Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2000, Blaðsíða 2
16
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000
Sport
MEISTARADEILDIN
Leikirnir í kvöld:
E-riöill
Deportivo-Hamburg SV
Juventus-Panathinaikos
F-riöill
Bayern Miinchen- Rosenborg
Paris St. Germ.-Helsingborg
G-riöill
Anderlecht-PVS Eindhoven
Dynamo Kiev-Man. United
H-riöill
Besiktas-Barcelona
Leeds- AC Milan
Bland í poka
Stórlid Inter Milan gerði i gær
1-1 jafntefli við Lecce í þriðju um-
ferð ítölsku bikarkeppninnar í
knattspyrnu. Luigi Di Biagio skor-
aði mark Inter en Davor Vugrinec
skoraði mark Lecce.
Henrik Larsson kom Glasgow
Celtic aftur á topp skosku deildar-
innar þegar hann skoraði bæði
mörk liðsins í 2-1 sigri á Dunferm-
line í gær. Celtic hefur nú 21 stig,
tveimur fleiri en Hibernian og,
það sém áhangendum liðsins
finnst meira um vert, fimm stigum
meira en erkifjendurnir Glasgow
Rangers, meistarar síðasta árs.
-ÓK
Önnur umferð riðlakeppni Meist-
aradeildar Evrópu í knattspyrnu
hefst í kvöld með átta leikjum í riðl-
um E, F, G og H.
Veröur Helgi meö?
Spænska liðið Deportivo La Coruna
heimsækir Hamburger SV í Hamborg
og Helgi Sigurðsson og félagar i
Panathinaikos fara til Tórinó og mæta
ítalska stórliðinu Juventus í E-riðli.
Hugsanlegt er að Javier Irureta
þjálfari láti Brasilíumanninn Cesar
Sampaio byrja leikinn þar sem Emer-
son er meiddur en annars er líklegt að
liðið verði það sama og sigraði Racing
Santander, 3-0. Þó mun Juan Carlos
Valeron sjá um leikstjóm liðsins þar
sem Brasilíumaðurinn Djalminha er
enn í banni.
‘í' i IÉ1
i 1
1 ; *
0 )
^Qfons
AoðrftW Cole jpp
l -etli "■irkaskoruninni?
Líklegt þykir að Tony Yeboah og
Bemd Hollerbach hefji leik fyrir
Hamburg en þeir sátu heima í 4-4
leiknum gegn Juventus í síðustu viku.
Þá mun Stig Tnfting taka stöðu fyrir-
liðans Martins Groths sem lenti í því
að brjóta rifbein í leik gegn Juventus.
ftalska liðið kemur til með að
sakna Paulos Monteros gegn Grikkj-
unum en hann er í banni og mun Igor
Tudor taka stöðu hans. Eins er vafi
með þátttöku Marks Iulianos en hann
tognaði í leik gegn Hamburg. Fabian
O’Neill tekur stöðu Gianlucas
Zambrotta sem er að spila á Ólympíu-
leikunum og Alessandro Del Piero,
sem hefur valdið nokkrum áhyggjum,
er talinn líklegur í framlínuna ásamt
Filippo Inzaghi en Darko Kovacevic
verður á bekknum.
Helsta áhyggjuefni Grikkjanna er
ástand leikstjómandans, Paulos
Sousa, og enn finnst Angelos
Anastasiadis þjálfara króatíski lands-
liðsmaðurinn Goran Vlaovic ekki til-
búinn til að spila hjá liðinu, leik-
manninum til lítillar ánægju.
Krzysztof Warzycha tekur stöðu hans
í leiknum.
Kahn ekki meö
Bayern Múnchen tekur á móti
Áma Gauti Arasyni og félögum í Ros-
enborg í F-riðli og Paris St. Germain
tekur á móti Helsingborg og er von
þeirra sjálfsagt sú að ósigurinn gegn
Rosenborg endurtaki sig ekki.
Oliver Kahn markvörður er stóra
spurningarmerkið í herbúöum Þjóð-
verjanna eh hann meiddist á fæti
gegn Helsingborg í síðustu viku.
Varnarjaxlinn Samuel Kuffour er í
banni og líklegt er að Giovane Elber
verði hvíldur og tekur Hazan Sali-
hamidzic stöðu hans.
Norðmennirnir eru fullir sjálfs-
trausts eftir sigurinn á Frökkunum í
síðustu viku en nú er að halda sig á
jörðinni. Engin meiðsl hrjá liðið og
enginn er í banni.
PSG vill sjálfsagt gleyma leiknum í
Þrándheimi í síðustu viku sem fyrst.
Nicolas Anelka er kominn aftur úr
ökklameiðslum og Frederic Dehu
kemur líklega inn eftir meiðsl í stað
Talals El-Karkouri.
Líklegast er að Svíarnir haldi sig
við sama liðið og spilaði gegn Byern í
fyrri viku.
Bosnich í hópnum
Manchester United flýgur til Úkra-
ínu og mæta heimamönnum í Dyna-
mo Kiev í G-riðli og „nágrannaslag-
ur“ fer fram i Belgíu þegar PSV
Eindhoven mætir heimaliðinu Ander-
lecht.
Vladislav Vaschuk kemur til með
að styrkja vörn úkraínska liðsins þeg-
ar hann kemur aftur efit meiðsl og
tveir sterkir miðjumenn, Vitaly
Kosovsky og Hennady Moroz, eru
einnig að koma eftir meiðsl og verða
líkast til á bekknum.
Mark Bosnich er kominn aftur í
hópinn hjá United en verður á bekkn-
um, Raimond van der Gouw tekur
stöðu Fabiens Barthez sem er meidd-
ur. Jaap Stam er enn meiddur og alls
óvíst hvort hann leikur með í kvöld.
Búast má við að Anderlecht breyti
aftur í gamla, góða 4-4-2 leikkerfiö
eftir tapið gegn United í síðustu viku.
Þeir verða án kjölfestunnar Besniks
Hasi á miðjunni og varnarmaðurinn
Didier Dheedene er einnig meiddur.
Ekki er búist við að Eric Gerets
geri fáar breytingar á sínu liði frá sig-
urleiknum gegn Dynamo Kiev. Enn
eru þeir Ruud van Nistelrooy, Eric
Addo, Ernest Faber og Adil Ramsey
allir meiddir og vamarmaðurinn
Kevin Hofland er að ná sér eftir að
hafa fengið heilahristing.
Meidda liöiö Leeds
Besiktas færir sig frá Ítalíu til
Spánar og mætir Barcelona i hinum
svokallaða „dauöariðli", H-riðlinum,
og AC Milan mætir Leeds á Ellend
Road.
Tyrkimir vOja ólmir hrista af sér
slyðruorðið eftir 4-1 tapið gegn Milan
í síðustu viku og treysta á framherj-
ana sína, Pascal Nouma og Nihat
Kahveci. Varnarmaðurinn Sead Hali-
lagic er meiddur og kemur Rahim
Zafer í hans stað.
Barcelona saknaði klárlega miðju-
manna sinna, Pep Guardiola og og
Philip Cocu, um helgina þegar liðið
tapaði fyrir Athletic BObao. Hugsan-
legt er að Luis Enrique spOi fyrsta
leik sinn í hálft ár og Boudewijn
Zenden er einnig orðinn heOl og mun
ógna stöðu Marcs Overmars.
David O’Leary, knattspyrnustjóri
Leeds, er hræddur um að annað stór-
tap sé í sjónmáli fyrir lið hans sem
líður mjög fyrir meiðsl leikmanna.
Síðasta áfaUið er að ástralska knatt-
spyrnusambandið neitar að hleypa
Mark Viduka heim þrátt fyrir að
landsliðið sé úr leik á ÓL. Stephen
McPhaO er nýjasta viðbótin á langan
sjúkralista enska liðsins þar sem fyr-
ir era Lucas Radebe, Harry KeweU,
David Batty, Eirik Bakke, Jason
Kewell, Jonathan Woodgate og Dom-
inic Matteo.
Andres Guglielminpietro gæti hafa
tryggt sér sæti í liði MOan eftir góða
frammistöðu i ítalska bikamum um
helgina og Leonardo er aftur kominn
á stjá eftir meiösl. Hins vegar era
Christian Abbiati markvörður,
miðjumennimir Gennaro Gattuso og
Massimo Ambrosini og sóknarmenn-
imir Gianni Comandini og Jose Mari
-lyyOvermars og
félagar í Barcelona
vilja eflaust fylgja
eftir sigri sfnum á
Leeds. Reuters
Orri Vigfússon, í miðiö, viö Laxá í Aðaldal meö erlendum veiöimönnum
en fyrir aftan er Vitaðsgjafinn, sá fallegi veiöistaöur.
DV-mynd G. Bender
Laxárfélagið 60 ára:
Afmæli í Ýdölum
- ráðstefna um ástand laxastofna
Núna, þegar laxveiðitíminn er
á enda og veiði að ljúka í ánrnn
einni af annarri, er ekki úr vegi
aö ræða málin og stöðuna í lax-
veiðinni. Það verður gert á Ak-
ureyri á fóstudaginn á Fosshótel
KEA. Veiðimönnunum fjölgar
en löxunum fækkar og það er
nokkuö sem veiðimenn sam-
þykkja ekki þegjandi og hljóða-
laust.
„Við erum ekkert að leggjast í
vetrardvala þótt laxveiðitíminn
sé búinn en lokatölurnar úr
Laxá voru 942 laxar. Næsta
föstudag verður ráðstefna um
villta laxinn á Akureyri og siðan
afmælið hjá okkur í Aðaldalnum
á laugardaginn, í Ýdölum,"
sagði Orri Vigfússon, formaður
Laxárfélagsins, en næstu daga
verður ýmislegt í gangi hjá félag-
inu þótt veiðitíminn sé úti í
Laxá í Aðaldal þetta sumarið.
„Við verðum með ráðstefnu á
Fosshótel KEA á föstudaginn og
hún byrjar klukkan þrjú. Ráð-
stefnustjórar verða veiðimenn-
imir Jón G. Baldvinsson og Þór-
arinn B. Jónsson og Guðni
Ágústsson mun flytja ávarp. Það
verður farið yfir stöðu mála í
laxveiðinni og við eigum von á
fiölda veiðimanna og veiðiréttar-
eigenda til að ræða málin. Þessi
mál brenna á mönnum þessa
dagana enda hefði laxveiðin
mátt vera betri í sumar.“
60 ára afmæli félagsins
daginn eftir
„Laxárfélagið hefur haft stór-
an hluta af Laxá í Aðaldal á
leigu frá árinu 1940 og veislan
mun verða á laugardaginn í
Ýdölum. Afmælið byrjar klukk-
an fimm með móttöku, síðan
verður hátíðarkvöldverður og
svo stórfagnaöur. Ég á von á
miklu fiölmenni, veiðimönnum
og bændum sem við erum i sam-
vinnu við varðandi Laxá í Aðal-
dal,“ sagði Orri að lokum.
-G. Bender