Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Side 2
18
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000
Sport
Þýski handboltinn:
Annað tap
Kiel í röð
Þýskalandsmeistarar Kiel í
handknattleik töpuðu um helg-
ina sínum öðrum leik í röð í
Bundeslígunni. Liðið sótti
Flensburg heim og lyktaði
leiknum með sigri Flensburg,
30-29, í jöfnum og spennandi
leik.
Magdeburg vann stórsigur á
Wuppertal, 28-19. Ólafur Stef-
ánsson skoraði fjögur mörk fyr-
ir Magdeburg. Heiðmar Felix-
son lék ekki með Wuppertal
vegna veikinda.
Róbert Duranona skoraði tvö
mörk fyrir Nettelstedt sem sigr-
aði Hildesheim, 29-22.
Minden tapaði fyrir Bad
Schwartau, 23-22, þar sem Gúst-
____________af Bjarnason
skoraði fjögur
mörk fyrir
Minden.
Essen sigr-
aði Dormagen,
25-17, og skor-
aði Patrekur
Jóhannesson 5
mörk fyrir
Essen og átti
mjög góðan
leik. Úrslit í
öðrum leikjum
Lemgo sigraði
26-27, Solingen
25-21, og
Grosswald-
Patrekur
Jóhannesson.
urðu þau að
Gummerbach,
sigraði Hameln,
Eisenach sigraði
stadt, 28-25.
Magdeburg er í efsta sæti með
18 stig eftir 10 leiki. Wallau
Massenheim er í öðru sæti með
16 stig eftir 9 leiki og Flensburg
í þriðja sæti með 15 stig eftir 10
leiki.
-JKS
Alfreft Gíslasyni gengur allt í haginn með Magdeburg:
Umgjörðin eins og
best verður á kosið
- hefur framlengt samning sinn við liðið til ársins 2004
Undir stjóm Alfreðs Gíslasonar
er Magdeburg í efsta sætinu í
þýsku Bundeslígunni í handknatt-
leik. Alfreð tók við þjálfun liðsins í
fyrra og hafnaði það þá í þriðja sæti
og varð Evrópumeistari félagsliða.
Mikil ánægja er með störf Al-
freðs og óskuðu forsvarsmenn liðs-
ins eftir því að hann framlengdi
samning sinn við félagið og skrifaði
hann undir samning sem gildir til
ársins 2004.
Magdeburg hefur fengið
lofsamlega ummæli fyrir leik sinn í
þýskum fjölmiðlum og er fullyrt að
liðið hafl ekki verið jafnsterkt í
mörg ár.
Nánast óbreytt lið
Alfreð var ekki að gera mikið úr
frammistöðu liðsins það sem af er
timabilsins. Hann sagði þó liðið
vera að leika vel og sér sýndist það
enn sterkara en í fyrra. Alfreð tefl-
ir fram nánast óbreyttu liði sem
hann segir meira samæft og nú
þekkist menn betur.
Magdeburg fékk Rússann
Gudinov fyrir tímabilið og sagði Al-
freð hann vera að leika mjög vel til
þessa. Þegar tíu mnferðum er lokið
hefur liðið ekki tapað leik.
Fimm lið berjast um titilinn í
vetur
- Hvaða lið koma til með að berj-
ast um Þýskalandsmeistaratitilinn
i vetur, að mati Alfreðs?
„Það verður Kiel, Lemgo, Flens-
burg og að sjálfsögðu við. Wallau
Massenheim hefur byrjað vel og ef
liðið heldur áfram á þessari braut
verður það með í baráttunni. Ann-
ars er ómögulegt að spá nokkuð í
þessa hluti því þeir eru fljótir að
breytast. Það má ekkert bera út af
og meiðsli leikmanna geta sett strik
í reikninginn."
Deildin er sterkari og fleiri
nöfn að bætast við
„Nú er sagt að þýska deildin sé
sú sterkasta í heimi. Er hún ef til
vill sterkari nú en áður?
„Ég held að deddin sé sterkari
núna en í fyrra. Það eru alltaf fleiri
sterkir leikmenn að koma inn i hana.
Lemgo hefur fengið Svisslendinginn
Baumgartner aftur og fleiri nöfn væri
hægt að nefna.“
„Ekki voru Þjóðverjar ánægðir
með frammistöðu sinna manna á
Ólympíuleikunum í Sydney?
„Nei, þeir urðu fyrir svolitlu
áfalli en liðið varð þó oft að
leika vel að mínu mati og átti
meira skilið. Þýska landsliðið
lenti í flmmta sæti og það var
bara bölvað klúður hjá því.
Þjóðverjar ætluðu sér miklu
meira og voru hreinlega
óheppnir í nokkrum leikjum.
Heiner Brand verður áfram
þjálfari liðsins en hins vegar
hafa nokkrir leikmenn ákveð-
ið að hætta eða taka sér í það
minnsta hvfld. Vinstrihandar-
skyttan Zerber hættir og
Holpert, markvörður frá
Flensburg, ætlar að hvila sig í
bfli. Af þessum sökum verða
Þjóðverjar eitthvað slakari á
heimsmeistarakeppninni í
Frakklandi. Það eru nokkrir
ungir strákar að koma inn í
landsliðið núna og þeir þurfa
sinn tíma.“
„Það hlýtur að vera mikil
stemning i kringum Mag-
deburg-liðið þessa dagana?
„Umgjörðin er gríðarlega
skemmtileg og hún er raunar
eins og best verður á kosið.
Það er alltaf uppselt á heima-
leikjum liðsins en það komast
hátt í sex þúsund áhorfendur í
Alfreö Gíslason er oröinn stórt nafn í þýska handboltanum. Alfreö ætlar ekki síöur aö sanna sig sem þjálfari en sem leikmaöur á sínum ferli. Alfreö lék
lengstum með Essen. Hann þjálfaði fyrst Hameln en síöan lá leiöin til Magdeburg þar sem allt leikur í lyndi. Liöiö er í efsta sæti Bundeslígunnar og er líklegt
til afreka í vetur ef heldur fram sem horfir.
Óiafur Stefánsson leikur stórt hlutverk hjá
Magdeburg og í leikjunum til þessa í
deildinni hefur hann náö sér sérlega vel á
strik. Hér sést Ólafur hampa
Evrópumeistarabikar félagsliða sem liöiö
vann í fyrra.
nýju höllina. í leiknum um helgina
gegn Wuppertal gaf ég yngri leik-
mönnunum tækifæri og hvíldi
lengstum þá eldri og reyndari. Það
er mikið álag á liðinu og við leikum
aftur á miðvikudag og síðan fer
Evrópukeppnin af stað eftir tíu
daga.“
Hef frjálsar hendur og geri
það sem ég vil
- Hvemig sérð þú framtíð þína
hjá félaginu?
„Ég fæ frjálsar hendur með liðið
og geri nánast allt sem ég vfl. Það
standa mjög öflugir aðflar á bak við
liðið og starfið allt í kringum það er
sterkt. Það er gríðarlegur áhugi á
handbolta í Magdeburg og íþróttin
er sú vinsælasta í borginni. Knatt-
spymuliði félagsins hefur ekki
gengið vel og er í 4. deild svo það er
engin samkeppni þaðan. Við höfum
ótakmarkaða æfingarmöguleika á
öllum sviðum og getum sagt að um-
hverfið sé fúflkomið. Á dögunum
komu forsvarsmenn liðsins að máli
við mig og spurðu hvort ég vildi
ekki framlengja samning minn við
félagið. Ég réði lengd hans en nið-
urstaðan var að framlengja hann tfl
2004. Mér og fjölskyldunni líkar
mjög vel í Þýskalandi og öll bömin
ganga í skóla hér.“
Líður vel í Þýskalandi og
handboltinn er mitt áhuga-
mál
- Sérðu fyrir þér að þú snúir aft-
ur heim til íslands eftir að þjálfun-
inni lýkur?
„Ég er ekkert farinn að hugsa um
það en maður veit aldrei samt hvað
framtíðin ber í skauti sér. Mér líð-
ur mjög vel hérna og handboltinn
er mitt áhugamál. Það gengur vel
og launin eru ágæt.“
- Em íslendingamir í deildinni
ekki að leika vel?
„Ólafur Stefánsson er að leika
mjög vel hjá mér og eins Patrekur
Jóhannesson hjá Essen. Guðmund-
ur Hrafnkelsson hefur verið að
standa sig vel i markinu hjá Nor-
dom. Ég hef ekki séð til fleiri ís-
lendinga enn sem komið,“ sagði Al-
freð Gíslason.
-JKS