Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2000, Síða 11
Hljómsveitin Coldplay er á hraðri siglingu upp á stjörnuhimininn. Lagið hennar, Yellow,
klífur vinsældalista út og suður, platan hennar, Parachutes, er á meðal 20 mest seldu
platna í veröldinni og hún hefur nú verið tilnefnd til Mercury-verðlauna. Krístján
Már Ólafsson kynnti sér þessi nýju stirni.
S
Fjórmenningamir Guy Berrym-
an, Jon Buckland, Wiil Champion
og Chris Martin kynntust á heima-
vist í Lundúnum þar sem þeir
dvöldu við nám. Þeir koma víða að
á Bretlandi en áttu það þó sameig-
inlegt að allir spduðu þeir á hljóð-
færi og tónlistarsmekkurinn var
ansi svipaður. Nöfn á borð við
Flaming Lips, Radiohead, The
Verve og Mercury Rev áttu hug
þeirra allan og þegar vináttan þró-
aðist fóru þeir að hittast með hljóð-
færin og glamra saman.
Námið gengur fyrir...
Þó svo listagyðjan blundaði
sterklega í þeim öllum og metnað-
urinn hneigðist í átt til tónlistar-
innar þá höfðu þeir allir vit á að
hafa forgangsröðina rétta: námið
gekk fyrir. Þeir hljóðrituðu samt
sem áður sína fyrstu smáskífu á
eigin kostnaö í kringum haustpróf-
in ‘98 og unnu markvisst að því að
koma sér á framfæri. Mótunin tók
þó sinn tíma og það var ekki fyrr
en í fyrrasumar að smáskífan
Brother & Sisters, sem þeir hljóð-
áhyggjur
t §
rituðu fyrir Fierce Panda (merki
Bellatrix), hratt af stað skriöu.
Hljómplötufyrirtækin fóru að bít-
ast um þá og á endanum hafði hið
fomfræga Parlaphone, sem núorð-
ið heyrir undir EMI, vinninginn.
En þá var kominn tími til að taka
lokaprófin.
Samviskusamir
Piltamir höfðu rænu á að láta
peningaglýjuna ekki blinda sig og
tóku lokaprófin með stæl. í kjölfar-
ið fór svo af stað ævintýri sem
Grimms-bræður hefðu seint séð
fyrir. Parlaphone dreif þá i stúdíó
að taka upp smáskífu og útkoman
varð The Blue Room EP. Hún
renndi styrkari stoðum undir það
sem menn þóttust vita: að þessir
drengir væru á leiðinni eitthvað,
og þá var bara að leggja af stað.
Þeir voru drifnir út á þjóðveginn
að Qytja fagnaðarerindið rnn landið
og þó að svo lítt þekktir nýgræðing-
ar væm á ferðinni tók alþýðan
þeim með eindæmum vel. Mark-
aðsfræðingum þótti sýnt að breiö-
skífan væri rökrétt framhald.
Fallhlífarnar
Þeim var holað inn í stúdíó í Wa-
les ásamt Ken nokkrum Nelson
sem starfað hefur með Gomez og
Badly Drawn Boy. Fæðingarhríð-
imar stóðu frá september og fram í
apríl á þessu ári en þó ekki sam-
fleytt þar sem drengirnir fóru
reglulega út á meðal fólksins að
sýna hvað í þeim bjó. Þegar upp
var staðið á endanum var útkoman
Parachutes.
Það sem sló mig fyrst við plötuna
er rödd Chris Martins. Það má
greina hin ýmsu áhrif í henni, en þó
fyrst og fremst Buckley og Yorke,
og síðan bætir hann hluta af sál
sinni við. í gegnum plötuna, sem
einnig má kryfja niður í áhrifavalda,
er hún rauður þráður sem aldrei
slitnar og hreinlega heimtar athygli
manns. Hvað tónlistina varðar þá
stökk Travis-fílingurinn hvað
sterkastur fram en eftir yfirvegun þá
er niðurstaðan sú að piltamir em
mun betri en Travis, sem ég
hefði hvort eð er aldrei kallað
áhrifavalda. Þeir fara i flokk-
inn, ásamt Coldplay, ítreka ég,
sem verður fyrir áhrifum og
hnoðar úr þeim sína útfærslu.
Viðbrögðin létu ekki á sér
standa. Fyrsta smáskífan ruddi
leiðina inn á topp 40, sú næsta fór
inn á topp 10 og svo framvegis. í
dag er bara orðið spennandi að sjá
hversu langt þeir fara. Eins og
sagði í inngangi þá er platan á
meðal þeirra 20 mest seldu í veröld-
inni í dag þannig að efnislegar
áhyggjur em úr sögunni. Piltamir
eru strax famir að tala um hvað
þeir ætli að gera margt miklu bet-
ur á næstu plötu og, já, eins og ég
sagði, þá verður gaman að sjá hvað
þeir fara langt.
Lukka í London
Hljómsveitin Sigur Rós hélt út-
gáfutónleika sína í London í síðustu
viku fyrir fullu húsi í Union
Chapel og voru viðtökurnar hreint
ekki af verri endandum. Um 1000
manns létu sjá sig í gömlu kirkjunni
á fimmtudagskvöldið og var uppselt
með góðum fyrirvara. Sigur Rós
spilaði í um 2 klukkutíma og vom
tónleikarnir tvískiptir. í byrjun
kom hún fram með strengjakvar-
tettnum Anima líkt og hún gerði á
útgáfutónleikum sinum í íslensku
Óperunni, sællar minningar, og lék
þá lög af plötunni. Eftir hlé var hins
vegar komið að nýjum lögum sem
voru engu síðri en þau fyrri. Vakti
síðasta lagið sérstaka athygli en þar
enduðu piltarnir í ansi skemmti-
legri gítarkeyrslu. Á tónleikunum
mátti sjá ekki ófrægari menn en
meðlimi Chemical Brothers og
eins munu einhverjir af meðlimum
Radiohead hafa ætlað að mæta. I
lokin var Sigur Rós hyllt með góðu
lófaklappi og var ljóst að frammi-
staða þeirra þetta kvöld hefur ekki
gert annað en að kynda vel undir
plötusölu í Englandi.
Nýtt efni
á Airwaves
Vegur Airwaves-íónleikanna í
Reykjavík í október virðist vaxa í sí-
fellu en Fókus greindi frá því á dög-
unum að hljómsveitin Suede muni
verða aðalnúmerið
©. þar. Nú er komið í
ljós að þetta eru einu
tónleikar sveitarinn-
ar það sem eftir er af
árinu en hljómsveit-
in fer senn í stúdíó
til að vinna að næstu plötu sinni.
Hafa Suede-liðar greint frá því að á
Airwaves muni þeir einmitt kynna
mörg af nýju lögunum sínum sem
hvergi hafa verið reynd annars stað-
ar. Sagði talsmaður sveitarinnar að
tónleikamir væru tilvalinn staður
fyrir hljómsveitina til að prófa þetta
nýja efni. Af tónleikunum er það
annars að frétta að inni á heimasíð-
unni www.icelandairwaves.com
segir enn að sveitimar Flaming
Lips og Thievery Corporation
muni spila með Suede þannig að við
bíðum bara spennt.
p1ötudómar
hvaðf fyrir hvernf ^s^a^örVyn^cPiV' niöurstaöa
★★★ Fiytjandi: Badly Drawn Boy piatan: The Hour of the Bewilderbeast Útgefandi: Japis/XL Recordings Lengd: 63:34 mín. Furðufugl frá Manchester sem gerir mikla lukku í heimalandinu þessa dag- ana. Þetta er hans fyrsta breiðskífa en hann hefur byggt upp fylgi í gegnum seriu tilraunakenndra EP-platna sem hann flokkar undir mótunarferli. Þessa plötu segir hann útkomuna úr mótunarferlinu. Vandi er um slíkt að spá, platan er mikill bútasaumur og fer víða. Einhver fann upp á því að kalla hann hinn breska Beck og án þess að líkindin séu sláandi þá eiga þeir alltént það sameiginlegt að vera miklir sveimhug- ar. Þar af leiðir að listi yfir áhrifavalda gæti orðið ansi langur. Þó svo Badly Drawn Boy (eða Damon Gough) hafi mikinn meðbyr þessa dag- ana þá hefur frammistaða hans á tón- leikum veriö að vekja efasemdir. Ekki einasta er hann ilia æfður og klikkar mikið heldur er hann hundleiðinlegur við áhorfendur og fælir þá jafnvel í burtu.
★★★★ Rytjandi: Trínity piatan: Shanty Town Determination Útgefandi: Blood & Rre/12 tónar Lengd: 55:30 mín. Trinity er einn af flölmörgum vanmetn- um snillingum reggísögunnar. Hann var mikilsvirtur plötusnúður, upptöku- maður og söngvari í Kingston á átt- unda áratugnum. Þessi plata er endur- útgáfa á samnefndri plötu sem kom út í 1000 eintökum 1977, aö viðbættum 5 aukalögum og dubmixum. Fyrir alla þá sem kunna að meta flotta reggítónlist. Það hefur verið hálfgerð reggí- og dub-bylgja hérlendis undan- farið, enda mikið endurútgefiö af þessari tónlist. Það jafnast ekkert á við gott reggí. Það er hollt tyrir líkamsstarfsemina - gefur manni góða vibra og kemur blóðinu á hreyfingu. Blood & Fire-útgáfan er sennilega flottasta reggimerkið í dag. Hún hefur endurútgefiö hverja þerluna á fætur annarri frá gullöld þessarar tónlistar. King Tubby-plöturnar frá henni eru t.d. magnaðar og dub-safnplöturnar ættu að vera skyldueign á hverju heimili.
★★ Rytjandi: Papa Roach piatan: Infested Útgefandi: Skífan/Dreamworks Lengd: 45:58 mín. Ameriskt rokk í harðari kantinum sem kom út fyrrihluta árs en er nýrekið á okkar fjörur. Þessi öskur- og rappkokk- teill er hlaðinn örvæntingu og keyrður áfram af rifandi bjögun. Textarnir auka á andrúmsloftið og eiga það sameigin- legt að vera ádeila: á foreldra, þjóöfé- lagið og allt um kring. Hvern þann sem fílar Korn og Limp Bizkit-pakkann og vantar eitthvað í safnið. Þeim sem ekki trúa á þessa stefnu verður þó ekki snúið með þessu stykki. Hún bætir hreinlega engu við, þó svo hún sé sæmilega gerð. Ég vildi að ég gæti sagt aö pabbi ein- hvers þeirra væri kakkalakki eða þeir borðuðu þá en þetta virðast vera ósköp venjulegir strákar sem hafa gaman af að rokka og vantaði nafn á hljómsveitina. Guð er á þakkalistanum hjá jjeim, það er...sætt.
★★★ Rytjandi: Up, BuStle & Out piatan: Cuban Master Sessions 1 Útgefandi: Ninja Tune/Hljómalind Lengd: 55:03 min. Up Bustle & Out er eitt af þessum frá- bæru Ninja Tune-böndum. Cuban Master Sessions er tekin upp bæði í heimaborginni, Bristol, og í Havana á Kúbu. Hún er unnin með Kúbverjanum Richard Egues en hann semur efnið með þeim félögum og rytmasveitin hans spilar undir í mörgum laganna. Cuban Master Sessions ætti bæði að höfða til aðdáenda Ninja Tune-merkis- ins (grúví tónlist sem sækir áhrif í hip hop, djass) og til áhugamanna um Kúbutónlist. Þeir síðarnefndu eru fjöl- margir eftir velgengni Buena Vista Social Club, myndarinnar og plötunn- ar. Up, Bustle & Out hafa lengi verið mikl- ir Kúbumenn. Þeir gáfu út minning- arplötu um Che Guevara 8 október 1997, en þá voru 30 ár frá dauða hans, Þeir notuðu ágóðann af sölunni til þess að styrkja aðalútvarpsstöðina á Kúbu, „Rebel Radio", sem Che átti þátt í að stofna. I framhaldinu var þeim boö- ið til Kúbu til að hljóörita efni.
Af þessum 18 lögum sem borin eru á
borð hefðu allavega 3 mátt missa sig.
Hann nær þð að halda saman þeim
fjölbreytta kokkteil sem borinn er og
mynda eitthvert heildaryfirbragð. Út-
koman nær ekki alveg að skriða í
fjórðu stjörnuna en þetta telst samt
sem áður frábær fyrsta breiðskífa.
kristján már ólafsson
Þetta er mjög flott plata. Trinity sækir
í dancehall og reggiplötusnúðahefö-
ina, en í gegn síast óaöfinnanleg
melódísk popptónlist. Sum lögin eru
lengd með dub mixi og sándið er oft
magnað. i heildina er þetta frábær
plata sem sýnir að maður getur enn
gert góðar uppgötvanir í.reggíinu.
trausti júlíusson
Æ, þetta nær aldrei að verða neitt sér-
lega spennandi, þeir reyna heldur ekk-
ert voðalega mikið, virðast sáttir við
að tölta troðna slóö og gera það í
sjálfu sér ekkert illa. Þegar framboöið
er svona mikið þá verður maður bara
ósjálfrátt kröfuharðari.
kristján már ólafsson
Þetta er ágæt þlata. Kúbverska þjóð-
lagatónlistin blandast oft mjög vel Up,
Bustle & Out-grúvunum. Platan er
skemmtilega frjáls í forminu, sum lög-
in eru ekta U.B.O.-tónlist, sum eru
óblandað Kúbupopp og önnur eru
sambland af þessu tvennu. Það eina
sem dregur hana svolítið niöur er að
lögin eru misgóð. trausti júlíusson
1. september 2000 f ó k U S
11