Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2000, Page 28
40
MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 2000
DV
Ættfræði_________________
Umsjón: Helga D. Sigurðardóttír
■B9
95 ára________________________________
Sigríður Bjarnadóttir,
ji Hvassaleiti 58, Reykjavík.
85 ára________________________________
Jón Gíslason,
Skálafelli 1, Höfn.
80 ára________________________________'
Stefanía Sigurjónsdóttir,
Skúlagötu 70, Reykjavik.
Z5_ára________________________________
Auöur Þórðardóttir,
Ljósheimum 10, Reykjavík.
70 ára________________________________
Geir Sigurjónsson,
Þúfubarði 6, Hafnarfirði.
Hermann Sigurösson,
-Faxabraut 1, Keflavík.
Kristín Bjarnadóttir,
Óðinsgötu 15, Reykjavík.
Sigvaldi Sigurjónsson,
Hlégerði 17, Kópavogi.
Stefnir Steingrímsson,
Reykjavík.
60 ára________________________________
Jón Gunnar Jónsson,
Austurvegi llb, Vík.
50 ára________________________________
Elín Gunnarsdóttir,
Reynimel 74, Reykjavík.
Guðmunda Lára Guðmundsdóttir,
Kirkjubraut 35, Njarðvík.
Níels Breiðfjörð Jónsson,
Núpasíðu 4c, Akureyri.
Oddbjörg Óskarsdóttir,
Eyjabakka 28, Reykjavík.
> Ólafur Sigurðsson,
Grænahjalla 13, Kópavogi.
Sigrún Guöjónsdóttir,
Laufengi 8, Reykjavík.
Þorbjörg Ólafsdóttir,
Hofströnd, Borgarfirði eystri.
40 ára________________________________
Aðalbjörg Hrafnsdóttir,
Hörgshlíð 18, Reykjavík.
Bárður Rafnsson,
Eyrarvegi 12, Grundarfirði.
Bjarni Jón Sveinsson,
Aöalstræti 26a, ísafiröi.
Guörún Ara Arason,
1 Háteigsvegi 25, Reykjavík.
Hafdís Björgvinsdóttir,
Víkurgötu 7, Stykkishólmi.
Hanna Bára Guðjónsdóttir,
Grófarsmára 36, Kópavogi.
Hildur Sólveig Thorarensen,
Holtsgötu 44, Sandgerði.
Hlynur Sigbjörnsson,
Laugavöllum 18, Egilsstöðum.
Jón Valgeir Viggósson,
Bekansstöðum, Skilmannahreppi.
Kristín Kristjánsdóttir,
Kögurseli 17, Reykjavtk.
Ólafur Björnsson,
Hvannahlíð 2, Sauðárkróki.
Óskar Jóhann Jóhannsson,
Vallargerði 12, Reyðarfirði.
Randver Agnar Steinsson,
Þrastarhólum 6, Reykjavík.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Olsen Baldur Fredriksen
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðjrhlíö35 • Slmi 581 3300
allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
, . -■WmUnZZLma
Guðrún Jónsdóttir, Hellisgötu 19, Hafn-
arfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarö-
arkirkju mánudaginn 19.6., kl. 13.30.
Sigurður Jónsson, frá Syðri-Björgum á
Skaga, verður jarðsunginn frá kapellunni
við kirkjugarðinn f Hafnarfirði mánudag-
* inn 19.6., kl. 15.
Smáauglýsingar
550 5000
Halldóra Ingimarsdótttir
húsmóðir
Halldóra Ingimarsdóttir húsmóð-
ir, Ásvegi 21, Akureyri, er áttræð í
dag.
Starfsferill
Halldóra fæddist á Þórshöfn á
Langanesi og ólst þar upp í foreldra-
húsum. Hún lauk gagnfræðaprófi
frá MA 1938 og stundaði símavörslu
á Þórshöfn og verslunarstörf á Ak-
ureyri.
Halldóra og maður hennar fluttu
til Akureyrar 1951 og hafa verið þar
búsett síðan.
Fjölskylda
Halldóra giftist 14.8.1944 Jóhanni
Gunnari Benediktssyni, f. 9.1. 1916,
tannlækni. Hann er sonur Bene-
dikts Bjömssonar, skólastjóra á
Húsavík, og k.h., Margrétar Ás-
mundsdóttur húsmóður.
Börn Halldóru og Jóhanns Gunn-
ars eru Margrét, f. 6.3. 1953, hús-
móðir á Húnavöllum, gift Amari
Einarssyni skólastjóra og eiga þau
þrjú börn; Ásgeir, f. 12.7. 1956, raf-
magnstæknifræðingur, en hann
rekur eigið fyrirtæki, búsettur i
Mosfellsbæ, kvæntur Helgu Sigurð-
ardóttur, nuddara og aðstoðar-
stúlku hjá tannlækni, og eiga þau
þrjú böm.
Bamabamaböm Halldóru eru orðin
fimm talsins.
Systkini Halldóru eru Sofiia Arn-
þrúður, f. 26.3.1912, nú látin, húsmóð-
ir og stöðvarstjóri á Þórshöfn; Hólm-
fríður Þórdís, f. 26.6. 1913, nú látin,
húsmóðir í Reykjavík; Helga Aðal-
björg, f. 27.1. 1915, d. 1945, húsmóðir á
Þórshöfn; Steinunn Bima, f. 9.10.1916,
nú látin, húsmóðir á Þórshöfn; Am-
þrúður, f. 12.7.1918, nú látin, húsmóð-
ir á Akureyri; Oddný, f. 1.6.1922, kaup-
kona í Reykjavík; Jóna Gunnlaug, f.
23.11.1923, nú látin, húsmóðir og skrif-
stofumaður i Reykjavik; Jóhann (Nói),
f. 23.7. 1926, húsgagnasmiður og kaup-
maður á Akureyri; Ingimar, f. 24.8.
1929, fyrrum prófastur á Þórshöfn;
Árni, f. 1.10.1932, dó í barnæsku.
Foreldrar Halldóm voru Ingimar
Baldvinsson, f. 20.11.1891, d. 30.1.1978,
b. og útgerðarmaður á Þórshöfn, og
k.h., Oddný Friðrikka Ámadóttir, f.
16.7.1893, d. 29.9. 1977, húsmóðir.
Ætt
Ingimar var sonur Baldvins, b. á
Fagranesi á Langanesi, Metúsalems-
sonar, b. í Hamragerði, Sigurðssonar,
umboðsmanns á Eyjólfsstöðum á Völl-
um, Guðmundssonar, bróður Páls,
langafa Móeiðar, ömmu Ólafs biskups
og Helga leikara Skúlasona. Móðir
Ingimars var Hólmfríður, systir Ing-
unnar, ömmu Gylfa Þ. Gíslasonar og
Gunnlaugs Schevings listmálara.
Hólmfríður var dóttir Stefáns, um-
boðsmanns á Snartarstöðum, Jóns-
mamssm
Aðalsteinn Sigurðsson
utgerðarmaður
Aðalsteinn Sigurðsson útgerðar-
maður, Ási, Hafnarbyggð 37, Vopna-
flrði, varð sjötíu og fimm ára mánu-
daginn 12. júní.
Starfsferill
Aðalsteinn fæddist á Ási á Vopna-
firði og ólst þar upp. Hann stundaði
nám við Héraðsskólann á Laugum í
2 vetur og lauk síldarverkunarprófi
á Siglufírði 1957. Hann var 9 ára er
hann byrjaði að beita, var sína
fyrstu vetrarvertíð á Höfn í Homa-
firði og stundaði þaðan 11 vertíðir
eftir að hann lauk námi á Laugum.
Þá var hann 2 vertíðir í Reykjavík
og á sjó frá Keflavík 1957. Aðal-
steinn var á sUdveiðum sumrin
1947-50 á bátum frá Eskifírði og
Neskaupstað. Aðalsteinn og Sveinn,
bróðir hans, byggðu í frístundum
Ásbryggju á Vopnafirði, árið 1949
en þar varð síðar sUdarsöltunar-
stöð. Hann var verkstjóri og sUdar-
matsmaður hjá Auðbjörgu hf.
1956-70, hjá Kristni og Aðalsteini
Jónssonum er leigðu þá bryggju og
aðstöðu Aðalsteins og Sveins á
Vopnafirði. Næstu árin leigði Tangi
hf. aðstöðuna og var BakkasUd sf.
stofnuð skömmu síðar. Aðalsteinn
og Sveinn hófu grásleppuveiðar um
1960. Þá stofnuðu þeir fyrirtækið
Ásbræður og eiga saman trUluna
Fuglanes NS 72. Auk þess hefur Að-
alsteinn stundað þorskveiðar, bygg-
ingavinnu, múrverk og almenna
verkamannavinnu. Aðalsteinn hef-
ur verið í Hvítasunnusöfnuðinum
um árabU, lagði hönd á kirkjubygg-
ingu safnaðarins 1954 og hefur ver-
ið gjaldkeri síðan 1954. Þá var hann
i mörg ár
gjaldkeri
ungmennafé-
lagsins Ein-
herja.
Fjölskylda
Aðalsteinn kvæntist 2.6.1955 Stef-
aníu Sigurðardóttur, f. 22.7. 1925, d.
13.8.1968, húsmóður. Hún var dóttir
Sigurðar R. HaUdórssonar, b. að
Galtahrygg i Mjóafirði við Djúp, og
Guðmundínu Jónsdóttur húsfreyju.
Börn Aðalsteins og Stefaníu: PáU,
f. 23.7. 1956, bátasmiður, en kona
hans er Astrid Aðalsteinsson og
eiga þau 3 böm; Ásmundur, f. 9.9.
1957, húsasmiður; Rósa, f. 30.9. 1958,
verkakona.
Systkini Aðalsteins: Pála Mar-
grét, f. 14.1. 1921, d. 21.1. 1994, hús-
móðir i Reykjavík, maður hennar
var Ásmundur Kristmann Jakobs-
son; Svava, f. 22.12.1921, húsmóðir á
Reyðarfirði, hennar maður var Val-
týr Þórólfsson; Sveinn, f. 12.6. 1925,
d. 24.11. 1997, tvíburabróðir Aðal-
steins, útgerðarmaður á Vopnafirði;
Guðni Þórarinn, útgerðarmaður á
Vopnafirði, kona hans er LUja Aðal-
steinsdóttir.
Foreldrar Aðalsteins: Sigurður
Þorbjöm Sveinsson, f. 16.7. 1892 að
Hákonarstöðum, Jökuldal, d. 2.9.
1978, símamaður og bóndi að Ási í
Vopnafirði, og Katrin Ingibjörg
Pálsd., f. 2.6. 1896, d. 28.4. 1978, yfir-
setukona og húsfreyja. Foreldrar
Sigurðar voru Sveinn Sigurðsson
bóndi og Guðbjörg Jóhannesd. hús-
móðir. Foreldrar Katrínar voru PáU
Jónsson bóndi og söðlasmiður og
Guðný Margrét Eiríksd. húsmóðir.
sonar, prests á Helgastöðum, Stef-
ánssonar. Móðir Jóns var Þuríður
Jónsdóttir, systir Þorgríms, langafa
Gríms Thomsens. Móðir Baldvins
var Guðrún Skúladóttir, systir
Sveins, langafa Kristjönu, móður
Brynjólfs Bjarnasonar, forstjóra
Granda.
Oddný Friðrikka var dóttir Árna,
pósts á Vopnafirði, Sigbjarnarsonar,
prests á KálfafeUsstað, Sigfússonar.
Móðir Sigbjamar var Ingveldur
Jónsdóttir, prests í Þingmúla, HaU-
grímssonar, bróður Þorsteins, afa
Jónasar HaUgrímssonar skálds.
Móðir Ingveldar var
Ingibjörg Þórðar-
dóttir af Arnheiðar-
staðaættinni. Móðir
Árna var Oddný
Pálsdóttir Thoraren-
sen, prófasts í Sand-
feUi, Magnússonar,
klausturhaldara á
Munkaþverá, Þórar-
inssonar, ættföður
Thorarensenættar-
innar, Jónssonar.
Móðir Oddnýjar
Pálsdóttur var Anna
Benediktsdóttir,
systir Sveins, afa
Einars Benedikts-
sonar skálds. Móðir
Oddnýjar Árnadóttur
var Þórdís, systir Stefáns, afa Stef-
áns Benediktssonar þjóðgarðsvarð-
ar. Þórdis var einnig systir Guðnýj-
ar, ömmu Einars Braga rithöfund-
ar. Þórdís var dóttir Benedikts, b. á
Brunnum í Suðursveit, bróður Guð-
nýjar, ömmu Þórbergs Þórðarsonar.
Móðir Þórdísar var Ragnhildur Þor-
steinsdóttir. Móðir RagnhUdar var
Guðný Einarsdóttir. Móðir Guðnýj-
ar var Ragnhildur Sigurðardóttir.
Móðir Ragnhildar Sigurðardóttur
var Sigríður Jónsdóttir „eldprests”
Steingrímssonar.
Pauline Scheving Thorsteinsson
húsmóðir og forseti Félags nýrra íslendinga
Pauline Scheving Thor-
steinsson, húsmóðir og
forseti Félags nýrra ís-
lendinga, Hrísrima 2,
Reykjavík, verður fertug í
dag.
Starfsferill
Pauline fæddist í borg-
inni Glasgow í Skotlandi
og sleit þar barnsskónum.
Að lokinni grunnskólagöngu 1977
hóf hún nám i Stow CoUege of
Technology og útskrifaðist þaðan
árið 1979. Þá fór hún í Glasgow Col-
lege of Technology (Caledonia há-
skóli) og lauk þaðan próti árið 1983.
Á árunum 1986 til 1987 var hún við
nám i blómaskreytingum við Glas-
gow CoUege of Agriculture and
Floristry. Á árunum 1977-84 vann
Pauline sem meinatæknir við
Histopathology & Cytology Dept.
StobhiU hospital. Árið 1981 var hún
sjálfboðaliði fyrir International
Relief Friendship Foundation á
Tailandi og í Malasíu.
Árin 1984-86 rak hún veitinga-
staðinn American DeUicatessan í
Glasgow og frá 1987 til 1988 starfaði
hún sem blómaskreytingakona í
Glasgow.
Frá 1989-92 var Pauline aftur
sjálfboðaliði fyrir sömu samtök og
áður, í þetta sinn í Englandi,
Búlgaríu og Rússlandi. Frá 1993-96
var hún varaforseti Heimsfriðar-
sambands kvenna á íslandi og árið
1998 komst hún í stjóm Félags
nýrra íslendinga og er hún núver-
andi forseti þess.
Fjölskylda
Pauline giftist þann
22.12. 1992 Þorsteini
Scheving Thorsteinsson,
f. 26.7. 1961, nemanda.
Foreldrar Þorsteins eru
Bent Scheving Thor-
steinsson hagfræðingur
og Margrét Scheving
Thorsteinsson hjúkrunar-
kona í Reykjavík.
Stjúpsonur Pauline er Atli Bent,
f. 30.7. 1984, nemandi.
Synir Pauline og Þorsteins eru
Benedikt Miroslav, f. 19.11. 1993,
nemi og Patrick Jens, f. 9.4. 1997.
Systkini Pauline eru Patrick, f.
27.5. 1957, læknir á Nýja-Sjálandi;
Marjorie, f. 27.4. 1958, starfsmaður
hjá hinu opinbera í Skotlandi;
Caroline, f. 11.1. 1962, enskukennari
í Skotlandi; Stephen, f. 25.9.1963, fé-
lagsráðgjafi á Nýja-Sjálandi; Letitia,
f. 14.6. 1965, viðskiptafræðingur í
Englandi; Charles, f. 15.5. 1967,
hjúkrunarfræðingur í Skotlandi;
Anna, f. 20.11. 1969, bókasafnsfræð-
ingur í Skotlandi; Catherine, f. 4.4.
1971 kabarett-listakona í Englandi;
Marie-Louise, f. 22.1. 1973, lögmað-
ur.
Foreldrar Pauline eru Patrick
McCarthy félagsráðgjafi og
Catherine McCarthy húsmóðir og
fyrrverandi bókhaldari. Móðir
Pauline er ættuð frá Dunegal á Ir-
landi og faðir hennar frá Dublin.
Þau fluttust til Skotlands eftir
seinna strið.
Pauline tekur á móti gestum á
heimili sínu næstkomandi laugar-
dag á milli klukkan 16.00 og 18.00.
Merkir íslendingar
Jóhann Sigurjónsson skáld fæddist þann 19. júní
1880, fyrir sléttum 120 árum. Hann var sonur
Sigurjóns Jóhannessonar bónda, og konu
hans, Snjólaugar Þorvaldsdóttur. Jóhann lést ár-
ið 1919, aðeins 39 ára gamall.
Jóhann var við nám í Latínuskólanum i
Reykjavík og að loknu fjórða bekkjar prófi
sigldi hann til Danmerkur hvar hann nam
dýralækningar við Landbúnaðarháskólann í
Kaupmannahöfn. Hann hætti þó námi, ári fyr-
ir lokapróf og sneri sér nær alfarið að leikrita-
gerð og öðrum ritstörfum. Hann fékkst einnig
við ýmiss konar uppfinningar.
Eitt af hans ailra þekktustu verkum er eflaust
leikritið um Fjalla-Eyvind en það skrifaði hann
árið 1911. Leikritiö um Galdra-Loft, frá árinu 1915,
er þó ekki siðm’ þekkt.
Önnur leikrit hans voru Bóndinn á Hrauni, áriö
1908, Rung læknir, árið 1905, og Mörður Valgarðs-
son sem hann skrifaði árið 1917. Verk hans voru
skrifuð á dönsku og voru sum þeirra ekki þýdd
á íslensku fyrr en mörgum árum eftir andlát
Jóhanns. Verkið Rung læknir var tO dæmis
ekki þýtt fyrr en 35 árum eftir að það var
skrifað, en það var Magnús Ásgeirsson sem
réöst loks í þýðingu þess áriö 1940. Það leik-
rit var jafnframt fyrsta leikritið sem samið
var af íslendingi á dönsku. Verk Jóhanns
hafa verið flutt á leiksviðum viða mn Evr-
ópu. Jóhann sendi einnig frá sér ljóðakver
og fleiri rit. Að auki má finna úrval kvæða
hans á íslensku meðal annars í safhritinu
Fjögur ljóðskáld sem Hannes Pétursson gaf út
árið 1957.
Eiginkona Jóhanns Sigurjónssonar var dönsk
og hét Ingeborg Thideman-Blom.
Jóhann Sigurjónsson
Andlát
Andri Már Guömundsson, Vesturgötu
46, Akranesi, lést af slysförum þriðju-
daginn 13.6.
Rannveig Jónasdóttir, Víkurbakka 36,
Reykjavík, lést mánudaginn 5. júní. Út-
förin hefur farið fram i kyrrþey.
Draumalið
DV
M SÍMINNGSMf'