Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2000, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2000, Síða 11
MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 2000 2 T Sport Jimmy Floyd Hasselbaink fór á kostum á Stamford Bridge á laugardaginn og skoraöi fjögur mörk í 6-1 sigri Chelsea á Coventry. Reuters Enska knattspyrnan: - Jimmy Floyd Hasselbaink skoraði fjögur mörk Hollenski framherjinn Jimmy Floyd Hasselbaink fór mikinn um helgina þeg- ar Chelsea mætti Coventry á Stamford Bridge. Hann skoraði fjögur mörk í 6-1 sigri Chelsea og er þar með búinn að skora átta mörk í deildinni á þessu keppnis- tímabili. Leikmenn Coventry misstu markmann sinn, Chris Kirkland, út af á 24. minútu með rautt spjald og eftir það var leikurinn búinn. Gordon Strachan, knattspymustjóri Coventry, var daufur eftir leikinn og sagði að lið sitt hefði verið tekið í kennslustund. Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í leikmannahópi Chelsea í leiknum. Aldrei möguleiki Manchester United fékk vængbrotið lið Leeds í heimsókn í stórleik um- ferðarinnar og var sá leikur aldrei spennandi. Ensku meistararnir voru miklu betri allan tímann og ekki bætti úr skák að dómarinn, Jeff Winter, dró taum heimamanna meira en góðu hófi gegndi. Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, fann til með David O’Leary, stjóra Leeds. „Það gat enginn bú- ist við að þeir kæmu á Old Trafford með þetta unga lið og sigruðu," sagði Ferguson og bætti við að Leeds væri búið að vera með eindæm- um óheppið með meiðsli á þessu keppnistímabili. Arsenal á skriði Gott gengi Arsenal held- ur áfram. Þeir sigruðu botn- lið West Ham á Upton Park, 2-1, um helgina og sitja við hlið Manchester United á toppi deildarinnar. Arsenal bar ægishjálm yfir West Ham í leiknum og hefði get- að unnið mun stærri sigur. Arsenal sýndi í þessum leik að þeir verða helstu keppi- nautar Manchester United í baráttunni um meistaratit- ilinn. Heskey óstöövandi Emile Heskey, framherji Liverpool, virðist vera óstöðvandi þessa dagana og hann skoraði sigurmark Liverpool gegn Leicester. Tim Flowers, markvörður Leicester, var þó maður leiksins því hann varði oft frábærlega og bjargaði heill- um horfnu liði Leicester frá mun stærra tapi. Gerard Houllier, knattspymustjóri Liverpool, var mjög ánægð- ur með leik sinna manna. „Við spiluðum frábærlega í leiknum og hefðum getað unnið með þremur eða fjór- um mörkum. Einbeitningin var góð og við sýndum mikla þolinmæði og styrk þrátt fyrir aö mörg tækifæri færu forgörðum. Við gáfumst ekki upp og uppskárum að lokum laun erfiðsins," sagði Gerard Houllier. EN6LAND Síoke vann góðan sigur á Millwall, 3-2, um helgina í ensku 2. deildinni. Markahrókurinn Peter Thorne skoraði tvö mörk fyrir Stoke og Chris Iwelumo eitt. Bjarni Guðjónsson og Brynj- ar Bjöm Gunnarsson léku allan leikinn fyrir Stoke en Stefán Þórðarson var meiddur og lék ekki með. Þessi úrslit þýða að Stoke er enn í 10. sæti með 20 stig en liðið er nú aðeins þremur stigum á eftir Millwall í sjötta sæti deildarinnar. Enska 1. deildarliðið Fulham tapaði sínum fyrstu stigum á keppnistímabilinu þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Wolves á úti- velli. Áður hafði Fulham leikið ellefu sigur- leiki í röð undir stjóm Frakkans Jean Tigana. Peíer Taylor, knattspyrnustjóri Leicester, verður við stjórnvölinn hjá enska landsliðinu þegar liðiö mætir ítölum í æfmgaleik á Ítalíu 15. nóvember næstkomandi. Taylor, sem þjálfaði áður U-21 árs landslið Englands, mun aðeins stjórna liðinu í þessum eina leik. Honum til aðstoðar verður Steve McLaren, aðstoöarmaður Alex Ferguson hjá Manchester United. Varnarmaðurinn Ugo Ehiogu, sem keyptur var til Middlesbrough frá Aston Villa rétt fyrir helgi, byrjaði ekki vel i sínum fyrsta leik fyrir Middlesbrough. Ehiogu var í byrjunarliðinu en varð að fara út af eftir átta mínútur, meiddur. Bobby Robson, Newcastle, fær ekki leyfi hjá forráðamönn- um Newcastle til að taka við enska landsliðinu í hlutastarfi fram á næsta sumar. Robson sagðist sjálfur vera vonsvikinn yfir ákvörðun Newcastle en sagðist jafnframt skilja og virða þeirra sjónarmið. -ósk knattspyrnustjóri Bobby Robson DV ENGLANP Úrvalsdeild Man. Utd-Leeds...............3-0 1-0 Dwight Yorke (41.), 2-0 David Beckham (55.), 3-0 Matthew Jones, sjálfsmark (83.). Bradford-Ipswich.............0-2 0-1 Dan Petrescu, sjálfsm. (34.), 0-2 Jamie Clapham (89.). Charlton-Middlesbrough .... 1-0 1-0 Matthias Svensson (68.). Chelsea-Coventry.............6-1 1-0 Jimmy Floyd Hasselbaink, víti (25.), 2-0 Jimmy Floyd Hasselbaink (42.), 3-0 Gianfranco Zola (48.), 4-0 Jimmy Floyd Hasselbaink (52.), 5-0 Jimmy Floyd Hasselbaink (54.), 6-0 Tore Andre Flo (68.), 6-1 Cedric Roussell (89.). Livei-pool-Leicester.........1-0 1-0 Emile Heskey (68.). Newcastle-Everton............0-1 0-1 Kevin Campbell (80.). Tottenham-Derby .............3-1 1-0 0yvind Leonhardsen (4.), 1-1 Chris Riggott (39.), 2-1 Stephen Carr (45.), 3-1 0yvind Leonhardsen (48.), West Ham-Arsenal.............1-2 0-1 Robert Pires (12.), 0-2 Rio Ferdinand, sjálfsm. (21.), 1-2 Stuart Pearce (56.), Aston Villa-Sunderland.......0-0 Staðan í úrvalsdeild Man. Utd 10 6 3 1 26-8 21 Arsenal 10 6 3 1 17-10 21 Liverpool 10 5 3 2 17-13 18 Newcastle 10 5 1 4 11-9 16 Leicester 10 4 4 2 7-6 16 Ipswich 10 4 3 3 14-11 15 Charlton 10 4 3 3 16-16 15 Tottenham 10 4 2 4 15-14 14 Leeds 9 4 2 3 14-13 14 Chelsea 10 3 4 3 19-14 13 Aston Villa 9 3 4 2 11-8 13 Sunderland 10 3 4 3 8-11 13 Everton 10 3 3 4 13-16 12 Man. City 9 3 2 4 12-14 11 Coventry 10 3 2 5 11-21 11 Middlesbr. 10 2 4 4 15-16 10 Southampt. 9 2 4 3 12-13 10 West Ham 10 1 5 4 12-14 8 Bradford 10 1 3 6 4-16 6 Derby 10 1. 0 5 5 deild: 15-26 5 Blackbum-Grimsby.............2-0 Crewe-Wimbledon..............0-4 C. Palace-Portsmouth ........2-3 Gillingham-Barnsley..........0-0 Huddersfield-Preston.........0-0 Norwich-Sheff. Utd...........4-2 Nott. Forest-Watford.........0-2 QPR-Burnley..................0-1 Stockport-Bolton.............4-3 Tranmare-West Brom ..........2-2 Wolves-Fulham................0-0 Sheffield Wed.-Birmingham .... 1-0 Staða efstu liða í 1. deild Fulham 12 11 0 1 31-6 34 Watford 12 10 2 0 27-9 32 Birmingh. 13 8 2 3 22-11 26 Bolton 13 7 4 2 20-13 25 Preston 13 7 4 2 16-9 25 Burnley 13 7 4 2 15-11 25 West Brom 14 7 3 4 15-15 24 Sheff. Utd. 12 6 2 4 15-13 20 Portsmouth 14 5 4 5 17-18 19 Blackburn 12 5 3 4 18-13 18 Nott. Forest 12 5 3 4 12-15 18 Wimbledon 12 4 5 3 20-11 17 Barnsley 13 4 4 5 20-22 16 Gillingham 14 3 7 4 18-21 16 Tranmare 14 4 3 7 15-21 15 Norwich 12 3 4 5 13-16 13 Wolves 13 2 6 5 11-12 12 QPR 12 2 5 5 12-18 11 QTf SKOTtAND Aberdeen-Dunfermline ........0-0 Celtic-Dundee Utd............2-1 Dundee-Motherwell............1-2 Kilmarnock-St Mirren.........2-1 Hibemian-Hearts..............6-2 St. Johnstone-Rangers........2-1 Staða efstu liða: Celtic 12 11 1 0 28-9 34 Hibernian 12 9 2 1 26-7 29 Rangers 11 7 1 3 22-15 22 Dundee 12 4 4 4 15-12 16 Hearts 12 4 4 4 19-17 16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.