Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2000, Qupperneq 4
18
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000
31
Keppnin í strandblaki kvenna hefur vakið nokkra athygli í Sydney
og þá kannski ekki síst sterka kynsins. Hér gefur einn keppand-
inn félaga sínum fyrirmæli um leikkerfi í skjóii afturendans
Rúmenskir lyftingamenn riöu ekki feitum hesti frá leikunum í
Sydney. Hér sjást tveir þeirra er reknir voru heim vegna iyfjaáts
fyrir leikana og eru þeir ekki borubrattir, enda þjóö sinni og íþrótt
til skammar.
Áhorfendur í Sydney hafa skemmt sér vel og mikil stemning
hefur veriö hjá þeim. Þessir ungu áhorfendur skemmtu sér hiö
besta og studdu Breta í keppni eins og andlitin bera meö sér.
DV, Sydney:
Þaö er Ijóst að árangur áströlsku
sundmannanna hefur ýtt við miðasölu á
sundið þrátt fyrir að það hafi nú þegar
verið vel sótt. Það er nú æ erfiðara fyrir
fólk að fá miða og þeim fjölgar dag frá
degi sem reyna að ná sér í miða fyrir
utan sundhöllina. Margir þeirra eru þó
svartamarkaðsbraskarar sem hyggjast
reyna aö græða á miðaleysinu.
Utn 10 þúsund fréttamönnum hefur
verið komið fyrir í svokölluðu blaða-
mannaþorpi eða Media Village, eins og
það er kallað í Ástralíu. Þetta þykir nú
ekki merkileg gisting og samanstendur
aí hundruðum smákofa sem innihalda
allt að sex herbergjum hver. Hér á árum
áður var þetta geðsjúkrahús en var lagt
af árið 1996 og hefur staðið autt siðan.
Svæðið gengur daglega undir nafninu
Death center hjá innfæddum, eða mið-
bær dauðans, því við hliðina á þessu
ágæta þorpi er risavaxinn kirkjugarður.
Meira af blaóamannaþorpinu því
einhver vandræði hafa verið fyrir blaða-
menn að fá rafmagnsofna inn á herbergi
sín en æði kalt getur verið að næturlagi,
þrátt fyrir mikinn hita á daginn. Þá eru
þessi hús algerlega óeinangruð. Um helg-
ina kom þó gámur af rafmagnsofnum,
sem hlýja eiga blaðamönnum að nætur-
lagi.
33 ára Ástrali var í gær handtekinn
og kærður fyrir að stela og ljósrita að-
gönguskírteinum þekktra ástralskra
íþróttamanna. Maðurinn stal uppruna-
legu útgáfunni, ljósritaði hana og skildi
ljósritið eftir hjá iþróttamönnunum.
Þetta uppgötvaðist þegar íþróttamennir
framvísuðu fölsuðum skilríkjum en sjálf-
ur hélt þjófurinn eftir upprunalega ein-
takinu, líklega sem minjagrip, að því er
talið er.
Rúmenska lyftingaliöið var á dögun-
um dæmt úr keppni eftir að tveir rúm-
enskir lyftingamenn féllu á lyfjaprófí
fyrir keppnina. Alþjóða lyftingasam-
bandið hefur nú ákveðið eftir að rúm-
enska sambandið greiddi 90 þúsund ástr-
alska dollara í sekt að leyfa þeim sem
ekki féllu á lyfjaprófinu að taka þátt 1
leikunum. Alls hafa sex keppendur fallið
á lyfjaprófi en allir fyrir leikana. Enginn
hefur verið tekinn fyrir ólöglega lyfja-
notkun á leikunum sjálfum.
Samgöngumál eru ávallt ofarlega á
baugi á Ólympíuleikunum enda talið að
um ein milljón manna sæki Sydney
heim á meðan á leikunum stendur og er
það brýnt að samgöngumálin séu í lagi.
Það er þó óhætt að segja að þessi mál
reyni verulega á þolrifln í mönnum og
þarf fólk oft á tíðum að bíða í 1-2 klukku-
stundir til að komast ferða sinna.
-PS
Góöur liðsandi einkenndi kínverska karialiðiö sem í gær tryggöi sér gullverölaun í liðakeppni karla í fimleikum í Sydney. Kínverjar, sem eru núverandi heimsmeistarar,
hafa aldrei áöur staöið á efsta þrepi verölaunpallsins á Ólympíuleikum þrátt fyrir aö hafa lengi verið í allra fremstu röö. Símamynd Reuters
unnu liðakeppni karla í fimleikum í fyrsta skipti í Sydney
Fjörutíu ára bið Kínverja
eftir gullverðlaunum í liða-
keppni karla í fimleikum lauk
er þeir tryggðu sér gullverð-
launin með öruggum hætti.
Allt frá byrjun höfðu Kín-
verjar nokkra yfirburði og
ekki fór á milli mála að þeir
höíðu á að skipa langbesta lið-
inu í keppninni.
„Það var hreint ótrúlegt að
okkur skyldi loksins takast að
innbyrða gullverðlaunin eftir
40 ára bið. Þrátt fyrir að við
höfum oftast verið í allra
fremstu röð hefur okkur ekki
tekist að vinna gullið fyrr en
nú. Þetta er draumur sem
loksins rættist og við erum í
sjöunda himni yflr þessum
árangri," sagði Huang Yubin,
þjálfari Kínverjanna, eftir
keppnina.
Þrátt fyrir að Kinverjar séu
núverandi heimsmeistarar í
liðakeppni karla kom sigur
þeirra nokkuð á óvart og
kannski enn meira að lið
Úkraínu skyldi hafna í öðru
sæti.
Liði Rússlands, sem hafði
Ólympíugullið frá Atlanta að
verja, tókst ekki mjög vel upp
i keppninni og hafnaði í
þriðja sæti.
Það lið sem kom einna
mest á óvart í var lið Banda-
ríkjanna og þá helst fyrir þær
sakir að geta lítið sem ekkert.
Bandarísku flmleikamennim-
ir gerðu aragrúa mistaka og
áttu aldrei möguleika á að ná
langt í keppninni.
Peter Kormann hættir
og segist útbrunninn
Peter Korman, þjálfari
bandaríska liðsins, var ekki
ánægður með sína menn eftir
keppnina:
„Ég hélt í raun og veru að
við ættum möguleika á að
vinna til verðlauna. En þegar
gerð eru mistök i mörgum
greinum í jafnri keppni eins
og á Ólympíuleikum er ekki
hægt að búast við góðri niður-
stöðu. Fyrir keppnina áttum
við hins vegar góða mögu-
leika á verðlaunum," sagði
Kormann og bætti við að
hann væri nú hættur sem
þjálfari bandaríska liðsins.
„Ég er búinn að vera í þessu í
25 ár og er eiginlega orðinn
útbrunninn."
Ef marka má frammistöðu
Bandaríkjamanna eru það orð
að sönnu.
Faðmlög og kossar
Kínverja vöktu athygli
Lið Kínverja vakti mikla
athygli í gær fyrir góðan
liðsanda. Allt liðið stefndi að
sama marki, fyrsta Ólympiu-
gullinu í 40 ár. Liðsmenn
hvöttu hver annan óspart og í
lokin, þegar sigurinn var í
höfn, föðmuðust þeir og
kysstust. Þannig framkoma
kom á óvart í gær þegar um
var að ræða íþróttamenn frá
landi þar sem kossaflens á al-
mannafæri var bannað þar til
nú fyrir skemmstu.
Léttleikandi og einbeittir
Kínverjar náðu fljótlega góð-
um tökum á fjölmörgum
áhorfendum og strax eftir
fyrstu grein áttu þeir allan
þeirra stuðning.
-SK
He Ying frá Kína tók í gær þátt i bogfimi kvenna í Sydney. Hér
tekur hún miöiö í bogfimikeppninni.
Símamyndir Reuter
Mönnum var mjög brugöið í sundkeppni Ólympíuleikanna í gærkvöld
þegar keppandi frá Gíneu, sem tók þátt í 100 metra skriösundi, virtist
ekki ætla að geta lokiö sundinu. Kraftarnir voru á þrotum í lok
sundsins en kappinn komst aö bakkanum aö lokum. DV-mynd PS
Rett naði landi
en vann riðiinn
I fyrsta riðli 100 metra skriösundskeppninnar í gærkvöld ræsti
aðeins einn keppandi en aðrir tveir, sem í riðlinum áttu að vera,
þjófstörtuðu og voru því dæmdir úr leik. Þetta var Moussabeni frá
Gíneu. Það var ekki laust við að 17 þúsund áhorfendur í sundhöllinni
í Sydney væru orðnir efins um að hann næði bakka eftir 100 metra
því að hann fór afar hægt síðustu 20 metrana svo þreyttur var hann
orðinn. Um leið og Moussabeni hafði náð landi, tæpum tveimur
mínútum eftir að hann lagði af stað einn síns liðs, vann hann hug og
hjörtu áhorfenda sem fögnuðu honum gríðarlega.
Moussabeni var sléttri mínútu á eftir Ríkarði Ríkarðssyni.
Moussabeni þessi var fánaberi Gíneu á opnunarhátíðinni og ekki
hefur frægðarsól hans lækkað. -PS
Chelsea, dóttir Bills Clintons Bandaríkjaforseta, var á meöal
áhorfenda á sundkeppni Ólympíuleikanna í gærkvöld. Ljósmyndari
DV kom auga á hana í áhorfendastúkunni. DV-mynd PS
Fyrir leikana stóð mikill styr um
byggingu strandblakvallar á einni helstu
strönd Sydneyborgar og höfðu þeir sem
á móti byggingunni voru hótað miklum
mótmælum þegar leikarnir hæfust.
Höfðu þeir beint því til íbúa í kringum
völlinn að fá sér stóra spegla og lýsa inn
á völlinn til að reyna að blinda bæði
áhorfendur og leikmenn en þetta hefur
ekki gengið eftir. Þá hafa mótmælin við
völlinn látið á sér standa.
Á meöan á leikunum stendur hafa
götur miðborgar Sydney oft á tíðum
hreinlega tæmst og eru þar tvær skýr-
ingar sem báðar má þó rekja til Ólymp-
íuleikanna, ást og hatur á leikunum. Það
eru ekki allir þriggja milljóna íbúa Sydn-
ey á eitt sáttir um að Ólympíuleikamir
skyldu vera haldnir í borginni og hafa
þeir margir hreinlega flúið borgina og
haldið í frí annars staðar. Þeir eru þó
fleiri sem aðhyllast leikana og halda þeir
sig annaðhvort inni við, fyrir framan
sjónvarpið, eða hreinlega sækja leikana
sjálfa.
Von er á Juan Antonio Samaranch,
forseta Alþjóða Ólympíunefndarinnar,
aftur til Sydney í dag, þriðjudag, en
hann varð frá að hverfa á dögunum þar
sem kona hans lá fyrir dauðanum. Hann
flaug skyndilega til Barcelona en kona
hans lést áður en hann náði til hennar.
Juan Antonio lætur þetta þó ekki á sig fá
og kemur á ný til síðustu Ólympíuleika
valdatiðar sinnar en að þeim loknum
mun hann draga sig í hlé.
Mikil umrœöa er í fjölmiðlum víða
um heim um spillinguna innan Alþjóða
Ólympíunefndarinnar sem engan endi
virðist ætla að taka. Spilling og mútur,
ásamt ýmsum öðrum sóðaskap, hafa ein-
kennt Ölympíuhreyfinguna frá því Sam-
aranch varð forseti nefndarinnar og svo
virðist sem margir verði því fegnir er
hann hverfur á braut.
Ástralir erú himinlifandi með setn-
ingarhátíð leikanna, ef marka má skoð-
anakönnun sem gerð var í landinu. 58%
aðspurðra sögðu setningarathöfnina
hafa verið stórkostlega og 29% sögðu að
hún hefði verið mjög góð. Alls töldu 76%
þeirra, sem tóku þátt í könnuninni, að
setningarhátiðin hefði örugglega verið
Ástralíu til sóma og framkvæmd hátíðar-
innar hefði án efa bætt ímynd Ástrala út
á við.
Sautján áta tvíburar, Morgan og
Paul Hamm, brutu blað í sögu fimleika i
Bandaríkjunum í gær er þeir tóku þátt í
liðakeppni karla með liði Bandaríkj-
anna. Aldrei áður hafa tvíburar náð að
komast i lið Bandaríkjanna en bræður
kepptu síðast í bandaríska liðinu á leik-
unum í Melbourne árið 1956.
Rússneski sundmaðurinn Alexander
Popov, einn frægasti sundmaður heims,
er kominn í úrslit þeirra bestu í 200
metra skriðsundi í Sydney. Hann byrjaði
sundið í riðlakeppninni afleitlega í nótt
en meö góðum endaspretti tókst honum
að tryggja sig með öruggum hætti inn í
16 manna úrslitin og stóð í lokin uppi
með 4. besta tímann.
Popov á nú möguleika á að ná ein-
stæðum árangri í sundkeppni Ólympíu-
leika. Hann getur orðið fyrsti karlmað-
urinn til að vinna sömu greinina þrenna
Ólympíuleika í röö. Reyndar heur Popov
möguleika á að ná þessum einstæða ár-
angri í tveimur greinum, 200 og 50 metra
skriðsundi. Líklegt er þó að róöurinn
verði þungur hjá Popov því Hollending-
urinn Pieter van den Hoogenband er
greinilega í gríðarlegu formi þessa dag-
ana og sigurstranglegastur í 200 metra
skriðsundinu.
-PS/-SK
Mark Everett frá Bandaríkjunum er ásamt öðrum frjálsíþrótta-
mönnum að undirbúa sig fyrir átökin á leikunum í Sydney í næstu
viku. Everett vakti mikla athygli í gær þegar hann mætti á æfingu
með þessi sérkennilegu sólgleraugu.
Símamynd Reuter
Giuseppe Maddaloni frá Ítalíu vann góðan sigur í -73 kg flokki í
júdókeppni karla í gær. Hér fagnar hann Ólympíugullinu en
Maddaloni sigraði Tiago Camilio frá Brasilíu í úrslitum.
Símamynd Reuter
-
Baráttan um að fá að halda Ólympíuleikana árið 2008 er hafin og
á meöal borga sem berjast um leikana er Toronto t Kanada.
Körfuboltakappinn Vince Carter, sem leikur meö Toronto í NBA-
deildinni, tók þátt í baráttunni í gær. Símamynd Reuter
Sport
Sport