Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2000, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2000, Page 7
7 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000 I>'V Fréttir Ráðstefna um hamfarir haldin í Reykjavík: Islenskt rannsóknar- verkefni vekur athygli - miðar að því að lengja viðbragðstíma björgunarsveita og íbúa Meginefni alþjóðlegrar ráðstefnu um hamfarir, sem haldin er í Reykjavík þessa dagana, er viðbún- aður sveitarfélaga við hamforum. Á ráðstefnunni eru um 100 erlendir gestir og um 130 íslendingar. Þar með taldir eru Jóhannes Hermanns- son, starfsmaður kerfisverkfræði- stofu Háskóla íslands, og svissneski snjóflóðasérfræðingurinn Charly Wuilloud. Jóhannes hélt fyrirlestur í gær um hönnun bráðaviðvörunarkerfis við eldgosum og jarðskjálftum. „Þetta rannsóknarverkefni er samstarfsverkefni Veðurstofu Is- lands, kerfisverkfræðistofu Háskóla íslands og hugbúnaðarfyrirtækisins Stefju og miðar að því að lengja við- bragðstimann þegar jarðskjálftar eða eldgos verða, það er að segja búa okkur til aukafyrirvara," sagði Jóhannes. Hann útskýrði að við þetta verkefni, sem kostað er af Rannsóknarráði Islands, er stuðst við upplýsingatækni eins og hún gerist best í dag. Hugbúnaður og tölvukerfi sem Veðurstofan hefur byggt upp og notað í mörg ár - og sagði meðal annars til um síðasta Heklugos með nokkrum fyrirvara - eru þróuð frekar í þessu verkefni. „Við erum að reyna að þróa þessa tækni þannig að við getum lengt fyrirvarann svo til dæmis íbúar á svæðinu, björgunarsveitir og al- mannavamir geti fengið viðvörun og hafi tíma til þess að undirbúa sig,“ sagði Jóhannes. Hann bætti því við að þetta væri eina rannsókn- in þessa efhis í heiminum, að því að hann best vissi. Snjóflóðahætta „I meginatriðum eru snjóflóða- hættusvæði í Sviss og á íslandi sam- bærileg og ráðstefnur sem þessar, þar sem fólk deilir með sér þekk- ingu sinni, eru afskaplega gagnleg- ar. Báðar þjóðimar geta lært mikið hvor af annarri," sagði Wuilloud. Charly Jóhannes Wuilloud Hermannsson Veturinn 1998-1999 var einn sá harðasti í manna minnum hvað varðar snjóflóð í svissnesku Ölpun- um. Ejöldi manna einangraðist vegna snjóflóða og 17 manns létust. Yfirvöld voru vel undirbúin fyrir snjóflóð og er það hluti ástæðunnar fyrir því að ekki létust fleiri í þess- um hamforum. Til dæmis hefur í Sviss verið búið til kort yfir helstu hættusvæðin í Ölpunum og stað- setningu björgunarliðs. „Ég þekki ekki til íslenskra að- stæðna en ég er hér til þess að segja frá því hvemig við brugðumst við snjóflóðunum veturinn 1998-1999, bæði áður en atburðimir gerðust og á meðan á þeim stóð. Þessar aðgerð- ir eru kostnaðarsamar og fram- kvæmd þeirra veltur á vilja stjórn- valda til þess að borga fyrir öryggi fólks. I Sviss fáum við mikið fjár- magn vegna þess að við erum ekki bara að vemda fólkið okkar heldur líka hina fjölmörgu ferðamenn sem leggja leið sína til Sviss,“ sagði Wuilloud. Á ráðstefnunni, sem lýkur á morgun, fjalla fjölmargir aðrir ís- lenskir og erlendir fræðimenn um náttúmlegar hamfarir, sem og ham- farir af mannavöldum, eins og um- hverfisslys og hryðjuverk. Hún er haldin i samvinnu við Local Aut- horities Confronting Disasters and Emergencies sem eru alþjóðleg sam- tök sveitarfélaga gegn hamfomm. Þetta er fjórða ráðstefnan af þessu tagi en þær eru haldnar annað hvert ár. -SMK DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON. Áleiöis til himins Smiöir önnum kafnir viö aö slá upp mótum og járnabinda nýja himnastigann sem leysir þann eldri af en hann var oröinn lélegur. Nýr himnastigi í Borgarnesi DV, BQRGARNESI:__________________ Smiðir eru þessa dagana önnum kafnir við að slá upp og jámbinda fyrir steypuframkvæmdir nýjan himnastiga í Borgamesi að sögn Stefáns Kalmanssonar, bæjarstjóra í Borgarbyggð. Sá gamli var orðinn lélegur og varasamur á köflum og verður sá nýi steyptur upp fyrir haustið. Himnastiginn liggur frá Borgar- brautinni upp að fallegu kirkjunni í Borgamesi og geta Borgnesingar þá gengið til messu upp himnastigann án vandræða í haust. -DVÓ Afleiöingar hamfara. Þessa dagana fer fram rástefna um hamfarir í Háskóiabíói i Reykjavík, þar sem fjallaö er meöal annars um afleiöingar Suöurlandsskjálftanna fyrr í sumar. AEG Nýttu hana í sláturtíð, framtíð, berjatíð, nútíð, vertíð og gúrkutíð því verðið er í þátíð Sú blákalda staðreynd, að AEG frystikisturnar okkar hafa verið á sama verði í ríflega eitt ár, ætti að ylja mönnum um hjartarætur. Verðfrysting 3 ára ábyrgð Vörunr. Heiti Brútta Utrar Netto Lítrar Hæð sm. Breidd sm. Dýpt sm. Körfur sem fylgja Læsing Einangrun þykkt í mm. Rafnotkun m/v 18°C umhv.hita kWh/24 klst. Verð áður Tllboðsverð 12HS HF 120 132 126 86 55 61 1 Nei 55 0,60 43.092 29.900 23HL HFL230 221 210 86 79 65 1 Já 55 0,84 47.843 33.900 29HL HFL290 294 282 86 100 65 1 Já 55 1,02 51.039 35.900 38HL HFL390 401 382 86 130 65 2 Já 55 1,31 54.599 39.900 53HL EL 53 527 504 86 150 73 3 Já 60 1,39 65.116 46.900 61HL EL 61 607 581 86 170 73 3 Já 60 1,62 73.287 53.900 BRÆÐURNIR Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is RáDIOrMUSf Geislagötu 14 • Sími 462 1300

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.