Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2000, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2000, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2000 DV Menning 15 DV-MYND INGÖ Kristbjörg Kjeld Það bókstaflega geislaði af henni í hlutverki Kolbrúnar. Að púsla saman lífinu Það er ekki einungis goðsögn að við íslendingar séum sagnaþjóð. Skáldsögur og frásagnir hvers konar eiga greiðari leið að íslenskum les- endum en ljóðlistin og leikrit sem segja skýrt afmarkaða sögu eru lík- legri til vinsælda en þau sem á ein- hvern hátt reyna á þanþol formsins og miðla fremur tiifmningum og hughrifum en sögu með upphafi og endi. Leikrit Sigurðar Pálssonar, Einhver i dyrunum, lýsir fyrst og fremst ástandi. Söguþráðurinn er of- inn úr mörgum stuttum atriðum sem í fyrstu virðast laustengd en þegar á verkið líður fara brotin að raðast saman. Síðasta púslið er svo lokasenan sem kallast skemmtilega á við upphafssenuna og lokar verk- inu með fyrirheiti um nýtt upphaf. Ekki er auðvelt að lýsa innihaldi þessa verks í fáum orðum enda ver- ið að fást við stórar spumingar um mörk veruleika og vitfirringar, tengsl lífs og listar og möguleika tungumálsins til raunverulegra tjá- skipta, svo eitthvað sé nefnt. Leikur- inn hverflst um Kolbrúnu, virta leikkonu sem er hætt að koma fram og lifir í sjálfskipaðri útlegð innan fjögurra veggja heimilisins. Eigin- maðurinn, sem sjálfur er einrænn og áhugalítill um allt annað en fiðrilda- safnið sitt, gerir máttleysislegar til- raunir til að rifa Kolbrúnu upp úr þeirri andlegu lægð sem hún er í en verður litið ágengt. Þau hjónin em líka löngu hætt að skilja hvort ann- að eins og samtölin, sem minna frek- ar á einræður, bera glöggt vitni um. Það em heimsóknir drauga úr for- tíðinni (fyrirsætan Laufey) og unga aðdáandans Vilmars (sem einnig minnir Kolbrúnu á fortíðina vegna sjúklegs áhuga á leikferli hennar) sem koma hreyfingu á hlutina. Inn í blcmdast svo margræð tengsl móður Vilmars við eitt hlutverka Kolbrún- ar og allt þetta leiðir á endanum til óumflýjanlegs uppgjörs. Sterkur leikur Einhver í dyrunum stendur og fellur með leikkonunni sem velst í aðalhlutverkið og þar brást Krist- björgu Kjeld ekki bogalistin fremur en fyrri daginn. Kristbjörg er ein- staklega öguð og vandvirk leikkona sem mótar hvert smáatriði af ótrú- legri nákvæmni en býr að auki jfir þessari sterku nærvera sem gerir gæfumuninn á leiksviði. Það bók- staflega geislaði af henni í hlutverki Kolbrúnar og tök hennar á persón- unni voru þannig að unun var á að horfa. Bjöm Ingi Hilmarsson var líka magnaður i hlutverki Vilmars. Hann sveiflaði sér auðveldlega öfganna á milli í tilflnningum og í samleik þeirra Kristbjargar reis sýn- ingin hæst. Aðrir leikarar eru Sigurður Karls- son í hlutverki eiginmannsins, Edda Björgvinsdóttir sem leikur móður Vilmars og Guðmundur Ingi Þor- valdsson sem er fyrirsætan Laufey. Edda og Bjöm Ingi leika að auki svo- kallaðar „utangáttaleikverur" sem birtast í tvígang handan við gagn- sæja veggina sem afmarka heimili Kolbrúnar og sjúkrahúsið sem Vig- dís dvelur á. Leikur Sigurðar, Eddu og Guðmundar Inga var ekki jafná- hrifaríkur og hinna tveggja en öll áttu þau góða spretti. Leikmynd Stígs Steinþórssonar bauð upp á skemmtilegar lausnir, sbr. garðinn og aðra táknræna hluti baksviðs, en rýmið framsviðs hefði mátt vera minna til að undirstrika innilokunina. Hljóðmyndin þjónaði hlutverki sínu vel og búningar voru ágætlega heppnaðir þó áhersla á liti og sjetteringar væri kannski full- mikil. Handbragð Kristínar Jóhann- esdóttur leikstjóra er auðþekkjem- legt í sjónrænni útfærslu verksins sem er flott að vanda. Stundum flnnst mér „tempóið" í sýningum Kristinar fullhægt en hér næst gott jafnvægi og áhorfendur skynja mjög greinilega ólguna undir tempruðu yfirborðinu. Þetta er án efa besta leikrit Sigurðar Pálssonar til þessa og mörg atriði í verkinu sérlega áhrifarík. Innihaldið er ekki auð- melt en frammistaða Kristbjargar Kjeld slík að enginn áhugamaður um leikhús ætti að láta þessa sýn- ingu fram hjá sér fara. Halldóra Friðjónsdóttir Leikfélag Reykjavíkur sýnir á litla sviöi Borgarleikhússins: Einhver í dyrunum. Höfundur: Siguröur Pálsson. Hljóömynd: Ólafur Örn Thoroddsen. Lýsing: Lárus Björnsson. Búningar: Stefanía Adolfs- dóttir. Leikmynd: Stígur Steinþórsson. Leikstjóri: Kristfn Jóhannesdóttir. Siðustu innritunardagar Nú eru síðustu forvöð að innrita sig. Við bjóðum upp á skemmtileg og gagnleg námskeið fyrir alla aldursflokka, bæði byrjendur og lengra komna. Nokkur pláss eru enn þá laus í byrjendanámskeiðum. Aukum í yngstu flokkunum. innritun stendur til 23. sept., kennsia hefst 25. sept. ViSA Hægt að fá ieigða heimagítara, kr. 2500 á önn. Sími 588 3730. Innritun daglega kl. 14-17. ’ Kæliskapur • RG 2255 • Kælir 183 Itr. • Frystir 63 Itr. • Sjálfvirk afþýðing í kæli • Orkunýtni C • Mál hxbxd: 152x55x60 39.900 stgr A / Það voru hinir blóðheitu Italirsem hönnuðu Indesit kæliskápana enda veitir þeim oft ekki af því að kæla sig aðeins niður. En Indesit er ekki fyrir alla, nei, nei blessaður vertu. Indesit er bara fyrir þá sem vilja töff hluti í eldhúsið og kjósa að borga sem minnst fyrir þá. (Í)inDesiT B R Æ Ð U R N I R Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.