Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2000, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 2000 11 Fréttir Jarðskjálfti upp á 6,5 á Richter: Stærsti jarðskjálfti í 88 ár - Almannavarnir hvetja til varúðar Hús eyðilögðust og vegir klofiiuðu þegar jarðskjálfti að stærð 6,5 á Richter reið yflr landið tæpum 20 mín- útum fyrir 4 á þjóðhátíðardaginn. Skjálftinn átti upptök sín um 9 kíló- metra suður af Ámesi, eða skammt suðvestan við Hellu en hann fannst greinilega allt vestur á ísafjörð þar sem glamraði í leirtaui. Þetta er stærsti skjálfti sem orðið hefur á Suð- urlandi frá árinu 1912. Rúmlega 30 hús á Hellu og nágrenni skemmdust eða eyðilögðust og á annað hundrað milljóna króna tjón varð í glerverksmiðju á Hellu en starfsmaður þar slapp naumlega frá glerfarginu með því að stökkva upp á borð. Þá lok- aðist fyrir heitt vatn á Hellu og Hvols- velli þegar leiðslur fóru í sundur á nokkrum stöðum og enn var vatns- laust á Hvolsvelli í gærkvöld. Gífurlegar skemmdir urðu á húsum í sveitum Suðurlands af völdum skjálftans á laugardag og skemmdust mörg gróðurhús og laskaðist stærsta kjúklingabú landsins skammt frá Hellu þónokkuð. Samgöngukerfið á Suðurlandi riðl- aðist í kjölfar skjálftans á laugardag eftir að malbik hafði rifnað og hátt í háifs metra djúpar sprungur og mis- gengi höfðu myndast á vegmn. Þá þurfti að loka Ölfusárbrú og Þjórsár- brú svo eitthvað sé nefnt. Mikið álag var á símkerfmu eftir skjáiftann og datt hluti GSM-kerfis símans út um tíma. Almannavamir Rangárvaliasýslu héldu fræðslufund á Hellu síðdegis í gær þar sem vísindamenn sögðu mannvirki hafa staðist skjálftann furð- anlega vel. Raforkukerfl stóðust skjálftann þó rafmagnsstaurar hafi víða ýmist hækkað eða lækkað vegna landsigs og landriss. Skjálftinn hafði engin áhrif á Hvalfjarðargöngin. Uggur greip um sig á Suðurlandi eft- ir skjátftann á laugardag og áræddu margir ekki að gista í húsum sínum en margir íbúar Hellu -og nágrennis eyddu nóttinni í tjaldi. Almannavamir ríkisins treystu sér ekki til að meta skemmdir af völdum skjálftans þegar DV hafði samband í gær en ljóst er að hitaveitur í Ámes- og Rangárvallarsýslum em stór- skemmdar og híbýli fólks víða löskuð. Það var lán í óláni að margir vora að heiman í fyrradag þegar skjálftinn reið yfir en þá fógnuðu landsmenn þjóðhátíðardeginum. Slys á fólki vora óveruleg en ein kona fótbrotnaði í Vestmannaeyjum þegar hún flúði grjóthrun og maður axlarbrotnaði þeg- ar hann féll úr hjólastól. Þúsundir eftirskjáifta urðu í gæmótt á Suðurlandi og allt vestur í Bláfjöll, en allir voru þeir tiltölulega veikir, á bilinu 2 til tæplega 4 á Richt- er. Almannavarnir ítrekuðu þau til- mæli til fólks í gær að hafa allan var- ann á og kynna sér rétt viðbrögð við jarðskjálftum í símaskránni á blað- síðu 24-29 (blaðsíðutalið er að finna í efra homi). -jtr DV MYNDIR- HILMAR ÞÓR Blóm hrundu úr loftl Áslaug Rut Kristinsdóttir, starfsstúika í Skálholti, sópar upp blómum sem hrundu úr lofti í Skálholti. tlepill takna^>skjalftavirkni á tilteknu svæ.ði. Stærö deppla akvaróast-a'l stærö skjálftans. Þjóðhátíðarskjálftinn: Miklar hræringar á Selfossi ' Jarðskjálftinn á laugardaginn var öflugur á Selfossi þó að hann ylii ekki teljandi tjóni þar. Á Selfossi var fólk eins og víðar að halda upp á þjóðhátíðardaginn. Fjölmenni var við sundlaugina á Selfossi að fylgj- ast með dagskrá þegar skjálftinn reið yfir. Sundlaugin varð eins og úfinn sjór í skjálftanum og eftir hann leystist dagskráin við hana upp. Brúnni yfir Ölfusá við Selfoss var lokað fyrst eftir skjálftann þar til búið var að ganga úr skugga um að hún væri í lagi. I verslun KÁ á Selfossi var talsverður fjöldi fólks, þar hrundi úr hillum og fólk þusti út eftir ósköpin. Dagmar Ýr ásamt syni og eiginmanni. „Mér var náttúruhamfarir. „Viö erum úr mjög brugðið Hafnarfirði og höfum áður fundið þegar skjálft- jarðskjálfta en ekkert sem kemst í inn reið yfir. líkingu við þetta, svo þurftum við Ég var þá endilega að vera héma fyrir austan inni í búð- þegar þetta dundi yfir,“ sagði Jón- inni, hlutir ína. hrundu úr Fjöldi fólks var úti við á Selfossi hillum allt í þegar jarðskjálftinn kom. „Við vor- kringum mig um hérna fyrir utan og fundum og maðurinn skjálftann greinilega, fólk þusti út minn tók yfir úr KÁ og bílarnir hérna á planinu höfuðið á dönsuðu fram og aftur. Fólkinu sem börnunum kom út úr búöinni var greinilega okkar,“ sagði mjög brugðið við þessi ósköp, enda Jónína Ragn- gekk mikið á, við heyrðum alla leið arsdóttir sem hér út á planið þegar var að hrynja var mjög úr hillunum inni í búðinni," sagð brugðið eftir Dagmar Ýr sem var ásamt fjöl- að hafa upp- skyldu sinni í helgarferð fyrir aust- lifað þessar an fjall á þjóöhátíðardaginn. DV-MYNDIR NH Jónína Ragnarsdóttir og Róbert Arnbjörnsson Ég var þá inni í búöinni, hlutir hrundu úr hillum allt í kringum mig og maöurinn minn tók yfir höfuöiö á börnunum okkar, “ sagöi Jónína Ragnarsdóttir. V I m Fjörugur 17. júní í Skálholti - kaffigestir áttu fótum fjör aö launa Hilmar Þór Guðmundsson, ljósmyndari DV, var staddur í Skálholti þegar jarðskjáiftinn reið yfir. Þar sat fólk við kaffidrykkju þegar allt hristist allt í einu og nötraði. Það tók fólk um það bil 5 sekúndur að átta sig á hvað væri að gerast en þegar það áttaði sig á þvi þá flýttu allir sér út fyrir. Nokkru síðar kom eftirskjálfti sem skók jörðina og bílar vögguðu til. Það var greinilegt að skjálftinn var stór. Fólk var skelfingu lostið og var greinilegt að enginn var undirbúinn fyrir slíkar jarðhræringar. Þessi 17. júní verður lengi í minnum hafður eða eins og ein stúlka sagði eftir að skjálftinn gekk yfir og ró var kominn yfir fólk „Kaffi, kökur, sól, 17. júní og jarðskjálfti". -Hilmar Þór „Var rosalega hrædd,“ sagöi Bergtlnd Jónsdóttir, 10 ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.