Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2000, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2000, Blaðsíða 12
... fyrrverandi fóbíusjúklingur ... en eftir langa meðferö hjá Paul Welch, sálfræðingi og and- legum leiðtoga, er mér fullkom- lega batnað. Og það er ekki svo lítill árangur ef tekið er tillit til þess hvemig ég var fyrir nám- skeiðið. Ég liföi í stöðugum ótta við að verða gjaldþrota. Þetta er fóbía sem ég hef þurft að lifa við frá bamæsku, alveg frá því að faðir minn, sem er heildsali, lagði alla fjármuni fjölskyld- unnar í að kaupa fötanuddtæki árið eftir að fótanuddtækin komust... ... í tísku. Það var eins og Paul Welch vissi nákvæmlega af þessari ofsa- hræðslu minni við að verða gjald- þrota vegna þess að í fyrsta skipti sem við hittumst leit hann djúpt í augun á mér og sagði: „You have to pay 9.500 kr. per day.“ Ég fékk svo mikiö sjokk að það leið yfír mig á staðnum. Steinrotaðist eins og Witney Houston í góðum kók- fílingi. En þegar ég raknaði úr rotinu ákvað að halda áfram og reyna að sigrast á fóbíunni. Hann lét mig hafa upprúllað teppi sem ég átti að berja í gólfíð og ímynda mér að væri einhver sem ég hataði. Ég ímyndaði mér auðvitað að það væri hann ... ... sjálfur. Ég barði og barði í gólfið og öskraði: Helvítis okrari!! Djöfuls- ins fúskari!! og allt það. Og viti menn. Eftir u.þ.b. viku fór ég að finna mun á mér. Ég var ekki líkt því eins hræddur um að verða gjaldþrota og áður. Ég andaði létt- ar - þangað tO hann rukkaði mig fyrir námskeiöið, en þá leið yfir mig aftur. Paul sagði mér að til þess að yfirvinna fóbíuna við að verða gjaldþrota yrði ég að inn- rita mig í sex inánaða þjálfun hjá honum. Svo sagði hann mér hvað það myndi kosta mig í peningum og ég fylltist svo mikilli reiði og ofsahræðslu að ég ákvað að ... ... slá til. Námskeiðið gekk út á það að við reyndum að mógða hvert annað eins mikið og við gátum með bundið fyrir augun. Ég veit vel að þetta er hrikalega léleg sálfræði- aðferð og ég hefði alveg eins getað hent peningunum út um glugg- ann en Paul sagði mér að á þenn- an hátt gæti ég unnið bug á fóbí- unni og fundið mitt innra sjálf. Hann er í beinu sambandi við sitt innra sjálf (eins og nánast allir alvöru-geðsjúklingar heims) en það er innra sjálflð sem segir honum allt sem hann þarf að vita, meðal annars hvað hann á að láta námskeiðin sín ... ... kosta. Sex mánaða námskeiðið var mjög gott og ég losnaði við mikla reiði og fóbíska hræðslu. En Paul vissi hvað ég þurfti og hætti ekki að hringja í mig fyrr en ég lét skrá mig á heilsársnámskeið. Hann sagði að hann hefði talað við sitt innra sjálf og innra sjálfið hefði bent honum á að ég ætti að halda áfram. Og ég þakka guði fyrir að ég sló til. Eftir heilt ár í lélegustu sálfræðimeðferð sem til er, hjá þessum illa gefna fúskara sem hefur ekki meira vit á sálfræði en Rúnar Þór rokksöngvari, er ég al- veg gjaldþrota. Ég er búinn að missa alla vini mina og í síðustu viku var ég rekinn úr vinnunni. En það sem mestu máli skiptir er að ég er alveg laus við þá fóbíu að verða gjaldþrota. í aldanna rás hafa margar íslensk- ar mæður séð á eftir sonum sínum í vota gröf á íslandsmiðum. Hver róð- ur gat orðið sá síðasti og kveðju- stundimar urðu innilegar áður en haldið var til sjós. Þeir Steinarr Lár Steinarrsson, Lárus Helgi Lárus- son og Ingólfur Olsen hafa annan hátt á. Þeir hringja i mæður og kærustur úr gemsunum og segja þeim hvert stefnan sé tekin en sleppa öllum vasaklútum og væmni. Á leiðinni úr bænum stoppum við til þess að háma í okkur nútímalegan kvöldskattinn, flatböku og brauð- stangir. Strákamir útskýra að þeir séu allir í fullri vinnu og þegar brim- ið er gott verður að hafa hraðar hendur. Verbúðin er á hjólum. ‘86 árgerð af Dodge Caravan þjónar köppunum sem mötuneyti og bún- ingsklefi. Þeir eru búnir að velta fyr- ir sér veðri og sjólagi á heimasíðu Siglingamálastofnunar (www.sigl- ing.is) og eru að gera upp hug sinn. Spáin er ögn betri fyrir austan fjall en á Suðumesjum og þangað brun- um við með græjumar í botni. stöðum verði ljóstrað upp á prenti en gefa þó upp að þeir stundi aðal- lega Suðurnesin. í Bandaríkjunum berjast illræmdar sörfklíkur, í ætt við íslensku Hákarlana, um bestu staðina og þar tíðkast svonefndur „localismi". Lassi hefur prófað brim- ið í Kaliforníu og skilgreinir þetta fyrirbæri. „Þetta er eiginlega algjör geðveiki. Þetta virkar bara svona: Ef þú ert ekki héðan og kemur hingað sem ókunnugur þá læturðu ölduna okkar í friði eða við lemjum þig.“ „Við erum að reyna að koma á þess- um „localisma" á íslandi," segir Ingó en missir reiðiviprumar í bros og hljómar ekki mjög sannfærandi. Hlæja að hættunum Gott brim skapast af mörgum þátt- um. Kappamir eru vel að sér í þeim fræðum og segja það lykilatriði að stúdera sjóinn og veðrið. „Það er þrennt sem býr til ölduna," fræðir Lassi okkur um, „undiraldan í sjón- um, landslagið í botninum og vind- urinn.“ Einnig brotna öldurnar mis- jafnlega. Ýmist hafa staðirnir rifbrot (Point Break), þar sem aldan brotnar á rifi og auðvelt er að ná henni, eða strandbrot (Beach Break), sem er gangi en ómögulegt er að vita hvar á landinu þær eru teknar. Strákarnir segja þetta hluta af iþróttinni. Bestu staðimir eru aldrei gefnir upp, þeim er haldið leyndum. Sjálflr vilja þeir ekki heyra á það minnst að þeirra villtara og erfiðara viðureignar. All- ir þrír eru sammála um að stærðin skipti ekki öllu máli. En er ekki hættulegt að leika sér að náttúruöfl- unum með þessum hætti? „Það getur verið hættulegt ef þú veist ekki hvað Sörfgengið Hákarlarnir Strákamir búa sig undir slaginn og troða sér í gallana á meðan þeir skiptast á að keyra. Þetta er tækifær- ið til að þrykkja á þá nokkrum spurningum. Hvemig kom það til að þeir fóru að stunda brimbrettareið- ar? „Við kynntumst strákum sem voru í þessu í gegnum snjóbrettaiðk- un. Fyrir 5-6 árum fréttist af ein- hverjum gaurum af herstöðinni í sörfi og þeir drógu nokkra Islend- inga með sér. Við byrjuðum fyrir 1-2 árum,“ segja þeir. Núna telja strák- arnir að um 30 manns stundi brimið á íslandi en 15 manna kjami „sörfí“ að staðaldri. Sjálfir láta þeir ekki gott sörf renna sér úr greipum og reyna að fara eins oft og þeir geta. Steini hugsar sig um og tilkynnir að það hafi alltaf verið ætlunin að stofna alvörusörfgengi og kalla það Hákarlana eða eitthvað. Hinir hlæja að nafngiftinni og Ingó stingur upp á nafninu „Shrinker" (og vísar þar með til þess að getnaðarlimur karldýra skreppur nokkuð saman við volkið i ísköldum sjónum). Gott leynibrim á íslandi En hvernig eru aðstæður fyrir sörf á íslandi? Þrátt fyrir kuldann segjast þeir félagar geta stundað íþrótt sina allan ársins hring. „Sept- ember og október eru aðaltíminn en á veturna notum við bara þykkari galla,“ segir Lassi. „En maður endist ekki jafnlengi í sjónum." „Það komu atvinnumenn til landsins fyrir nokkrum árum,“ segja strákamir. „Þeir höfðu með sér blaðamenn, veð- ur- og sjávarfræðinga og fóru um allt land í þyrlu í leit að góðu sörfi. Þeir fundu alveg brjálaða staði með risa- öldur og leist geðveikt vel á.“ í er- lendum tímaritum birtust myndir af fagmönnunum í íslenskum öldu- Ingólfur, Lárus og Steinarr slappa af eftir erfiðan túr. Ingólfur og Steinarr líta brimið girndaraugum, á háleynilegum stað, fyrir austan Fjall. þú ert að gera og þekkir ekki um- hverfið,“ svarar Ingó. „Það virðist nú vera nógu andskoti hættulegt fyr- ir sjómenn að vera úti á bátunum sinurn," bætir Steini við og segir mestu hættuna vera að rotast á steinum eða fá brettið í sig. Sumar öldur geta líka verið öflugar og hald- ið fólki lengi í kafi. Þó að ekki séu jafhmargir að berjast um sömu öld- una hér og á Hawaii er ekki svo að skilja að kappamir séu einir um þær. „íslenskir sörfarar hafa séð til hákarla tvisvar," segja strákamir. „Þetta voru meinlausir beinhákarl- ar, en ekki skrifa það,“ segir Steini og glottir við tönn. „Svo er Snorri alltaf hjá okkur,“ skýtur Lassi inn. Oftar en ekki fylgjast forvitnir selir með tilburðum hinna tvífættu. Ingó kann líka sögu af því þegar tveir „sörfarar" komu að landi og hittu þar fyrir rostung í fjöruborðinu. Ódýrt adrenalín Strákarnir harðneita því að brim- brettareið sé dýrt áhugamál miðað við skemmtigildi. Þeir slumpa á að nýjar græjur kosti um 90 þúsund kall. Búnaðurinn samanstendur af bretti og blautgalla, hönskum, skóm og kannski vaxdreitli fyrir brettið. Úrval bretta er mjög fjölbreytt en skiptist í þrjár megintegundir, með mismunandi eiginleika. Longboard flýtur best og er gott fyrir byrjend- ur, Shortboard er minna og liprara og auðveldar beygjurnar en Funbo- ard sameinar kosti hinna tveggja. „Svo er líka til Big gun, sem er risa- bretti fyrir risaöldur," segir Lassi. Það fer ekki á milli mála að kapp- arnir eru helteknir af briminu og skilja ekki hvað það er sem aðrir skilja ekki við það. „Þetta er eins og hvert annað áhugamál. Það reykir enginn okkar og við drekkum varla. Við erum bara að sækjast eftir adrenalíni og eyðum peningunum okkar í þetta. Sörfið er bara hluti af þessum freestyle lífsstíl. Maður sörfar bara fyrir sjálfan sig. Svo er þetta svo góð æfing. Maður fær ekki six-pack í sörfi, maður fær eight- pack,“ segir Lassi. „Það er að vísu 12 f Ó k U S 1. september 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.