Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2000, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2000, Page 28
,.44______ Tilvera MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2000 ÐV lí f iö E F T I R V I N N U Spænski gítarleikarinn Manuel Babiloni heldur námskeið fyrir ís- lenska gítarleikara í dag og á morg- un í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar í Hraunbergi 2. Manuel Babiloni fæddist í Castellón á Spáni. Manuel Babiloni hélt tón- leika í Áskirkju í gær. KSúbbar ■ KARLREMBUBOLTI A IÞROTTA- KAFFIHUSINU Fótbolti í kvöld klukkan sjö á Sportkaffi. Sheffield W. gegn Blackburn R. í beinni. Krár 1 MIÚES DOWLEY A ROMÁNCÉ Miles Dowley skemmtir gestum Café Romance og Café Operu um þessar mundir alla daga nema mánudaga, frá kl. 20 til 1 virka daga og 21 til 3 um helgar. ■ DÚETT SVEINS Á PUNKTINUM Dúett Sveins í kvöld til 1. Opnanir ■ MYNPIRNAR HENNAR SIGGU í ■» dag munu Byggöasafn Hafnarfjaröar og Islandsbanki opna Ijósmynda- sýninguna „Bærinn minn“, myndir úr eigu Sigríöar Erlendsdóttur, í nýju húsnæði bankans aö Strandgötu I Hafnarfiröi. Myndir þessar hafa ekki áður komið fyrir sjónir almennings. Sigriður var áhugamanneskja um Ijósmyndir og eftir hana liggur fjöld- inn allur af filmum og Ijósmyndum sem með leiftrandi hætti bera vitni um sýn Sigriðar á bæinn sinn og fólkið sem hann byggöi. Sýningin er opin á sama tíma og bankinn. Síðustu forvöð ■ MALVERK FRA MARS I dag lýkur í Odda málverkasýningu Williams K. Hartmanns í tengslum við alþjóö- lega ráöstefnu um könnun heim- skautasvæöa og jökla á Mars sem > haldin var dagana 21.-25. ágúst. Sýningin, sem nefnist Rauöa plánet- an. er opin frá 9.00-22.00. Um sölusýningu er að ræða. ■ BEZTI HLEMMUR í HEIMI Hlemmur, sem nokkurs konar jaðar- svæði, millibilssvæði þar sem fólk staldrar ekki lengi við, er viðfangs- efni sýningar Alþjóöa sýningarfe- lagsins (Exlntern) á svæðinu í kring- um Hlemmtorg í Reykjavík sem verð- ur lokað í dag. Fundir ■ RAÐSTEFNA UM HUGBUNAÐ Háskóli Islands heldur alþjóðlega ráðstefnu um gæði hugbúnaöar og hugbúnaðarþroun þann 31. ágúst og 1. september næstkomandi. Heið- ursfyrirlesarar ráðstefnunnar eru J tveir, þeir dr. David Parnas, prófess- or í Kanada, og Pekka Kess, pró- fessor í Finnlandi. Myndlist ■ HEIMIR í KETILSHÚSII Ketils- húsi á Akureyri er til sýningar audio visual list Heimis Freys Hlöðvers- sonar. Sýningin er á vegum Lista- sumars á Akureyri og lykur 4. sept- ember. ■ TORG OG TÓMIR KASSAR Borg- hildur Oskarsdóttir sýnir verk sín í Listasafni ASÍ, Ásmundarsal og Gryfju. Sýningin, sem stendur yfir núna, nefnist „Torg og tómir kass- > ar“ og eða „Hver er þessi hnöttur Jörð?“ Sýningin stendur til 10. sept- ember og er opin alla daga frá kl. 14.00-18.00. ■ ARNA í KOMPUNNI í Kompunni á Akureyri stendur nú yfir myndlistar- sýning Ornu Valsdóttur á vegum Listasumars á Akureyri. Sjá nánar: Líflð eftir vinnu á Vísi.is Tónleikaferð hafin Raddir Evópu sungu í Hallgríms- kirkju á laugardaginn og i gær. Margt var um manninn á tónleikun- um sem mörkuðu upphaf tónleika- ferðar kórsins um menningarborg- irnar níu. Raddir Evrópu eru eitt viðamesta sameiginlega verkefni menningarborganna og er stýrt af Reykjavík. Kórinn kom fyrst saman um áramótin og söng þá í Reykja- vík. Hann æfði svo af kappi undir stjórn kórstjóra frá öllum menning- arborgunum í Reykholti aUa síð- ustu viku. Tónskáld Auðunn Atlason og Atli Heimir Sveinsson. Stjórnendur frá menningarborgunum Michel Capperon frá Frakkiandi, Denis Menier frá Betgiu og Maximino Zumalave frá Spáni. Bíógagnrýni Háskólabíó/Bióborgin/Laugarásbíó - Shanghai Noon:|; Fáránleiki í Villta vestrinu Ekki er ég viss um að harðir aðdáendur vestra séu ánægðir þessa dagana, varla búnir að jafna sig á fáránleikanum og vitleys- unni í Wild Wild West þeg- ar boðið er upp á Shanghai Noon (nafnið gæti þess vegna verið fengið frá tveimur frægum kvik- myndum, Shanghai Ex- press og vestranum fræga, High Noon, þar sem byssuglaðir kúrekar eru af- vopnaðir með einu karatestökki. Shanghai Noon hefur það þó fram yfir Wild Wild West að hún er á köflum fyndin og þar er mest að þakka Jackie Chan sem hefur það fram yfir koUega sína í leikara- stéttinni, sem eru betri slagsmála- hundar en leikarar, að í leik hans og bardagalist er mikiU húmor. Svo fær hann ágætan mótleik frá Owen Wilson. Saman mynda þeir nokkurs Nýkominn frá Kína í Villta vestriö. Jackie Chan í hlutverki lífvarðarins sem ætiar sér að frelsa kínverska prinsessu. konar Bakkabræðradúett þar sem annar er símalandi á meðan hinn lætur verkin tala. Jackie Chan leikur lífvörð í kín- verska hemum, Chon Wang, sem fær það verkefhi að fara tU Bandaríkj- anna og frelsa kín- verska prinsessu (Lucy Liu) sem hef- ur verið rænt. Slóð prinsessunnar ligg- ur í VUlta vestrið þar sem klæðnaður Wangs vekur ekki minni athygli en útlit hans. Á vegi hans verður hinn misheppnaði lestarræning Roy O’Bannon (Owen WUson) og er lítiU vinskapur á miUi þeirra í fyrstu en það á eftir að lagast og taka þeir hönd- um saman um að bjarga prinsessunni. Þegar best lætur er Shanghai Noon vel heppnaður farsi. Hraðinn í atburðarásinni er mikiU. Fyndnar setningar eru oftast á kostnað Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Chans og svo er myndin upp fuU af vel útfærðum bardagasenum og áhættuatriðum. Enginn slær þó Jackie Chan út í slíkum atriðum þar sem hann nánast prjónar sig í gegnum tug af kúrekum eins og ballettdansari innan um glímu- kappa og gerir svo hluti sem aðrir leikarar mundu fá áhættuleikara til að gera fyrir sig. Owen Wilson á einnig sínar góðu stundir, fer sér- lega vel með hlutverk sitt, og er oft á tíðum sá sem heldm- húmomum gangandi. Aðrir leikarar eru í raun aðeins til uppfyUingar fyrir þá fé- laga. Það er greinUegt að Jackie Chan og Owen WUson hafa haft skemmtun af að gera þessa kvik- mynd og svo er örugglega um flesta þá sem sjá myndina. Hilmar Karlsson LeikstjórcJohn Day. Handrit: Alfred Gough og Mlles Millar. Kvikmyndataka: Dan Mindel. Tónlist: Randy Edelman. Aö- alhlutverk: Jackie Chan, Owen Wilson, Lucy Liu og Brandon Merrill. Ein af röddum Evrópu Laufey Kristjánsdóttir, Magnús Þór Gylfason og Elva Dögg Melsteð, kórfélagi og ungfrú ísland.is Islenski stjornandinn Áskell Harðarson ásamt Þorgerði Ingólfsdóttur. Ánægö með tónleikana Forseti íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, með Döllu, dóttur sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.