Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2000, Síða 9
f O k U S Vi ka n 15.
,s e »t e m hje.j—U.l.2,1,,...
lífÍÖp.TT,
v T M M "
Sara Björnsdóttir og Magnús Sigurðsson myndlistarmenn.
m w
sig i
■■ ______
anar ^mir
Leikritið Shopp-
ing and Fucking
verður frumsýnt
á sunnudags-
kvöldið í Nýlista-
safninu við Vatns-
stíg. í tilefni þessa
verður opnuð á
sama stað á laug
ardaginn sam-
nefnd myndlistar-
sýning þar sem
sex listamenn sýna
verk sín.
Myndlistarsýningin mun
dreifast um allt safnið og einnig út
fyrir það, en leikritið verður sýnt
í svokallaðri Gryfju.
Sara Björnsdóttir, einn
sýnenda, segir myndlistarmenn-
ina hafa lesið handrit leikritsins
yfir og fylgst með æfingum til að
verða sér úti um einhverja teng-
ingu við verkið. „Leikritið er um
eitthvað sem við öll könnumst við,
eins og til dæmis neyslusamfélag-
ið, einmanaleikann og eymdina.
Þar er einnig meðal annars fjallað
um eiturlyf sem orðin eru hluti af
samfélaginu í kringum okkur.
Verkið er því oft ansi sjokker-
andi.“ Hún segir þó að myndlistar-
sýningin og leikritið tengist ekki
beint. Þessu er Magnús Sigurðs-
son, sem einnig á verk á sýning-
unni, sammála. „Það er frekar að
titill leikritsins sé konseptið sem
við vinnum með í stað þess að þar
sé að fmna beinar tengingar við
leikverkið.“ Magnús bætir við:
„Við leituðum að sameiginlegum
flötum, en svo tók konseptið yfir
og við misstum okkur eiginlega í
allar áttir.“ Magnús telur þó að út-
koman verði rétt. „Þegar búið er
að frumsýna bæði myndlistina og
leikritið fellur þetta allt saman.“
Þeir listamenn sem eiga verk á
sýningunni eru: Ása Heiður Rún-
arsdóttir, Darri Lorenzen, Ingi-
björg Magnadóttir, Jóhannes Hin-
riksson, Magnús Sigurðsson og
Sara Björnsdóttir.
Aðspurð segir Sara listamenn-
ina alla mjög ólíka. Sýningin
verði því fjölbreytt, þama verða
til dæmis ljósmyndir, videóverk
og gjörningar. „Þetta eru allt
saman „egósentrískir“ einstak-
lingar, sem er nauðsynlegt í þess-
um geira,“ segir Magnús. „En það
er líka yndislegt og samstarfið
hefur gengið vel.“
Sem dæmi um verk á sýning-
unni verður Sara með einka-
gjörning í sérrými i portinu fyrir
framan Nýló. „Ég mun fremja
einkagjöming gegn borgun og því
verður fólk að koma með pening
með sér ef það vill skella sér á
einn gjöming," segir Sara sposk.
Opnun sýningarinnar verður
kl. 17.00 á laugardag en leikritið
verður frumsýnt á sunnudag
kl. 20.00.
Reykjavíkin mín
Hadda Hreiðarsdóttir laganemi.
nORGUNMATUR
■ KEBABHÚSIÐ
Þaö hendir mig æ oftar að ég er stödd á
morgunverðartíma í miðbæ Reykjavíkur um
helgar! Þá er það kjúklingakebab með
grænmeti sem verður fyrir valinu.
djamminu hefur fiörið þar ekki
látið á sér standa. Hver brosir
ekki þegar Gleðibankinn er leik-
inn á fullu blasti fyrir fullan sal
af kósveittum djömmurum, ég
get ekki annað!
HÁDEGISMATUR
■ GRÆNN KOSTQR
Þegar hollustuæði veður yfir
klikka buffin á
Grænum kosti
aldrei.
■ AMERICAN STYLE
Það er ekkert
betra en að fara, helst á náttfot-
unum, á American Style eftir
erfiðar helgar. Þangað fiölmenn-
ir vinahópurinn nær undan-
tekningarlaust hverja helgi og
ég held að maturinn hafi aldrei
klikkað.
KVÖLDMATUR
■ asía
í sumar hef ég örugg-
lega oftar borðað á Asíu
heldur en heima hjá mér
og þá er það stóra græn-
metissúpan, rólegheita-
stemning, indælt
starfsfólk og rosa-
lega gott kaffi.
■ LÆKJARBREKKA
Ef ég vil fara
flott út að borða, fá
góða þjónustu og
góðan mat fer ég á
Lækjarbrekku,
staðurinn er ynd-
islegur.
■ KFC
Þegar ég nenni
ekki að elda og er
andlaus á ég það
til að fara á KFC
og fá mér hotwings og kók.
Sterkur matur er mitt uppáhald
og þessir vængir eru þeir allra
bestu í bænum.
ÚT NED VINUNUN
■ SÓLON
Djammið
byrjar oftast
á Sóloni og
endar oft
þar líka. Þama er lið á svipuðu
reki og maður sjálfur og gaman
að setjast niður með vinkonun-
um, fá sér bjór ^. x
og ræða málin.
■ SPORTKAFFI
í þau skipti
sem ég hef farið
á Sportkaffi á Wf^ml
RÓNANTÍK í REYKJA-
VÍK
■ ÆGISÍDAN OG TJÖRNIN
Ég hef nú aldrei verið talin
neitt sérstaklega rómantísk en
göngutúr í kringum Tjörn-
ina, eftir Ægisíðunni og
um vesturbæinn hefur
alltaf einhver sérstök
áhrif á mig.
HEILSAN
LAUGARDALS-
LAUGIN
Þ e g a r
stressið er
að gera út af
við mig fer
ég í Laugar-
dagslaugina,
fer í gufuna, pott-
ana og syndi jafn-
vel nokkuð
hundruð metra.
VERSLUN
IKEA
Eftir að ég fiárfesti í
íbúð í vetur hefur aleig-
an farið í Ikea og sams
konar verslanir.
Habitat, Borð fyrir tvo og
Salt og pipar eru nokkrar af
mínum uppáhaldsbúðum og
alltaf finn ég eitthvað sem ég
gæti hugsað mér í búið.
■ SKÓBÚÐIR
Þar sem ég er haldin sjúklegri
skóáráttu, stunda ég allar
skóbúðir i Reykjavík
mjög reglulega.
Gallerí-skór, Val-
miki, Bossanova og
Skæði - X-18 eru
nokkrar af þessum
búðiun en vikulega
bætast pör í safnið
sem telur nú
yfir hundrað
skópör.
I Kvikmyndasýningar MÍR hafa verið fastur liður yfir vetrarmánuðina síðustu
áratugi. Á sunnudaginn hefjast sýningar á ný eftir sumarfrí. Sýndar verða tvær
myndir, Fall hinnar keisaralegu Romanovættar frá 1927 og Rrælasaia frá 1990.
ívar H. Jónsson verður fyrir
svörum þegar spurt er út í kvik-
myndasýningarnar. Hann segir
alltaf vera um rússneskar mynd-
ir að ræða. Hann bætir við að lít-
ið hafi verið sýnt af nýlegum
myndum síðastliðin ár því erfið-
ara sé að komast yfir þær en hin-
ar eldri. En þó slæðast alltaf með
nokkrar í nýlegri kantinum. Má
þar sem dæmi nefna seinni mynd
siumudagsins. Sú nefnist Þræla-
hald og er heimildarmynd um
mannrán og gíslatöku
tsjetsjenskra glæpahópa i Rúss-
landi. Myndin er gerð í sam-
vinnu við sakamáladeild innan-
ríkisráðuneytis Rússlands og
rússneska ríkissaksóknaraemb-
ættið. Aðspurður segir ívar ekki
vera um áróðursmynd að ræða,
aðeins mynd gerða af hinu opin-
bera og frá sjónarhóli þess.
í áraraðir hefur verið til siðs
hjá MÍR að standa fyrir árlegri
sýningu á hinu mjög svo langa
meistaraverki rússneskra kvik-
mynda, Stríði og friði. Myndin,
sem byggð er á verki Leos Tol-
stojs, tekur um átta og hálfan
tíma í sýningu hjá MlR, með
þremur hléum. ívar segir tíðkast
að taka kaffihlé á löngum sýning-
um. Þá er gestum selt kaffi og
með því en annars er ókeypis á
allar sýningar í MÍR. Flestar
myndanna eru með enskum texta
eða dönskum en ef ekki skaffa
MÍR-menn skýringartexta á blöð-
um. ívar bætir við að yfirleitt
hafi verið þokkaleg aðsókn á sýn-
ingamar í MÍR í gegnum árin og
aldurshópurinn breiður.
Margar kvikmyndanna sem
MÍR hefur til sýningar eru komn-
ar til ára sinna. Má þar nefna
fyrri mynd sunnudagsins, Fall
hinnar keisaralegu Romanov-
ættar. Myndin sú er frá 1927 og
byggð á samtíma fréttamyndum.
Að sögn ívars er hún óskýr á
köflum eins og gengur með svo
gamlar myndir. Þá er bara að
skella sér í bíó í MlR á sunnudag,
þetta er jú líklega eina skemmt-
unin í boði í borginni sem enn þá
er ókeypis.
Reykjavlk: Austurstræti 3, Suðurlandsbr. 46,
Esso-stöðin Ártúnshöfða & Kringiunni.
Hafnarfjörður: Esso-stöðin, Lækjargötu 46,
Esso-stöðin, Reykjavíkurvegi 54.
Keflavik: Hafnargötu 32. Akureyri: Kaupvangsstr. 1.
vSUBUJflY*
I'crsklciki er okkar bragð.