Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2000, Side 16
en við erum af skiljanlegum
ástæðum mjög sárir yfir fram-
komu borgaryfirvalda í okkar
garð. Á nýliðinni „menning-
amótt“ var komið fram við okkur
eins og við værum ekki til, hvað
þá að við værum einhver smá-
partur af menningu þessa lands
ef land skyldi kalla. Af öilum við-
burðunum á menningamótt (ör-
ugglega þrjú hundruð talsins) þá
var enginn viðburður með þátt-
töku okkar kraftlyftingamanna.
Við voriun ekki einu sinni beðn-
ir um að sprengja hitapoka,
hvað þá ...
*
... meira.
Þetta skýtur mjög skökku við.
Hvar sem er á landinu og á hvaða
menningarhátíð sem er þá erum
það við, kraftlyftingamenn, sem
berum höfuð og herðar yfir aðra.
Hvar væri Bylgjulestin ef ekki
væru kraftlyftingamenn? Mér
þætti gaman að sjá Hemma
Gunn, Stein Ármann, Gulla
Helga og drengina í Skítamóral
reyna að lyfta tvö hundmð kílóa
grjóthnullungi. Ég er hræddur
um að það yrði fljótt að renna af
... þeim.
Við kraftlyftingamenn höfum í
áratugi staðið fyrir gríðarlegri
landkynningu sem enginn virðist
hafa tekið eftir. Á meðan menn
hengja alls konar fálkaorður utan
á Björk og Kristján Jóhannesson
þá fáum við ekki svo mikið sem
baun í bala. Og svo litur Kristján
út alveg eins og feitur Þjóðverji
og Björk er alveg eins og Græn-
lendingur. Góða landkynningin
það. Erað þið að djóka í...
... mér?
Það sem manni dettur auðvitað
fyrst í hug er að Ingibjörg Sólrún
sé enn þá svona rosalega reið yflr
því þegar Hjalti Úrsus ætlaði að
flytja inn dverga til að nota í
dvergakasti í Hljómskálagarðin-
um fyrir nokkrum árum. Hún
virðist ekki enn þá vera búin að
ná því að dvergamir A: vilja láta
henda sér, B: fá mikla peninga
fyrir að láta henda sér, C: að fólk
hefur mjög gaman af dvergakasti
og D: að þetta vekur athygli á
stöðu fatlaðra í þjóðfélaginu. Er
ekki timi til kominn að láta gott
af sér ...
... leiða?
Við gerðum okkur ferð niður í
bæ á laugardaginn. Við byrjuöum
á því að fara á sýningu í Þjóðleik-
húsinu sem heitir Baldur. Á þetta
að vera menning sem fólkið fílar?
Örmjóir útlendingar í sokkabux-
um, með dinglandi pungana út um
allt. Og á þetta að vera tónlist?
Maður gæti orðið geðveikur á því
að hlusta á þennan hávaða ef
maður væri ekki tæpur fyrir.
Lokið þið mig heldur inni á al-
menningsklósetti með ...
... Börbru Streisand.
Við löbbuðum um bæinn og þar varð ekki þverfótað fyrir fólki. Á
það að vera svona rosalega menningarlegt? Og svo þessi flugeldasýn-
ing. Væri ekki nær að eyða þessum peningum í rannsóknir á
alzheimer? Hvar endar þetta endalausa menningarbrölt? Má ég þá
heldur biðja um dvergakast.
Rúnturinn á að sjálfsögðu að vera Skuggi, Sólon, Spotlight, Thomsen og Húð- og kyn. Þá sjaldan maður lyftir sér upp.
Það er um að gera að hafa gaman af heimsókninni upp á
Húð- og kynsjúkdómadeild og líta á það sem skemmtilega
lífsreynslu að deila kvíða og handsvita með súkkulaðigaurun-
um og 14 ára stelpunum sem voru að sofa hjá í fyrsta skípti
Húð- og kyn er nefnilega inn í dag, sem og Blóðbankinn.
Fókus fór í kjallaraskoðun hjá nágrönnunum í Húð og kyn
og upplifði stemningu sem á sér enga líka.
í fyrra skiluðu sér 6700 maniis
upp á Húð- og kyn sem er ekki
nóg iniðaö við ailt þaö skrall sem
viðgengst í dag. Ástæðan fyrir því
að ekkl komu íleiri liggur að
hluta til í því að deildin annar
ekki öllum þeim sem vilja koma.
Meirihluii þeirra sem koma á
deildina er karlar og því er það
kvenþjóöarinnar að sjá sóma sinn
í að mæta betur. Klamedía er al-
gengasti kynsjúkdómurinn en á
seinasta ári greindust rúm 600
tilfelli á deildinni. Fókus ætlar í
samvinnu við Iiúð- og kyn að
skera upp herör gegn kynsjúk-
dómum svo skemmtanalífíð og
fyigifiskar þess verði ánægju-
legri. Fókus spjallaði við Emmu á
deildinni og fór í Blóðbankann.
Þar mega næstum allir gefa blóð
nema sprautufíklar og karlmenn
sem stunda samfarir viö aðra
karlmenn.
Ókeypis og allt hægt
„Færri komast að en vilja," seg-
ir Emma Björg Magnúsdóttir,
deildarstjóri Húð- og kynsjúk-
dömadeildav, en hún segir deild-
ina löngu sprangna og ekki anna
öllu þvi sem hún þyrfti að gera.
Það er ekki margt sem fæst
ókeypis í dag. I rauninni er það
undarlegt að ekki skuli vera enn
fleiri sem viiji sækja Húð- og kyn.
íslendingar flykkjast á alla viö-
burði þar sem ókeypis þjónusta
eða hallærislegur smávarningur
er boðinn og hví skyldi því ekki
frí þvagprufa freista? Það er því
ekki nógu gott að aðeins skuli að
meöaUah 27 koma á deildina á
dag. Koman, rannsóJmír og með-
ferð sem hægt er að framkvæma á
deildinni; allt er þetta ókeypis.
Misjafnt er eftir hversu langan
tíma niöurstöður berast en það
fer þannig fram að við syndasel-
irnir hringjutn inn og fáum upp-
lýsingarnar símleiðis. Klamedíu-
greining tekur ivo til fjóra daga,
sem og HlV-greining. Greining á
lifrarbölgu og sárasótt getur tekið
allt að tveimur vikum. Svo er
hægt að lækna klamedíu og lek-
anda og meðhöndla kynfæravört-
ur og herpes.
Við erum við símann
núna
„Það fer eftir þinni samvisku
og hvað þú ert búinn að vera að
gera,“ segir Emma þegar blaða-
maöur spyr hvort hann þurfi aö
Engir hommar, takk
Til að gefa blóö verður maður
að vera á aldrinum 18 til 65 ára.
Lungna- og hjartasjúklingar mega
ekki verða blóðgjafar og haílr þú
fengið þér húðflúr eða hring þá
máttu ekki leggja inn í eitt ár.
Samkvæmt alþjóölegum reglum
blóöbanka er ekki mælst til þess
að hommar gefí blóö. Ástæðan er
hræösla við alnæmissmit. Þessu
kann þó að verða breytt í nánustu
framtíð þvi eins og almenningur
veit eru alnæmistilfelli í dag mun
fleiri hjá gagnkynhneigöum en
samkynhneigöum. „Þetta er ófrá-
víkjanleg regla. Viíjum við vera
hluti af þessu alþjóðasamfélagi þá
lútum við henni. Það verður hins
vegar tímanna tákn þegar þetta
verður tekið til endurskoöunar,"
segir Sveinn Guðmundsson, yf-
irlæknir í Blóðbankanum.
í fyrsta skipti er tekin lítil
prufa og hún athuguð. Sé eitthvað
að blóðinu er viðkomandi látinn
vita og sagt hvert hann á að snúa
sér. Karlar sem gefa blóð geta
komið fjórum sinnum á ári en
konur þrisvar. Fólk gerir sér yfír-
leitt ekki grein fyrir hversu mik-
ið blóð þarf til daglegrar notkun-
ar á sjúkrahúsunum. Blóðiö er
notað í aðgerðum og svo eykst
þörfin þegar mikið er um slys.
Alltaf er samt þörf fyrir nýja blóð-
gjafa, þannig þurfa 70 manns að
láta sjá sig á degi hverjum svo
bankinn haldist gangandi.
Engar fortölur og hana nú. Ótti
við nálar er ástæöulaus. Nú er
það bara gamli ungmennafélags-
andinn að vera með, fara í athug-
un upp á kynsjúkdómadeild og
gefa svo blóð í bankanum.
Skemmtanalíf borgarinnar er nú
einu sinni hin eiginlega biöstofa
Húð- og kyn þannig að flest erum
við komin hálfa leiö. Hálfnað
verk þá hafiö er.
vera smeykur við að koma til
hennar. „Ég ráðlegg hiklaust
ungu fólki sem oft skiptir um
rekkjunaut eða er að byrja í sam-
bandi að koma til okkar í tékk,“
segir Emma. Einungis þarf að
gefa upp nafn og kennitölu og
blóð- og þvagprufan tekur enga
stund. Emma ítrekar líka aö eina
öragga ráðið til að verjast kyn-
sjúkdómum er að nota smokk-
inn. „Svo á maður heldur aldrei
að sofa hjá einhverjum sem mað-
ur þekkir ekkert til.“ Það eru
gömul og ný sannindi.
Nú er sem sagt ekki eftir neinu
að bíða. Maður hringir bara og
pantar tíma sem eru bókaðir tvo
daga fram í tímann. Tekið er á
móti tímapöntunum milli kl. 9 og
10 alla virka daga. Þá er bara að
grípa tækifærið, freista gæfunnar
og slá á þráðinn. Emma segir
reyndar að erfitt geti verið að fá
tíma en einnig er hægt að leita tO
heimilislækna og Læknavaktar-
innar.
Bara blóðgjöf
Blóðbankinn er hins vegar allt
annar handleggur því þar era gef-
ins kökur. Taka verður skýrt
fram að þangað á maður aðeins
að leita til að gefa blóð en ekki til
að fara í sjúkdómatékk. Heim-
sókn í bankann á náttúrlega að
16
f Ó k U S 25. ágúst 2000