Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2000, Page 1
15
Þriðjudagur 19. sept. 2000
dvsport@ff.is
DV, Sydney:
„Ég er mjög sáttur viö sundið hjá Jakobi. Hann hefur æft mjög vel síðasta árið og undirbúningur hans hefur gengið
mjög vel. Hann synti í raun aiveg eins og lagt var upp fyrir fram. Hann byrjaði vel. Seinni 100 metramir komu líka
vel út hjá honum og var sundið tæknilega gott hjá honum. Ríkharður byrjaði sitt sund of hratt og vantaði því kraft
í lok þess og ég er svona þokkalega ánægður með sund hans í morgun. Ríkharður nýtur hins vegar þessa móts mjög
vel.“
Árangur Amar í skriðsundinu og Jakobs í gær í bringusundinu er besti árangur íslendinga á Ólympíuleikunum
og báðir bættu þeir sig verulega í þessum greinum. Báðir náðu þeir Ólympíulágmörkum og voru reyndar þeir einu
af níu manna sundlandsliði í Sydney sem gerðu það. Gæti sú umræða sem varð fyrir keppnina um breyttan
þátttökuíjölda íslands á leikunum hafa haft neikvæð áhrif á hina, auk þess sem þeir Örn og Jakob höfðu mjög góðan
tíma til undirbúnings á meðan aðrir voru að reyna að ná lágmörkum?
„Ég er ekki alveg viss um hvaða áhrif þetta hefur haft en ég hef hins vegar séð á þessu móti að það eru ekki margir
sundmenn okkar hér sem hafa verið langt frá sínum bestu tímum, eins og t.d. Eydís, Lára Hrund og íris. Mér finnst
það góður árangur á móti sem þessu“
Nú syndir Öm Arnarson í 200 metra baksundi á morgun. Þú hlýtur að vera spenntur? „Ég er kannski ekki spenntur
en mér líst mjög vel á þetta en ég hef hins vegar orðið var við mikinn spenning að heiman. Ég er hins vegar mjög
ánægður með að Öm hefur nú sannað að hann getur náð góðum árangri 150 metra laug en það em margir sem hafa
haldið þvi fram að hann geti það ekki." -PS
Chelsea Clinton, dóttir Bandaríkjaforseta, var meöal áhorfenda vifi
Ólympíusundlaugina í Sydney i gær og varö vitni afi því þegar
Jakob Jóhann Sveinsso setti íslandsmet sitt. Chelsea sést hér á
ferðinni í stúkunni á leifi til sætis síns.
Synti eins og
að var stefnt
- sagöi Brian Marshall sem var mjög ánægður með árangur Jakobs
DV-mynd Pjetur