Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2000, Síða 6
32
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000
* Sport
i>v
i
Lára Hrund Bjargardóttir sigraöi í sínum riöli í 200 metra skriösundinu og
var ekki langt frá íslandsmeti. Hún varð í 27. sæti af 40 keppendum.
200 metra skriðsund kvenna:
Lára undir
sínu besta
Sundkeppnin á Ólympíuleikunum í nótt:
Jakob setti
íslandsmet
- hafnaði í 25. sæti af 47 í 200 bringusundi
DV, Sydney:
„Þetta var alveg frábært. Þetta
hefur verið svona stigvaxandi hjá
mér undanfarið en ég held að ég geti
gert betur og held að ég eigi mikið
inni og á að geta bætt miklu meira.
Þetta er árangurinn af mikill vinnu.
Ég hef æft eins og brjálæðingur
síðan í febrúar, eftir að ég náði
Ólympíulágmarkinu, svona að
meðaltali 9-10 sinnum i viku, og þar
er greinilega að skila sér núna,“
sagði Jakob Jóhann Sveinsson í
samtali við DV eftir sundið í nótt.
Jakob Jóhann setti íslandsmet í 200
metra bringusundi, synti á 2:17,86
mínútum, en gamla metið hans var
2:18,44 og sett í Danmörku í janúar
sl.
Meiri háttar upplifun en nú
tekur bara viö frí og
skemmtun
„Þolið er mjög gott og ég einbeiti
mér mikið að bringusundinu en ég
fann dálítið fyrir þreytu í
höndunum. Það má segja að mér
líði eins og sundið nú hafl bara
verið eins og síðasta æfing. Ég
hugsaði fyrir sundið og í því að
reyna að skemmta mér eins mikið
og ég gæti. Maður á að njóta þess að
vera á Ólympíuleikum, það voru
17.500 manns sem horfðu á og þetta
á að vera eins mikil skemmtun og
hægt er. Stemningin í kringum
sundið hér er alveg frábær og meiri
háttar upplifun. Núna tekur bara
við frí og skemmtun. Þetta er
stærsta partí i heimi og maður
reynir bara að njóta þess og
skemmta sér með. Þá er ekki
ólíklegt að maður eyði röddinni á
íslensku keppenduma sem eiga eftir
að keppa,“ sagði Jakob Jóhann.
-PS/JKS
- varð í 27. sæti
Lára Hrund Bjargardóttir synti
undir íslandsmeti sínu í 200 metra
skriðsundi á Ólympíuleikunum í
Sydney í fyrrinótt. Lára Hrund sigr-
aði í sínum riðli, synti á 2:05.22 mín-
útum, sem 26/100 undir íslandsmeti
hennar.
Lára Hrund synti mjög vel fram-
an af sundinu og stefndi allt í að
hún myndi ná að bæta íslandsmet-
ið. Á lokaspretti sundsins gaf hún
svolítið eftir og tókst ekki ætlunar-
verk sitt.
Ástralska stúlkan Susie O’NeUl
náði besta tímunum í riðlakeppn-
inni og synti á 1:59,14 minútum.
-JKS
Brian Marshall landsliösþjálfari, Friörik Siguröarson, formaöur
Sundsambandsins, og Ríkharö Ríkarösson tala viö Jakob Jóhann
Sveinsson eftir sund hans í Sydney í nótt.
Ríkarður Ríkarðsson eftir sundið í nótt:
Byrjaði of hratt
- lenti í 58. sæti af 73 keppendum
Ríkarö Rikarösson eftir sundiö í nótt. Hann sagöist vera nokkuö ánægöur með sundið og sér hefði liöiö vel í
sundlauginni.
Rikarð Ríkarðsson varð í fjórða sæti í sínum riðli
í 100 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í Sydn-
ey i nótt. Ríkarð synti á 52,85 sekúndum og var
53/100 úr sekúndu frá sínum besta tíma.
„Ég er svona nokkuð sáttur við þetta sund. Mér
leið vel í lauginni og í sundinu sjálfu og tókst að
byrja mjög vel en hefði viljað klára betur. Ég byrj-
aði sundið of hratt og stífnaði því upp eftir svona 75
metra, þegar ég átti 15 metra eftir, og það var, úr því
sem komið var, erfitt að klára sundið. Ég reyndi að
berjast eins og ég gat en þetta varð gríðarlega erfitt
í lok sundsins, ég fékk mikla mjólkursýru og stífn-
aði allur upp,“ sagði Ríkarð eftir sundið.
„Sundið var samt nokkuð fint svona þegar á heild-
ina er litið og það er mjög gott fyrir sjálfstraustið
fyrir 100 metra flugsundið á fimmtudag. Að sjálf-
sögðu hefði ég viljað synda hraðar, sérstaklega
seinni 50 metrana. Ég ætlaði mér i upphafi að synda
hratt og mig langaði að synda á virkilega góðum
tíma, en ég hef líklega ætlað mér um of sem ég fékk
svo í bakið í lokin. Það hefði að sjálfsögðu verið
skemmtilegast að klára betur og þá hefði maður get-
ur verið virkilega ánægður með þetta sund. Ég veit
hins vegar eftir þetta sund að mér líður vel í þessari
laug, ég hef hraðann og ég hef formið sem þarf, sem
er mjög gott fyrir sjálfstraustið, og ég er svo sannar-
lega reynslunni ríkari eftir þetta.“
-PS
íslensku keppendurnir f sundinu á Ólymptuleikunum sem áttu frí gær fylgdust af áhuga meö Jakobi Jóhanni Sveinssyni og Ríkaröi
Ríkarðssyni í nótt. DV-myndir Pjetur
V