Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2000, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2000, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000 23 Mazda Demio GLX Mazda Demio er nettur bíll en leynir á sér. Hann er fremur há- byggður þannig að létt er að um- gangast hann og ökumað- urinn hefur tiltölulega góða yfirsýn yfir umhverfi sitt. Dyr eru breiðari og hærra til lofts en almennt gerist í smábílum þannig að ökumaður situr hátt og hefur gott fótarúm. Demio er með þokuljós að aftan og bremsuháljós, tvo líknarbelgi og læsivarðar bremsur. Burðar- getan er 455 kg. Verð með vsk. frá 1.245.000 kr. Verð án vsk. frá 999.984 kr. Mazda 323 F GLX Umboð: Ræsir hf. Sú var tíðin að Mazda var metsölubíll á íslandi ár eftir ár. Síðan hafa aðrar tegundir orðið yfirsterkari en í sjálfu sér eru Mazda-bílar enn af sama gæðaflokki og áður. Tveir nettir Mazda-bílar eru í hópi þeirra sem nú eru boðnir sem vsk-bíl- ar. Mazda 323 F GLX er fimm dyra bíll og boðinn með vali um tvær vélar, 1,5 1 90 ha og 1,8 1115 ha. Hann er með læsivarðar bremsur og spólvörn, líknarbelgi fyrir ökumann og framsætis- farþega, fjarstýröar samlæsingar. Burðargetan er 463 kg. Verð með vsk. frá 1525.000 kr. Verð án vsk. frá 1224.880 kr. Mazda Premacy Umboð Ræsir hf. Mazda Premacy er í hópi svokallaðra fjölnotabíla sem er samheiti yfir þá bíla sem bjóða upp á breytilega innréttingu sem fljótlegt er að hagræða eftir því til hvaða nota þeir eru ætl- aðir hverju sinni. Premacy er með 1,8 1115 ha vél og mjög vel búinn, m.a. með fjóra líknarbelgi, læsivarðar bremsur með raf- eindastýrðri hemlajöfnun og bremsuháljós. Þá er hann með upphitaða útispegla, sem eru mikið þarfaþing á íslenskum vetri. Spólvöm er líka staðalbúnaður, svo og fjarstýrðar sam- læsingar. Burðargetan er 463 kg. Verð með vsk. frá kr. 1.779.000 kr. Verð án vsk. frá kr. 1.428.893 kr. Mazda B-2500 Stretch Cab Mazda skúffubílarnir eru til bæði með eitt og hálft hús og fullgilt 5 manna hús með fjórar hurðir. Sá sem er í boði óbreyttur sem vsk-bíll er svokallaður Stretch Cab en það er í raun bíll með eitt og hálft hús. Þannig búinn er hann tveggja hurða með tvö nett aukasæti fyrir aftan hefðbundin sæti öku- manns og framsætisfarþega. Þessi aukasæti eru þó þannig að þau eru fullboðleg séu leiðir ekki langar. Þessi skúffubíll er með 2,51 dísilvél, 78 ha og líknarbelg í stýri, burðargeta er 1200 kg. Ýmiss konar aukabúnaður er fáanlegur á Mazda B-2500, svo sem plasthlíf innan í skúffu og hús á skúffuna. Verð með vsk. frá 1.930.000 kr. Verð án vsk. frá 1.550.176 kr. Mazda E-2000 og E-2200 E-gerðirnar frá Mazda eru fáanlegir í ýmsum myndum sem sendibílar, pallbílar eða jafnvel smárútur. Boðið er upp á tvær mismun- andi lengdir. Þeir hafa orð fyrir að vera rúmgóðir og sérlega þægilegir í akstri. Eins og tölurnar í heiti þeirra gefa til kynna er boðið upp á tvær vélar, 2,0 1 bensínvél, 90 ha, og 2,2 1 dísilvél, 70 ha. Sendibílarnir eru búnir 80% tregðulæsingu í afturdrifí. Burðargeta er 1200 til 1700 kg. í þessum bílum eru hvorki líknarbelgir né læsivarðar bremsur staðalbúnaður en grunnverðið er líka mjög hagstætt. Verð með vsk. frá 1.415.000 kr. Verð án vsk. frá 1.136.528 kr. Bílskúrinn slæmur geymslu- staður bíla Geymsla bifreiðarinnar í heitum skúr á vetuma getur oft gert bíleigendum skráveifu. Ástæðan er einfaldlega sú að bíllinn safnar innan í brettin snjó og saltblöndu sem bráðnar svo í hitanum þannig að innan á bílnum og undir honum er raki sem ekki nær að þoma yfir nótt. Þannig stendur bíllinn í raka helminginn af tímanum á meðan Vetur konungur gengur yfír sem flýtir fyrir ryðmyndun. Þá getur einfaldlega verið betra að láta hann standa ut- andyra þar sem að snjórinn nær ekki að bráöna. -NG Nú er vetur gengin í garð og tími til komin að setja vetrardekkin undir bílinn. Hjá Bílkó færðu úrvals vetrardekk af öllum stærðum og gerðum. Spólaðu ekki í sama farinu! Pantaðu tíma í síma 557 9110 eða komdu við á smiðjuvegi 34-36 og þú færð toppþjónustu á hreint ótrúlegu verði. OPIÐ 08-18 MAN-FOS. 0PIÐ 10-16 LAU. NEYÐARÞJÓNUSTAN ALLTAF OPIN SÍMI 800 4949. DAB0 BÍLKÓ EHF.- Bifreiðaþjónusta - Dekkjaverkstæði - Bílaþvottur Smiðjuvegur 34-36 • Kópavogi • Sími 557 9110 • Rauð gata

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.