Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Side 3
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000
19
I>V
Sport
Kristín Rós Hákonardóttir setti svip sinn á sundkeppni ólympíumótsins meö
framgöngu sinni.
Árangur Kristínar Rósar Hákonardóttur stendur upp úr:
Heim með fjóra
verðlaunapeninga
- vann tvenn gullverðlaun og tvenn bronsverðlaun í Sydney
Kristín Rós Hákonardóttir á efsta þrepi verðlaunapalls eftir sigurinn í 100
metra bringusundi þar sem hún setti einnig heimsmet.
Ólympíumóti fatlaöra í Sydney í
Ástralíu lauk um helgina. Sex
íslenskir keppendur tóku þátt í
mótinu, fjórir sundmenn og tveir
frjálsiþróttamenn. Þótt markmið
keppenda sé fyrst og fremst að vera
þátttakendur á svona móti stendur
árangur Kristínar Rósar
Hákonardóttur upp úr. Hún kemur
með tvenn gullverðlaun og tvenn
bronsverðlaun heim frá mótinu,
sannarlega glæsilegur árangur sem
íslendingar geta verið stoltir af.
27 ára gömul og hefur
keppt á fjórum mótum
Kristín Rós, sem er 27 ára gömul,
var að keppa á sínu fjórða
ólympíumóti en hún var aðeins 15
ára gömul þegar hún keppti í Seoul
1988.
Hún vann gull í 100 metra
bringusundi, synti á 1:35,64
mínútum, og vann gullverðlaun I
100 metra baksundi, synti á 1:26,31
mínútum. Bronsverðlaun vann
hún í 200 m fjórsundi en þá
vegalengd synti hún á 3:20,28
mínútum og síðan vann hún brons
í 100 metra skriðsundi á 1:18,05
mínútum. Auk þess að sigra í 100
metra bringusundi setti hún
heimsmet í greininni.
íslensku keppendurnir dvelja í
Sydney í nokkra daga áður en
haldið verður heim til íslands.
-JKS
Viktor stal senunni
- á Norðurlandamóti unglinga í Ösló
Viktor Kristmannsson varð
Norðurlandameistari drengja í fjöl-
þraut á Norðurlandamótinu sem
haldið var i Ósló um helgina. Vikt-
or hlaut einkunnina 50.050 stig. í
liðakeppninni hafnaði ísland í
fimmta sæti.
í gær var síðan keppt í einstök-
um áhöldum og þar bætti Viktor
við sig þrennum gullverðlaunum
með þvi að sigra I æfingum á gólfi,
á bogahesti og tvíslá. Hann hlaut
einnig bronsverðlaun fyrir æfingar
á tvíslá.
Stjarnan í 4. sæti í
Birmingham
Stjaman úr Garðabæ varð í
fjórða sæti í úrslitum á Evrópumót-
inu i hópfimleikum sem fram fór í
Birmingham á Englandi. Á gólfi
fékk liðið 9,0 sem var hæsta ein-
kunn sem gefin var. Á trampolini
fékk liðið 8,45 og á dýnu 8,0. Liðið
var í efsta sæti eftir keppni á tveim-
ur áhöldum en eftir æfingar á dýn-
unni var ekki lengur möguleiki á
verðlaunasæti.
Það var dönsk sveit frá Helsingor
sem sigraði með 25,98 stig og
danska liðið Gastrup lenti í öðru
sæti með 25,8 stig. Þýska liðið
Berlín TCS, sem varð Evrópumeist-
ari 1998, varð að gera sér þriðja
sæti að góðu með 25,7 stig.
-JKS
Edilon Hreinsson til Framara
Edilon Hreinsson skrifaði um
helgina undir þriggja ára samning
við úrvalsdeildarlið Fram i knatt-
spymu. Edilon, sem er 21 árs gam-
all miðjumaður, hefur allan sinn
feril leikið með KR en var leigður
til ÍR á síðasta tímabili.
„Það er góður styrkur að fá Ed-
ilon til okkar. Við ætlum samt að
byggja liöið upp á yngri leikmönn-
um sem fyrir em hjá félaginu,“
sagði Kristinn R. Jónsson.
Hilmar Bjömsson er hættur hjá
Fram og líkur á því að hann fari til
FH. Sigurvin Ólafsson hefur átt i
viðræðum við Eyjamenn undanfar-
ið. -JKS
Viktor Kristmannsson er mikiö efni og veröur eflaust skemmtilegt aö fylgjast
meö honum í framtíðinni.
Gunnleifur
stendur sig
vel á æfingum
Gunnleifur Gunnleifsson, mark-
vörður Keflvíkinga, hefur verið að
standa sig vel á æfingum hjá enska
2. deildar liðinu Bury. Gunnleifur
fór utan í síðustu viku og mun lík-
lega leika með varaliðinu á mið-
vikudagskvöldið. Andy Preece,
knattspymustjóri liðsins, er ánægð-
ur með það sem hann hefur séð til
Gunnleifs.
Ef hlutimir ganga ekki upp hjá
Bury er líklegt að Gunnleifur reyni
fyrir sér hjá Sheffield United.
Guðmundur ekki til Aalst
Ekkert verður af því að Guð-
mundur Steinarsson fari til Aalst í
Belgiu. Það var sameiginleg niður-
staða hans og Keflvíkinga að fara
ekki enda var lítið sem ekkert í
boði.
-JKS
Það var hart tekist á á ísnum á laugardag.
DV-mynd Hilmar Þór
ísknattleikur:
Brutu ísinn
- fyrsti sigur Bjarnarins á SA í meistaraflokki
Bjöminn vann Skautafélag Akur-
eyrar, 13-8, í skemmtilegum leik í
Skautahöllinni í Laugardal á laugar-
dagskvöldið. Þar með braut Bjöminn
ísinn og vann SA í fyrsta sinn i leik í
meistaraflokki.
Leikurinn var á köflum mjög harð-
ur og var mikið um brottvísanir hjá
báðum liðum, eða 10 hjá hvora liði.
Fyrsti leikhluti fór 3-3, annan leik-
hluta vann Bjöminn 5-3 og þann síð-
asta 5-2.
Greinilegt var að úthald leikmanna
Bjamarins var meira eins og sést af
úrslitum seinni leikhlutanna tveggja
og býr liðið að þrekæfingum síðasta
sumars sem byrjuðu um miðjan júlí.
Mikill hraði einkenndi leikinn sem
var hraður og skemmtilegur á að
horfa fyrir hina 200 áhorfendur sem
fylgdust með leiknum.
Fyrir Björninn: (Mörk stoösend-
ingar.j
Sigurður Einar Sveinbjarnarson
5/2, Jónas Breki Magnússon 3/1,
Sergei Zak 3/3, Snorri Gunnar Sigurð-
arson 1/5, Glenn Hammer 1/1.
Fyrir Skautafélag Akureyrar
(Mörk/stoðsendingar):
Sigurður Sveinn Sigurðsson 2/1,
Rúnar Rúnarsson 2/0, Leifur Finney
2/0, Ingvar Þór Jónsson 1/2, Stefán
Hrafnsson 1/1, Haraldur Vilhjálms-
son 0/1.