Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2000, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2000, Page 15
MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 2000 Sport ðmundsson, Tromsö, og Ríkharður ttulegu knarmenn norsku úrvalsdeUdarinnar Þeir Rikharður Daðason og Tryggvi Guðmundsson eru hættulegustu sóknarmenn Noregs ef marka má tölfræði Verdens Gang yflr þá leik- menn norsku úrvalsdeildar sem áttu þátt í flestum mörkum í deildinni, sem lauk um helgina. Alls komu þeir nálægt 24 mörkum sinna liða. Þeir félagar skoruðu báðir 15 mörk og lögðu upp níu önnur en Tryggvi og Ríkharður voru jafnir í 2. til 5. sæti yfir markahæstu menn ásamt Magne Hoseth, komungum strák frá Molde. Markakóngur deildarinnar var lærisveinn Teits Þórðarsonar hjá Brann, Thorsteih Helstad, með 18 mörk. r * Ríkharður með 47 mörk í 69 leikjum í Noregi Rikharður, sem er á leið til enska 2. deildarliðsins Stoke, skoraði í síð- ustu sex leikjum sinum í deildinni og samtals níu mörk. Ríkharður skor- aði mörkin 15 í 23 leikjum og hefur alls gert 47 mörk í 69 úrvalsdeildar- leikjum í Noregi síðustu þrjú árin. Ríkharður varð í sjötta sæti 1998 meö 15 mörk, 4. sæti í fyrra með 17 mörk og í öðru sæti í ár með 15 mörk. Tyrggvi hækkaði sig þriðja árið í röð Tryggvi hefur bætt sig mikið í Noregi og hækkað bæði markaskor og stoösendingafjölda sinn öll þrjú árin sín í herbúðum norska heim- skautaliðsins Tromsö. Tryggvi skoraði 8 mörk fyrsta árið, var með 13 mörk í fyrra og svo fímmtán mörk i ár. Stoðsendingar hans voru 4 1998, sex í fyrra og svo níu í ár. Tryggvi var einnig stigahæsti (mörk+stoðsendingar) leikmaður íslensku úrvalsdeildarinnar 1995 og 1997 og hefur því náð þeim árangri bæði á íslandi og í Noregi. Tryggvi skoraði 56 mörk í 88 leikjum í efstu deild á íslandi en hefur skorað 36 mörk í 76 leikjum með Tromsö í Noregi. -ÓÓJ Norska úrvalsdeildin í knattspyrnu: Stefnum á meistaratitil á næsta ári - segir Teitur Þórðarson, þjálfari Brann Þýski handboltinn: Magdeburg a toppnum - Ólafur Stefánsson skoraöi sex mörk gegn Nettelstedt Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Magdeburg tróna nú á toppi þýsku 1. deildarinnar í handknatt- leik með fjórtán stig úr átta leikjum. Um helgina bar liðið sigurorð af Nettelstedt, 29-19. Stefan Kretzschmar var markahæstur hjá Magdeburg með 13 mörk og Ólafur Stefánsson skoraði sex mörk. Þrír með fimm mörk Essen, lið Patreks Jóhannesson- ar, er í sjöunda sæti deildarinnar eftir stórsigur á Hildesheim, 26-17. Patrekur skoraði fimm mörk fyrir Essen í leiknum. Wuppertal fékk skell gegn Gum- mersbach, 31-20. Dimitri Filipov var að vanda markahæstur hjá Wuppertal með átta mörk og Heið- mar Felixson skoraði tvö. Bayer Dormagen, undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar, tap- aði fyrir Eisenach, 27-25, og er í fjórða neðsta sæti deildarinnar með þrjú stig. Róbert Sighvatsson skor- aði fimm mörk fyrir Bayer Dor- magen. Sigurður Bjarnason skoraði einnig fimm mörk fyrir Wetzlar sem tapaði fyrir Flensburg, 29-36. Lítið hefur gengið hjá Wetzlar í vetur og situr liðið í næstneðsta sæti deildarinnar með tvö stig eftir átta leiki. 5» fm Olafur Stefánsson og félagar hans -ósk Magdeburg hafa byrjaö vel. - efstu sætin skipuð íslendingaliðum Teitur Þórðarson, þjálfari Brann, fékk uppreisn æru í dag þegar Brann tryggði sér annað sætið í norsku úrvalsdeildinni. Fyrir tíu árum síðan missti Brann, undir stjórn Teits, af öðru sæti deildarinnar í síðustu umferð og ekki er laust við að Teitur haíl hugsað um atburðina fyrir áratug þegar líða fór að leiknum gegn Molde í dag. Staðan fyrir leikina í dag var sú að Viking og Brann voru með jafnmörg stig í öðru og þriðja sæti deildarinnar með 44 stig en Viking hafði betri markatölu. Það þýddi að Brann þurfti að treysta á Stabæk sem mætti Vik- ing á heimavelli. Stabæk brást ekki, gerði jafntefli við Viking. Á sama tíma fóru lærisveinar Teits á kostum gegn Molde og unnu, 4-0. . „Þetta var frábær endir og ég tel að við getum verið sáttir við sumarið. Þessi árangur er að sjálfsögðu ánægjulegur fyrir mig persónulega en það eru leik- mennimir sem eiga mestan heið- urinn,“ sagði Teitur við norska blaðamenn í gær. „Ég hef trú á því að ef við höld- um sama mannskap á næsta ári þá getum við gert Rosenborg líf- ið leitt,“ sagði Teitur jafnframt en bætti við að sökum erfiðrar fjárhagsstöðu hjá félaginu væri það ekki raunhæft. -ósk Það borgar sig greinilega fyrir norsku úrvalsdeildarliðin að hafa íslendinga innan sinna raða ef marka má lokastöðuna í norsku deildinni ár. Sex efstu lið deildar- innar eru öll með íslendinga innan- borðs og í flestum liðanna leika þeir stórt hlutverk. Rosenborg, með Árna Gaut Ara- son innanborðs, var búið að tryggja sér meistaratitilinn fyrir þessa um- ferð. Þeir gerðu jafntefli, 1-1, á úti- velli gegn Moss og meiddist Ámi Gautur i leiknum. Hann spilaði þó allan leikinn en óvíst er hvort hann verði klár þegar Rosenborg mætir Paris St. Germain á þriðjudaginn 1 meistaradeild Evrópu í París. Ríkharöur kvaddi meö marki Lærisveinar Teits Þórðarsonar í Brann tryggðu sér annað sætið með stórsigri á Molde, 4-0. Auðun Helgason og Ríkharður Daðason kvöddu Viking með jafn- tefli á útivelli gegn Stabæk, 1-1. Rík- harður skoraði mark Viking í leikn- um en jafnteflið gerði það verkum að Viking endaði í þriðja sæti. Hvorki Pétur Marteinsson né Marel Baldvinsson léku með Stabæk sem hafnaði í fimmta sæti deildarinnar. Tryggvi Guðmundsson og félagar hans í Tromso tryggðu sér fjórða sætið með góðum sigri á Bodo/Glimt á útivelli, 4-1. Tryggví* var meðal markaskorara Tromso i leiknum. Lillestrom, með Rúnar Kristins- son í broddi fylkingar, tapaði fyrir Haugesund, 1-0, en hafnaði samt sem áður í sjötta sæti. Þrír kveöja Þrír íslendingar kveðja nú norsku úrvalsdeildina. Auðun Helgason og Rúnar Kristinsson eru á leiðinni til belgíska félagsins Lokeren og Ríkharður Daðason fer til íslendingaliðsins Stoke. -ósk Teitur Þórðarson, þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins Brann, sýndi enn og aftur fram á hversu hæfur þjálfari hann er með því aö ná öðru sæti deildarinnar með liði sínu Brann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.