Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2000, Qupperneq 7
MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 2000
23
I>V
Sport
Petr Baumruk brýst í gegn og skorar eitt
af 3 mörkum sínum fyrir Hauka gegn
Braga á laugardaginn. DV-mynd E.OI.
Haukar-Braga 28-30
0-1,1-3,4-4, 5-7, 8-7,10-9,10-12, (11-14),
11-15, 14-15, 15-17, 16-19, 18-20, 19-22,
21-23, 24-24, 25-28, 27-29, 28-30.
Haukar:
Mörk/viti (skot/viti): Oskar Ármanns-
son 7/1 (14/1), Einar Öm Jónsson 5 (6),
Aliaksandr Shamkuts 5 (7), Þorvarður
Tjörvi Ólafsson 3/6), Petr Bamruk 3
(11), Jón Karl Bjömsson 2 (2), Halldór
Ingólfsson 2/1 (7/2), Rúnar Sigtryggs-
son 1 (6), Vignir Svavarsson (1).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 6 (Einar
Öm 3, Shamkuts 1, Bamruk 1, Jón Karl
1).
Vitanýting: Skorað úr 2 af 3.
Varin skot/viti (skot á sig): Magnús
Sigmundsson 13/1 (33/4, 39%), Bjami
Frostason 3(13/3, 23%).
Brottvísanir: 8 mínútur.
Braga:
Mörk/viti: Victor Tchikoulaev 10/3,
Yuriy Kosetsky 6/3, Filipe Cruz 6, Rui
Almeida 3, Carlos Galambas 2, Iouri
Nesterov 2, Alvaro Marins 1.
Mörk úr hraðaupphlaupum: 5, (Al-
meida 2, Tchikotúaev 1, Nesterov 1,
Martins 1).
Vítanýting: Skorað úr 6 af 7.
Varin skot/viti (skot á sig):
Paulo Morgado 17/1 (43/3, 40%), Anton-
io Campas 1 (3, 33%).
Brottvisanir: 8 mínútur.
Dómarar (1-10): Ullrich og Lemme
frá Þýskalandi (7).
Gϗi leiks (1-10): 6.
Áhorfendur: 1000.
Maöur leiksins: Victor
Tchikoulaev, Braga.
í ’ V
m 1 1 X
?*•* p 1 a rsá ■ 21
Óskar Ármannsson var markahæstur Hauka í leiknum meö sjö mörk og hér aö ofan skorar hann eitt þeirra. Meö
portúgalska liðinu fylgdu nokkrir haröir stuöningsmenn og sjást þeir hér til hægri. DV-myndir E.ÓI.
Leikur mistaka
- þegar Braga tryggði sér sæti í meistaradeildinni með sigri á Haukum
Ekki okkar
dagur
„Við vissum að við þyrftum að
spila góðan leik til að vinna
þetta lið en þetta var hreinlega
ekki okkar dagur. Þeir voru ekki
að spila vel en við nýttum okkur
það ekki. Það var frekar að þeir
nýttu sér hvað við vorum að
spila illa,“ sagði Halldór Ingólfs-
son, fyrirliði Hauka, eftir leik-
inn.
„Það er lykillinn að því að
vinna svona leik að skora úr
hraðaupphlaupum en það klikk-
aði í þessum leik. Við vorum
heldur ekki nógu beittir í sókn-
arleiknum og
kannski ekki
eins hungr-
aðir eins og
við hefðum
átt að vera.
Nú verðum
við bara að
leggja okkur
100% í næsta
verkefhi,
Halldór Ingólfsson, sem er lerk-
fyrirliöi Hauka. urinn við
Bodö.“ -HI
Haukar naga sig örugglega kirfi-
lega í handarbökin eftir að hafa ver-
ið misst af meistaradeildarsæti með
tveggja marka tapi, 28-30, á ÁsvöU-
um fyrir Braga frá Portúgal. Leikur-
inn einkenndist af mörgum mistök-
um beggja liða en mistök Haukanna
voru töluvert fleiri og því fór sem fór.
Byrjunin var nokkuð í jámum þó
að Bragamenn hefðu yfirleitt frum-
kvæðið. Bæði lið léku flata vörn sem
var nokkuð sterk og markverðirnir,
þeir Magnús Sigmundsson og Paulo
Morgado, náðu sér ágætlega á strik,
vörðu m.a. sitt hvort vítið í stöðunni
7-7. Haukamir náðu forystunni þeg-
ar tiu mínútur vom eftir en klaufa-
legur sóknarleikur varð til þess að
þeir misstu Portúgalana fram úr sér
og voru þremur mörkum undir í leik-
hléi. Það sem háði Haukaliðinu eink-
um í fyrri hálfleik var að ekkert
mark kom úr hraðaupphlaupi þrátt
fyrir að þeir fengju þónokkur tæki-
færi á þeim og þetta átti eftir að reyn-
ast afdrifarikt.
Misstu trúna
í síðari hálfleik var engu líkara en
að Haukarnir hefðu sjálfir misst
trúna á því að þeir kæmust í meist-
aradeildina. Portúgalarnir misstu
tvo menn út af í tvær mínútur með
stuttu millibili en héldu samt
forustunni því Haukavörnin var sof-
andi gegn fjórum útileikmönnum
Braga.
Smá vonarglæta fór þó að koma í
ljós þegar tíu minútur vora eftir þeg-
ar hraðaupphlaupin virtust loksins
vera að ganga upp og Haukarnir
náðu að jafna, 24-24. En lengra
komust Haukar ekki og Bragamenn
náðu forystunni aftur og héldu henni
fyrirhafnarlítið til leiksloka.
Erfiöleikar meö vörn Braga
Haukamir voru alls ekki eins og
þeir eiga að sér að vera í leiknum.
Þeir virtust i erfiðleikum með vöm
portúgalska liðsins, einkum þó Hall-
dór Ingólfsson, sem gerði aðeins eitt
mark utan af velli.
Magnús varði vel og af útileik-
mönnunum var það helst Óskar Ár-
mannsson sem barðist allan tímann
og Einar Örn Jónsson, sem nýtti færi
sín vel og átti góðan leik. Aðrir voru
hins vegar nokkuð frá sínu besta.
Hjá Bragamönnum var þaö óvin-
sælasti maður vallarins, Victor
Tchikoulaev, sem var bestur og þrátt
fyrir að baulað hafi verið á hann
vegna þess að hann sló Halldór í gólf-
ið í fyrri leiknum virtist það bara
efla hann. Youra Kostetsky og mark-
vörðurinn Morgado vora einnig góð-
ir, sem og örvhenta skyttan Filipe
Cruz, sem virtist geta skorað þegar
honum datt í hug. Bragaliðið var
annars alls ekki sannfærandi í leikn-
um, sóknarleikurinn var oft ráðleys-
islegur og sendingarnar rötuðu oft
beint til Haukanna.
En Haukarnir náðu ekki það nýta
sér það sem skildi auk þess sem þeir
vora sjálfir að gera sömu mistökin,
bara i meiri mæli. -HI
Vantaöi allan neista
„Það vantaði einhvern veginn allan neista í þetta hjá okkur. Við voram
eiginlega á hælunum frá upphafi og áttum í raun aldrei möguleika á að
klára þetta dæmi. Það vantaði allan hraða í hraðaupphlaupin hjá okkur og
mannskapurinn virkaði þreyttur og taugaspenntur. Við vorum hreinlega
að spila illa og Braga verðskuldaði að fara áfram," sagði Viggó Sigurðsson,
þjálfari Hauka, sem var að vonum ekki sáttur eftir leikinn.
„Ég held að þeir hafi í raun ekki verið að leika neitt sérstaklega vel. Þeir
gerðu fullt af mistökum og gáfu okkur mörg tækifæri til að komast inn í
leikinn. Við gerum bara fleiri mistök í staðinn. Næsta verkefni er svo
leikimir við Bodö, sem er nokkuö sterkt lið. Það er verðugt verkefni sem
við verðum að takast á við," bætti Viggó við. -HI