Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2000, Síða 8
ðarfuU
Margrét Eir söng með kór
Öldutúnsskóla frá 6 ára til 15 ára
aldurs. Eftir grunnskóla fór hún
beint í Flensborgarskóla enda Gafl-
ari. Þar kynntist hún Margréti
Pálmadóttur kórstjóra með meiru.
„Hún var eiginlega kveikjan að því
að ég fór í tónlistarskóla."
Fyrsta skipti í míkrófón
Árið 1991 vann Margrét Eir
Söngvakeppni framhaldsskólanna
sem þá var haldin í annað sinn. „Það
var í fyrsta skipti sem ég söng í
mikrófón." Eftir söngvakeppnina fór
Margrét að fá önnur „gigg“, söng í
„Júróvísjón" og Landslaginu. Svo
byrjaöi hún í hljómsveit sem hét
Svartur pipar.
„Allt í einu var ég farin að vinna
við að syngja 6 tU 7 sinnum í viku,
með skólanum og tónlistarskólanum,
og svo var ég að vinna líka.“ Margrét
bætir við hlæjandi: „Ég er sem sagt
vinnualki, algjör vinnualki. Ég var
samt orðin svo þreytt í röddinni eft-
ir helgarnar að söngnámið datt á
endanum upp fyrir og svo skólinn."
Margrét Eir segist samt aUtaf hafa
reynt að halda sér við með því að
fara i söngtíma. Auk þess telur hún
aUa menntun vera af hinu góða.
„Núna er ég rosalega mikið í
poppi, rokki og djassi en ég hlusta
mikið á aðra tóniist. Það eru mikU
mistök fmnst mér að týna sér alveg í
þeirri tónlistarstefnu sem maður er
að vinna í á þeim og þeim tíman-
um.“
Syngur allan fjandann
„Ég var orðin „fuU time“ söng-
kona á þessum tíma. Ég söng með
Svörtum pipar og var að uppgötva
sjálfa mig sem söngkona og allan
„prósessinn" sem fylgir því að vera í
hljómsveit. Það er mikiU skóli.“
Margréti fannst hún aUt í einu verða
rosalega gömul sál á einu ári.
„Þama er maður að vinna þegar
allir aðrir eru að djamma. Og ég er
það mikU „prinsipp“-manneskja að
ég er ekki að detta í það og taka
þetta á rokkinu (þótt ýmislegt komi
fyrir!). Ég er aUtaf að reyna að gera
mitt besta. Það var eitthvað sem
sagði mér að ég ætti að gera þetta,“
segir Margrét. „Þótt ég hafi verið
hás eftir hverja einustu helgi og
rokkandi röddina til helvítis þá
lærði ég rosalega mikið á þessu. Ég
lærði á röddina mína.“ Nú segist
hún geta sungið aUan fjandann án
þess að verða hás.
Hárið
Árið 1994 tók Margrét Eir þátt í
uppfærslu á Hárinu. „Ég hef aldrei
upplifað annað eins. Þama fór ég
líka að verða aðeins þekktara nafn
út af laginu sem ég söng, Að eUífu.
Ég fékk líka tækifæri með þessu tU
að sýna mínar fjölbreyttu sönghlið-
ar.“ Sýningamar gengu í sex mánuði
og urðu um 90 talsins. Margrét bæt-
ir við: „Þetta var ofboðsleg keyrsla
en gaman, það var svo góður
rnóraU." Hún segir að í hvert einasta
skipti sem hún hitti einhvem úr
sýningunni tali þau/þær um hvað
það hafi verið gaman í þessum hóp.
„Þetta var æðislegt ævintýri og mik-
U upplifun að fá að syngja frægasta
lag „ever“ í söngleik.“
Leiklist í Boston
í janúar ‘95 fór Margrét Eir til
Boston í Bandaríkjunum
í söngleikjanám.
„Ég hætti
hins veg-
Söng- og leikkon-
an Margrét Eir hef-
ur mörg járn í eld-
inum. Hún segir að
fyrst hafi heyrst frá
henni söngur þeg-
ar hún var fimm
mánaða og þá
með þjóðsöngnum.
Þetta er því kona
sem ræðst ekki á
garðinn þar sem
hann er lægstur, Á
næstunni er vænt-
anleg frá henni
plata. Þorgerður
Agla Magnúsdóttir
tók hana tali og
forvitnaðist um
plötuna og allt hitt.
ar við söngleikjanámið eftir svona
mánuð og fór alfarið í leiklist," segir
Margrét. Skólinn heitir Emerson
CoUege og segir Margrét þetta vera
góðan skóla. TU að komast i upp-
færslur á vegum skólans
þurfti hins vegar að fara i
áheymarpróf og standast
það. Þau voru haldin
þrisvar á vetri. „Það var
því aUs ekki öruggt að
maður fengi að taka
þátt í sýningum þótt
maður væri að læra
leiklist í skólan-
um.“ Margrét held- '
ur áfram: „Það
var frábært úti í
Boston . en fyrsta
önnin min var al-
veg hræðUega erf-
ið. Ég meina, ég
var að flytja ein í
ókunnuga borg.“
Ástæðan fyrir
því að Margrét Eir
skipti yflr í leiklist-
ina alfarið var að
hún var búin að vera
svo mikið í söngnum.
„Auk þess bauð tónlist-
ardeildin ekki upp á
marga kosti en leiklistar-
deUdin er hins vegar mjög
sterk.“ En Margrét Eir fór
líka í söngtíma með leik-
listarnáminu. „Ég var með
sama kennarann aUan tím-
ann og hann kenndi mér
rosalega mikið. Og það var
bara klassík. Ég hafði
ekki sungið klassík
svo lengi þannig
að þetta var
mjög krefj-
andi.“
Þama var Margrét Eir í 3 og hálft ár.
Aðspurð segir Margrét að í skólann
hafi oft komið gestafyrirlesarar. Sem
dæmi nefnir hún leikritaskáldið
David Mamet og leikstjórann Gary
MarshaU, en hann leikstýrði meðal
annars Pretty Woman og Frankie
and Johnny.
Mama Rose
Síðasta árið tók Margrét þátt í
uppsetningu á söngleiknum Gypse
og fékk í sinn hlut aðalhlutverkið.
„Þetta var rosastór og dýr sýning. Ég
lék Mama Rose. Það var mjög gaman
og ég fékk líka góða blaðadóma," seg-
ir Margrét stolt.
1 upphafi segist Margrét Eir hafa
tekið það mjög rólega. „Ég sótti ekki
einu sinni um í fyrstu sýningamar,
ég bara kunni það ekki, var alveg á
taugum. Hvað ef ég gleymi textan-
um? Mér fannst bara alveg nógu
erfitt að vera í nýju umhverfi og
vera að byrja í skólanum." Loks kom
þó að því að Margrét hætti sér í
áheyrnarpróf.
„Én kennararnir vissu ekki einu
sinni að ég væri söngkona. Ég var
bara í leiklistinni. Byrjaði mjög lítið,
í litlum sýningum. Þegar aðalkennar-
inn minn, David Robinsson, komst
svo að því að ég gæti sungið fór hann
að troða mér í sönghlutverk í hverju
einasta stykki sem hann var með,“
segir Margrét Eir og hlær. Vorið ‘98
útskrifaðist Margrét úr skólanum og
fór strax á mánaðar-Shakespeare-
námskeið. „Það var alveg geðveikt,
bara úti í náttúrunni með Shakespe-
are. Þarna tók ég ástfóstri við
Shakespeare," segir Margrét dreym-
in á svip.
Disney fyrir fullorðna
„Eftir þetta fór ég til New York til
að meika það. Maður fær nefnilega
atvinnuleyfi í eitt ár eftir tveggja ára
nám þama úti. Ég vann sem þjón-
ustustúlka eins og fjölmargir leikar-
ar gera og fór í áheymarpróf þess á
miUi.“ Margrét Eir vann á stað þar
sem voru leikarar í því að „harra-
sera“ kúnnana. „En ég var ekki í
því, ég var bara þjónustustúlka,“
segir Margrét. Hún segir hafa gengið
hægt að meika það því að í október
var hringt í hana frá Þjóðleikhúsinu
og henni boðið hlutverk i söngleikn-
um Rent. „Þannig kom ég heim 26.
febrúar ‘99 og hafði þá bara verið í
New York í 6 mánuði. Ég var bara
enn þá að kynnast New York þegar
ég fór. New York er Disney World
fyrir fullorðna. Maður er bara: „oh,
my god“ allan daginn. Þarna eru
milljón og átta leikhús, staðir, kaffi-
hús og fólk.“ Margrét Eir segist
elska að hitta nýtt fólk sem geti
kennt henni eitthvað. „Alltaf þegar
ég hitti til dæmis skemmtilega ís-
lendinga sem ég hef ekki kynnst
áður þá hugsa ég: Af hverju hef ég
ekki hitt þig áður.“
Rent
Margréti fannst gaman að leika í
Rent því hún var búin að sjá stykkið
tvisvar sinnum áður. „Ég var rosa-
hrifin af söngleiknum, mikið rokk,
maður. Og ég filaði þetta allt rosa-
lega vel og það var mjög gaman en
leiðilegt hvað sýningarnar stóðu
stutt.“
Eftir Rent fór Margrét að
^ vinna - söng hér og þar á árs-
\. hátíðum, í brúðkaupum og
öðrum líkum uppákomum.
Svo fór hún að vinna í fé-
lagsmiðstöðinni Ekkó í
Kópavoginum og er að
kenna leiklist og söng í
tónlistarskólanum í
Árbæ. „Svo hoppaði ég
inn í S.O.S.-kabarett
og hvíslaði í Latabæ.
Ég endaði reyndar
uppi á sviði þar sem
Stína símalína. Það
var rosastuð en það
er erfitt að leika fyrir
krakka."
Margrét syngur
líka lög í hlutverki
Klöru í morgunstund
barnanna á sunnudags-
morgnum. í kringum
það hefur hún lent í hin-
um og þessum barna-
skemmtunum. Hún hefur
einnig verið að syngja
með Selmu í bakröddum í
sumar og túra með henni
og Todmobile. „Svo syng
ég inn á auglýsingar. Ég er
til dæmis röddin á bak við
talstelpuna,“ bætir Margrét
við.
Plata með Óla Palla
„Ég held samt að ég sé á
leiðinni út aftur. Ég er
að vísu að klára
þetta dæmi sem
ég stend í
núna, það er platan mín. Hún kemur
út um mánaðamótin septem-
ber-október.“ Þetta fyrsta sólóplata
Margrétar og segir hún að vinnan
við hana sé mjög spennandi. „Ég
ákvað að gera þessa plötu þegar
maður labbaði upp að mér á
skemmtistað snemma í vor og sagði:
ert þú ekki söngkona? Jú, sagði ég.
Þá sagði hann: Þú átt að gefa út
plötu, núna! Þannig byrjaði þetta,“
segir Margrét og hlær. Þessi maður
var Ólafur Páll Gunnarsson á Rás 2.
Hann hefur síðan aðstoðað Margréti
Eir við plötuna. „Ég hafði svo sem
velt þessu fyrir mér í tvö ár en
fannst ég ekki komin með efni. Það
hafði bara verið frestun en nú var
komið að því.“ Margrét hafði sam-
band við góðan vin sinn, Kristján
Eldjám, sem hún hafði unnið með
áður.
„Ég valdi lögin í sumar. Svo talaði
ég við Karl Olgeirsson, sem ég hef
unnið með í 10 ár, Birgi Baldursson
á trommur, snillingur, og Jón Rafns-
son á kontrabassa. Úr þessu varð
hljómsveit. Svo fékk ég Tómas M.
Tómasson til að stjóma upptökum."
„THst“ lög
Margrét segir þau hafa æft í tvær
vikur. Einnig héldu þau frábæra
tónleika í Kaffileikhúsinu í síðustu
viku þar sem færri komust að en
vildu. Platan er öll tekin upp „læf ‘
því Margrét gefur hana út sjálf.
„Lögin eru öll sungin á ensku og
eru svona soldið trist. Ég tek lög
eins og True Colour með Cindy
Lauper og Live to Tell með
Madonnu. Svo eru líka lög eftir til
dæmis Paul Weller, Tom Waits og
Bob Dylan. Þetta eru gömul og ný
róleg lög og soldið annað en það
sem ég hef verið að gera.“ Margrét
segir þau hafa reynt að skapa sinn
eigin stfi í flutningi laganna. „Þetta
á eftir að koma soldið á óvart, ég
syng mjög rólega og oft verður
þetta að hálfgerðu hvísli.“
Algjör vinnualki
í framtíðinni ætlar Margrét Eir
sér að sjá fyrir sér og sínum. „Hvað
sem það nú þýðir. Ég nota alltaf orð-
ið „successful" því ég vU ekki endi-
lega frægð og frama. Ég ætla bara að
ná því takmarki sem mér er ætlað.
En einhvem veginn hef ég það á tfi-
finningunni að það sé ekki hér á ís-
landi. En ég er héma núna og ætla
að gera þessa plötu. Mig langar að
fara tfi New York aftur af því að þar
er eitthvað sem togar í mig. Á með-
an ég er enn óbundin og bamlaus þá
er ég enn þá frjáls. En ég er metnað-
arfull frá helvíti og algjör vinnucdki
eins og ég sagði áðan.“ Þess vegna er
Margrét tfibúin að fórna því sem
hún hefur héma fyrir ný tækifæri
úti.
„Þetta er ævintýraþrá og þrá eftir
að hitta nýtt fólk og vinna með metn-
aðarfullu fólki. New York er svo
kjörinn staður tU þess. Ég hefði samt
mátt vera duglegri við að koma mér
áfram þegar ég var þar. En það tek-
ur mann alveg heUt ár bara að flytja
tU New York og að fatta hana og
kunna að búa þama. Og svo að tapa
sér ekki í að vinna mikið. Það er
mikilvægt að fá tekjur en tU hvers
að vera þama bara tU þess? Þessa
dagana lifí ég bara fyrir daginn í
dag. Ég er auðvitað, eins og margir
aðrir, að leita að ástinni. En aUt
hefur sína tímasetningu.
Það er aldrei að vita
hvað gerist."
f Ó k U S 25. ágúst 2000