Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2000, Blaðsíða 3
fókus
VJ-kan 15. september til 21. sentember
lifið
E F T I R
V I N N U
Davíð Stefánsson, AC/DC og Bugs
Bunny. Hvað eiga þessi fyrirbæri
sameiginiegt? Jú, þau búa öll í verkum
þriggja ungra listamanna á sýningunni
Pacman sem verður opnuð í Gallerí
Geysi á morgun.
og ro
„Þarna er ekki hver meö sinn
vegg til umráöa heldur blandast
verkin meira saman en tiðkast á
venjulegum samsýningum. Við
vinnum þó verkin ekki saman, það
er frekar að við vinnum í samráði
við hver annan um uppsetningu
þeirra,“ segir Bibbi um sýninguna.
Bibbi, Hari og Baldur hafa
þekkst siðan í FB. Eftir það lá leið
þeirra allra í MHÍ. Nú er Baldur á
leiðinni til Ameríku að freista gæf-
unnar og segir Bibbi það vera
helstu ástæðu þess að þeir halda
sýningima núna.
Rock n’ Roll
Á sýningunni mun Bibbi vera
með hljóðinnsetningu, Hari sýna
málverk og Baldur verður með
„animation".
„Verkiö mitt heitir Rock n’ Roll
og er unnið úr gítar“riffum“ (gítar-
frösum) úr frægum rokklögum eins
og t.d. Smoke on the Water með
Deep Purple og Walk Thls Way
með Aerosmith. „Riffin" eru svo
látin „loopa“ (endurtekin í sí-
fellu),“ segir Bibbi um verkið sitt.
Bibbi hefur í þessu augnamiði sett
upp 5 hátalara í gcilleríinu sem
munu hver um sig koma einu
„riffi“ til skila.
Verk Bibba verður spilað yflr (og
undir) verkum Hara og Baldurs og
segir Bibbi að þannig muni verk
þremenninganna blandast meira
saman en oft er á svokölluðum
samsýningum.
Að gefa sér tíma
Baldur, eða Baldur.com eins og
hann kýs að kalla sig, er með eitt
verk á sýningunni. „Þetta er „ani-
mation" á ljóðabálki eftir ungt
ljóðskáld sem heitir Davíð Stef-
ánsson. Bálkurinn nefnist Þú
skalt gefa tíma er að finna í ljóða-
bókinni Hveddu mig frá því í-
fyrra. Ég hef búið til myndræna
túlkun á ljóðinu, svokallaða vef-
væna „animation". Verkið mitt
verður auk þess á vefnum á slóð-
inni Baldur.com. Á þessari sýn-
ingu verður aðeins upphafið að
myndrænni túlkun minni á ljóða-
bálknum. En framhaldinu verður
hægt að fylgjast með á Netinu, því
ég vil halda áfram með verkið þar
eftir að sýningunni lýkur. Þar að
auki vinn ég með „input“ Stefáns í
verkinu." Baldur segir verkið vera
fyrst og fremst hugsað fyrir Netið
og skjáinn. Hugmyndina á bak við
verkið segir Baldur kjamast að
vissu leyti í titli ljóðsins Þú skalt
gefa tíma. „Ég leitast við að skapa
umhverfi sem stuðlar að því að
maður gefi sér tíma til að lesa í ró-
legheitunum. Verkið mitt er ólíkt
hinum línulega lestri sem prentað-
ar bækur bjóða upp á. Ljóð Stefáns
er örlítið frábrugðið hefðbundnum
prentuðum texta því þar eru hlut-
ar ljóðsins ekki númeraðir né
blaðsíðurnar. Þetta form brýtur
upp hið hefðbundna og býður frek-
ar upp á rólegheitalestur því hægt
er að fletta fram og til baka án
þess að riðla einhverri númeraðri
röð.“
Hetjudýrkun
Hari segir verkin sín eins konar
málverk. „Þetta eru litlar myndir
af nokkrum af mínum uppáhalds
teiknimyndafigúrum, þó með mín-
um útfærslum.“ Hari hefur málað
myndirnar á spónaplötur og segir
vinnuferlið hafa gengið hratt fyrir
sig. „Ég hef ekki málað í nokkur ár
og þess vegna ákvað ég að leika
mér aöeins og reyna að hafa gam-
an af þessu.“ Útskriftarverkefni
Hara úr LHÍ voru ljósmyndir af
honvun þar sem hann brá sér i líki
helstu hetja kvikmyndanna eins og
James Bond og Súper-
m a n n s .
H a n n
segir verkið á sýningunni á morg-
un vera byggt á sömu pælingum.
„Ég hef verið að vinna með þessar
pælingar í tæp tvö ár og þetta hef-
ur verið þróast og breytast. Verkin
sem eru a syningunm a morgun
eru samt meira „basic“ en þau
sem ég var með á útskriftarsýn-
ingunni."
'/
viö mælum meö
Nýir sundbúningar
Islenska Ólympiuliðið í sundi
hefur fengið nýja búninga. Það er
af sem áður var með
pæjulega sundboli
og pínulitlar skýliu-.
Nú er það eina sem
blívur foðurland úr
efni sem á að auka
enn frekar sundget-
una. Næsta skref er
að koma klæðnað-
inum á almennan
markað þannig að áhuga-
sundmenn og -konur geti stundað
sína íþrótt laus við áhyggjur af
sportröndum og kantskurði.
íslenski draumurinn
Það er ekki nóg með að hún sé
drepfyndin heldur þarf enginn að
engjast af aulahrolli í myrkri
bíósalarins vegna
hrollvekjandi
frammistöðu leik-
aranna. Karakter-
inn Tóti er auðvit-
að hrein snilld og
mun í framtíðinni
skipa sér í flokk með kvikmynda-
figúrum á borð við Stellu og hina
ógleymanlegu Þór og Danna.
.V
Réttir
Nú er bara að draga fram versl-
unarmannahelgarmarineraða ull-
arpeysuna og -nær-
fötin og skella sér í
réttir. Nauðsynlegt j
þykir einnig að i
verða sér úti um
drjúgan fleyg og góð-
an „rudda“. Ekki er j
verra að vera fær um j
að hnoða saman fer-1
skeytlu og geta tekið |
undir ættjarðarlögin
á milli þess sem dregið er í dilka.
Hótel Borg
Á Hótel Borg er alltaf ljúf
stemning og allt svo skemmtilega
gamaldags. Frábær staður til að
setjast niður og spjalla í næði.
Ekki þessi týpíski glymjandi og
ærandi tónlist
sem gerir hverj-
um manni
ókleift að hugsa,
hvað þá að halda
uppi samræð-
um. Sem sagt:
Glimrandi finn staður fyrir af-
slappaðar samræður.
Á föstudaginn fer ég á æfingu þar
sem farið verður yfir taktíkina fyr-
ir mikilvægan leik á sunnudag.
Um kvöldið hittumst við Blika-
stelpurnar svo í sumarbústað
fyrir utan Mosfellsbæ, grillum
og slökum á til þess að þjappa hópn-
um saman. Við förum aftur í bæinn um
kvöldið svo að allar geti farið snemma að
sofa. Svo er aftur æfing um hádegisbil á
laugardag og ekki búið að ákveða hvort liðið
geri eitthvað saman eða hvort hver fer bara
heim til sín og slakar á. Ég veit ekki hvað ég
geri en það veltur á því hvort maðurinn minn,
Þórhallur Hinriksson, vinnur íslandsmeistaratit-
ilinn með KR. Hann er reyndar sjálfur í banni en
ef þeir vinna býst ég við að fara út að borða með
liðinu og fer bara sem fyrst í háttinn. Við
stelpumar mætum í morgunmat á sunnudag-
inn, hjá Bubba, formanni Manchester United
klúbbsins. Þaðan förum við í Smárann á upp-
skeruhátíð yngri flokka Breiðabliks. Að henni
lokinni er andlitsmálning fyrir stuðningsmenn og við höldum á völlinn.
Leikurinn hefst klukkan 14 og áður en við keppum peppum við hverja
aðra upp með öskrum og hlustum á sama lag og venjulega , Where Is My
Mind, með Pixies. Ef við förum meö sigur af hólmi verður honum fagn-
að ærlega og farið út að djamma fram á nótt.
Helga Osk Hannesdóttir,
leikkvendi Breiöabliks.
Offitusjúklingar búa yfir gríðarlcgu þyngdarafii.