Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Síða 4
20 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000 Sport ICFUttd^nit í Rnrtunnl lékti mjöy uol (iecm Í£» un, tittlymn * lutiljiíii :kj hui rmsö nlni'kt liö sinm íutii nö Iwppi; víö > • r. ___ if •>•■....u... K'tflnvik KÍF. *i|i l£Lj,im tltla vt*tr«rin«}. Mw uiyrií. sUHpurntti í%ri íf«?«nnm Itiikpum. DV-my«:: Cmktti KFI og IS skiptu sigrunum á milli sín á Isafirði: - vetur fram undan í kvennakörfunni - Keflavík, IS og KR jöfn á toppnum Jessica Gaspar lék sína fyrstu leiki meö KFÍ um helgina og skoraöi í þeim 22,5 stig aö meöaltali, tók 9,5 fráköst, stal 5 boltum og gaf 4,5 stoösendingar. Gaspar sést hér tala viö Kari Jónsson, þjálfara liösins, í hálfleik á fyrri leiknum. DV-mynd Óskar KFÍ og ÍS skiptu á milli sín sigrun- um í tveimur leikjum liðanna á ísa- firði í 1. deild kvenna í körfubolta um helgina. Góð frammistaöa ísafjarðar- liðsins sýnir að fram undan er spenn- andi vetur þar sem fjögur lið verða í hörkubaráttu um titla vetrarins. Eftir leiki helgarinnar eru Keflavík, ÍS og KR jöfn á toppnum með 4 stig hvert. Fram undan eru því margir jafnir leikir og ljóst að það eru fjögur mjög sterk lið sem skipa deildina að þessu sinni. ÍS sterkari í lokin Stúdínur voru sterkari í lokin í fyrri leik liðanna og tryggðu sér 55-60 sigur. KFÍ leiddi 16-9 eftir fyrsta fjörö- ung og 29-25 í hálfleik en ÍS náði að jafna fyrir lok þriðja fjóröungs, 42-42. Jessica Gaspar lék sinn fyrsta leik fyrir KFÍ og stóð sig mjög vel en hún var nýlent á ísafirði og hafði ekki sof- ið í 36 tíma og undir lok leiksins gerði hún mörg afdrifarík mistök. Þau mis- tök nýttu Stúdínur sér vel, Stella Rúna Kristjánsdóttir og Jófríður Hall- dórsdóttir settu niður stórar körfur og vítaskot en ÍS skoraði tíu siðustu stig leiksins. Hjá KFÍ lék Gaspar mjög vel auk þess sem Stefanía Ásmundsdóttir var sterk og Sólveig Gunnlaugsdóttir lifnaði viö í fjórða hluta þegar hún skoraði 7 af 9 stigum sínum. María B. Leifsdóttir átti fábæra innkomu af bekknum hjá ÍS og skor- aði rétt tæpt stig á minútu en auk hennar léku Stella Rún Kristjánsdótt- ir og Hafdís Helgadóttir mjög vel. Lovísa Guðmundsdóttir og Kristjana B. Magnúsdóttir spiluðu líka mjög vel fyrir liðið og áttu saman 7 stoðsend- ingar og tóku 18 fráköst og fyrirliðinn, Hafdís Helgadóttir, brást ekki og reif niður 13 fráköst auk 12 stiga. Stig KFÍ: Jessica Gaspar, 16 (10 fráköst, 6 í sókn, 8 stolnir, 7 stoðsendingar), Stefan- ia Ásmundsdóttir, 14 (8 tráköst, 2 varin skot), Sólveig Gunnlaugsdóttir, 9 (3 stoðsendingar), Tinna Björk Sigmundsdótt- ir, 6 (5 fráköst, 3 stolnir), Helga Salóme Ingimarsdóttir, 6, Anna Sigurlaugsdóttir, 4. Stig ÍS: María B. Leifsdóttir, 16 (17 min- útur), Stella Rún Kristjánsdóttir, 15 (4 frá- köst, 3 stolnir), Hafdís Helgadóttir, 12 (13 fráköst, 3 varin), Kristjana B. Magnúsdótt- ir, 6 (8 fráköst, 4 stoðsendingar), Lovísa Guðmundsdóttir, 5 (10 ffáköst, 4 varin), Jó- fríður Halldórsdóttir, 4, Svana Bjamadóttir, 2. Hitti í 17 af 18 vítum sínum Frábær hittni KFÍ á vítalínunni (33 af 39, 85%), átti stóran þátt í því að landa fyrsta sigri þeirra í vetur í seinni leik KFÍ og ÍS á ísafirði. KFÍ vann leikinn, 65-60, en Stúdínur komu með mikinn sprett í lokin sem var þó aðeins of seint. Líkt og í fyrri leiknum leiddi KFí nánast allan tímann og náði 19 stiga forustu, 59-40, þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir. ÍS skoraði 20 stig á síðustu þremur mínútunum, þar af gerði Kristjana B. Magnúsdóttir 13 stig, þar af þrjár þriggja stiga körfur, en náðu ekki að brúa bilið. Jessica Gasper var gríðarlega sterk. Hún er skynsamur leikmaður sem er dugleg aö keyra sterkt inn að körf- unni en ekki má þó gleyma Tinnu B. Sigmundsdóttur sem átti frábæran leik í vöm og sókn. Hjá ÍS átti Hafdís Helgadóttir mjög góðan leik, Kristjana snögghitnaði í lokin og þær Lovísa Guðmundsdóttir og Þórunn Bjarnadóttir voru að gera góða hluti. Það má segja að töpuðu boltarnir (26) og villumar (27) hafi fellt Stúdínur í leiknum. Stlg KFÍ: Gaspar, 29 (9 fráköst, hitti 6 af 11 skotum, hitti 17 af 18 vítum, fiskaði 12 villur), Tinna Björk, 16 (4 stolnir), Stefanía, 8, Sólveig, 7 (7 fráköst, 4 stolnir, 3 stoðsend- ingar), Fjóla Eiríksdóttir, 5 (7 fráköst). Stig ÍS: Kristjana, 18 (hitti 7 af 11 skot- um), Hafdís, 14 (15 fráköst, 5 í sókn, 4 stoðsendingar, 3 stolnir), Lovísa, 8 (5 frá- köst, 4 stoðs.), Þórunn Bjarnadóttir, 6 (3 stoðssendingar, 18 mínútur), Cecilia Lars- son, 4, Stella Rún, 4 (5 fráköst), María, 2, Svana, 2, Jófríður, 2. Allar á blað hjá KR KR vann Grindavík, 88-45, í KR- húsinu á laugardag, sinn 31. heimasig- ur í röð í deildinni og eru KR-stelp- urnar aðeins tveimur heimasigmm frá því að jafna metið í deildinni. Hið unga Grindavíkurlið stóð í KR í fyrri háifleik en KR hafði 38-27 for- ustu í hálileik. I seinni hálfleik kom styrkleikamunur liðanna í ljós en allar KR-stelpumar fengu að njóta sín og spila jafnt hjá KR. Sandra Guð- laugsdóttir átti mjög góðan leik fyrir Grindavík og setti meðal annars nið- ur íjórar þriggja stiga körfur en 9 af 17 stigum hennar komu í þriðja leik- hluta. Stig KR: Hanna B. Kjartansdóttir, 20 (3 stoðsendingar, 3 stolnir), Gréta María Grét- arsdóttir, 14 (hitti 4 af 5 skotum, 3 stolnir, 12 minútur), Kristin B. Jónsdóttir, 12, Guð- rún Ama Sigurðardóttir, 9 (4 stoðsending- ar), Bima Eiríksdóttir, 9, Sigrún Skarphéð- insdóttir, 8, Helga Þorvaldsdóttir, 6 (5 stoln- ir), Sigrún Hailgrímsdóttir, 4, Hildur Sig- uiðardóttir, 4 (3 stolnir), Stig Grindavíkur: Sandra Guðlaugs- dóttir, 17 (7 fráköst, 3 stolnir), Jovana Stef- ánsdóttir, 8, Bára Vignisdóttir, 8, Þuríður Gísladóttir, 7, Sigríður Anna Ólafsdóttir, 3, Ema Magnúsdóttir, 2 (5 stoðsendingar, 2 stolnir). Bikar í körfu: Flest úrslit eftir bókinni 32-liða úrslit í bikarkeppni karla í körfuknattleik hafa farið fram síðustu daga og um helgina Úrslit í flestum leikjanna urðu samkvæmt bókinni. Hrönn-Þór A..............57-82 Léttir-Smári Varmahl.....80-69 ÍG-Þór Þorl.............79-113 Reynir H.-ÍR............57-122 Valur-KR-B...............91-84 HK-Stjaman...............51-87 Selfoss-SnæfeU...........92-66 Reynir S.-TindastóU......52-87 ÍV-KR...................70-120 KFÍ-Njarðvík.............77-96 Ármann-Grindavík........48-109 Öminn-ÍA................63-105 Árvakur-Skallagrímur ... 43-96 ÍS-Haukar................56-96 BreiðabUk-Keflavik ......61-86 Dalvfk-Hamar ...........74-111 -JKS Halmstad meistari Halmstad tryggði sér sænska meistaratitilinn öðru sinni á fjórum árum þegar liðiö sigraði Elfsborg, 0-2, á útivelli þegar einni umferð er ólokið í deild- inni. Tommy Jonsson og Fredrik Gustavsson skoruðu mörk Halm- stad. Liðið hefur haft umtals- verða yfirburði og hefur átta stiga forskot á AIK frá Stokk- hólmi. Frölunda og Gais féllu í 2. deUd en þeirra sæti á næsta tímabili taka Djurgárden og Mal- mö. -JKS Nýr Kani á leið í Hauka Úrvalsdeildarlið Hauka hefur ákveðið að fá sér nýjan banda- rískan leikmann og er von á honum til landsins í þessari viku. Um er að ræða miðherja að nafni Mike Bargain sem er um 1,98 metrar áð hæð. Rick Mic- kens, sem hefur leikið með Haukum, er því á leið vestur um haf. Haukunum fmnast meiri not í miðherja en bakverði og því var þessi ákvörðun tekin. Skotnýt- ing Mickens hefur heldur ekki verið neitt til að hrópa húrra fyr- ir. -JKS Jafntefli hjá Dunkerque Ragnar Óskarsson og félagar í franska handknattleiksliðinu gerðu jafntefli, 26-26, við Istres, í 1. deildinni í gær. Dunkerque er í áttunda sætinu með 7 stig af 14 liðum. I efsta sætinu er Cham- bery með fullt hús stiga, 12 stig eftir íjórar umferðir en þrjú stig eru gefm fyrir sigur. 1. deild kvenna í körfic Staðan: ís 4 2 2 238-236 4 Keflavík 3 2 1 207-156 4 KR 3 2 1 202-162 4 KFÍ 2 1 1 120-120 2 Grindavík 2 0 2 79-172 0 Stigahæstar: Jessica Gaspar, KFÍ ..............22,5 Hafdís Helgadóttir, ÍS............16,3 Bima Valgarðsdóttir, Keflavík . 15,3 Hanna B. Kjartansdóttir, KR . .. 15,3 Kristín B. Jónsdóttir, KR ........12,7 Marín Rós Karlsdóttir, Keflavík 12,0 Stefanía Ásmundsdóttir, KFl ... 11,0 Tinna B. Sigmundsdóttir, KFÍ . . 11,0 Erla Þorsteinsdóttir, Keflavik .. 10,7 Kristjana B. Magnúsdóttir, ÍS . . 10,5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.