Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2000, Blaðsíða 12
12
Útlönd
MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2000
I>V
Gagnrýni Nödyu á yfirvöld
Hún er meðal þeirra sem fá háar
bætur og nýjar íbúðir frá yfirvöidum.
Var ekki spraut-
uð niður
Móðir eins fórnarlambs Kúrsk-
kafbátaslyssins, sem sást í frétta-
myndum hrópa að rússneskum ráð-
herra, hefur sagt að sér hafi ekki
verið gefið róandi lyf heldur hjarta-
iyf.
í einu myndskeiðanna, sem var
sjónvarpað um allan heim og hefur
vakið athygli, sést að kona gengur
að móðurinni og sprautar hana í
handlegginn. Augnabliki síðar féll
Nadya Tylik saman og var fylgt á
brott. Frekari myndatökur voru
bannaðar.
Nadya hefur haldið áfram árásum
á yfirvöld fyrir ómarkviss og sein
viðbrögð. Hún býr í bænum
Vidyayevo þaðan sem Kúrsk lét úr
höfn í sina seinustu ferð.
Arsenikeitrun í
Bangladess
UNICEF, samtök Sameinuðu
þjóðanna, sögðu um helgina að 25
milljónir manna í Bangladess kunni
að vera í hættu vegna mengaðs
drykkjarvatns.
Arsenik er í grjóti og setlögum
en styrkur þess er talinn hafa
aukist á stórum svæðum vegna
jarðfræðilegra ástæðna.
Þegar hafa uppgötvast um 8000
tilfelli um eitrun og er það aðeins
talið vera toppurinn á ísjakanum.
Um 20% íbúa Bangladess eru taldir
vera i hættu. Eitrunin kemur fram
í svörtum blettum í húð sem leiðir
svo til krabbameins og dauða.
UNICEF hefur þegar varið 8
milljónum dollara í varnir og
fræðslu um hættuna.
Á vettvangi daginn eftir
Þrír létust og sá fjórði særöist í
skotbardaganum.
Þrír ísraelskir
hermenn skotnir
Þrír ísraelskir hermenn féllu í
skotbardaga við skæruliða Hamas
aðfaranótt sunnudags á Vestur-
bakkanum í Jerúsalem.
Það kann að vera að þeir hafi fall-
ið fyrir hendi félaga sinna. Yfirmað-
ur i israelska hernum segist ekki
geta útilokað að svo hafi verið.
Átökin voru þau mestu og blóðug-
ustu á Vesturbakkanum síðan árið
1996. Forsætisráðherra ísraels,
Ehud Barak, hefur fyrirskipaö
rannsókn á mannslátunum.
Sjónvarpsturn
brennur í Moskvu
liðið þar til fólk nær sendingum
sjónvarps aftur og jafnvel lengri
tíma breiðist eldurinn enn frekar út
og valdi meiri skaða.
Rafmagn var strax tekið af tum-
inum og gestum hans gert að koma
sér niður 340 metra með því að nota
stigana.
Vegna hæðar turnsins liggur
nærri að eina leiðin til að vinna
slökkvistörf sé að ofan og því
verður að nota þyrlur.
540 metra hátt mannvirki
Tuminn Ostankino er hæsta
mannvirki sinnar tegundar í heim-
inum, 540 metrar á hæð. Hann er úr
styrktri steinsteypu og stendur í
norðurhluta Moskvuborgar.
Hann var byggður árið 1967 og
var áður stolt Sovétrikjanna og tákn
um innreið nútímans. Turninn
hefur áður komist í heimsfréttirnar,
hann varð vettvangur átaka þegar
uppreisnarmenn reyndu að steypa
af stóli sfjórn Borísar Jeltsins árið
1993.
Eldur braust út um miðjan dag í
gær í sjónvarpsturni í Moskvu.
Enginn eldur er sjáanlegur utan á
tuminum en upptökin voru í
rafmagnsköplum inni í honum.
Samkvæmt fréttastofunni Itar-
Tass er fjögurra manna saknað, þ.e.
þriggja slökkviliðsmanna og eins
starfsmanns turnsins. Þá eru þrjár
lyftur inni i turninum og eru þær
sagðar hafa fallið niður þegar
rafmagnið fór af tuminum.
Eldur slökktur úr þyrlum
Eldurinn kviknaði um 100 metra
fyrir ofan útsýnispall og veitinga-
stað sem eru hvað vinsælastir ferða-
mannastaða í Moskvu.
Úr tuminum senda 30 sjónvarps-
og útvarpsstöðvar allt efni sitt og
því varð borgin sjónvarps- og út-
varpslaus. Sendingar
ríkissjónvarpsins lágu einnig niðri í
nálægum héruðum.
Sendingum nokkurra stöðva var
fljótlega komið á aftur en víða næst
sjónvarp ekki enn þá. Vika getur
I 400 metra hæð yfir Moskvu
Sjónvarpsútsendingar liggja niðri og
slökkvilið vinnur úr þyrlum.
Súkkulaðihúðaöur og dansandi á karnivali
Karnival í Notting Hill í Bretlandi dregur árlega til sín hundruð þúsunda. Þetta er stærsta karnival í Evrópu og fer
stækkandi með ári hverju. Þessi réð sér ekki fyrir kæti þar sem hann dansaði á eftir trukk í miðjum mannfjöldanum
en mikið ber á íburðarmiklum búningum og skreyttum bílum á þessari götuhátíð.
Bandaríkjaforseti í opinberri heimsókn í Afríku:
Clinton hyggst auka
samstarf við Afríkuríki
Bill Clinton kom í gær til Nígeríu
í opinbera heimsókn með Chelsea
dóttur sinni. Nígeríuheimsókninni
lýkur i dag þegar forsetinn heldur
til Tansaníu.
Olíulindir og uppbygging
Bandaríkin hyggja á aukið sam-
starf við Nígeríu enda býr landið yf-
ir auðugum olíulindum. Það er jafn-
framt fjölmennasta landið í Afríku.
Bandaríkin vilja stuðla að aukinni
efnahagslegri uppbyggingu í Níger-
íu.
Móttökur heimamanna voru hlý-
legar í gær og dagskráin þétt skip-
uð. Clinton sat meðal annars ráð-
stefnu um börn meö alnæmi og hitti
íbúa þorpsins Ushafa, stutt frá höf-
uðborg Nígeríu, Abuja, og hlaut að
gjöf búning innfæddra.
Þegar Clinton kom í bæinn
Clinton í Nígeríu
Bandaríkjaforseti og Muhammadu
Bada fytgjast með dansara í Ushafa.
Arusha í N-Tansaníu í dag blasti við
honum sýn ólík þeirri sem heima-
menn og aðrir gestir fá að sjá. Bæn-
um hefur verið gefm andlitslyfting
á mettíma. Heimsókn Clintons
stendur aðeins 5 klst.
í sparifötin fyrir Clinton
Vegir hafa verið sléttaðir, götu-
skilti sprottið upp, ljósastaurar mál-
aðir, rusli sópað burt og betlurum
skipað að hafa sig á brott. M.a.s.
flækingskettir og hundar hafa horf-
ið.
íbúar Arusha eru vanir tignum
gestum en Clinton er valdamesti
vestræni leiðtoginn sem heimsótt
hefur bæinn.
Fjölmiðill í Tansaniu hafði orð á
að Bandarikjaforseti þyrfti að heim-
sækja fleiri bæi til að knýja fram
þróun og framkvæmdir.
mwEssmi
Arafat hitti Jose Maria
Arafat, forseti
Palestínu, hitti for-
sætisráðherra
Spánar, Jose Maria
Aznar, í Madrid í
gær til að ræða um
Jerúsalem. Borgin
er nú helsti ásteyt-
ingarsteinn í friðar-
viðræðum ísraela og Palestínu-
manna.
Biðst fyrirgefningar
Leiðtogar kaþólsku kirkjunnar
báðust fyrirgefningar á afskipta-
leysi kirkjunnar í seinni heims-
styrjöldinni og helforinni í kirkjum
víða um land í gær. Fyrir strið voru
3 milljónir gyðinga í Póllandi en
nokkur hundruð eftir það.
86 aftökur í Sádi-Arabíu
Karlmaður var líflátinn í gær í
borginni Riyadh fyrir að hafa
nauðgað tveimur stúlkum. Aftökur
á þessu ári eru orðnar a.m.k. 86 tals-
ins. Alls voru 99 líflátnir í fyrra,
þ.á.m. margir útlendingar.
Eldarnir geisa enn
Enn þá geisa skógareldar í Grikk-
landi en fjölþjóðlegt björgunarlið
berst nú við að ráða niðurlögum
eldanna víða. Þessu valda miklir
þurrkar í Miðjarðarhafslöndunum
upp á síðkastið. Þá geisa eldar á
Korsíku og á Korfu. Siðan í maí
hafa eldar í Grikklandi orðið 12
manns að bana.
Til eyðingar kjarnavopna
SBretar tilkynntu í
gær að þeir mundu
fyrrum Sovétríkjun-
vopnum þekkir eng-
in landamæri,“ sagði Robin Cook.
Fjögur serbnesk börn myrt
Ekið var á fjögur serbnesk börn í
Kosovo í gær. Lögregla handtók al-
banskan mann sem talinn er valdur
að slysinu. Síðan NATO og SÞ tóku
yfir stjórn Kosovo í júní í fyrra hafa
Serbar og aðrir minnihlutahópar í
auknum mæli orðið fyrir árásum al-
banska meirihlutans.
Snoðinkollar í Póllandi
Til átaka kom í hópi pönkara og
nýnasista á rokktónleikum í borg-
inni Poznan á laugardagskvöldið.
Árás ungmennanna 300 beindist svo
að lögreglu þegar hún skásti leik-
inn. Fjórtán á aldrinum 17 til 21 árs
voru handteknir.
Fjöldamorð í Kólumbíu
Hægri öfgasveitir í Kólumbiu eru
grunaðar um að hafa myrt 22
óbreytta borgara um helgina í
tveimur atrennum.
Tiu fórust í flugslysi
Björgunarlið á N-Costa Rica fann
í gær flak flugvélar, sem saknað
hafði verið síðan á laugardag, utan
í hlíðum eldfjalls. Allir 10
farþegarnir létust. Vélin var 14 sæta