Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2000, Qupperneq 14
í f ó k u s
íslensk tónlistarmenning og innflutningur á
hljðmsveitum er svo sannariega í fókus um þess-
ar mundir. Línurnar voru lagðar með Tónlistarhá-
tíð Reykjavíkur í sumar og fram undan er Airwa-
ves annað árið i röð. Þar mæta til leiks hinar
ágætustu hljómsveitir auk þess sem íslenskir
lístamenn fá að njóta sín. Allir þekkja hvað er orö-
ið um Quarashi eftir síðustu Airwaves og eins
fékk Ensími góö viöbrögð. Það skyldi því engan
undra ef eitthvað gerðist nú. Á haustdögum lítur
svo einnig út fyrir að Smashing Pumpkins mæti
á klakann og ætti ekki að vera ónýtt fyrir íslend-
inga aö sjá eina af síöustu tónleikum þeirrar
ágætu sveitar. Snillingarnir I Hljómalind halda svo
áfram að færa okkur lágmenninguna og von er á
... Trail of dead aftur svo ekki sé minnst á Trans
am sem koma víst í október. Það þarf enginn að
kvarta undan ládeyðu á þessu sviði.
ú r f ó k u s
Heimsókn Li Pengs til Alþingis er gjösamlega úr
fókus og sama gildir um ráðamenn þjóðarinnar
sem standa að henni. Að Aiþingi Islendinga og ís-
lenskir ráðamenn skuli ekki sjá sóma sinn í því
að vera eitt sinn eilítiö sjálfstæðir og gefa skít i
þennan mann sem þekktur er fyrir ofbeldisverk
sín og fjöldamorð er með öllu óskiljanlegt. Hvern-
ig stendur á því að þaö geti talist heiöur tyrir
þetta elsta þjóðþing í heimi að taka á móti manni
sem stóð fyrir fjöldamorðum á óvopnuðum stúd-
endum á Torgi hlns himneska friðar? Eins og fólk
man líklegast eftir varð uppi fótur og fit þegar
þessir sömu ráðamenn okkar tóku á móti sendi-
nefnd frá Taívan ekki alls fyrir löngu og ruku þá
Kínverjar uþp til handa og fóta og hótuðu okkur
öllu illu. Þá var rætt um að standa fast á sínu en
allt var þaggaö niður, hver veit nema með símtali
þar sem þessi heimsókn var ákveðin. Það
skemmtilegasta er samt að Halldór Ásgrímsson
og félagar bera fyrir sig viðskiptahagsmunum í
þessu samhengi. Sþurningin hlýtur að vera hvort
frammararnir ætli að bjóöa fram sérfræöiaöstoð
á styrkjakerfi f landbúnaði?
Börkur Jónsson hljóöfæraskúlptúristi
oma i IJstasafni
> t 0 v > e n t i r b 61 fe i ag ar
i sextettinn ieika á
'innig munu uonr
menn koma íram
©f þetta hiuti af
opnunarhátíö
kaííihússms Kaffi
9 t LJstasafninu.
bólfé
Borkur
Börkur útskrifaðist úr skúlptúr-
deild MHÍ um áramótin ‘98- ‘99 og
hefur unnið við hönnun og smíði
leikmynda síðan þá. „Þessi hljóð-
færasmíði er alveg ný fyrir mér. Ég
var fenginn til að gera þetta af Til-
raunaeldhúsinu sem skipuleggur
viðburðina Óvæntir bólfélagar."
Hljóðfæraskúlptúrar
„Þetta eru hljóðfæri með skúlpt-
úrísku ivafi,“ segir Börkur þegar
hann er beðinn um að lýsa hljóð-
færunum.
Hann notar hin og þessi efni í
hljóðfærin. „Efnin eru þó misvönd-
uð. Sum eru ný, önnur notuð.“ Sem
dæmi um efni og hluti sem Börkur
notar má nefna rör, gorma, blikk-
dollur, vatn og vatnsbelgi. „Ég er
aðallega í því að búa til vatns-
trommur og hljóðfæri sem ég kalla
mónódróma." Mónodrómarnir eru
eins konar strengjahljóðfæri búin
til úr loftræstirörum. Yfir annan
enda rörsins er strengt skinn og
misþykkir nælonstrengir strengdir
í gegnum skinnið. Hljóðfæraleikar-
inn bleytir því næst finguma og
strýkur þeim eftir strengjunum til
að framkalla hljóðin.
Skrýtin hljóð
Eins og áður sagði eru hráefnin
mismunandi. „Þetta eru efni héðan
og þaðan. Lánuð, keypt og fundin.
„Budgettið" er ekki mikið og þvi
ekki hægt að kaupa og nota allt
sem manni sýnist.“ Börkur hefur
unnið að hljóðfærasmíðinni í tvo
mánuði samfleytt. Hann segist ekk-
ert hafa verið í slíkri smiði áður en
Tilraunaeldhúsið hafði samband
við hann og fékk hann til verksins.
„Þetta hefur verið mjög „intensíft"
timabil og tilraunakennt. Ég fór á
bókasafn í upphafi til að viða að
mér fróðleik um hljóðfærasmíði.
En þar var lítið að finna. Annað-
hvort var efnið alltof mikil eðlis-
fræði eða eingöngu fyrir tónlistar-
menn. Þá á ég við efnið fyrir utan
digitaltónlistina.“ Börkur segir
hljóöfærasmíði lengi hafa verið
staölaða og lotið mjög ákveðnum
reglum. „í dag er tilraunakennd
hljóðfærasmíði ekki algeng. Þess
vegna þótti okkur spennandi að
skoða þennan vettvang með auð-
fengin efni í huga.“
Börkur er algjörlega einn í hljóð-
færasmiðinni. Hann smíðar hljóð-
færin en svo sjá aðrir um að spila
á þau. „Það sem ég hef verið að
leita eftir við smiðina eru ákveðin
hljóð, ákveðin „sánd“. Börkur seg-
ist leita að frumlegum hljóðum
eins og til dæmis hvers konar
vatnshljóðum og hvin í gormum
sem varla heyrast þvi hljóðið er
svo fínlegt. „Ég hef verið að berjast
við að finna efnislega útfærslu á
þessum hljóðum síðastliðna tvo
mánuði. Útlit verkanna ræðst þvi
af tilviljun þvi hljóðið er í aðalhlut-
verki.“
Aðspurður segir Börkur að tón-
listarmennimir, sem fengnir hafa
verið til að spila á hljóðfærin,
muni líklega aðeins fá eina æfingu.
„Það er möguleiki að þeir vUji
kannski bæta við einhverjum
effektum eftir æfingima en annars
verða tónleikarnir að mestum
hluta líklega spuni.“
Hispurslausi sextettinn
Óskar Guðjónsson hefur umsjón
með hljóðfæraleiknum í kvöld.
Hann segir að mikið verði um
spuna, bæði í samspUi og einleik.
„Við reynum að gera þetta í sem
mestri samvinnu við Börk.“ Það
eru vel valdir menn í hverju rúmi.
Þeir eru Birgir Baldursson
trommari, Guðni Finnsson bassa-
leikari, Amar Ómarsson trommari
lika, Músíkhvatur orgelleikari
m.a., Elfar Már Kjartansson og
Óskar Guðjónsson sjálfur sem spU-
ar vanalega á saxófón. Óskar segir
að unnið verði með alls konar
hljóðmyndun í tengslum við hug-
myndir Barkar sjálfs um hljóðfær-
in. „Þetta verða hefðbundnar hljóð-
myndanir en einnig óhefðbundnar.
Eitthvað verður líka um rafvæddar
hljóðmyndanir.“
hverjir voru hvar
Framámaöurinn Eyþór Arnalds byrjaöi helgina
snemma og skellti sér á Prikið strax á fimmtu-
dagskvöldið. Þar voru einnig skartgripafríkið og
mannfræðineminn Arnór
Jónsson og fótboltamað-
urinn Gunnar Einarsson
ásamt frú.
Sem oftar var margt um
manninn á Klaustrinu um
helgina. Þar mætti Guö-
mundur Hreiðarsson.
„þjálfari/módel", ásamt
RÚV-urunum Lárusi Guö-
mundssyni, Ingólfi Hann-
essyni, Samúel Erniog Geir Magnússyni og
voru drengirnirí alla staði til fyrirmyndar. Staff-
ið hjá Nýherja gerði allt vitlaust þar meö
drykkjulátum á föstudagskvöldið. Christine
Allied Domec og Jón Kári athafnamaður voru á
kantinum ásamt Philippe
Golden Eye og Láru.
Stelpurnar frá Heimsferö-
um komu fagnandi sem
og BT-gírinn Óll Köngur,
Steini þjónn o.fl. Gunnar
Jóhannsson, Fríða og
Harpa „mðdel/flugfreyja"
voru í salsa fíling hjá
DJ:Carlos, Ástþór Magn-
ússon, Friöur 2001, var
að undirbúa næstu kosningabaráttu og bauð
öllum í glas og öskraði „minn tími mun
komai". Hulda Bjarna FM-drottning og FM-dúd-
arnir Jói Jó, Heiðar Austman, Kalii Lúog Bjarki
Sig voru í öskrandi fíling enda Sif Jónsdóttir,
ungfrú Suðurnes/ísland, Elva, feguröardrottn-
ing/Tal-stúlka, og Herdís handboltafeguröardis
á dansgólfinu. Hinn eini sanni Páil Óskar
mætti eiturhress eins og venjulega en til hans
sást einnig í góðra vina hópi á Casino-balli í
Hlaðvarpanum á laugardagskvöldiö. Eiki
„plögg" var umvafinn glæsimeyjum rétt eins og
venjulega, Hörður rauöhaus „Rnn Miðill"
mætti ferskur ásamt Guðmundi BSR-stjóra.
Fjölnir og Marín Manda, körfu-hetjurnar Eirík-
ur Ónundar, Herbert Arnars og félagar litu yfir
hópinn, einnig sást m.a. til Einars Páls „fót-
bolta", Sigurjóns SigurðssonarHaukamanns,
Dagmar, ungfrú Noröurland, Klúní x-
hausverks og Dóra núverandi haus-
verks, Tryggva Djúpulaugar-dúds,
Magnúsar Vers, Kristjáns „Nu-
skins", Vilhjálms Goða, Gussa Arn-
gríms, Amarflugs-sjeffa og Bryndís-
ar Hólm fréttakonu.
Á meðal þekktra andlita sem
snæddu kveldmáltíðir á hinum róm-
aða veitingastað Einari Ben má
nefna Úlfhildi Dagsdóttur skáld-
konu, Örn Úlfar Sævarsson frá auglýsingastof-
unni Góðu Fólki og fasteignasalann Steinberg
Finnbogason og frú. Megas lyfti sér upp á
Næsta Bar en þar var einnig Steinar Bragi
skáld í góðum félagsskap. Margrét Vilhjálms-
dóttir leikkona skaust inn á Ara í Ögri á föstu-
dagskvöldiö til að hringja en ekkert spurðist til
hennar eftir það. Bubbl Morthens og elskan
hans hún Brynja sáust á Viktor og fregnir
herma að þau sæki staðinn stíft. Á Prikinu
reyndi yngsti sjónvarpsstjóri heims, Árni Þór
Vigfússon, að villa á sér heimildir með felu-
hatti en þegar hann var kominn í glas komst
hann að því að enginn reyndi við hann svona
óþekkjanlegan svo hann tók hattkúfinn ofan.
Hann eyddi annars löngum tíma í djúpar sam-
ræður við Sigurö Kára, formann ungra Sjálf-
stæðismanna, og munu þeir hafa verið að
plotta um heimsyfirráð í nánustu framtíð. Á
Prikinu sást einnig til Rnns, fyrrver-
andi fréttamanns og núver-
andi skósveins Önnu Rakel-
ar í Silíkon, Ijósmyndarans
Kára Esra og Lofts Krist-
jánssonar Smára skálds auk
þess sem Dj Sverrir djamm-
aði á Prikinu á laugardags-
kvöldið til að jafna sig á gigg-
inu kvöldið áður. Einhvers
staöar í miöju djamminu
sást til Selmu Björnsdóttur smást-
irnis slagandi ofurölvi niður Laugaveginn.
Svavar Örn, tískulögga með meiru, fór á
Glaumbar um helgina en einnig mun hann hafa
heiðrað Skuggabarinn meö nærveru sinni
ásamt Ingibjörgu Stefáns, leik- og söngkonu,
og staffinu frá Seglagerðinni Ægi sem kíkti viö
eftir vel heppnað sumarslútt. Planet Pulse-
gengið dansaði frá sér allt vit, Ástþór Magnús-
sonhélt atkvæðaleitinni ótrauður áfram á
Skugga og Antonio frá lcelandic Models mætti
eins og við má búast
ásamt fríöum hópi
kvenna. Valdimar Örn
Flygenring og frú fóru
einnig á Skugga á laugar-
daginn og voru þau hjúín I
trylltu stuði. Victoriu
Beckham-lookalike nokk-
urt, sem vakið hefur
óskipta athygli
gesta Skugga-
barsinsað undanförnu, lét sig ekki
vanta fremur en endranær og til að
undirstrika samlíkinguna er hún með
kærasta sem er klipptur eins og Dav-
id Beckham. ívan Burkni kaus að
sletta úr klaufunum á Rex og mun
hafa skemmt sérvet þar, ekki síðuren
Villi VIII, lögfræðingur með meiru.
1 meira á.|
www.visir.is
f Ó k U S 1. september 2000