Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2000, Side 36
NYR NISSAN PATROL
•%
W m ■
SSE ln«var
■ II HHgason hf.
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 2000
17. júní í Reykjavík:
Stórslysalaust
Þrátt fyrir mikinn mannfjölda í
miðborg Reykjavíkur á 17. júní,
gengu hátíðahöldin stórslysalaust
fyrir sig. Þegar mest var álítur lög-
reglan í Reykjavík að um 20.000
•Tmanns hafi verið í miðbæ Reykja-
víkur á laugardaginn og um kvöldið
voru 10.000 til 15.000 manns í bæn-
um. Einnig var mikið af fólki í mið-
bænum aðfaranótt laugardagsins.
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
voru 28 ökumenn stöðvaðir um helg-
ina grunaðir um ölvun við akstur og
er það óvenju margir. Eins þurfti
lögreglan' að hafa afskipti af 15 ung-
lingum á aldrinum 13 til 15 ára
vegna brota á útivistartíma barna
og áfengislöggjöf. Farið var með
börnin í athvarf og sóttu foreldrar
þau þangað.
Maður var fluttur á slysadeild eft-
ir að hann fékk gasúða yfir sig á Ing-
ólfstorgi að morgni 17. júni.
Hópur fólks réðst að manni í
Kirkjustræti að morgni sunnudags-
ins. Lögregla skakkaði leikinn og
handtók einn mann úr hópnum.
Fómarlambið reyndist ekki mikið
slasað.
Einnig var 16 ára piltur stunginn
með hníf í hendi á sjöunda tímanum
á sunnudagsmorguninn. Var hann
færður á slysadeild þar sem gert var
að sári hans, sem reyndist óverulegt.
Árásarmaðurinn, sem ferðaðist
um á reiðhjóli, komst undan og hef-
ur ekki verið handtekinn. -SMK
* Árekstur í Hafnarfiröi:
Fór margar veltur
Umferðarslys varð skömmu fyrir
klukkan 22 í gærkvöldi á Reykjavík-
urvegi í Hafnarfirði. Að sögn lög-
reglunnar í Hafnarfirði skall bíll
sem ekið var norður Reykjavíkur-
veg á öðrum bíl er ók í veg fyrir
hann. Við það fór sá fyrri sex til sjö
veltur.
Beita þurfti tækjum slökkviliðs-
ins til þess að ná ökumanninum út
úr bílnum sem valt og var hann
íluttur á slysadeild. Maðurinn var
talsvert slasaður en ekki talinn í
lífshættu. Fólkið sem var í hinum
bílnum slapp ómeitt. Bíllinn sem
valt er gjörónýtur og hinn er mikið
skemmdur. -SMK
Vatnsleki í Hegn-
ingarhúsinu
Slökkviliðið í Reykjavík var
tvisvar kallað að Hegningarhúsinu
við Skólavörðustíg í gær þar sem
hitavatnslögn brast og þurfti
slökkviliðið að dæla vatni úr hús-
inu.
Að sögn slökkviliðsins er líklegt
að lekinn hafi verið afleiðing jarö-
skjálftans á laugardag. Ekki var vit-
að um skemmdir af völdum vatns-
ins er blaðið fór í prentun í gær-
v kvöldi. -SMK
DVWYND JAK
Kirkjuvígsla í stærstu sókn landsins
Grafarvogskirkja var vígö í gær aö viöstöddu fjölmenni. Hér sést sóknarpresturinn, sr. Vigfús Þór Árnason, og aö baki honum þrír biskupar, hr. Karl Sigur-
björnsson, hr. Ólafur Skúlason og hr. Sigurbjörn Einarsson, og dómprófastur, sr. Guömundur Þorsteinsson.
FM sendingar RÚV og GSM Landsímans duttu út:
Mikilvæg örygg-
istæki brugðust
- farsímakerfið lá niðri í allt að 32 mínútur
Þegar náttúruhamfarir verða er
afar mikilvægt að öryggistæki svo
sem útvarp og sími bregðist ekki. í
kjölfar jarðskjálftans á laugardag
lágu FM útsendingar RÚV niðri um
tíma og einnig var hluti GSM-kerfis-
ins Landssímans. Langbylgjusend-
ingar Ríkisútvarpsins héldu þó og
einnig almenna símkerfið.
Athygli vakti að FM-sendingar
Rásar 1 hjá Ríkisútvarpinu lágu
niðri á jarðskjálftasvæðinu um tíma
í gær, en Ríkisútvarpið gegnir laga-
legri skyldu sem öryggisrás á ham-
faratímum.
Langbylgjusendingar duttu þó
aldrei út enda eru engir langbylgju-
sendar á skjálftasvæðinu.
Að sögn Halldórs Ingvasonar,
tæknifræðings hjá Símanum, lágu
FM-sendingar niðri frá því að raf-
magnið fór í Vestmannaeyjum
þangað til vararafstöðin í Vest-
mannaeyjum tók við. Friðrik Frið-
riksson, veitustjóri í Vestmannaeyj-
um, upplýsti aö rúmur hálftími
hefði liðið frá því rafmagnið fór í
Vestmannaeyjum þar til vararaf-
stöðin var komin í gagnið.
í kjölfar jarðskjálftans varð
einnig truflun í miðstöð GSM-kerfis-
ins í Breiðholti. Flestir sendar voru
aðeins úti í fáeinar mínútur en sá
sem lengst var úti var óvirkur í 32
mínútur og stór hluti kerfisins virk-
aði eðlilega allan tímann að sögn
Ólafs Stephensen, upplýsingafull-
trúa Símans.
Almenna símakerfið varð ekki
fyrir neinni truflun þrátt fyrir að
rafmagn færi af á jarðskjálftasvæð-
inu. Að sögn Ólafs er allur búnaður
Símans á vararafmagni. NMT-kerfið
varð ekki heldur fyrir truflun af
völdum jarðskjálftans. Forráða-
menn Símans voru samt ánægðir
með hvemig kerfið stóð sig í jarð-
skjálftanum á laugardaginn. -ss
Eftirstöövar skjálftans
Hátt í 500 íbúar Rangárvallasýslu voru mættir á fund sem boöaö var til vegna suöurlandsskjálfta á laugardag.
Fulltrúar sveitastjórna, Viölagatryggingar, Almannavarna og jarðvísindamanna funduöu með íbúum sýslunnar
og Davíö Oddsson forsætisráöherra ávarpaöi fundarmenn. Forsætisráöherra hét dyggum stuöningi
ríkisstjórnarinnar viö þá er uröu fyrir tjóni.
Jarðskjálftar taka sinn toll:
67 manns hafa
látist á íslandi
- af völdum jarðskjálfta
Jarðskjálftar hafa tekið sinn toll á
íslandi sem og annarsstaðar. Fyrstu
heimildir um jarðskjálfta má rekja
til ársins 1164, en þá varð jarð-
skjálfti í Grímsnesi 19 manns að
bana. Alls er talið að um 67 manns
hafi látist af völdum jarðskjálfta á
Islandi í 12 mismunandi jarðskjálft-
um, þeim síðasta árið 1912 þegar
ungabarn lést í örmum móður sinn-
ar við það að sperra féll á það.
Á hverju ári verða um 50 þúsund
jarðskjálftar víðsvegar um heiminn
og er talið að um 75 milljónir
manna hafi látist af völdum þeirra
frá upphafi mannkyns. -ÓRV
2000 baða sig
Umferðaröngþveiti skapaðist við
Nauthólsvíkina á laugardag þegar
upphituð baðströnd þar var opnuð.
Að sögn lögreglunnar i Reykjavík
mættu hátt í 2000 manns á ströndina
á opnunardaginn enda skein sól í
heiði. Ekki voru nægjanleg bílastæði
fyrir allan þennan manníjölda, en
allt fór þó vel að lokum og virtist
sundfólkið almennt ánægt með
ströndina. -SMK
Gæði og glæsileiki
smort
Csólbaðstofað
Grensásvegi 7, sími 533 3350.
Sælurum m/ nuddi