Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2000, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2000
DV
7
Fréttir
Sýslumaður Skagfirðinga segir félagsheimilin athvarf unglinga:
Vill banna ölvun á almennum dansleikjum
„Nú þegar unnið er að forvörn-
um á mörgum vígstöðvum tel ég
óviðunandi að félagsheimili séu at-
hvarf fyrir unglinga sem vilja
drekka sitt áfengi í friði undir
vernd lögreglu," segir Ríkarður
Másson, sýslumaður Skagtirðinga,
í bréfi sem hann sendi sveitar-
stjóm Skagafjarðar og nefndum fé-
lagsmála og menningar- og íþrótta-
mála í sveitarfélaginu. Sýslumaður
leggur til að samkomuhúsum sem
ekki hafa vínveitingaleyfi verði
lokað klukkan eitt þannig að sá
sem fer út eftir þann tíma veröi að
greiða aðgangseyri við inngöngu
að nýju, að unglingar yngri en 18
ára fái ekki aðgang að almennum
dansleikjum, að mælt verði fyrir
um að ölvun sé bönnuð á almenn-
um dansleikjum og samkomuhöld-
urum gert skylt að taka það fram i
auglýsingu um dansleikinn.
Sýslumaður leggur áherslu á það
í bréfi sinu að eigendur og rekstr-
araðilar allra félagsheimila verði
að vera sammála um þessar að-
gerðir, s.s. að banna aðgang ung-
linga yngri en 18 ára, og þetta
krefjist þess að halda verði sér-
staka dansleiki fyrir 15-17 ára ung-
linga.
„Alltof lengi hefur það verið lát-
ið viðgangast að unglingar allt nið-
ur í 15 ára neyti áfengis óátalið á
skemmtunum sem haldnar eru í fé-
lagsheimilum. Er það skoðun und-
irritaðs að tími sé til kominn að
spyma við fótum. Áfengisneysla
unglinga er ekki sjálfsögð. Ung-
lingar virðast þó telja að þegar þeir
eru að skemmta sér í félagsheimil-
um, sem oftast eru í eigu sveitarfé-
laga, kvenfélaga og ungmennafé-
laga, geti þeir óáreittir neytt áfeng-
is í allra augsýn og beint fyrir aug-
um lögreglunnar," segir sýslumað-
ur einnig i bréfi sínu.
Sýslumaður sendi einnig með
bréfi sinu aðgöngumiða að dans-
leik í einu félagsheimilanna frá
liðnu vori. „Ekki hefur verið riflð
af miðanum, þannig að félagsheim-
ilið, ríkissjóður og STEF fá ekki
alltaf sitt. Þetta mun vera nokkuð
algengt. Virðist vera nauðsynlegt
að brýna fyrir húshöldurum og
dyravörðum að verjast yfirgangi
hljómsveita og starfsmanna þeirra
sem reyna að auka sinn hlut með
öllum ráðum,“ segir í erindi sýslu-
manns.
-ÞÁ
Eyddu miirna
Gott verð, minna bensín og hagstæðari tryggingar
Renault Clio 3 dyra g-
cr
á mánuði*
Verð frá 1.225.000,- 3 dyra - 5 gíra - 1400cc - 2 loftpúðar - abs bremsur - J;
fjarstýrð hljómtæki - fjarstýrðar samlæsingar
Renault Clio 5 dyra
16.348,-
á mánuði*
Verð frá 1.335.000,- 5 dyra - 5 gíra - 1400cc - 2 loftpúðar - abs bremsur -
fjarstýrð hljómtæki - fjarstýrðar samlæsingar
Renault Clio Sport
16.995,-
á mánuði*
Verð frá 1390.000,- 3 dyra - 5 gíra - 1600cc - 4 loftpúðar - abs bremsur -
fjarstýrð hljómtæki - fjarstýrðar samlæsingar - þokuljós
*meðalgreiðsla á mánuði miðað við 25% útborgun (t.d. notaðan bíl) og afganginn á 84 mánuðum.
Þú finnur tæplega nokkurn bíl sem er bæði hagstæðara að
stmi5751200 eignast og eiga en Renault Clio. Komdu og prófaðu!
Söludeild 575 1220
RENAULT