Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2000, Side 15
15
MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 2000
DV
Menning
Umsjón: Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
Tónlist
Lagið sem ekki
var sungið
Síðari einsöngstónleikarnir á há-
tíð Tónskáldafélagsins voru haldnir
á miðvikudagskvöldið í Salnum í
Kópavogi. Þar komu fram þau Þór-
unn Guðmundsdóttir sópran, Sigrið-
ur Jónsdóttir mezzósópran og Ólaf-
ur Kjartan Sigurðarson baritón.
Meðleikar voru þau Gerrit Schuil,
Jónas Ingimundarson og Ingunn
Hildur Hauksdóttir. Á efnisskránni
voru lög samin frá 1950 til loka ni-
unda áratugarins, en aðrar upplýs-
ingar var ekki að finna í tónleika-
skránni. Til dæmis var hvergi getið
höfunda textanna, og fróðlegt hefði
verið að vita tilurð hvers lags,
hvenær það var samið o.s.frv.
Eins og gengur eru lögin misjöfn
að gæðum, sum eru klunnaleg og til-
gerðarleg á meðan önnur eru fögur
og innblásin. Eitt fallegasta lagið á
efnisskránni var Það vex eitt blóm
eftir Jón Þórarinsson, og einnig má
nefna Eins og leikur fiðrildanna eft-
ir Ingibjörgu Þorbergs, Á bænum
stendur stúlkan eftir Árna Björns-
son og Vor hinsti dagur eftir Jón
Ásgeirsson.
Nokkra eftirvæntingu vakti að sjá
lagið Rakki eftir Magnús Blöndal
Jóhannsson á efnisskránni en hann
er einn helsti brautryðjandi ís-
lenskrar tónlistar og verk hans
heyrast sjaldnar en þau eiga skilið.
Það var Ólafur Kjartan Sigurðarson
sem átti að flytja þetta lag en hann
hætti við það á síðustu stundu og
bar við feröaþreytu. Það kemur svo
sem ekki á óvart að hann hafi verið
orðið þreyttur í lok tónleikanna því
hann belgdi sig helst til mikið og
söng almennt of sterkt. Auðvitað
eru hápunktar í mörgum lögum þar
sem ekkert á að gefa eftir en þegar
svo til alltaf er sungið fullum hálsi
fer það að hljóma eins og hvert ann-
að villt öskur. Ólafur Kjartan vakti
mikla athygli í óperunni Lúkretía
svívirt sem var á fjölum íslensku
óperunnar fyrir skemmstu, en hér
stóð hann engan veginn undir nafni.
Oft var túlkunin ólýrísk og hrein-
lega gróf og þó bæði neðra og mið-
svið raddarinnar væri vel mótað
var eins og hann næði ekki al-
mennilega efstu tónunum. Ólafur
Kjartan er vissulega hæfileikaríkur
söngvari en hann má ekki láta ein-
föld íslensk sönglög hljóma eins og
lokasprettinn í óperu eftir Wagner.
Litlu betri var frammistaða Sig-
ríðar Jónsdóttur mezzósópran þó
hún hafi reyndar sýnt ljóðræna til-
finningu hér og þar. Ólíkt Ólafi
Kjartani heyrðist illa til hennar og
hugsanlega var hún ekki í góðu
formi því það vottaði fyrir hæsi í
rödd hennar. Textaframburður var
næsta óskiljanlegur og röddin var
óþægilega hol. Er þetta synd því Sig-
ríður er greinilega músíkölsk og get-
ur örugglega sungið með mun meiri
tilþrifum. Kannski var hún bara
svona taugaóstyrk á tónleikunum.
Meðleikararnir stóðu sig allir
prýðilega. Athygli vakti frammi-
staða Ingunnar Hildar Hauksdóttur
píanóleikara, en undirritaður hefur
ekki heyrt í henni áður. Hún lék
með Þórunni Guðmundsdóttur sópr-
an, sem var stjarna kvöldsins, örugg
á sviði með góða öndun og eftir því
magnaða raddbeitingu. Röddin var
tær, textinn skýr, tónamir silki-
mjúkir og var túlkun hennar sér-
lega áhrifarík. Undirritaður hefur
heyrt Þórunni syngja nokkrum
sinnum áður og hefur frammistaða
hennar ávallt verið glæsileg. Ljóst
er að hún er í flokki fremstu söngv-
ara landsins og á eftir að kveða að
henni í framtíðinni.
Jónas Sen
Isuzu
NKR
Til sölu: Isuzu árg. '92. Ekinn 101 þús. km.
Mál á kassa: Hæð 2,14 - Breidd 2.12 - Lengd 4.0.
Lyfta 1,5 tonn, blað 1,58 m.
Ein hurð á vinstri hlið, tvær á hægri hlið.
Stjórna má lyftu úr ökumannssæti.
Þokkaleg vetrardekk. Spoiler.
Fjaðrandi ökumannssæti.
Uppiýsingar veita: Bílasalan Hraun - 565 2727
___________________ístraktor ehf - 540 0800 ,
36
: II*
Hftí
« £ S l N
^OUSH
Dekraðu við bfíinn
. me& Auto Clym bílasnyrtivörunum.
[tsso]
Olíufélagið hf
www.esso.ls
EURO
2000
Allt um Evrópukeppnina í
-ir* knattspyrnu á Vísi.is.
uisir.is
Fila nærföt og Speedo sundfatnaður 20% afsláttur
^ r
r c
1 ’
1
il 71 » w ij JJ f»J
v—r —