Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2000, Blaðsíða 2
20
MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2000 DV
DV-Sport íslandsmeistarmótiö í Torfæru:
Stefnir á 5. titilinn
Staðan á DV-Sport
íslandsmeistaramótinu
Opinn flokkur
Sæti Keppandi Bíll Stig Stap. Jós. L. kaff.
1 Gísli G. Jónsson Arctic Trucks 55 20 20 15
2 Haraldur Pétursson Musso 45 15 10 20
3 Sigurður Þór Jóns. Toshiba-tröllið 36 12 12 12
4 Guðmundur Pálsson Sýnar-bíllinn 25 6 15 4
5 Gunnar Gunnars. Trúðurinn 18 10 2 6
6 Bjöm Ingi Jóhanns. Fríða Grace 16 3 3 10
7 Ragnar Róberts. Pizza 67-WiJlysinn 12 8 4 0
8 Gunnar Ásgeirsson Öminn 11 2 6 3
9 Páll Antonsson Reis-græjan 8 0 0 8
10 Ásgeir J. Allans. FM 957-skutlan 4 4 0 0
11 Þorvaldur Stefáns. Ram 2 0 0 2
12 Ámi Kópsson Rauði prinsinn 1 0 0 1
13 Daníel G. Ingim. Græna þruman 1 1 0 0
14 Gunnar Egilsson Egils gullið 1 0 1 0
15 Benedikt Ásgeirs. Gösli 0 0 0 0
Götubílaflokkur
1 Gunnar Gunnars. Trúðurinn 55 20 15 20
2 Ragnar Róberts. Pizza 67-Willysinn 43 15 20 8
3 Daníel G. Ingim. Græna þruman 22 10 0 12
4 Ásgeir J. Allans. FM 957-skutlan 22 12 0 10
5 Ámi Kópsson Rauði prinsinn 15 0 0 15
6 Rafn A. Guðjóns. Rauði prinsinn 12 0 12 0
Gísli G. Jónsson á Arctic Trucks
bílnum hefur nokkuð örugga for-
ystu í DV-Sport íslandsmeistara-
mótinu eftir að búið er að aka þrjár
umferðir.
Hann er með 10 stiga forskot á
Harald Pétursson á Musso en Gísli
mætti mjög ákveðinn í fyrstu
keppni sumarsins sem haldin var
við Stapafell á Reykjanesi. Þar sigr-
aði Gísli og tryggði sér 20 stig. Önn-
ur keppni sumarsins var haldin í
Jósefsdal í endaðan júní og þar hélt
Gísli upptekn-
um hætti og
sigraði aftur
og var þá kom-
inn með 15
stiga forskot á
Harald Pét-
urson. Þriðja
umferð ís-
landsmeistara-
mótsins fór
svo fram í mal-
argryfjunum
við Litlu kaffi-
stofuna fyrir
ofan Sand-
skeið. Nú brá
svo við að
Gísli varð að
láta sér lynda
annað sætið en
Haraldur Pét-
ursson sigraði.
Var það fyrsta
keppnin sem
Haraldi tekst
að sigra i eftir
að hann hóf
keppni á Mus-
sonum eftir að
hafa unnið
þrotlaust síð-
asta eitt og
hálft ár við að
betrumbæta
bílinn. Harald-
ur á möguleika
á að ná ís-
landsmeistara-
titlinum en ef Páll Antonsson brýst hér upp þverhnípt stál á Reis-græj
það á að takast unni í Jósepsdal.
verður honum að ganga mjög vel 1
keppnunum sem eftir eru.
Sigurður Þór Jónsson er í þriðja
sæti íslandsmeistaramótsins, 19
stigum á eftir Gísla, og á hann
fræðilega möguleika á titlinum. Til
að sigur hans geti orðið að veru-
leika verður honum að ganga allt í
haginn og heilladísimar að snúa
baki við þeim Gísla og Haraldi.
I götubílaílokknum er Gunnar
Gunnarsson á Trúðnum efstur.
Hann hefur sigrað í tveimur keppn-
GÍSLI G, Gísli G. Jónsson á Arctic Trucks-bílnum hefur staðiö sig mjög vel
á íslandsmeistaramótinu og er með 20 stiga forskot á næsta keppanda þeg-
ar þrjár umferöir mótsins hafa veriö eknar.
Gunnari Gunnarssyni hefur gengiö vel í götubílaflokknum og hefur hann sigraö í tveimur umferöum íslandsmeist-
aramótsins. Hér heldur Gunnar sýnikennslu í því hvernig á að aka jeppa á tveimur hjólum. DV-myndir JAK
um sumarsins, yið Stapafell og Litlu
Kaffistofuna. í Jósepsdal varð
Gunnar að sætta sig við annað sæt-
ið í götubílaílokknum og hefur hann
12 stiga forskot á Ragnar Róberts-
son sem heldur öðru sætinu.
Efstu menn í báðum flokkum
standa nokkuð vel að vígi því ein-
ungis er eftir að keyra tvær umferð-
ir í íslandsmeistaramótinu. Fjórða
umferðin fer fram um næstu helgi,
laugardaginn 19. ágúst, við Litlu
kaffistofuna. Síðasta umferð móts-
ins verður svo laugardaginn 9. sept-
ember og þá munu úrslit mótsins
væntanlega ráðast endanlega. Ekki
er endanlega búið að ákveða hvar
sú keppni verður haldin en greint
verður frá því síðar. -JAK
Guömundi Pálssyni hefur gengiö misvel í keppnum sumarsins. Bestum árangri náöi hann í 2. umferö íslandsmeist-
aramótsins í Jósepsdal í júní en þá hreppti hann 2. sætiö
ATHUGUN hf
BÍLASKOÐUN
• Aðalskoðanir
• Ástandsskoðanir
• Breytingaskoðanir
• Nýskráningar
Klettagörðum 11 « 104 Reykjavík • Sími 588 6660
Fax 588 6663