Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2000, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2000, Blaðsíða 32
44 MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 2000 Tilvera I>V ■ UUFT A NAUSTINU Enska söng konan og píanóleikarinn Liz Gamm- on sér um Ijúfa tóna í bar og koníak- stofu Naustsins. , Sveitin ■ MALÞING I ISAFJARÐARBÆ Staða kvenna um aldamót í sögu- legu samhengi er yfirskrift málþings sem kvenfélögin í Isafjaröarbæ sam- einast um aö halda í tilefni af kvennadegi 19. júní. Leikhús ■ LOKI I NORRÆNA HUSINU Leik hópurinn Loki sýnir kl. 20 í Norræna húsinu. Loki er ellefu manna hópur íslendinga, Dana og Svía sem hafa unnið saman í eitt ár. Stjórnandi leikhópsins er myndlistarkonan og * leikstjórinn Jónhildur Valgeirsdóttir sem einnig semur handrit að verk- inu. Fiðluleikarinn Kerstin Backlin samræmir tónlistina sem er blanda af klassískri og þjóðlegri tónlist. Sýningin ber yfirskriftina Rejsen hjem. Þar er gengið út frá málverkum Jónhildar sem grunnþema en auk þess mynda tónlist, hreyfing, söngur og grímur umgjörðina um verkið sem sækir orku og hugmyndir í náttúrukraftinn sem í ollum óýr. Verkið er tjáning á þeim andstæðum sem í kringum okkur eru og skaþa þann heim sem við lifum í - himinn ogjörð, maður og kona, gott og illt, tryllingur og rósemi. Upphaf og endir alls. Bíó ■ RAFEIND. EGILSSTOÐUM Stór myndin Gladiator er sýnd í Rafeind- inni kl. 20. Bönnuð innan 16 ára. Sport ■ LINUSKAUTAKVOLD I tengslum við Sumaríþróttavikuna verður línu- skautakvöld í kvöld þar sem allir eru hvattir til að mæta og skauta á göngustígum við Fossvog og Skerja- flörð. Kennsla fyrir almenning hefst kl. 18.00. Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is 11 f iö [E F T 'I ;R. .. :V l Kvennamessa í Laugardal , í kvöld, á kvenréttindadagixui, verður kvennamessa við þvotta- laugamar í Laugardal kl. 20.30 í samvinnu Kvennakirkjunnar, Kvenréttindafélags Islands og Kvenfélagasambands íslands. Fjölbreytt dagskrá er í boði og Kafli Flóra í Grasagarðinum er opið en þar verður hægt að kaupa veitingar að lokinni messu. Krár Hlýindin settu svip á hátíðahöld á þjóðhátíðardaginn: Hátíðahöld í rjómablíðu Fjölskylda á villigötum Þessi andamamma fór ásamt ungum sín- um í bæinn til aö taka þátt í hátíöa- höldunum. Ekki þótti laganna vörðum fjöl- skyldunni vera óhætt í miöbænum og fékk hún fylgd til heim- kynna sinna viö Tjörnina. Dansað í rigningu Aö kvöldi þjóöhátíöardagsins var dansað í miöbænum og fólk lét ekki á sig fá þótt nokkuö rigndi framan af. Mæðgur á upphlut Ekki gengur annaö en aö vera vel gyrtur og snyrtilegur þegar fólk klæðist þjóöbún- ingum. Hátíðahöld á 17. júní fóru fram í óvenjugóðu veðri að þessu sinni en nokkuð rigndi á hátíðargesti í mið- bæ Reykjavíkur að kvöldi þjóðhátíð- ardagsins. Jaröskjálftinn setti svip sinn á miðbæinn um tíma en ekki greip þó um sig neinn ótti enda var fólk grunlaust um hversu alvar- legar hamfarirnar voru þangað til heim var komið og farið að fylgj- ast með fréttum. Um 20.000 manns voru í mið- bænum síðdegis þegar mest var og fóru hátíðahöld einstaklega vel fram. Um kvöldið er talið að milli 10 og 15 þúsund manns hafi verið í bænum og gengu hátíðahöldin þá einnig vel að sögn lögreglu. DV-MYNDIR EINAR J. Við leiði Jóns Sigurðssonar Forseti borgarstjórnar, Helgi Hjörvar, lagöi blómsveig að leiöi Jóns Sigurössonar aö morgni þjóöhátíöardagsins. Breikað á Ingólfstorgi Ungir krakkar léku listir sínar í marg- víslegum dönsum á Ingólfstorgi, allt frá samkvæmisdönsum yfir í breik og freestyle. Víkingaskipstjóri kvaddur Víkingaskipiö Islendingur lét úr höfn á þjóöhátíöardaginn og á langa ferö fyrir höndum vestur um haf. Hér sést skipstjórinn, Gunnar Marel Egg- ertsson, kveöja konu sína. Að loknum sundspretti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir efndi loforö sitt og stakk sér til sunds í Nauthóls- vík á 17. júní. Hér er hún meö Eyjólfi Jónssyni sundkappa sem synti meö henni en hann er 75 ára og sonur síöustu ábúenda á bænum Nauthól. Biogagnryni Háskólabíó - East Is East: -k-kir Alvöruþrungin skemmtan Björn Æ. Norðfjörð skrifar gagnrýni um kvikmyndir Hér er sögð saga hjónanna Geor- ge Khan (Om Puri) og Ellu (Linda Bassett), Pakistana og Englendings. Ástir þeirra hafa gefið af sér sjö börn, sex pilta og eina stúlku. Faðir- inn vill ala þau upp í siðum og trú fósturjarðarinnar þótt bömin hafi aldrei stigið fæti í Pakistan. Veldur þetta auðvitað margvíslegum árekstrum en allt er þetta þó í jafn- vægi þar til kemur að giftingum barnanna. Snemma í myndinni á elsti sonurinn að giftast konu sem faðirinn hefur valið honum en hann sjálfur aldrei séð. Þetta reynist hon- um um megn og hann flýr á brott og George afneitar honum. Þetta kem- ur miklu róti á fjölskylduna og þeg- ar faðirinn ætlar að endurtaka leik- inn sýður upp úr. East is East reynir að sameina grín og alvöru og tekst það ágætlega þótt stundum sé vaðið óvarfærnis- lega á milli brandara og háalvar- legra atriða. Þetta kemur nokkuð niður á persónu Om Puri, fóðurnum sem er bæði kómískur karakter en einnig alvarleg uppspretta vanda- mála fjölskyldunnar. Linda Bassett er góð í sínu hlutverki en Ella er þversagnakenndur karakter líkt og George. Synirnir sex og systir þeirra eru skemmtilegar flgúrur og óþarft að gera upp á milli þeirra. Fjölmargar aðrar persónur koma við sögu og lífga mjög upp á at- burðarásina. Þótt East is East sé að fjalla um alvarlegt efni eru efnistökin uppfull af galsa. Birtist það einnig skemmti- lega í myndmálinu; þar sem myndrammi kvikmyndarinnar er oft notaður á frumlegan máta auk þess sem að hefðbundnir mynda- rammar koma við sögu í bráðsnjöll- um atriðum. Þessi galsi gerir mynd- ina fyllilega þess virði að horfa á þótt bæði uppbygging sögunnar og lykilpersónur séu nokkuð þver- sagnakenndar. Kannski er það þó bara við hæfi í mynd sem fjallar um árekstur ólíkra menningarheima. Lelkstjóri: Damien O’Donnell. Handrit: Ayub Khan-Din. Aöalhlutverk: Om Puri, Linda Bassett, Jordan Routledge, Archie Panjabi, Emil Marwa, Chris Bisson, Jimi Mistry, Raji James, lan Aspinall og Lesley Nicol.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.