Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2000, Side 6
haf
Nördaleg
hrekkjusvfn
Www.hrekkjusvin.is er alíslenskt
rafrit, nýlega spunnið við vefinn af
nokkrum framtakssömum ungum
mönnum. Áherslan er ekki á pólitík
og ef þú vilt vita hvemig tónlist verð-
ur leikin á Glaumbar næsta fimmtu-
dag verðurðu að leita annað. Þeir
sem að Hrekkjusvíninu standa eru
aðallega stúdentar við háskóla, hér-
lendis sem erlendis. Ritstjórarnir em
tveir og með þeim starfar sex manna
ritnefnd, auk fjölda pistlahöfunda.
Hrekkjusvín.is hefur ekkert sérstakt
markmið og umfiöllunar-
efnin eru margvísleg.
Jarðbundin og nördaleg
hugðarefni pistlahöf-
unda og menningarlegt, )
íslenskt efni ber þar
hæst. Vefurinn er því
æði fjölbreyttur og þar ;
má lesa um jafn-
ótengda hluti og Picasso, heima-
síðugerð, persónusköpun í hoilívúdd-
myndum, stýrikerfið Linux eða búð-
arráp í leit að snoppufríðum af-
greiðslustúlkum. Einnig má skoða
daglegt gaspur með ábendingum um
sniðugar heimasíður, stutt „kvabb“
netverja, gagnrýni á bækur, tónlist
og kvikmyndir og reglulega pistla er-
lendis frá. Siðan er látlaus hvað graf-
ík og myndir varðar og byggist að
mestu á texta. Biðin er því engin eft-
ir hleðslu næstu greinar og uppsetn-
ingin er þægileg og auðveld. Að sögn
aðstandenda er tilgangurinn með út-
gáfu rafritsins óljós og í raun enginn
annar en sá að gefa ungu fólki tæki-
færi á að lesa skrif ungs fólks á vef,
reknum af ungu fólki.
Eru okkar menn
að verða af dýr-
mætum saltkornum
fyrir tilstilli erlendra
glæpamanna?
Kristján Már
^^Óiafsson steig
málió fyrir
p©ll
útvarpi
Miklar breytingar hafa átt sér
stað hjá útvarpsstöðinni Mono 877.
Eins og kunnugt er giftist Norður-
ljós fyrirtækinu erlenda, Saga
Communications, sem er einmitt afi
Fíns miðils, fóðurbróður FM957. Þar
með urðu Mono og FM kviðmágar.
Stöðvarnar hafa herjað á sama
hlustendahóp og spilað 40 efstu lög
vinsældalista en nú verður breyting
þar á. FM heldur sömu stefnu og
veldur „miklum fóstudegi hjá mann-
skapnum" en Mono mun einbeita
sér að dansgeiranum. Létt danstón-
list frá Benidorm, R’nB og vinsæld-
ar-hip-hop mun ráða þar ríkjum.
Allt rokk og blöðrupopp verður tek-
ið af dagskrá á þeim bæ. Einar
Ágúst Skímómaður færir sig yfir á
FM og morgunþátturinn vinsæli, 7-
10, verður ekki lengur á dagskrá
Mono.
Sigurbjorn
maður.
Hljómsveitin Bang Gang fannst við leit ásamt ýmiss konar viðbjóði.
■ ■ jpjm mm ■yp'
■iS3Í^|HmífI IwSÉlilk
tonlist
óvætturinn Napster
m
RHkar
Salin er vinsæl
MP3 eins og annars staðar.
Bárðarson hestaíþrótta-
Chuck
leikari.
Norris, bardagamaður og
Tvífaramir að þessu sinni eru mögulega tvíburar. Báðir eru þeir
framúrskarandi afreksmenn á sínu sviði. Þeir gefa ekkert eftir og ef ein-
hver er með skit við þá er voðinn vis. Sigurbjöm Bárðarson hjólaði í yf-
irdýralækni á dögunum sem var með uppsteyt gegn honum. Þar sem
Sigurbjöm hélt konungi dýranna kverkataki fjölmiðlanna krafðist hann
afsökunarbeiðni á ásökunum yfirdýralæknis um að hann hefði smyglað
hrossum til landsins með víkingaskipi.
Öllum er atgervi Chuck Norris kunnugt. Hann er löggæslumaðurinn
Walker, Texas Ranger, og tekur ekki við skít frá neinum. Stundum
kemst hann líka í kast við lögin en tekur því með hörkunni eins og Sig-
urbjöm. En eitt er ljóst: Báðir fá þeir endalaust að ríða.
Mikill styr hefur staðið um fyrir-
bærið Napster vestanhafs undanfar-
ið og enn sér ekki fyrir endann á
deilunum. Áður en lengra er haldið
er líklega rétt að skýra út um hvað
ræðir. Napster er stórsniðugt forrit
og lykill að sérstöku samfélagi þar
sem allir deila öllu sem er á tölvun-
um þeirra og fellur undir tónlist.
Þetta er mögulegt, þökk sé pökkun-
araðferð sem kallast MP3 sem gerir
kleift að þjappa lögum gríðarlega
mikið saman, án þess að hljómgæði
rými neitt að ráði.
Napparinn
Þegar, eða ef þú, lesandi, gengur í
Napster-samfélagið seturðu sem sagt
upp hugbúnaðinn, tilgreinir þá tón-
list sem þú vilt deila (ef þú ert ekki
kommúnisti) og öðlast um leið að-
gang að öllum þeim tölvum sem
tengdar eru Napster-gagnagrunnin-
um hverju sinni. Síðan slærðu ein-
faldlega inn nafn hljómsveitar
eða jafnvel stefnu og færð upp allt
tengt leitarorðinu sem í boði er. Nap-
ster gerir að vísu fleira en þetta en
við ætlum að halda okkur við það
sem skiptir máli.
Það sem hefur verið að angra tón-
listarmenn, eða allavega Metallica
og Dr. Dre, er að með því að eignast
tónlist á þennan hátt sniðgengur fólk
alfarið höfundarrétt. Þar sem höf-
undarréttur er bundinn í lög þá telst
slíkt sem sagt ólöglegt og góðu rokk-
aramir í MetaUica ætla ekki að láta
slíkt viðgangast.
íslenskir notendur
Þessar fréttir hér að ofan em hins
vegar hundgamlar fyrir fólki sem eitt-
hvað veit þcmnig að ég ákvað að
grennslast aðeins fyrir um hvort ís-
lenskir notendur væm að markaðs-
setja „okkar“ fólk í þessu samfélagi.
Maður þóttist svo sem vita að Björk
hefði ratað þarna inn, hugsanlega hin
sírýmandi Gus Gus og svo auðvitað
nýstimin í Sigur Rós. Athugunin var
gerð um klukkan 21.00 á virku kvöldi,
6.808 vélar vora tengdar þegar ég
hófst handa og niðurstöður urðu eftir-
farandi.
Ég byrjaði á Bellatrix, einu önnum
kafnasta meikbandi landsins um þess-
ar mundir og, jú, jú, þau áttu auðvit-
að sína erindreka þama. Þó vom það
nær eingöngu lög af nýjustu plötunni
og bara singlamir. Spilverkið slapp
aífarið en Stuðmenn vom með eitt
lag á lista, Slá i gegn, og era hugsan-
lega að hasla sér völl í útlandinu á
meðan þetta er skrifað. Rokkarar á
borð við Jet Black Joe og Dead Sea
Apple sluppu alfarið með skrekkinn
en sömu sögu var ekki að segja um
Sálina. í fljótu bragði taldi ég eina 15
titla með þessari fomfrægu popp-
hljómsveit og áhugavert er að segja
frá því að notandinn „Rex-dildo“ sá til
þess að lögin Er kominn og Lestin er
að fara næðu út fyrir landsteinana.
Hins vegar bólaði ekkert á Beaten Bis-
hops og er það miður...
Nafn konungs okkar, Bubba, kall-
aði fram ágætis þverskurð á ferli
listamannsins og notandinn Skímó8
sá til þess að lagið í Bljúgri bæn væri
á sínum stað. Nafn Bang Gang kall-
aði fram mikið Gang Bang og ýmis
gengi. Þar innan um fann ég þó 3 lög
sem ég veit að tilheyra því bandi.
Nafn MúM kallaði fram mikið af alls
konar dóti en einn notandi sá til þess
að platan þeirra var þarna eins og
hún lagði sig. Ensími, Botnleðja og
Maus sluppu alfarið en nafn þeirra
síðastnefndu framkallaði þó alveg
aragrúa af þýsku stöfii.
lagi hjá Napster.
Rán og rupl?
Þessi litla og ómarktæka tilraun á
sér svo sem engan tilgang annan en
afþreyinguna. Þó verður forvitnilegt
að fylgjast með framvindu málsins
sem verið er að höfða á hendur Nap-
ster. Kunnugir segja að álíka forrit
séu strax farin að spretta upp undir
öðrum nöfnum og líklega fæst aldrei
sett alveg undir slíkan leka. Hvað
listamenn hér á landi varðar þá er
það nú sennilega bara skemmtileg
kynning ef einhverjir úti í heimi
ákveða að kynna sér eitthvað af efni
þeirra á þennan hátt. En þegar það
varðar listamann á borð við Björk
erum við líklega að tala um stóra
peninga sem hún verður þar með af.
Málið er liklega að finna jafhvægi.
Flest bönd eru tilbúin að gefa lög til
kynningar, og gera það, en vilja að
sjálfsögðu jafnframt viðhalda plötu-
sölu. Eins getur forrit eins og Nap-
ster verið ómetanlegt fyrir fólk til að
skiptast á sjaldgæfum tónleikaupp-
tökum og þess háttar en enn og aftur
erum við að tala um eitthvað sem er
ólöglegt. Það verður forvitnilegt að
fylgjast með framvindu mála.
6
f Ó k U S 25. ágúst 2000