Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2000, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2000, Side 6
22 MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 2000 Sport x>v ÍT Pólski hnefaleikakappinn Andrew Golota hneykslaði marg- an hnefaleikaáhugamanninn að- faranótt laugardagsins þegar hann hætti eftir tvær lotur í bar- daga sínum gegn Mike Tyson i Auburn Hills-höllinni i Detroit í Bandarikjunum. Golota átti erfitt uppdráttar í bardaganum frá upphafi en samt hafði Mike Tyson aðeins náð einu almennilegu höggi á Pólverjann í þessar tvær lotur. Það kom þegar fimm sekúndur voru eftir af fyrstu lotu. Tyson náði þá stutt- um hægri krók og féll Golota í gólfið en stóð strax upp aftur. í annarri lotu var jafnræði með þeim og virtist allt stefna í langan og spennandi bardaga. Eftir þá lotu neitaði Golota hins vegar að stíga aftur inn í hringinn og þrátt fyrir heiðarlegar tilraunir þjálf- ara hans, AI Certo, var engu tauti við hann komið. Bardaganum var lokið með sigri Tysons sem þurfti, eins og í undanfórnum bardögum, að hafa lítið fyrir sigrinum. Áhorfendur í Detroit tóku þessu uppátæki Pólverjans illa og grýttu hann á leið til búningsher- bergja. Ferillinn á enda hjá Golota Flestum hnefaleikasérfræðing- um ber saman um það að ferill Golota sem atvinnuhnefaleika- manns sé á enda. Ferillinn hefur einkennst af furðulegum uppá- komum og hefur hann meðal ann- ars verið dæmdur úr leik í tvígang fyrir að kýla andstæðinga sína ítrekað fyrir neðan beltis- stað. Hann hætti eftir 10. lotu í bardaga sínum gegn Michael Grant í nóvember á síðasta ári þar sem hann hélt að hann væri að tapa svo að þetta uppátæki Golota er ekki nýtt af nálinni. Golota kvartaði sáran undan því gegn Mike Tyson að Tyson hefði skallað hann og að dómarinn heíði ekkert gert í þvi. Tyson enn óþekkt stærð Þessi bardagi segir lítið um getu Mike Tyson. Hann er enn spurningarmerki eftir marga létta bardaga og hann var ekki sannfærandi gegn Golota. Það jákvæða við þennan bardaga fyrir Tyson er að hann hegðaði sér loksins eins og maður og hélt sig innan almennra velsæmismarka. Tyson sagði fyrir bardagann gegn Golota að þetta yrði hans síðasti bardagi en eftir heldur stutt gaman og óvæntan endi hlýtur Tyson að vilja fá einn alvöru bardaga áður en hann leggur hanskana á hilluna. Allir hnefaleikaáhugamenn vilja sjá hann beijast við þann besta, breska hnefaleikakappann Lennox Lewis. -ósk Hér aö ofan sést þjálfari Andrew Golota, Al Certo, reyna að koma vitinu fyrir Golota og fá hann til aö halda áfram en hann haföi ekki erindi sem erfiði. Á myndinni til hægri fær Golota þungt högg frá Tyson. Reuters 0-1, 2-3, 5-7, 7-7, 10-9,13-12,15-13, (16-15), 16-16, 20-18, 23-22, 26-25, 26-29, 27-30. HK . Mörk/viti (skot/víti): Óskar Elvar Ósk- arsson, 7/1 (13/1), Samúel Ámason, 5 (7), Alexander Arnarson 4 (5), Jaíiesky Garcia, 4/2 (10/2), Guðjón Hauksson, 3 (4), Sverrir Bjömsson, 3 (11), Ólafur Víð- ir Ólafsson, 1 (1), Karl Grönvold, (1). Mörk úr hraóaupphlaupurtv 3 (Guð- jón, Alexander, Samúel). Vitanýting: Skorað úr 3 af 3. Varin skot/viti (skot á sig): Hlynur Jó- hannesson, 11 (40/3,28%), Kristinn Guð- mundsson (1/1, 0%). Brottvísanir: 6 mínútur (Jaliesky Garcia fékk rautt spjald fyrir brot). Grótta/KR: Mörk/víti (skot/víti): Alexander Peter- sons, 10 (13), Hilmar Þórlindsson, 10/4 (18/5), Davið Ólafsson, 4 (7), Magnús Agnar Magnússon, 2 (2), Gísli Kristjáns- son, 2 (4), Kristján Þorsteinsson, 1 (2), Atli Þór Samúelsson, 1 (3), Alfreð Finns- son, (1). Mörk úr hraðaupphlaupum: 4 (Peter- sons 2, Davíð, Gísli). Vitanýting: Skorað úr 4 af 5. Varin skot/viti (skot á sig): Hreiðar Guðmundsson, 5 (18/1, 28%), Hlynur Morthens, 4 (18/2, 22%). Brottvisanir: 8 mínútur (Ólafur Láms- son fékk rautt spjald fyrir mótmæli). Dómarar (1-10): Ingvar Guðjónsson og Jónas Eliasson (4). Gœöi leiks (1-10): 5. Áhorfendur: 250. Maður leiksins: Óskar Elvar Óskarsson, HK. HK-Grótta/KR 27-30 Furðulegur hnefaleikabardagi þegar Mike Tyson mætti Pólverjanum Andrew Golota: Golota gafst u pp - eftir tvær lotur gegn Mike Tyson í Detroit aðfaranótt laugardagsins Þriðji sigur nýliðanna í fjörugum leik: Grótta/KR hafði það - á lokasprettinum gegn HK á föstudag Grótta/KR vann sinn þriðja sigur á íslandsmótinu gegn HK í fjörugum og spennandi leik. HK er því enn án stiga. Leikurinn var mjög hraður í fyrri hálfleik, sóknirnar stuttar, mikið skorað og markvarslan slök. Jafnt var á flestum tölum, Grótta/KR hafði frumkvæðið framan af en HK komst yfir um miðjan fyrri hálfleik en munur- inn á liðunum varð aldrei meira en tvö mörk. Eftir rúmar 23 mínútur var staðan 14-13 en eft- ir það gerðu leikmenn sig seka um mörg mistök og skoruðu liðin tvö mörk hvort fram að hálfleik. Skrautleg lokamínúta Lokamínúta fyrri hálfleiks var skrautleg og að sumu leyti dæmigerö fyrir hvemig leikur- inn gekk fyrir sig lengst af, HK- ingar voru einum leikmanni fleiri og áttu möguleika á að komast þremur mörkum yfir þegar hálf mínúta var eftir en náðu að misnota tvær sóknir á þessum tíma. Grótta/KR minnk- aði muninn í 16-15 þegar 15 sek- úndur voru eftir, HK-ingar misstu boltann í sókninni og þegar tvær sekúndur lifðu af hálfleiknum braut Kúbumaður- inn Garcia í liði HK illa á Davíð Ólafssyni og fékk að líta rauða spjaldið. Ekki var allt búið enn því Hilmar Þórlindsson náði ékki að framkvæma vítakastið á tilskyldum tíma að mati dómara og fékk Ólafur Lárusson að líta rauða spjaldið eftir kröftug mót- mæli gestanna. Grótta/KR náöi yfirhöndinni í lokin HK hélt áfram frumkvæðinu í seinni hálfleik en Grótta/KR var aldrei langt undan. Það var ekki fyrr en á lokamínútum leiksins sem Grótta/KR náöi yf- irhöndinni þökk sé bættum vamarleik sem sló HK-inga út af laginu. í stöðunni 26-25 skor- aði Grótta/KR fjögur mörk í röð og skyndilega var staðan orðin 26-29 þegar um mínúta var eftir af leiknum og úrslitin í raun ráðin. Þakka þremur mönnum Grótta/KR geta þakkað þrem- ur mönnum öðrum fremur fyrir þennan sigur, Hilmari Þórlinds- syni, sem skoraði 10 mörk og lagði upp fjölmörg önnur, Al- exnder Petersons, sem skoraði einnig 10 mörk og nýtti færin vel, og Gísla Kristjánssyni, sem kom inn á í seinni hálíleik og gerði gæfumuninn í varnar- leiknum. í liði HK var Óskar El- var Óskarsson langbestur og Samúel Árnason og Alexander Arnarson voru góðir 1 fyrri hálf- leik. -HRM Alexander Petersons skoraði tíu mörk í sigri Gróttu/KR á HK og hefur gert 18 mörk úr 23 skotum í síðustu tveimur leikjum liðsins í Nissandeildinni. DV-mynd E.ÓI.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.