Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2000, Side 17
Dagný Hulda Er-
lendsdótlir e r u n g u r
háskólanemi á
framabraut sem
lætur sér fátt fyrir
brjástilbrenna. Mún
er n'efnilega á
inni í nám til
lands þar sem hún
ætlar að dvelja
næsta árið. Hún
hlær framan í hætt-
urnar og gerir lítið úr
því þegar minnst er
á banvænan berkla-
stofn og háa glæpa-
tíðni í Sankti Péturs-
borg, borg sem kö 11-
uð hefur verið Fen-.
eyjar norðursins. Iss.
ÉP$P
þar Sem £
rs?rás-apét^
söguogÞarætJDaXar;ybnr0tnÍ
fussnesku þjóöarsáS %
PSargersemum borgannnaf "
'JO
framabraut
í R ú s s
Af hverju rússneskunám?
„Mér flnnst rússneska mjög fal-
legt tungumál og svo hefur
æsispennandi fréttaflutningur á
RÚV í gegnum tiðina haft mikil
áhrif á mig. Þetta var þannig að
strax eftir stúdentspróf frá ML fór
ég í frönsku í Háskólanum en
skipti yfir í rússnesku strax eftir
fyrsta daginn. Þá hafði ég setið í
frönskutímum heilan dag og hafði
bara skilið Bon jour. Svo hlógu
allir að frönskubröndurunum
nema ég. Það var því ekkert ann-
að í stöðunni en að arka upp á
Stúdentagarð með grátstafmn í
kverkunum og þar sem ég stýfði
lifrarpylsukepp úr hnefa ákvað
ég að hefja rússneskunám. í mér
hafði alltaf blundað sú löngun að
læra rússnesku og ég sé ekki eftir
þeirri ákvörðun. Það er gaman að
kunna eitthvað sem fáir kunna og
svo eru rússneskar bókmenntir
sérlega skemmtilegar.“
Rússneskur hundur
Ertu af rússnesku bergi brotin
eða þekktirðu einhverja Rússa þá?
„Nei, það eru engir Rússar í
ættinni minni en það býr rúss-
neskur hundur í götunni minni
sem e.t.v. skýrir þenna mikla
áhuga.“
Hvað voru þeir margir sem
námu rússnesku með þér í vetur?
„Við vorum Fimm og erum öll á
leiðinni utan núna í byrjun sept-
ember. Við fáum 400 íslenskar
krónur í styrk á mánuði frá rúss-
neska ríkinu en fyrir þá upphæð
fæst mun meira þar en hér heima.
Það er nefnilega mjög ódýrt að lifa
í Rússlandi."
Er rússneska hagnýtt nám?
„Já, það mundi ég segja. Reynd-
ar er verið að hætta að kenna
rússnesku í Háskólanum því að-
sóknin var svo lítil. Kennsla verð-
ur tekin upp að nýju ef 10 eða
fleiri nýnemar skrá sig.“
Vodki í dós
Þó vodki sé ódýrari en kók í
Rússlandi þá er þaó ekki þaö sem
dregur Dagnýju til landsins.
„Áfengisneyslu i Rússaveldi tel
ég vera verðlaginu að kenna, vod-
kinn er jú ódýrari en kók. Fólk er
að reyna að spara. Það er líka svo
kalt í veðri og manni hlýnar að
drekka smávodkadreitil. Ég hef
líka heyrt því fleygt að hægt sé að
kaupa hreinan vodka í dós úti í
búð. Það er líka algjör óþarfi að
blanda hann, kókið er svo dýrt. “
Er einhver dœmigerður rúss-
neskur matur sem þú kemur til
með að borða? „Jú, rauðrófu- og
kálsúpa. Annars ætla ég bara að
vera grænmetisæta þetta árið.“
Verður þetta ekki bara einn sam-
felldur „Komedy Zitkom-þáttur"?
„Ég vona ekki en það kemur í
ljós. Ég er búin að sjá myndir úr
íbúðinni þar sem ég verð og þar er
gaseldavél og fínt veggfóður. Svo
er sjónvarp ofan á ísskápnum og
risastórt greiðuloftnet ofan á því,
inni í húsinu. Vaskurinn er líka
skemmtilega ljósbrúnn. Það er
svolítið Komedy Zitkom. Annars
er ég mjög spennt að búa í íbúð-
inni því hún er á besta staðnum í
borginni."
Arftaki Árna
Hvað býstu viö aö fá út úr ár-
inu?
„Ég fæ auðvitað rússneskuna
en ég held samt að aðalnámið
felist í því að bjarga sér í daglega
lífinu.“
Hvað tekur svo við eftir BA í
rússnesku?
„Þá ætla ég í nám i fjölmiðlun;
ég ætla að vinna sem fréttamað-
ur,“ segir Dagný sem hlakkar til
dvalarinnar.
Arftaki Áma Snævarrs frétta-
manns eða Árna Bergmanns
blaðamanns er sem sagt kominn
fram á sjónarsviðið. Það er von-
andi stutt í það að við fáum að
berja Dagnýju augum á skjánum,
flytjandi fréttir af samlanda sín-
um, Pútín. Svo er sagt að ungt
fólk í dag hafi hvorki stefnu né
markmið! Fókus óskar Dagnýju
Huldu góðrar ferðar.
Sunnudaginn 77. águst munu
Förðunarskóii NO NAME ot
Naglaskóli Professionaíls kynn
starfsemi sína í Boihoiti 6.
íboði verður einstaklega Irtrík og
skemmtileg dagskrá.
Kennarar skólanna verða á
staðnum og veita allar upplýsingar um námið.
80 þúsund kr. vinningurt
Þeir sem skrá sig í tfsku- og Ijósmyndaforðun
eða í naglaskólann þennan dag eiga mögu-
leika á að vinna vörupakka að verðmæti
80.000 kr. Þeir sem áður hafa skráð sig á haustönn fara
sjálfkrafa í pottinn. Auk þess fá þeir sem skrá sig í tísku- og Ijósmyndaförðun
(12 vikur), leikhús- og kvikmyndaförðun (13 vikur) eða Naglaskóla Professionails
og greiða 15.000 króna staðfestingargjald,
10% afslátt af skólagjaldi.
PR*FkðÞi*NAiLí>
NAGLASKÓLI
NONAME
Sími 588 8300 • Fax 588 8500 | Bolholti 6 • 105 Reykjavlk | Sími 588 6525 • www.noname.is
25. ágúst 2000 f Ó k U S
AUK k329-71 sia.is / Myndir: Atli