Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2000, Blaðsíða 18
í f ó k u s
Leikfélag íslands er í fókus í
dag. Góðir viðskiptahættir hafa
virkaö eins og segull á fremstu
leikara landsins og skilið önnur
leikfélög eftir í duftinu. Félagiö
hefur vaxið og dafnað alveg frá
stofnun og nú seinast þegar það
sameinaðist Iðnó og Hljóðsetningu
og úr varð Leikfélag íslands.
Magnús Geir stendur í stafninum
og stjómar öllu batteríinu, rétt
eins og skipstjóramir sem í gamla
daga fylltu ungu strákana í hinum
ýmsu höfnum og sigldu svo með
þá á haf út til að gera þá að sjó-
mönnum. Nú gabbar Magnús alla
leikarana tU sín frá Þjóðleikhús-
inu, lokkar tU sín hverja stór-
stjömuna á fætur annarri. Hann
fyllir kannski ekki leikarana en
býður þeim alla vega mannsæm-
andi laun. Svona á emmitt að
gera, bjóða stóru ríkisreknu fyrir-
tækjunum birginn. Fókus sér
fram á bjart leikár á íslandi, svo
er Leikfélagi íslands fyrir að
þakka. Samkeppnin gerir leikfé-
lögunum öUum gott og stuðlar að
vexti.
ú r f ó k u s
Nektar-
dansmeyjar
em úr fókus
þessa dag-
ana. Þessar
löðrandi
s t ú 1 k u -
kindur hafa
nuddað sér
upp við hluti
svo lengi að
það er hætt
að vera flott. Þær minna einna
helst á hunda sem riðlast á löpp-
um þeirra sem fyrir verða. Ekki er
lengur hægt að fela hneigðir sínar
á bak við listina eins og maðurinn
sem runkaði sér á myndbandinu á
Kjarvalsstöðum um árið. Það er
ekki sæmandi fyrir karlmenn ís-
lands að standa bara og horfa á
þegar rússnesku hasarkroppamir
nudda sér utan í þá og blikka þá
og fá ekki einu sinni að grípa í.
Veiklunda menn slefa á eftir tál-
drósunum og ausa í þær pening-
um i aumri von um samræði. Gef
oss heldur gleðikonuna sem í
kapítalískum heiðarleika veitir
blíðu sína þurfandi karlmönnum.
Farið er að halla undan fæti hjá
nektardansmeyjum og sést það
berlega á því að ekki einu sinni
Neyslupakki
nemandans
Lífsgæðakapphlaupið einskorð-
ast ekki við fullorðna menn í jeppa-
leik eða unga uppa í verðbréfa-
sveiflu. Á öllum skólastigum þurfa
nemendur að hafa sig alla viö til
þess að heltast ekki úr lestinni og
dragast aftur úr jafnöldrum sínum.
En til þess að tolla í síbreytilegri
tisku og eignast flottustu græjum-
ar þarf peninga. Sumir blóðmjólka
foreldra sína aila ævi, aðrir þurfa
að hafa meira fyrir gæðunum. Það
er sennilega óhætt að fullyrða að
hvergi annars staðar vinni img-
lingar jafnmikið með námi eins og
á íslandi. Enn tognar úr góðærinu
og næg atvinna er i boði fyrir ungt
fólk sem vantar flíkur á kroppinn,
inneign í símann og bensín á bíl-
inn. Óþarft er að taka fram að lítið
þýðir að mæta í skólann öðmvísi
en með hlaupahjól undir arminn
og gemsa við eyra. Fókus fór á stúf-
ana og komst að þvi hvemig mögu-
legt er að sleppa með innkaup fyr-
ir einungis 500.000 kr. og samt
mæta svalur til leiks fyrsta skóla-
dag.
Afgreiðslustúlkurnar í búöinni
Divaa völdu uppáhaldsklæðnaðinn
sinn fyrir skólastelpur. Útvíðar
gallabuxur, svört peysa, frakki
og sjal. Skómir eru frá Valmiki.
Sæmilega ódýr tískufot fyrir
skonsur sem eru búnar að mar-
ínera sig í ljósabekkjunum.
Samtals
kr. 26.500.
Það er aldrei hægt að hlusta of mik-
ið á góða tónlist og oft getur verið
skemmtilegra að hlýða á glæný popp-
lög en útjaskaðar tuggur gamalla
kennara. í versluninni
Kalíber er hægt að fá
snilldarlegt MP3-
úr frá
C a s i o .
Hægt er
að tengja
úrið við
tölvu og hlaða
MP3-skrár inn a
það. Svo er heymar-
tólum stungið í samband
við úrið og þá opnast fyrir þér nýr
heimur. Kr. 24.990.
Þó að þú sért ekki með fartölv-
una við höndina er engin ástæða
til að örvænta. Það er að segja ef
þú átt Casiopeia-lófatölvu. Þá
geturðu komist á Netið, hlustað
á tónlist, hripað í dagbókina eða
tekið upp á diktafón, hvort sem
þú ert í efna-
fræðitíma eða
leikfimi.
Kr. 59.990.
Strákamir í Hanz fengu heiðurinn af því að
velja skólafotin á stráka. Þar dugir ekkert
nema galli frá Hugo Boss. Að þeirra sögn em
þetta ódýrustu fötin í þessum gæðaflokki. Ull-
arpeysa, buxur og skór og strákarnir mæta
glerflnir í tíma.
Samtals kr. 34.700.
Það dylst engum að fartölva er nauðsynleg-
ur búnaður fyrir alla námsmenn. Það er ekk-
ert vit i öðru en að hamra glósurnar strax inn
á nútímaform svo meira pláss sé fyrir annað
í heilabúinu. Powerbook frá Apple er einmitt
það sem þú þarft. Hún hefur alla kosti venju-
legrar heimilistölvu,
er meira að segja út-
búin DVD-drifi og
vegur aðeins um 3
kíló. Hvað varð
um Commodore
64?
Kr. 269.900.
ÉMÉmi
Ef batteríin klárast í tölvunum þínum er best
að vera við öllu búinn. Parker-
penninn er
eina skrif-
færið sem
getur öragg-
lega forðað
þér frá aðkasti
skólafélaga.
Gæðin eru ein-
stök þó að
vanti í hann
MP3-tengið.
Kr. 39.000.
h v e riir voru hvar meiara. á.
|- www.visir.is 1
Þaö var mikið að gerast á skemmtistöðum
borgarinnar þessa helgina. Föstudagurinn þjón-
aði sem upphitun fyrir sjálfa menningarnóttina
á laugardag. Allt að 50.000 manns voru eins
og síld í tunnu f miðbænum um það leyti sem
flugeldasýningin árlega ögraði Ómari Ragnars-
syni um yfirráð háloftanna.
Andrúmsloftið á Spotlight var rafmagnað þegar
poppgoö islands, Dr. Páll
Óskar Love, fikraöi sig að
dansgólfinu.
Á Klaustrinu sáust dans-
tónlistargúrúarnir Phats &
Smalls hella f sig íslensk-
um þrennsa með Ministry
of Sound-genginu og
Kidda stórbeinótta. Helga
Braga dillaði sér við
salsatakta DJ Carlos og
með henni Súsanna Svavars. Bjóssi Stef „ofur-
fýrirsetill" hnyklaði lærvöðvana á dansgólfinu.
„Það var bæði mikill föstudagur og sérstaklega
mikill laugardagur" í FM-krúinu sem var of
hresst að vanda. Meðal þeirra voru Rúnar Rób,
Kalli Lú, JóiJó og Halli Da, umkringdir skonsum
f óskalagastemningu. Friðrik Friðrlks og Her-
bert litu yfir staöinn og Marius var á „toppnum
! teinóttu". Það væsti ekki um Phllippe B þar
sem hann sat viö dansgólfiö. Hanna „íslensk-
ameriska“, Gunna „systlr“ og Begga „Kókó“
áttu pallana, til dæmis Palla Gunn. Jón Örn,
þjálfari kvennalandsliðsins, kíkti inn og Ámi
Vigfússon „athafnamaður" kom i félagi viö sína
heittelskuðu Sunnu. Unnar og Japis-kallarnir
skemmtu sér hið besta og Jóhannes á Mónó
teygaði mjöðinn og sagöi skrýtlur og var með
gott glens ! nærveru Einars Vllhjálms spjót-
kastara. Sigþrúður Ármann „Susari" og Viddi
„greifi“ brostu út að eyrum og Ingi og Hard
Rock-gellurnar fengu sér snúning með Ásgeiri
„FM-Pönk" og Kjarra “Ijósabekk".
Föstudagsnóttin bar meö sér vinda úr suöurhöf-
um að Skuggabar. Staðnum var breytt f karab-
fska eyju og dragdrollan
Venus kynnti kvöldið með
tilþrifum. póra Tökufusa
mætti kát til leiks og
Kitty Johansen lét sig
ekki vanta frekar en hinar
steipurnar frá Pharmaco.
Böðvar Bergsson hjá Fft-
on kom meö Ómari Frið-
leifs, Eiríki og hinum
Sambíókóngunum sem
tottuðu vindla af áfergju. Svali var i beinni fyrir
FM og restin af starfsliði FM hlýddi á. Ásgeir
Kolbeins lék við hvern sinn fingur, Hvati var á
hækjum eins og fff en Óll Boggi, klippari á
Space, var hár í loftinu. Lína í Monsoon var í
fínu stuði og „sölumenn áfengisdauðans" frá
Karli K. Karlssyni voru glerfínir og sniðugir.
Á Sóloni íslandus spilaði DJ Magic á föstudags-
kvöld en á menningarnótt datt tónlistin niður á
plan meðalmennsku og leiðinda. Engu að síður
virtust menn skemmta sér sæmilega. Kim
Magnus Nilsen „skvassari" sat sem fastast við
hlið kærustu sinnar, Krissu „grænfriðungs”, og
Hildar í Veggsport. Meðlimir rappsveitarinnar
„Lyrically blessed“ höfðu sig hæga á eigin boröi
og Arnar úr Vinyl leit einnig inn.
Á Wunderbar féll hitinn niður fyrir frostmark
þegar Fjölnir Þorgeirs
mætti þangað f fylgd
fríðra meyja og Astró var
vettvangur glaumsins
þegar Mónó fagnaði 2ja
ára veru sinni á öldum
Ijósvakans. Simmi og Jói
7-10-menn skvettu f sig
með Jóni Gunnari Geir-
dal, fráfarandi dagskrár-
stjóra. Geir Róvent skók
á sér belginn og Ingó, Gassi og Gústi Bjarna
voru heldur betur f gleðivímu. Emmi í 66 gráð-
um norður og DJ Dice samglöddust strákunum
og allir helstu jaxlarnir hjá ÍÚ létu sjá sig. Vin-
konurnar Harpa, Ólina og Marta Drófn döns-
uðu sig sveittar með kærustum sinum.
Á Prikinu var troðið alla helgina, enda lítill staður og
vinsæll. Siggi Kári, formaður
SUS, sást grátbiðja dyraverð-
ina um að hleypa sér inn í
hlýjuna. Þar voru fyrir Árnl
Vigfús, Björn Jörundur «g
Tobbi núlleinnmaöur sem
sprangaði um ölur mjög. Á
Sportkaffi er hægt ab treysta
á að heyra „jólahjól" allan
ársins hring og Olsen-bræð-
urna dönsku kyrja Eurovision-
smellinn sinn. Addi, leikmaður Víkings, og Addi f
Skallagrimi fögnuðu glæsilegu gengi liða sinna í
sumar. Á Thomsen dunaði
dansinn viö plötusnúðun
heimsfrægra útlendinga.
Þossi á Radíó X var þar og
einnig sáust dansararnir Trix
og Bones gera það sem þeir
gera best. í Þjóöleikhúskjall-
aranum var ball með Á móti
sól og Skímó og þaðan
sendu Valli sport og siggi
Hlö „Hausverk um helgar"
beint. Einar Bárðar, textasmiður Skímó, og Gummi
„umbi“ Gísla vættu kverkarnar með ókeypis bjór.
f Ó k U S 25. ágúst 2000
18