aö-
dáenda sinna og senda fleiri stykki
frá sér á næstunni.
-V'
Síðustu forvöð
■ HRAUN 00 MOSII HAFNAR-
FIRPI Steina Vasulka lýkur sýningu
sinni á videoinnsetningu í Ljósaklifi
Hafnarfirði. Sýningin ber heitiö
Hraun og mosi.
Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is
Grafarvogskirkja veröur vígð 18. júní:
Söfnuðurinn
bíður spenntur
- segir sóknarpresturinn, Vigfús Þór Árnason
Næstkomandi sunnudag veröur
Grafarvogskirkja vígð. Arkitektam-
ir Finnur Björgvinsson og Hilmar
Þór Bjömsson teiknuðu kirkjuna
sem er engin smásmíð. Aðalrými
kirkjunnar er á tveimur hæðum
sem hvor um sig er um eitt þúsund
fermetrar en Borgarbókasafnið hef-
ur aðstöðu i kjallara. Alls er bygg-
ingin 2890 fermetrar að stærð. Vig-
fús Þór Ámason sóknarprestur hef-
ur fylgst með smiði kirkjunnar allt
frá því að hafíst var handa við bygg-
ingu hennar 1991: „íslenskt krafta-
verk. Verkið er að klárast þótt ekki
hafi verið útlit fyrir það á stundum.
En það má treysta því að íslenskir
iðnaðarmenn ljúki sínu verki.“ í
gærmorgun voru kirkjuklukkurnar
dregnar upp í tum: „Það gekk afar
vel. Þær hófu sig til himins á glæsi-
legan hátt.“
Fyrsti áfangi kirkjunnar var tek-
inn I notkun 12. desember 1993 og
voru þá aðeins liðin fjögur ár frá
stofnun sérstakrar kirkjusóknar í
Grafarvogi - sem er því hin yngsta
á landinu: „Andinn í kirkjunni var
strax mjög góður og barnamessur
og annað starf mun halda áfram á
neðri hæðinni. Það hefur reyndar
verið það góður andi á hæðinni að
síðasta messan var einkar tilfinn-
ingaþrungin. Þetta verða þó auðvit-
að mikil viðbrigði. Við munum loks
Kirkjuklukkunum var komiö fyrir f
gærmorgun
„Þær hófu sig til himins á glæsi-
tegan hátt. “
iiIWr
Bf ~/ pj' •
)\/ n \X
r 1 II 1111 fjgr /m
1 ffítfí
Krístnitakan
Glerlistaverk eftir Leif Breiðfjörö.
Vigfús Þór Arnason sóknarprestur
„íslenskt kraftaverk. Verkið er að
klárast þótt ekki hafi verið útlit fyrir
það á stundum. En það má treysta
því að íslenskir iðnaðarmenn Ijúki
sínu verki. “
sjá út eftir að hafa verið i glugga-
lausu rými í sjö ár,“ segir Vigfús
Þór og bendir á að þar sé um
heilaga tölu að ræða.
Á kirkjuklukkurnar er letraður
frumortur vigslusálmur Sigur-
bjamar Einarssonar biskups.
/ dag leikur geisli um Grafarvog,
um götur og nes og sund.
Hann setidur er hœstum himni frú
á heilagri náöarstund.
Svo vermi sá geislinn Grafarvog,
að grói hvert blessaö sáö
og mannlíflö Kristi veröi vígt,
harts vilja, ást og náö.
Þá segir sóknarpresturinn það
sérstök forréttindi að kirkjan skuli
vígð á 2000 ára fæðingarafmæli
Krists auk þess sem 1000 ára afmæli
kristnitökunnar verði haldið hátíð-
legt í sumar: „Það eru forréttindi
fyrir yngstu en jafnframt fjölmenn-
ustu sókn landsins að fá að leggja
þetta af mörkum á jafn stórum tíma-
mótum. Þá erum við ríkisstjórninni
afskaplega þakklát fyrir glerlista-
verkið hans Leifs Breiöfjörðs sem er
engu líkt. Kirkjan sjálf er einnig
listaverk út af fyrir sig. Söfnuður-
inn bíður spenntur eftir að eignast
hana formlega á sunnudag og við
erum skaparanum afskaplega þakk-
lát.“
-BÆN
íslensk
Óhefðbundinn brúðarkjóll og brúðarvöndur:
ull, baömull og túlípanar
DV, HVERAGERD1:______________________
Ingibjörg Hanna Pétursdóttir hef-
ur unnið til margra verðlauna fyrir
fatahönnun sína, m.a. fyrir hönnun
kjóla úr fiskroði. Ingibjörg býr nú í
Hollandi en skrapp hingað heim fyr-
ir skömmu til þess að giftast Bas
Mijnen, hollenskum stærðfræðingi.
Að sjálfsögðu hannaði Ingibjörg
sjálf sinn brúðarkjól en hann er úr
íslenskri ull sem þæfð er inn í
baðmull. Brúðarvöndur Ingibjargar
var einnig óhefðbundinn, 10 rauðir
túlípanar. Ingibjörg útskrifaðist frá
Utrecht-listaskólanum árið 1998 og
lauk síðan mastersnámi í fatahönn-
un frá listaháskóla í París. Ingibjörg
hannar nú og selur i Ósló, London
og Reykjavík. Sérgrein hennar eru
fót úr íslenskri ull. -eh
DV-MYNDIR EVA HREINSDÖTTIR.
Dagurinn þeirra
Brúðhjónin Ingibjörg Hanna og Bas Mijnen innan um brúðkaupsgestina.
Sérstæður brúðarkjóll
Eins og vænta mátti fór Ingibjörg Hanna ekki heföbundnar slóðir þegar
hún hannaði brúðarkjólinn sinn með túlípanavöndinn. Hér er hún og að
baki henni fjöldi gjafa sem ungu hjónunum barst.