Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2000, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000
33
DV
Rúmensk
stúlka kom
á óvart
Rúmenar unnu fyrstu verðlaun
sin í sundkeppni Ólympíuleikanna
þegar Diana Mocanu, 16 ára gömul
stúlka, sigraði í 100 metra baksundi.
Sundið var æsispennandi en jap-
anska stúlkan Mai Nakamura byrj-
aði vel í sundinu og var með foryst-
una framan af. Mocanu átti hins
vegar meira þol eftir og sigraði og
setti nýtt Ólympíumet, synti á
1:00,21 mínútu. Nakamura varð önn-
ur á 1:00,55 mínútum og spænska
stúlkan Nina Zhivanevskaya, fædd i
Rússlandi, varð í þriðja sæti á
1:00,98 mínútum.
Mocanu, sem æflr í eingöngu
heima í Rúmeníu, á bjarta framtíð
og ef af líkum lætur á hún eftir að
láta vel að sér í framtíðinni.
Mikla athygli vakti að engin þýsk
stúlka komst í úrslit en það hefur
ekki gerst í mörg ár. Sandra Völker,
sem hefur verið mjög áberandi í
þessari grein á sl. árum, sat eftir
með sárt ennið.
-JKS
Rúmenska stúlkan Diana Mocanu
brosir breitt á pallinum.
-Reuters
Yfirburöir hjá
Krayzelburg
Sterkasti baksundsmaður í heim-
inum í dag, Bandaríkjamaðurinn
Lenny Krayzelburg, vann gullverð-
laun í 100 metra baksundi og setti
Ólympíumet en markmið hans að
setja heimsmet gengu ekki eftir.
Hann byrjaði sundið of hægt en
hann ætlar að bæta fyrir það og
reyna við heimsmetið í boðsundinu
Imeð bandarísku sveitinni síðar í
vikunni.
Krayzelburg synti á 53,72 sekúnd-
um en heimsmet hans er 53,60. Ann-
ar í sundinu varð Ástralinn Matt
Welsh á 54,07 sekúndum og í þriðja
sæti lenti Þjóðverjinn Stev Theloke
á 54,82 sekúndum.
-JKS
Lenny Krayzelburg.
Sport
Bandaríska stúlkan Megan
Quann er stolt og ánægö
meö gullverölaunin um háls-
inn en hún hlaut þau fyrir
glæstan sigur í 100 metra
bringusundi. Hún er ein af
efnílegustu sundkonunum
sem eru aö koma fram í
Frábært sund hjá Megan Quann í 100 metra bringusundi:
- fyrrum Ölympíumeistarinn Penny Heyns varð þriðja
Hin 16 ára gamla bandaríska
sundstúlka Megan Quann kom, sá
og sigraði í 100 metra bringusundi
á Ólympíuleikunum. Hún synti
frábærlega og var hrein unun að
sjá hvemig tækni hún beitti í
sundinu. Quann synti á 1:07,05
mínútum og sigraði nokkuð örugg-
lega í greininni. Heimastúlkan
Leisel Jones varð í öðru sæti á
1.07,49 mínútum og fyrrum Ólymp-
íumeistarinn, Penny Heyns, sem
flestir bjuggust við að myndi sigra
í sundinu, varð að láta sér nægja
bronsverðlaun á tímanum 1:07,55
mínútum.
Sálrænn sigur
Sigurinn hjá Quann var mjög
sálrænn en hún setti sér það tak-
mark fyrir einu og hálfi ári, þá
aðeins 14 ára gömul, að sigra
Penny Heyns. Hún setti mynd af
Heyns á vegginn fyrir ofan höfða-
gaflinn í herbergi sínu og hafði
hana þannig fyrir augum sér alla
daga fram að Ólympíuleikunum.
Quann sagði alltaf þegar hún
var spurð út í uppátækið að þetta
gerði hún vegna þess að Heyns
væri ekki sá mótherji sem hún ótt-
aðist þegar á hólminn væri komið.
Áform mín gengu eftir
„Áform mín gengu eftir og mér
líður frábærlega vel. Þetta er
stærsta stundin í lífi mínu,“ sagði
Quann eftir sundið.
Hún sagði að næsta takmark sitt
væri að slá heimsmetið í greininni
sem Heyns á frá því á Ólympíu-
leikunum í Atlanta fyrir fjórum
árum. Það voru Heyns mikil von-
brigði að fylgja ekki eftir ár-
angrinum á leikunum fyrir fjórum
árum þar sem hún sigraði bæði í
100 og 200 metra bringusundi.
-JKS
„Trúi þessu varla“
- Hollendingurinn fljúgandi hafði betur í einvíginu við Ian Thorpe
„Það er varla að maður trúi
þessu enn þá en ég ber mikla virð-
ingu fyrir Ian Thorpe. Ég held
svona eftir á að ég hefði getað synt
hraðar en ég er himinlifandi með
bronsverðlaunin sem maður hefur
látið sig dreyma um,“ sagði Hol-
lendingurinn Pieter van den
Hoogenband eftir sigurinn í 200
metra skriðsundi.
Hann háði spennandi einvígi við
einn sterkasta sundmann heims í
dag, Ástralann Ian Thorpe, og hafði'
betur á lokasprettinum.
Hoogenband synti á 1:45,35 min-
útum eða á nákvæmlega sama tíma
og hann synti í undanrásum og
setti þá eftirminnilegt heimsmet.
Ian Thorpe sagði eftir sundið aö
hann hefði gert sig sekan um
tæknileg mistök.
„Ég reyndi við heimsmetið í und-
anúrslitunum og í það fór mikil
orka,“ sagði Thorpe.
Hoogenband kemur úr mikilli
sundfjölskyldu en móðir hans
keppti á Ólympíuleikunum í
Múnchen 1972 en faðir hans er
læknir knattspyrnuliðs PSV og
hann fylgdist með syni sínum frá
áhorfendapöllunum í sundhöllinni
í Sydney.
Æfir þrek í Oregon en hraö-
ann heima fyrir
Hoogenband æfir að mestu leyti
heima í Hollandi en þrekæfingar
stundar hann í Oregon í Bandaríkj-
unum. Til Hoilands heldur hann
síðan þar sem hann leggur stund á
hraðaæfingar.
Þess má geta að Hoogenband og
Inge de Bruijn, sem hefur ekki síð-
ur verið í sviðsljósinu á leikunum,
æfa bæði með sunddeild hins fræga
félags, PSV Eindhoven, en lang-
flestir hollensku keppendumir á
leikunum koma frá því félagi.
-JKS