Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2000, Side 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000
Skoðun 1>V
|| Spurning dagsins
Kvíðir þú vetrinum?
Ragnar Már Jónsson nemi:
Já, helst þá kuldanum og
erfiöu námi.
Ólafur Sævarsson rekstrarstjóri:
Nei, ég kvíöi ekki vetrinum,
fínt aö fá snjó.
Bjarki Sævarsson yfirþjónn:
Ails ekki, þaö veröur heitt og
gott í vetur.
Hugrún Torfadóttir nemi:
Nei, alls ekki. Fínt aö fá
snjóinn aftur.
Anna Vilhjálmsdóttir nemi:
Nei, ég hlakka til aö fara á skíöi.
Margrét Jónsdóttir nemi:
Nei, ég hlakka til aö fara á skíöi og
snjóbretti.
Ég heyrði á fréttum á Skjá einum
fyrir stuttu að sjónvarpsstöðin
Omega hefði eytt heilum þætti í for-
dæmingu á samkynhneigðum. Ég er
nú að verða svolítið þreytt á Gunn-
Eiri í Krossinum, Snorra í Betel og
fleiri „frelsuðum“ postulum og
þeirra sífellda barlóm um synd sam-
kynhneigðra. Þeir veifa stanslaust
framan í okkur Biblíunni og segja
hana skrifaða af Guði, sem er auð-
vitað kolrangt. Guð sem slíkur kann
ekki að skrifa. Biblían er að sjáif-
sögðu skrifuð af löngu liðnum
mönnum sem sömdu jafnframt í
hana allar reglur, þeirra tíma regl-
ur. Biblian er góð og virt bók og vel
skrifuð en hún kemur hinu góða al-
heimsafli Guði hreint ekkert við.
Kristnin er dásamleg trú, hún boðar
kærleik.
En það er ljótt að nota kristna trú
til refsingar á mannlegu eðli, það
hefur verið gert í gegnum aldirnar
og mál að hætta því á nýju árþús-
undi. Ég er kristin og trúi á Guð en
ég get ekki ímyndað mér að hann
hafi sérstaka óbeit á hommum og
lesbíum umfram aðra ef kærleikur-
inn og manngæskan eru þar í há-
vegum höfð rétt eins og hjá okkur
hinum.
Með því að fordæma samkyn-
hneigða er verið að reka þetta fólk
út í ystu myrkur. Því halda þessir
andans menn virkilega að það sé
hægt að venja sig af samkynhneigð
með trúarofstæki? Nei, þeir ættu að
vita betur.
Samkynhneigt fólk hefur alltaf
verið til og mun alltaf verða til.
„Kristnin er dásamleg trú,
hún boðar kœrleik. En það er
Ijótt að nota kristna trú til
refsingar á mannlegu eðli,
það hefur verið gert í gegn-
um aldimar og mál að hcetta
því á nýju árþúsundi. “
Þetta er ákveðin kynhneigð og hef-
ur ekkert um persónuna að segja.
Alveg eins og svertingjar eru ákveð-
inn kynþáttur og það hefur ekkert
með persónuna að gera heldur. Það
sem er aðalatriði í okkar mannlegu
samskiptum er kærleikur til allra
manna, umburðarlyndi gangvart
öðrum og ást á lífið. Það hefur heil-
mikið með trúna að gera.
Samkynhneigð
Adda Guðrún Sigurjónsdöttir
skrifar:
Skammarlegt
Hrafnkeil Daníelsson
skrifar:
Alveg er það með eindæmum að
fyrirtæki sem einokar alla mjólkur-
sölu í landinu skuli koma fram með
eins skammarlegt tilboð og gert var
í Dagblaðinu í dag, 24/8/00. Að
bjóða bændum þetta er eins og
grýta slasaðan mann. Flestir bænd-
ur eru búnir með kvótann sinn og
fá því ekkert fyrir mjólkina en
þurfa samt að borga flutningskostn-
að fyrir hana sé hún sótt til þeirra.
Ekki þarf að spyrja hvernig þeir
bændur fara að sem kláruðu kvót-
ann í vor eða snemmsumars. Ekki
hafa þeir úr miklu að moða í þá
mánuði sem ekkert fæst fyrir mjólk-
ina. Samt senda þeir hana í mjólk-
urbúin sem græða á öllu saman.
Bóndinn fær ekki neitt en Samsalan
fær edlan skerfinn í sinn hlut. Það
sýnir líka hversu óréttlátt þetta
„Það vœri í lagi ef Mjólkur-
samsalan hefði nú sýnt
smáviðleitni og boðist til að
lœkka verð á mjólk til móts
við það sem útgjöld hjá
henni lœkka þegarfleiri
bœndur klára kvótann.“
kvótakerfi er gagnvart bændum í
landinu og ekki að furða þó þeir
hætti búskap í stórum stíl og enginn
komi í staðinn. Þeir sem eftir eru
berjast svo um kvótann til að geta
aflað sér tekna út árið en hann er
rifinn af þeim af stjórnvöldum af og
til til þess að stemma stigu við fram-
leiðslunni. Það væri í lagi ef Mjólk-
ursamsalan hefði nú sýnt smávið-
leitni og boðist til að lækka verð á
mjólk til móts við það sem útgjöld
tilboð
hjá henni lækka þegar fleiri bænd-
ur klára kvótann. Það er ekkert rétt-
læti í því að fyrirtæki sem einokar
markaðinn geti svipt heila atvinnu-
grein tekjum sínum og grætt svo á
öllu saman.
Dagfari
Sveitavargurinn vill enn meira
íslensk sveitarfélög vaða áfram í botnlausri óráðs-
íu, bruðli og vandræðagangi. Þetta veit forsætisráð-
herra og þetta veit Dagfari lika. Þeir einu sem vita
ekkert um málið eru sveitarstjómarmenn sem
standa í miðju sukkinu upp fyrir axlir.
Það er góðæri í landinu og hefúr verið um langan
tíma. Það hlýtur því að teljast þó nokkuð merkilegt
að sveitarstjómarmenn á krummaskuðum landsins
skuli ekki hafa tekið eftir því. Davíð okkar Oddsson
er samt búinn að tyggja þetta í landslýð aftur og aft-
ur og er orðinn hundleiður á staglinu. Það virðist
bara ekkert af þessu landsbyggðarpakki hlusta á
sjálfan forsætisráðherrann. Ég hlýt því að álykta að
það sé bara eitthvað að heima hjá þessu fólki.
Við Davíð erum sammála um að það þurii að
hlaupa undir bagga með smælingjunum. Þess vegna
tókum við sjávarútveginn úr höndunum á fólki sem
kunni ekkert með slíkan rekstur að fara. Bara sú að-
gerð létti þungri byrði af sveitarfélögunum úti á
landi. Það vita allir að sjávarútvegur hefúr verið baggi
á þjóðinni nær alla tuttugustu öldina. Það er loks nú,
eftir tilkomu kvótakerfisins, sem einn og einn dugnað-
arforkur er farinn að græða eitthvað á þessu dæmi.
Nú er sem sagt búið að létta útgerðarbagganum af
stórum hluta landsbyggðarinnar svo sveitarstjómar-
menn þurfa ekki að grenja út af því. Það er líka búið
að bjóða frystihúsafólkinu svo þúsundum skiptir að
flytja í sæluna í Reykjavík til að vinna göfúg störf í
Við Davíð erum sammála um að það
þurfi að hlaupa undir bagga með
smœlingjunum. Þess vegna tókum við
sjávarútveginn úr höndunum á fólki
sem kunni ekkert með slíkan rekstur
að fara. Bara sú aðgerð létti þungri
byrði af sveitarfélögunum úti á landi.
verslunarkringlum svo ekki þarf heldur að kvarta
undan því. Víða um land er síðan búið að leggja
niður fjölmörg fyrirtæki sem ekki er þá lengur
hætta á að fari á hausinn. í staðinn hefúr verið
komið upp öflugum fyrirtækjum á höfúðborgar-
svæðinu sem skapa arð, fyrirtækjum fyrir lands-
byggðarlýðinn að vinna í, og þannig hjálpar Davíð
lítilmagnanum.
Allt eru þetta þjóðþrifamál en samt kvarta sveit-
arstjómarmenn og væla um að Davíð skaffi þeim
ekki nægar tekjur! Heimtufrekjan er með ólíkind-
um. Það virðist ekki duga að Davíð komi á fót góð-
æri og bjóði landsbyggðafólkinu til veislu á höfúð-
borgarsvæðinu. Sveitavargurinn vill enn meira.
Hann vill eftir sem áður halda uppi hundrað pró-
sent þjónustu um allt land. Öll krummaskuðin
skulu rekin á fullum dampi þó þar sé vart nokkur
hræða lengur. Svo eigum við að fara að verðlauna
þessa krummaskuðastjóra fyrir allt bmðhð. Skilja
þeir ekki nokkum skapaðan hlut?
Davíð er búinn að segja að það verði að reka sveit-
arfélögin með ráðdeildarsemi. Nú, ef menn treysta sér
ekki til þess, þá geta menn bara hætt þessu ströggh
eins og ahir aðrir og flutt til Reykjavíkur. Ekki er
Davíð að skikka fólk til að búa í þessum vonlausu
byggðum og hokra þar af einskærri sjálfseyðingar-
hvöt
Undarleg fram-
kvæmd
íbúi við Sogaveg sknfan
DV ætti ekki að láta kerfiskallana
stinga upp í sig þegar leitað er
frétta. Starfsmaður gatnamálastjóra
gerir það þegar hann segir í hálf-
kæringi frá furðulegum fram-
kvæmdum göngubrúar frá Sogavegi
yfir að Skeifunni. Sannleikurinn er
sá að brú þessi átti að koma í maí
samkvæmt blaðafregnum. Á föstu-
degi fyrir rúmum þrem vikum átti
að opna brúna með pomp og prakt.
Enn dregst þetta. Eitthvað er verið
að rjátla við þessa brú en ljóst er að
borgin er með seinlátan verktaka.
Annað: Til hvers er þessi brú?
Hún auðveldar fólki að komast úr
fjölmennu hverfi yfir í athafna-
hverfi Kringlunnar og nágrenni
hennar. Eða hvað? Það var í raun
ekki ætlunin. Frá brúnni liggja leið-
ir að einu strætóskýli og inn á
göngu- og hjólreiðastígana. Það var
ekki meiningin í upphafi að koma á
menningarsambandi við Skeifuna.
Var brúin reist fyrir verktakana
eða íbúa borgarinnar?
Hæft starfsfólk
á Kvennadeild
Landspítala
Kona skrifar:
Ég varð fyrir þeirri óheppni fyrr í
ár að þurfa að leggjast inn á spítala
og var lögð inn á Kvennadeild Land-
spítala. Ég hef ahtaf haft óbeit á spít-
ölum og þess háttar og jafnvel orðið
fyrir slæmri reynslu á sjúkrahúsum
erlendis. Aht starfsfólk á Kvenna-
dehd Landspítala er hins vegar th
mikihar fyrirmyndar. Hjálpsemi og
elskulegheit virðast einkenna aht
viðmót. Því vh ég þakka þessu starfs-
fólki sérstaklega fyrir góða umönn-
un á erflðu tímabhi.
Aumingjaskapur
kristinna
Vilhjálmur Alfreðsson skrifar:
Þegar nokkrir svokahaðir kristnir
menn köstuðu um daginn verðmæt-
um ásatrúarmanna niður í Goðafoss
sýndi það kaþólskan aumingjaskap
íslenskra Lúthersmanna. Þegar mað-
ur íhugar baráttu manna eins og
Lúthers, Calvins og Knox fmnst
manni ótrúlegt að frelsaðir menn
skuli voga sér að haga sér svona.
Sérstaða Súfistans
Ari skrifar:
Súfistinn í Máli og menningu er
virkilega sérstakt kaffihús. Fyrir
það fyrsta gefst gestum þess kostur
á að gæða sér á dásemdum bók-
menntanna nokkuð frjálst og í öðru
lagi er kaffihúsið eitt af örfáum í
borginni sem er reyklaust. Ekki má
heldur gleyma því að dagskráin á
Súflstanum bar af á annars vel
heppnaðri Menningarnótt.
wzmmm':
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eða sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.