Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2000, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2000, Blaðsíða 19
18 MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2000 MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2000 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun hf. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Svelnn R. Eyjólfsson Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Svelnsson Ritstjórar: Jónas Krístjánsson og Óli Björn Kárason Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvik, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vfsir, netútgáfa Frjálsrar flölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf. Filmu- og plötugerð: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverö á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverö 180 kr. m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viömælendum fýrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. íþróttir í skugga spillingar Mesta og glæsilegasta íþróttahátíð heims hefur verið sett. íþróttafólk hefur í mörg ár undirbúið sig af kappi til að taka þátt í harðri keppni - sumir aðeins til að upplifa lít- ið ævintýri en aðrir staðráðnir í að standa á verðlauna- palli. í hugum almennings um allan heim hafa Ólympíuleik- arnir verið ímynd hreinleikans, þar sem hugsjón heiðar- leikans og drengilegrar keppni á að ráða ríkjum. Göfug markmið Ólympíuleikanna hafa átt að vera sam- einingartákn heimsbyggðarinnar sem merki um allt hið besta í mannlegu fari. Staðreyndin er hins vegar sú að sið- blinda og spilling einkenna þessa miklu hátíð undir stjóm meistara óheilinda. Undir stjóm hins aldraða Juans Anton- ios Samaranch hefur Alþjóða Ólympíunefndin, IOC, orðið gróðrarstía alls þess versta sem i manninum býr. Á liðnu ári fór fram kattarþvottur innan Alþjóða Ólymp- íunefndarinnar, eftir að upp komst að einstakir nefndar- menn hefðu þegið gjafir, peninga og aðra fyrirgreiðslu í skiptum fyrir atkvæði við val á borgum sem sótt höfðu um að halda þessa miklu hátíð. Kattarþvotturinn og yfirklórið hefur þó ekki náð að byggja upp að nýju traust á störfum nefndarinnar og nýjar upplýsingar um spillingu, mútur og mafluaðgerðir benda ekki til þess að gamlir refir eins og Samaranch hafi lært sína lexíu. Hagsmunir Ólympíuleik- anna ráða ekki ferðinni heldur sérhagsmimir lokaðrar klíku sem fer sínu fram hvað sem tautar og raular. Þúsundir iþróttamanna og milljónir áhugamanna um íþróttir eru hafðar að fiflum rétt einu sinni. í leiðara DV á liðnu ári var fjallað um siðspillingu Al- þjóða Ólympíunefndarinnar og sagt meðal annars: „Engum ætti að koma á óvart að Ólympíunefndin sé gróðrarstía spillingar og alls þess sem er andstætt hugsjónum þeim sem byggt er á - a.m.k. í orði. í raun er það fámenn klíka sem öllu stjórnar og stendur engum ábyrgð - enginn hefur kosið þessa klíku til valda. Ólíklegt er að hús Alþjóða Ólympiunefndarinnar verði hreinsað fyrr en skipulagi verður breytt, lýðræði komið á og þar með aðhald tryggt að þeim sem þar eiga sæti.“ Því miður hefur ekkert breyst frá því þessi orð voru sett á blað og enn á ný eru Ólympíuleikamir haldnir í skugga hins spillta í mannlegu fari. íþróttamenn sem taka þátt í leikunum af heiðarleika og drengskap geta ekki setið und- ir því öllu lengur að gamlir skúrkar eyðileggi hægt og bít- andi mestu íþróttahátíð heims. Lœgri skattar Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra hefur með réttu vakið athygli á því að nú eru að skapast möguleikar fyrir ríkissjóð að lækka verulega skatta á fyrirtæki hér á landi. Á fundi á ráðstefnu Euro-Ice í Lúxemborg í liðinni viku benti ráðherrann á að staða ríkissjóðs væri með þeim hætti að hægt væri að skapa ný sóknarfæri í atvinnumál- um með lægri sköttum á fyrirtæki, enda yrði samkeppnis- staða íslands þar með önnur og betri en áður. Mikilvægt er að ríkisstjómin sitji ekki auðum höndum í þessum efnum. Eftir nokkrar vikur verður lagt fram frumvarp til fjárlaga fyrir komandi ár. Þar skiptir mestu að aðhald í ríkisfjármálum verði aukið frá því sem nú er. En um leið er nauðsynlegt fyrir ríkisstjómina að undir- búa skattastefnu til lengri tíma þar sem meðal annars er fundin skynsamleg leið til að létta opinberar álögur á landsmönnum. Fátt er skynsamlegra í uppbyggingu at- vinnulífsins en hófsemi í skattheimtu. Óli Bjöm Kárason DV Skoðun Siðblinda í pólitísku argaþrasi og ýmsum öðrum átökum ís- lensks samfélags hafa menn ekki ævinlega verið vandir að meðulum, enda mun pólitískt og félagslegt sið- gæði íslendinga vera langt undir meðallagi á alþjóðleg- an mælikvarða. En lengi getur vont versnað og sann- aðist á aðalfundi Náttúru- vemdarsamtaka Austur- lands sunnudaginn 27unda ágúst. Þar urðu þau tíðindi að um 60 félagar úr samtök- unum Afl fyrir Austurland höfðu gengið í Náttúruverndarsamtökin dagana fyrir fundinn og voru í meiri- hluta þegar hann var hcddinn, með þeim afleiðingum að allar tillögur stjórnar um stóriðjumál og virkjanir voru felldar, en tillögur nýliðanna samþykktar, þótt þær gengju í ber- högg við yfirlýst markmið Náttilru- verndarsamtakanna. Hér var um að ræða skipulagt of- beldi að mati Hrafnkels A. Jónsson- ar, en formaður Afls fyrir Austur- land, Einar Hrafn Haraldsson, taldi hátterni sitt og félaga sinna fullkom- lega eðlilegt, og er til marks um meiri siðblindu en maður á að venjast jafnvel í okkar spillta samfélagi. Yfírgengileg grunnhyggni Það sem sker í augu er sú yfírgengilega grunnhyggni Einars Hrafns að ganga fram í þeirri skynvillu, að almenningur í landinu sjái ekki gegnum lúalegar fyrir- ætlanir hópsins sem smalað var á fundinn og var reynd- ar svo áttavilltur, að stund- um réttu Aflsmenn ekki upp hönd á réttu augnabliki. Leiddi það til þess að skikka varð sérstakan gæslumann til að gefa bendingu um hvenær þeir ættu að rétta upp hönd og hvenær ekki! Hópurinn hafði sumsé ekki kynnt sér málefnin betur en þetta og varö fyrir vikið að láta sér lynda að verða að athlægi alþjóðar. Sú röksemd Smára Geirssonar, forseta bæjarstjórnar í Fjarðabyggð, að Náttúruverndarsamtökin séu svo fámenn, að ályktanir þeirra eigi lít- inn rétt á sér og megi ekki koma fram í fjölmiðlum athugasemdalaust, lýsir í hnotskurn fróðlegum viðhorf- Sigurður A. Magnússon rithöfundur „Tillögur Aflsmanna, sem samþykktar voru á aðal- fundinum, lutu hinsvegar að því að gera litlar sem engar kröfur um náttúruvemd eða lögformlegt mat á svœðinu, heldur fara í einu og öllu að geðþótta Lands- virkjunar og verktaka. “ Afstýrum skipulagsleysi við Elliðavatn Á fundi Umhverfls- og heilbrigðis- nefndar Reykjavíkur 31. ágúst sl. var deiliskiþulag í Vatnsendalandi við Elliðavatn kynnt fyrir okkur nefnd- armönnum í fyrsta sinn. Nefndar- mönnum var brugðið eftir kynning- una en sl. tvö ár hefur nefndin oft rætt um aðgerðir til að bjarga lífríki Elliðaánna. Kópavogsbær, sem er langt kominn með að nýta til fulls byggingarsvæði í landi sínu, hyggst reisa þétta byggð í nágrenni Elliða- vatns. Þessi áform þrengja að útivist- arsvæðinu við Elliðavatn og gætu ógnað lífríki vatnsins og þar með El- liðaánna. Margt er óljóst um orsakir hnign- unar á lífríki þessarar perlu Reykja- víkur en sterkar vísbendingar eru um neikvæð áhrif frá innstreymi líf- rænna efna í Elliðavatn. Hver upp- runi þessarar lífrænu mengimar í Elliðavatni er liggur enn ekki fyrir. Reykjavíkurborg og Kópavogsbær þurfa sameiginlega að rannsaka það mál til hlítar. Athugasemdir borgarskipulags Borgarskipulag Reykjavikur hefur þegar gert athugasemdir við fyrir- hugað deiliskipulag í landi Vatns- enda. Samkvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 fellur Elliða- vatn og umhverfi þess undir borgar- vemd og gert er ráð fyrir því að El- liðavatn og nánasta umhverfi þess innan Reykjavíkur verði hverfis- verndað svæði. Því er mikilvægt að líta á vatnið í heild sinni og skoða þann kost að nánasta umhverfi vatnsins haldist sem mest óbyggt opið svæði þar sem því verður við komið. Borgarskipulag telur eðli- legt að skoða byggð í Vatns- endalandi í samhengi við byggð í Norðlingaholti skv. Aðalskipulagi Reykjavíkur og hefur óskað eftir viðræð- um við Kópavogsbæ um þau mál sem varða hags- muni beggja sveitarfélag- anna í tengslum við þessar áætlanir. Langtíma- og heildar- hagsmunir ráði Mörgum eru enn í fersku minni áætlanir bæjarstjórnar Seltjarnar- ness á árunum 1992-1996 um íbúða- Olafur F. Magnússon læknir og borgarfulltrúi byggð vestan núverandi byggðar á svæði sem hefur allt i senn úti- vistar-, náttúruvemdar- og fornminjagildi. Sem betur fer tókst almenningi að stöðva þessar fyrirætlanir og bjarga þannig mikil- vægri náttúruperlu á höf- uðborgarsvæðinu frá eyði- leggingu. Svipað virðist nú vera upp á teningnum með áætl- anir Kópavogsbæjar um byggð við Elliðavatn og þvi er brýnt að almenningur rísi til varnar gegn þessum áætlunum, sem að mati undirritaðs eru alvarlegra mál en tekist var á um í deilum um útivist- arsvæðin í Fossvogsdal árið 1993 og í Laugardal árið 1999. Undirritaður hefur komið að málum í baráttunni fyrir verndun þessara útivistar- svæða í samræmi við þá skoðun að um hagsmuni almennings á öllu höf- uðborgarsvæðinu sé að ræða, þegar til lengri tíma er litið. „Kópavogsbœr, sem er langt kominn með að nýta til fulls byggingarsvœði í landi sínu, hyggst reisa þétta byggð í nágrenni Elliðavatns. Þessi áform þrengja að útivist- arsvœðinu við Elliðavatn og gœtu ógnað lífríki vatnsins og þar með Elliðaánna. “ Sameiningu sveitarfélaga verði flýtt Núverandi samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í skipulags- málum er ófullnægjandi eins og of- angreind dæmi sanna. Nóg landrými er fyrir vel skipulögð útivistarsvæði á höfuðborgarsvæðinu og ekki má eyðileggja náttúruperlur þar vegna skammtímahagsmuna einstakra sveitarfélaga. Því er brýnt að meiri framtíðarsýn ríki í skipulagsmálum höfuðborgarsvæðisins en áætlanir Kópavogsbæjar um þétta byggð við Elliðavatn vitna um. Til að svo megi verða þarf að flýta sameiningu sveit- arfélaga á höfuðborgarsvæðinu Ólafur F. Magnússon *arfrá Ólympíuleikunum Listviðburöur og skemmtun Stífdópuð vöðvatröll i „Ólympíuleik- arnir eru sú íþróttahátíð sem ■QÍmest hefð er fyrir í heiminum og einnig sú fjölmennasta. Þar af leiðir að margir hafa áhuga á henni og það hefur einnig sýnt sig hvað eftir annað í áhorfskönnunum að margir horfa á sjónvarpsútsendingar. Sem dæmi má nefna útsend- ingar frá fimleikakeppnum, sem mjög breiður hópur fólks horfir á. Opnunar- hátíðin ein, sem við sýndum frá á fóstudaginn, er líka bæði listviðburður , Hjördís Árnadóttir íþróttafréttamaöur. og skemmtun í senn. Að kom- ast á Ólympíuleika er takmark sem flestir góðir íþróttamenn setja sér og ef það tekst er það stórkostlegt afrek. Það er sjálf- sagt að íslendingar styðji sína menn og fyrir okkur sem störf- um við að lýsa frá slíkum stór- mótum er það líka mikilvægt. Það er frábært að sjá gleðina sem brýst út eftir sigur og flest okkar hafa einhvern tíma tár- ast við að upplifa með fólki þegar það nær takmarki sínu og sér draumana rætast. Ólympíuleikarnir eiga heima inni í stofu hjá okkur öllum.“ iV',-.. Á hátíðarstund- fljj um standa pótentát- 1 ar á torgum og mæla fagurt um menningarhlutverk fjölmiðlanna. Stórt orð Hákot og engum ráðlagt að lesa dag- skrána strax á eftir. Svo sem þessa dagana þegar iþróttafárið tröllríður ríkissjónvarpinu enn einu sinni. Nú eru það Ólymp- iuleikar og landslýðurinn rétt nær að næla sér í kríu milli útsendinga og ef einhver skyldi sofha eru herleg- heitin endurtekin með reglulegu milli- bili. Og hverjum til gagns? Enginn trú- Geirlaugur Magnús- son menntaskóla- kennari og skáld. ir lengur klisjum um drengilega keppni þegar stífdópuð vöðva- tröll velta um skjáinn. Eru það þær fyrirmyndir sem menn kjósa æsku landsins? En senni- lega skipta íþróttimar minnstu máli. Ólympíuleikar eru, sem aðrir íþróttaviðburðir, gósen- land auglýsenda til að sannfæra okkur um ágæti ropdrykkju bjórs og dömubinda. Út á aug- lýsingatertuna er siðan skvett þjóðrembu, mannfyrirlitningu og upp- hafningu þeirrar göfugu íþrðttar að hafa rangt við. Sem betur fer er hægt að taka úr sambandi." Olympíuleikarnir eru hafnir og verða fyrirferöarmiklir í dagskrá Ríkissjónvarpsins. um til lýðræðis og mannréttinda. Hver segir að meirihlutinn hafi æv- inlega rétt fyrir sér? Hvemig færi um lýðræðið ef hugsunarháttur og starfsaðferðir Aflsmanna yrðu ofaná í samfélaginu? Sjálfumglaðir ofstækismenn Það hlálega i öllum þessum mála- tilbúnaði er, að náttúruvemdarsinn- ar á Austfjörðum eru alls ekki á móti virkjunum sem slíkum, heldur vilja þeir einfaldlega að fullt tillit sé tekið til lands og náttúru, en ekki göslast áfram í blindni. Tillögur Aflsmanna, sem samþykktar voru á aðalfundin- um, lutu hinsvegar að því að gera litlar sem engar kröfur um náttúru- vernd eða lögformlegt mat á svæð- inu, heldur fara í einu og öllu að geð- þótta Landsvirkjunar og verktaka. Fruntalegt framtak Aflsmanna verður ekki til annars en drepa á dreif skynsamlegum umræðum um virkj- unar- og stóriðjumál. En þeir hafa á hinn bóginn vakið á sér megna andúð réttsýnna manna sem hrýs hugur við þeirri framfíðarsýn, að deilumál verði héreftir útkljáð með yfirgangi sjálfum- glaðra ofstækismanna. Sigurður A. Magnússon Stórmarkaðir og fákeppni „Við íslendingar þekkjum þessar umræður þar sem hver vísar á annan. Hér hjá okkur virðist ljóst, að þótt verð til bænda hafi lækkað skili það sér ekki til neytenda. Talsmenn mat- vöruverslana bera af sér sakir en tals- menn vinnslustöðva vísa til þess, að kostnaður hafi hækkað og ekki sé sjálfgefið að verðlækkun til bænda skili sér til neytenda ... Þetta mál verður að upplýsa til þess að aðilar þess haldi trúverðugleika sínum gagn- vart neytendum.“ Úr forystugreinum Mbl. 15. sept. Sjálfhælnasta stofnunin „Ríkisútvarpið er sjálfhælnasta stofhun landsins... Að hætti eins færasta auglýs- ingaskrumara aldar- innar er því haldið fram ár og síð að ríkis- miðillinn einn nái eyr- um og augum allra landsmanna og tryggi örugga sölu á flestu því sem neysluþjóðfélagið nærist á. Samt fær Ríkisútvarpið aldrei nóg af peningum til að reka sjálft sig. Hvert mannsbarn í landinu er svo rukkað um skyldu- skatt, sem kallaður er afnotagjald, til að fá að hlusta á allt hólið um nær yf- irnáttúrlegt ágæti stofnunarinnar." Oddur Ólafsson blm. í Degi 15. sept. Þægur minnihluti „R-listinn gæti varla fengið hag- stæðari andstæðing ... Sem dæmi um hversu þægilegur minnihlutinn er bú- inn að vera má hafa að hann mótmæl- ir ekki einu sinni hugmyndum um byggingu hins opin- bera á risa- stóru tónlistarhúsi og ráðstefnuhöll við höfnina, sem þó er ljóst að mun kosta marga milljarða króna. Það þarf vart að taka fram að núverandi minnihluti mótmælir ekki yfirbyggð- um fótboltavelli, fjölnota íþróttahúsi eða yfirbyggðri sundlaug. Allt fer þetta mótmælalaust í gegn hjá þessum harðsnúna minnihluta." Úr Vef-Þjóöviljanum 15. sept. í framboð „Óvíst er um örlög Reykjavíkurlista og D- lista í næstu borgar- stjórnarkosningum ... Sundurþykkjan opnar leið fyrir þriðja aflið inn i borgarstjóm Reykja- víkur og oddasætið. Ekki er seinna vænna að barnfæddir Reykvíkingar dusti rykið af gamla Reyk- víkingafélaginu og bjóði fram sinn eigin lista við hliðina á átthagaframboðum sveitamanna í Reykjavik.“ Ásgeir Hannes Eiriksson verslunar- maður í Degi 14. sept. ^e'þjóðviljinn Páfabréf um platkirkjur Ætla má að prestar þjóðkirkjunnar upplifi sig í algjöru limbói vegna þess að biskupinn í Róm hefur komist að þeirri nið- urstöðu að kirkjan sem þeir eru skírðir í og þjóna er ekki kirkja. Af þessu leiðir að ég og starfssystk- in mín í þjóðkirkjunni erum þá ekki alvöruprest- ar heldur fólk sem er að þykjast í prestaleik og veit ekki af því að það lifir í blekkingu. Þetta álit biskupsins í Róm hefur reyndar enn sem komið er aðeins borist hingað norður í lút- erskuna í formi smáfréttar en von- andi verður þess ekki langt að bíða að eitthvað bitastæðara og röklegra fylgi í kjölfarið. Finn til með því góða fólkí Yfirlýsing sem þessi kemur mjög á óvart eftir mörg teikn um jákvæða þróun í samskiptum Rómarkirkjunn- ar og mótmælenda á síðari árum. Það er hryggilegt að heyra þennan tón úr Vatíkaninu. Ég fmn til með öllu því góða fólki sem ég þekki innan Rómar- kirkjunnar á íslandi. Það hlýtur að vera erfitt að vera kaþólikki þegar svona furðulegheit eiga sér stað og ég trúi því ekki að safnaðarfólk í þeirra röðum sé í hjarta sínu sama sinnis og leiðtogi þeirra í Róm. Það er sorgar- dagur í heimi kristninnar þegar svona á sér stað. Annars er það ekkert nýtt að menn taki sér einkaleyfi á ýmsum hlutum eins og dæm- in sanna. En að einoka kirkj- una er nú eftir mínum smekk svolítið stórtæk aðgerð. Það er nánast eins og seilst sé inn í himininn sjálfan og eignar- haldið auglýst um alla heims- byggðina. Og til að bæta gráu ofan á svart er tilkynnt að þessi eignarhaldsúrskurður á kirkjunni sé mæltur af veld- isstóli páfa, ex catedra, sem merkir, að um óskeikulan og væntan- lega óbreytanlegan úrskurð er að ræða um aldur og eilííð. Firrt veruleikanum „Heyra má ég erkibiskups boð- skap en ráðinn er ég að halda hann að engu,“ sagði Jón Loftsson forðum við Þorlák helga þegar honum þótti kaþólska kirkjan ganga of langt í yf- irráðum yfir kirknaeignum. Að breyttu breytanda getum við lútersk- ir prestar tekið okkur þessi orði í munn og hafnað úrskurði biskupsins í Róm. Það hljótum við að gera allir sem einn þvi svona yfirlýsing ber þess augljósan vott að vera firrt veruleikanum. Annars þurfum við mótmælendur ekki að vera að gera okkur rellu út af svona málum því einokun af þessu tagi verður aldrei þinglýst í himin- sölum eða færð þar í veðmálabækur. Það hefur Eddrei verið háttur íslend- inga að skjálfa yfir „bullum" eins og umburðarbréf biskupsins í Róm voru kölluð á öldum áður. Þau bár- ust seint og illa til landsins og prest- ar kirkjunnar létu þennan biskup í Róm ekki segja sér fyrir verkum í smáatriðum. íslendingar fóru sínu fram í mörg- um atriðum í árdaga kristni hér á landi. Þar með er ekki verið að segja að fólk hafi ekki verið vel kristið. Öðru nær. En eitt er víst að það var í það minnsta sjaldan eða aldrei kaþ- ólskara en páfinn. Fólk sem tilheyrir svonefndum mótmælendakirkjum þarf ekki að óttast umrædda yfirlýsingu. Hún dæmir sig sjálf. Ég geri ráð fyrir að í fyrrnefndri yfirlýsingu snúist mál- ið um það í huga Rómarbiskups að „platkirkjurnar" séu ekki meö óslitna vigsluröð biskupa frá frum- kristni eins og kaþólska kirkjan. Vígsluröðin slitnaði á dögum siðbót- arinnar en lúterskir menn hafa litið svo á að meira máli skipti að hrein kenning fagnaðarerindisins (um rétt- lætingu af trú einni saman en ekki verkum) gangi mann fram af manni en það hvort bein vígsluröð viðhald- ist, að innihaldið skipti meira máli en umbúðimar, sannleikurinn sé meira virði en embættin. Öm Bárður Jónsson „Það hlýtur að vera erfitt að vera kaþólikki þegar svona furðulegheit eiga sér stað og ég trúi því ekki að safnaðarfólk í þeirra röðum sé í hjarta sínu sama sinnis og leiðtogi þeirra íRóm.“ - Frá íslandsheimsókn páfa 1989.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.