Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2000, Page 13
MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2000
DV
13
Útlönd
Filippseyskir uppreisn-
armenn sleppa fimm
Fimm gislum, sem verið hafa í
haldi uppreisnarmanna á Filipps-
eyjum, var sleppt úr haldi í gær.
Talið er að stjóm Líbíu hafl þurft að
greiða eina milljón dollara fyrir
hvern gisl. Lausn gíslanna er
niðurstaða mikilla samninga-
viðræðna sem staðið hafa yfir milli
Líbíustjómar og skæruliðanna.
Gíslarnir voru fjórar konur og
einn þýskur karlmaður. Tvær
kvennanna eru franskar, sú þriðja
afrísk og fjórða konan frönsk-
líbönsk.
Ættingjar frönsku kvennanna
þriggja fögnuðu á meðan stjórnvöld
héldu áfram aðgerðum til að frelsa
þá gísla sem enn eru í haldi á
suðurhluta Filippseyja. Jacques
Chirac forseti og Lionel Jospin,
forsætisráðherra Frakklands, glödd-
ust yfir því að konumar skyldu
vera lausar en halda jafnframt
áfram aðgerðum til að frelsa þá þrjá
Frakka sem uppreisnarmenn halda
enn föngnum. Þeir sögðu það
skyggja á gleðina í gær að vita af
hinum gíslunum enn á Joloeyju.
„Allt verður gert til að leysa þá úr
haldi og það eins fljótt og auðið er,“
sagði Chirac.
Gíslamir hafa nú verið í haldi á
Joloeyju i fjóra mánuði. Meirihluti
Filippseyinga er kaþólskur en á
suðurhluta eyjanna er flokkur
uppreisnarmanna undir stjóm
Abus Sayafs. Þeir vilja stofna
sjálfstætt íslamskt riki.
Fimm af tólf gíslum sleppt í gær
Franski gíslinn Sonia Wendling kveöur unnusta sinn sem enn er haldiö föngnum á Joloeyju á Suður-Fillppseyjum.
Skæruliöar hafa haldiö 12 í gíslingu í 4 mánuöi en útlit er fyrir aö á næstu dögum veröi þau öll leyst úr haldi.
MfSÍpJF
" " ' •''' .-L,.
-í - 'gi 7 •
meö flugvallarskatti
báöar leiðir
©
bókunarsími 00 44 12 79 66 63 88
250 kr. aukaafsláttur ef
bókað er á www.go-fly.com
miðast við eftirspurn samkvæmt skilmálum i nýja lágfargjaldaflugfélagið í eigu british airways I flýgurtil stansted
london stansted • alicante • barcelóna • bilbao • bologna • kaupmannahöfn • edinborg • faro • ibiza • lissabon • madrid • malaga • mílanó ■ napolí • palma • prag • róm • feneyjar