Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2000, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2000, Blaðsíða 15
Krossinn Emil Hreiðar Bjömsson, 23 ára liðsmaður í Krossinum, mætir með Biblíuna undir hendinni. Hann vinnur hjá Síld og flski. Emil er alinn upp á kristnu heimili. Foreldrar hans fóru með hann á samkomur þegar hann var lítiil. Hann hefur aldrei farið af sporinu. EmO er bókstafstrúar- maður. Hann trúir öllu sem stend- ur í Biblíunni. ÖUu. Hann kvænt- ist konu sem hann kynntist á sam- komu Krossins. Ástin kviknaði á undarlegan hátt. Guð fann konuna „Ég er fyrir austan að spila körfubolta og hún er i bænum. Við þekktumst ekkert það mikið þá. Síðan erum við búnir að spila körfubolta og ég sit inni í stofu, all- ir famir að sofa, þá fæ ég skrítna tiiflnningu eins og ég sakni henn- ar, þó að ég þekki hana ekkert í rauninni. Þá fannst mér svona eins og Guð væri að segja mér að þetta myndi verða konan mín. Mér fannst þetta merkilegt því ég hafði aldrei fundið svona tilfinningu áður. Ég var eitthvað 1&-17 ára. Svo kem ég í bæinn og þá er hún með einhverjum strák ofan af velli. Við töluðum þá eitthvað saman en það gerðist ekki neitt því ég var ekkert hrifinn af henni þá. Svo gerist það tveim árum síðar að ég fer að verða hrifinn af henni og hún hættir með stráknum og við hyrjum að vera saman. í dag erum við gift. Ég trúi því að Guð sé bú- inn að plana allt mitt líf og ég þarf bara að taka réttar ákvarðanir." Samkynhneigðir lifa í synd Hvemig er þetta með samkyn- hneigðina og fólkið í Krossinum. Hvað er málið þar? Emil hugsar sig aðeins um og svarar svo: „Sam- kynhneigt fólk liflr í synd. Það er fólk eins og ég og þú. Alveg jafn- gott og alveg jafnvont. En Guð vill að það viðurkenni syndina og fái síðan fyrirgefningu. Sama hvort því finnist þetta vera synd eða ekki þá er samkynhneigð synd í augum Guðs. Þótt ég gangi með Guði þá syndga ég oft á dag og þarf að biðja um fyrirgefningu oft á dag. Ég er guðhræddur. Það að vera guðhræddur er að vera hræddur við að gera það sem Guði mislíkar. Þess vegna verð ég að lesa í Biblíunni og læra hvað það er sem er Guði þóknanlegt," segir Emil Hreiðar Bjömsson, krossfar- inn og syndgarinn sem fékk kon- una frá Guði. tí: Bahá’f (Bahæ) Matthías Pétur Einarsson er 26 ára viðskiptafræðingur. Hann starfar á viðskiptastofu Lands- bankans og er bahá’í-trúar. Bahá’í-trúin gengur út á einingu trúarbragða, kynþátta, kynja, sam- félaga o.fl. Stikkorðið er „eining". Bahá’í-ar trúa því að hvert tímabil hafi sinn boðbera (líkt og Jesús var boðberinn á sínum tíma) og boð- beri okkar tíma er samkvæmt þeim náungi sem hét Bahá’u’lláh. Vildi ekki fermast Þegar Matthías var sjö ára gekk mamma hans i Bahá’í-söfnuðinn og þegar hann átti að fermast tók hann meðvitaða ákvörðun um að gera það ekki og fara þess í stað í Bahá’í-söfnuðinn. Síðan þá hefur hann verið virkur meðlimur. Hann kynntist konunni sinni sem unglingur í unglingastarfi safnaðarins og er giftur henni í dag. Matthías iðkar sina trú einn og með sjálfum sér en boðar hana einnig þegar færi gefst á. „Maður getiu ekki sagt „ég trúi“ og gert síðan ekkert með það,“ segir hann. Það að ég trúi þýðir að ég reyni að bæta mig og fara eftir fremsta megni eftir því sem trúin snýst um. Ég bið kvölds og morgna og les í ritningu trúarinnar til að dýpka minn skilning á trúnni. „Vinum mínum sem eru ekki í þessu ftnnst þetta forvitnilegt og kannski athyglisvert í íjarlægð. Mínum vinahópi finnst þetta æðis- legt og virðir þetta sem hluta af mér. En þeim ftnnst trúmál vera meira privat. Það er helst þegar menn eru komnir í glas - en ég drekk samt ekki - að upp komi hugrekki. Þá fara menn að spyrja og vilja spjalla. Það liggur við að þetta sé eins með þetta eins og kyn- líf fyrr á tímum, segir hann og glottir. Ásatrú Gréta Hauksdóttir er 24 ára hjúkrunarritari á Landspítalanum sem stefnir á myndlistarnám í haust. Hún kynntist ásatrúnni sem bam. Stóri bróðir hennar var í fé- laginu og 11 ára fór hún fyrst að spá í þetta. Fyrir fjórum árum skráði hún sig úr Þjóðkirkjunni og í fyrra tók hún skrefið og skráði sig í Ásatrúarfélagið. Blindir fá ekki sýn „Sumum brá svolítið þegar ég skráði mig en svo einhvem veginn finnst fólki þetta í lagi. Að vísu finn ég stundum fyrir því að þegar ég segist vera í félaginu heldur fólk að ég hafi þessa og þessa skoðun. En svo kemst það oftast að ein- hverju öðru. Trúin gengur út á það að ég láti gott af mér leiða. Þetta er ekkert eins og að fara í kirkju reglulega, maður eiginlega iðkar þetta í einrúmi. Virðir náttúruna og reynir að virða annað fólk, virða það sem lifir og haga sér vel. Þetta kemur mikið fram í Eddu- kvæðum og Hávamálunum. Þau eru ekki beinlínis Biblían en alla vega það sem við reynum að fara eftir.“ Telur þú aö þaö sé betra fyrir fólk að vera í trúfélagi? „Það fer bara eftir hverjum og einum held ég. Hjá okkur er þetta ekkert „blindir fá sýn dærni" og við erum ekki að slátra kindum handa Óðni. Ég held ekkert frekar að fólk sé betur sett í ásatrúnni. Fólk ætti bara að finna sig í ein- hverri trú sem leiðir að hinu góða. ! grunninn hef ég ekkert á móti kristinni trú en mér mislikar það hvemig sumir hafa reynt að nýta sér hana i eigingjömum tilgangi til að öðlast völd eða gróða. Fyrir ása- trúarfólki er synd einfaldlega það sem skaðar aðra.“ Goðaskortur Til að iðka trúna tilbið ég nátt- úruna en við í félaginu erum með félagsheimili þar sem við hittumst einu sinni í viku. Svo eru fjögur höfuðblót á ári. Fyrsta vetrardag, á jólunum, fyrsta sumardag og á tí- undu viku sumars. Þá er lesið upp úr Hávamálum og svo er hom lát- ið ganga til heiðurs guðunum. Það er ekkert kynsvall eða fyllirí á meðan á blótinu stendur en ég veit ekkert hvað gerist eftir blótin," segir Gréta og hlær. Hún segir Ásatrúarfélagið vera á uppleið og að skortur sé nú á goð- um. „Jörmundur er eini goðinn í fé- laginu. Hann er sá eini sem hefur leyfi til að jarðsetja og gifta. Okkur vantar í rauninni fleiri goða því það er búið að fjölga svo rosalega í félaginu á síðustu mánuðum. Við erum rúmlega fimm hundruð núna. Nýr goði þarf að sanna sig fyrir öðrum i félaginu. Að hann sé starfinu samboðinn. Það getur tek- ið tíma,“ segir Gréta Hauksdóttir, hjúkrunarritari og ásatrúarkona. Óðinn Gústafsson er 31 árs kokkur á Amigos. Hann hefur migið í saltan sjó og gert margt fleira sem íslenskir karlmenn kannast við. í dag kyrjar hann „gongjó" á hverjum degi og kross- leggur lappir. Ég kynnist þessu fyrir 13 árum þar sem ég á 3 eldri systkyni sem em að iðka svona búddisma. En það er ekki fyrr en fyrir 3 árum sem ég fer að leita mér að ein- hverri trúarlegri iðkun. Ég hafði öðlast einhverja svona andlega vakningu/andlegt rumsk í gegnum aðra hluti og fer að leita fyrir mér í trú. Svo tek ég ákvörðun um það um síðustu áramót að tileinka mér þennan búddisma og iðka hann. Áður en ég byrjaði á þessu má segja að ég hafi verið í „helvítis ástandi". (Einn af 10 skilgreindum heimum i búddisma. Heimur þján- ingar, örvæntingar, þunglyndis og tortímingar. Allir vegir lokaðir og engin lausn sjáanleg.) Atvinnulaus kyrjar „Ég var atvinnulaus á götunni og allir lífshættir mínir voru í henglum. En ég vissi að þegar ég var að kyrja þá leið mér vel þótt allt væri í rúst í kringum mig. Ég öðlaðist þá vissu að hlutirnir yrðu i lagi. Það er það sem er svo gott. Ég öðlast þessa vissu og losna við óþarfa ótta. Mér líður betur. Veraldlegu hlutirnir eru líka allir á leiðinni upp og sjálfs- öryggi og lífsfylling eru eitthvað sem ég hef. Lífsfylling er í raun samnefnari yflr það sem allir trú- aðir sem ég þekki hafa. Sama hvaða trú það er. Trúað fólk hef- ur þessa lífsfyllingu sem gefur svona glampa í augun og það er oftast gaman að umgangast það. Appelsínugui föt „Eg mæti þokkalegum skilningi í kringum mig. Sumum finnst svo- lítið skrítið að ég skuli ekki vera í appelsínugulum fötiun að hoppa um bæinn. Reyndar var ég krúnurakaður í srnnar og fólk hélt að það væri af því ég er búddisti en það er það ekki. Mér fannst það bara þægilegt. Það eru engar regl- ur og engin boð eða bönn í búdd- ismanum. Enginn hárgreiðslu- stefna heldur. Ég held að það sé mikill skilningur á trúarleit og trú- arbrögðum á íslandi. Þá er búdd- isminn ekkert undanskilinn. Fólk er forvitið um þetta. Hvort mín leið er sú rétta? Ef fólki líður vel, hvort sem það er í Krossinum eða hverju sem er. Hver er ég þá að segja að þeirra leið sé ekki rétt?“ 25. ágúst 2000 f Ó k U S 15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.