Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Page 9
24
+
25^
Sport
Stjörnumenn
kjöldregnir
„Við lögðum upp með að koma
ákveðnir tii leiks. Ég taldi að fyrstu
20 mínútumar væru mjög mikil-
vægar þar sem Stjörnumenn hafa
ekki byrjaö vel og sjálfstraustið
kannski ekki nógu gott hjá þeim. Ég
er mjög ánægður með hvað strák-
arnir komu vel innstilltir í leikinn.
Við erum á réttri leið en það eru þó
enn hlutir sem ég er ekki sáttur
við,“ sagði Geir Sveinsson, þjálfari
Vals, eftir að hans menn unnu ör-
uggan sigur á Stjömunni, 24-19, á
Hlíðarenda. Sigurinn var mun ör-
uggari en þesssir tölur gefa til kynna
því Stjaman saxaði nokkuð á for-
skot heimamanna á síðustu 20
mínútum leiksins.
Það var snemma ljóst hvert
stefndi. Valsmenn léku 5:1 vörn þar
sem Snorri Steinn Guðjónsson kom
út á móti sóknarmönnum og þetta
var múr sem Stjömunni reyndist
erfitt að rjúfa. Styrkur vamarinnar
sést best á því að Eduard Moskalen-
ko, hinum sterka línumanni, var
nánast alveg haldið niðri til að
byrja með og hefur ekki mörgum
vörnum tekist það.
Það liöu tíu og hálf mínúta þar tO
Stjömumenn komust á blað og eftir
19 mínútur var staðan orðin 10-3.
Júlíus Jónasson fór mikinn í byrjun
leiks og skoraði fjögur af sex fyrstu
mörkum liðsins en síðan tóku
Snorri og Daníel Ragnarsson við
markaskorinu. Fyrir aftan vörnin
varði svo Roland Eradze eins og
berserkur og allt þetta gerði sókn
Stjömunnar ráðþrota.
Forystan var átta mörk í leikhléi
og mest níu mörk i síðari hálfleik.
Það var alveg sama þótt Stjaman
reyndi að breyta um vamaraðferð,
þ.e. úr flatri vöm í 4:2 og síðan 5:1,
ekkert gekk.
Það var ekki fyrr en á síðari
hluta síðari hálfleiks sem fór að sax-
ast á forskotið, mest fyrir það að
Valsmenn slökuðu á klónni eins og
lið hneigjast oft til að gera sem hafa
svo mikið forskot. Stjörnumenn
náðu muninum mest niður í fjögur
mörk en hann endaði í fimm mörk-
um.
Það var frábær vörn sem skóp
sigur Valsmanna fyrst og fremst. í
sókninni bar mest á Snorra og
Ingvari Sverrissyni í hominu auk
þess sem Júlíus byrjaði af krafti
eins og áöur sagði og var feykisterk-
ur í vöminni. Eradze var auk þess
frábær í markinu. Hjá Stjömunni
varði Birkir oft ágætlega og Moska-
lenko sýndi stundum góða takta
þrátt fyrir að vera oft í strangri
gæslu. Aðrir vom langt frá sínu
besta.
-HI
Snorri Steinn Guðjóns-
son spilaöi vel fyrir Val
á föstudaginn og ógnar
hér vörn Stjörnunnar.
DV-mynd Hilmar Þór
Enn eitt tap
- Blikar bættu sig en töpuöu samt með 9 mörkum fyrir FH
NIS5AN
Staðan:
Haukar 6 6 0 186-138 12
Fram 6 6 0 160-132 12
Valur 6 5 1 131-108 10
IBV 6 4 2 167-148 8
Afturelding 6 3 3 168-154 6
FH 6 3 3 157-143 6
KA 6 3 3 152-147 6
Grótta/KR 6 3 3 151-152 6
ÍR 6 2 4 133-150 4
Stjarnan 6 1 5 151-166 2
HK 6 0 6 137-172 0
Breiðablik 6 0 6 124-202 0
Markahæstir:
Halldór Ingólfsson, Haukum . . 53/22
Alexander Petersons, Gróttu/KR . 40
Hilmar Þórlindsson, Gróttu/KR 39/18
Guöjón Valur Sigurðsson, KA . 37/11
Jaliesky Garcia, HK..........36/10
Heimir Örn Árnason, KA .........34
Björgvin Rúnarsson, Stjörnunni 34/2
Bjöm Hólmþórsson, Breiðabliki . 34/8
Mindausgas Andriuska, iBV ... 33/6
Bjarki Sigurðsson, Aftureldingu .32/13
Botnlið Breiðabliks tók á móti FH
í Smáranum á laugardag og mátti
þola enn eitt tapið. Gestirnir frá
Hafnarfirði fóru með sigur af hólmi,
nokkuð sannfærandi, 24-33, þrátt
fyrir að hafa ekki átt neinn stórleik.
Munurinn var ávallt 5-6 mörk en
FH-ingar náðu að auka muninn í
lokin.
„Við settum okkur það takmark
fyrir leikinn að sigra með 8-10
mörkum og það tókst þannig að ég
er svona mátulega sáttur. Vörnin
hefði átt að vera betri en okkur
vantaði meiri þolinmæði þegar við
vorum að verjast. Það er erfitt að
halda mönnum á tánum í svona
leikjum. Blikarnir eru að bæta sig,
sérstaklega í sókn, þar sem þeirra
aðgerðir eru orönar agaðari,“ sagði
Guðmundur Karlsson, þjálfari FH,
við DV að leik loknum.
FH-ingar gerðu lítið annað en það
sem þurfti til að innbyrða 2 stig að
þessu sinni. Menn voru að gera
mistök í vörninni og skrifast þau
flest á einbeitingarleysi. Guðmund-
ur gat leyft sér að hvila Bergsvein í
markinu og spilaði Jónas
Stefánsson þorrann af leiknum.
Victor Guðmundsson var atkvæða-
mestur í sókninni og Valur Amar-
son sá um að dreifa spilinu vel.
Það er ljóst að Breiðablik á
langan og erfiðan vetur fyrir
höndum. Liðið barðist ágætlega og
þokkaleg stígandi er í leik liðsins,
en hvort það dugi tU aö liðið haldi
sér uppi er harla ólíklegt.
Björn meö ágæta takta
Bjöm Hólmgeirsson sýndi ágætis-
takta í seinni hálfleik en var frekar
ragur í þeim fyrri. Zoltan Belanyi
hefði mátt reyna meira í sókninni
og Rússinn Andrei Lasarev vann
vel úr því sem hann fékk úr að
moða á línunni. Athygli vakti
hversu slakur Slavisa Rakanovis
var og viröist hann lítið geta
hjálpað liöinu í þeirri erfiöu baráttu
sem fram undan er. -BG
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000
DV DV
Aliaksandr Sahmkuts, Haukum, og Sverrir Björnsson, HK, takast hér hart á í leik liöanna á laugardag en þeir Jón Bessi Erlingsen og Jaliesky Garcia fylgjast meö. HK stóð lengi vel í íslandsmeisturunum en í síöari hálfleiknum dró í sundur með
liðunum og Haukar sigruðu nokkuð auðveldlega. DV-mynd Hilmar Þór
íslandsmeistarar
Hauka náðu að leggja
HK að velli, 29-23, í
miklum baráttuleik í
Hafnarfirði á laugardag
og eru íslandsmeistar-
amir nú einir á toppn-
um en HK situr með
hinu Kópavogsliðinu á
botninum án stiga.
Haukar voru að vinna
sinn sjötta sigur í deild-
inni og eru eina liðið
sem enn er taplaust og
má segja aö þetta sé
óskabyrjun fyrir meist-
arana, þó hafa HK-menn
HK óþægur Ijár f þúfu.
alltaf haft tök á
Haukamönnum og
náðu þeir að velgja
þeim vel undir ugg-
um. HK sýndu mikla
baráttu í leiknum og
virðist sem Páli Ólafs-
syni sé að takast að
koma liðinu saman.
Tölumar í leikslok
sýna ekki réttan gang
leiksins en hann var
jafn og mikil barátta
en í lokin fóru Bjami
Frostason markvörð-
ur og Haukavömin að
verja vel og þá tókst
Haukamönnum að síga fram úr.
Vorum ekki aö klára færin
Páll Ólafsson, þjálfari HK, var að
vonum ekki ánægður með að tapa
þessum leik, sem er von, hann
sagði að honum heföi fundist að liö-
ið væri að ná betur og betur saman
og þetta væri að koma hjá því. „Við
vorum að fá færi og vömin er að
koma hjá okkur. Við voram ekki að
klára færin sem við fengum i rest-
ina en í lokin hafði Bjarni lokað
leiðinni að markinu. Hefði okkur
tekist að komast í 23-24 hefðum við
átt mikla von um að vinna leikinn.
Munurinn á styrk liðanna var ekki
svo mikill ef
maður lítur á
hvar liðin
standa í deild-
inni, Haukar
efstir og HK
neöstir," sagði
Páll að leik
loknum.
Baráttu-
leikur
Viggó Sig-
urðsson,
þjálfari Hauka Viggó Sigurðsson, þjálfari
var ánægður Hauka, er að gera góða
með sína menn hluti meö liöiö-
og hann sagði að þeir hefðu
unnið þetta í byrjun seinni
hálfleiks þegar þeir náðu
þriggja marka forystu. „Þeir
eru ekki með það breiðan hóp
og það er alltaf erfitt að þurfa
að vinna upp svona forskot en
HK-menn voru nærri búnir að
ná okkur, Bjami byrjaöi að
verja og vömin aö starfa rétt
og það skipti sköpum. Þetta var
baráttuleikur og hafa HK-menn
alltaf haft tök á Haukum, þeir
voru að spila vel í fyrri hálf-
leik en við náðum að hrista þá
af okkur.“
Halldór Ingólfsson var afar
ánægður með að ná að leggja HK-
menn að velli, þetta hefði verið
mikil barátta en Haukamir hefðu
verið sterkari á endasprettinum.
Halldór sagði það gaman að vera
búinn að vinna fyrstu sex leikina
og væri meiningin að halda sínu
striki og verja íslandsmeistaratitil-
in og ná sér í fleiri titla
Bestir í liöi Hauka voru Bjami
Frostason sem varði vel í lokin og
Óskar Ármannsson en í liði HK
voru Óskar Elvar Óskarsson, Guð-
jón Hauksson og Amar Freyr Reyn-
isson að gera ágætishluti.
-EH
Sport
Valur-Stjarnan 24-19
4-0, 5-2, 10-3, 11-5, (14-6), 15-6, 17-8,
18-11, 19-13, 20-15, 21-17, 23-17, 24-18,
24-19.
Valur
Mörk/viti (skot/viti): Júlíus Jónasson
5(7), Snorri Guðjónsson 5 (7), Ingvar
Sverrisson 4(7), Daníel Ragnarsson
3/5), Markís Michaelsson 3/2 (6/2),
Fannar Þorbjörnsson 2(2), Valdimar
Grímsson 2(4/2), Valgarð Thoroddsen
(1).
Mörk úr hraóaupphlaupunu 4 (Júlíus
2, Ingvar 1, Snorri 1).
Vitanýting: Skorað úr 2 af 4.
Varin skot/viti (skot á sig): Roland
Eradze 22(42/4, 52%)
Brottvisanir: 8 mínútur
Stiarnan
Mörk/viti (skot/víti): Eduard Moska-
lenko 4(5), Magnús Sigurðsson 4/3 (9/3), *
Hafsteinn Hafsteinsson 3(5), Björgvin
Rúnarsson 3(7), David Kekelion 2(4),
Arnar Pétursson 2(13/1), Sigurður Við-
arsson 1(7), Bjarni Gunnarsson (1).
Mörk iír hraöaupphlaupum: 6 (Haf-
steinn 2, Amar 1, Björgvin 1, Moskalen-
ko 1, Kekelion 1).
Vitanýting: Skorað úr 3 af 4.
Varin skot/víti (skot á sig): Birkir í.
Guðmundsson 11/2 (35/4, 31%)
Brottvísanir: 8 mínútur.
Dómarar (1-10): Bjarni Viggóssonog
Valgeir Ómarsson, 5.
Gϗi leiks (1-10): 6.
Áhorfendur: 300.
Maöur leiksins:
Roland Eradze, Val.
Haukar-HK 29-23
1-0, 3-1, 4-2, 8-7, 10-8, 12-10,
14-11,(14-14), 16-14, 19-16, 20-18, 23-18,
24-20, 24-22, 26-22, 28-22, 29-23.
Haukar
Mörk/viti (skot/viti): Óskar Ármann-
son 7/3 (12/4), Einar Örn Jónsson 6 (7),
Jón K. Björnsson 6 (7/1), Halldór Ingólfs-
son 4/l(7/2), Aliaksandr Shamkuts 2 (2),
Þorvarður Tjörvi Ólafsson 2 (2), Rúnar
Sigtryggsson 2 (5,) Petr Baumruk (2),
Einar Gunnarsson (1).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 7 (Jón 3,
Þorvarður 2, Einar Ö. 1, Shamkuts 1).
Vitanýting: Skoraö úr 4 af 7.
Varin skot/víti (skot á sig): Bjarni
Frostason 9/3, Magnús Sigmundsson
2/1.
Brottvisanir: 6 mínútur
HK
Mörk/víti (skot/viti):
Óskar Elvar Óskarsson 7/2 (11/2),
Jalvsky Garcia 6/2 (11/5), Guðjón Hauks-
son 5 (8/1) Samúel Árnason 2 (2), Jón H.
Gunnarsson 2 (3/0), Jón B. Ellingsen 1
(1), Sverrir Bjömsson 0 (5), Alexander
Arnarsson 0 (1).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 4 (Óskar 2,
Guðjón 2).
Vitanýting: Skorað úr 4 af 8.
Varin skot/viti (skot á sig): Arnar F.
Reynisson 7/2, Hlynur Jóhannesson
0/0.
Brottvísanir: 16 mínútur (Jón Bessi
rautt spjald fyrir 3x2 mín.).
Dómarar (1-10): Guðjón L. Sigurðs-
son Ólafur Haraldsson (7).
Gϗi leiks (1-10): 6.
Áhorfendur: 100.
Maöur leiksins: Óskar
Ármannsson, Haukum
Breiöablik-FH 24-33
0-1, 2-3. 3-6, 8-14, (12-17), 13-17, 15-20, 21-
28, 24-33.
Breiöahlik
Mörk/viti (skot/viti): Björn
Hólmgeirsson 5/1 (10/1), Zoltan Belanyi
5 (5), Halldór Guðjónsson 5/3 (8/3),
Garðar Guðmundsson 4 (4), Andrei
Lasarov 3 (5), Sigtryggur Kolbeinsson 2
(9) , Slavisa Rakanovic (3), Stefán
Guðmundsson (1).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 1 (Belanyi)
Vítanýting: Skorað úr 4 af 4.
Varin skot/víti (skot á sig):
Guðmundur K. Geirsson 5 (26/2, 19%)
Brottvisanir: 10 mínútur
FH
Mörk/viti (skot/viti): Victor
Guðmundsson 8 (8), Sigurgeir Ægisson 5
(10) , Valur Arnarson 4 (5), Hálfdán
Þórðarson 4 (6), Guðmundur Pedersen
4/2 (6/2), Lárus Long 3 (4), Pálmi
Hlöðversson 2( 3), Héðinn Gilsson 2 (2),
Gunnar Gunnarsson 1 (1).
Mörk úr hraóaupphlaupunu 4 (Victor 2,
Valur, Hálfdán)
Vitanýting: Skorað úr 2 af 2.
Varin skot/viti (skot á sig): Jónas
Stefánsson 6 (30/2, 20%)
Brottvisanir: 6 mínútur.
Dómarar (1-10): Jónas Elíasson og
Ingvar Guðjónsson, (8)
Gϗi leiks (1-10): 6.
Áhorfendur: 165.
Maöur leiksins: Victor
Guðmundsson, FH