Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 Fréttir I>V Díoxín í sjávarfangi afleiðing mengunar frá Evrópu: Eigum rétt á skaða- bótum frá ESB - verði settar hamlandi reglur um fiskimjöl, segir sjávarútvegsráðherra Þann 14. desember nk. mun verða tekin til umí]öllunar hjá ESB skýrsla um dioxínmengun í fískimjöli og lýsi. Hafa sumir þingmenn lýst áhyggjum vegna málsins og telja bann við sjávar- afurðum af norðurslóðum yfirvofandi sem valda muni hruni íslensks efna- hagslífs. Sjávarútvegsráðherra segir ekki ástæðu til að óttast þetta nú en ís- lendingar muni á móti halda uppi kröfu um skaðabætur á hendur Evr- ópuþjóðum vegna mengunar. „Þetta er vissulega aivarlegt mál en væntanlega ekki eins alvarlegt og við stóðum frammi fyrir varðandi kúarið- una. Þetta snýst um dioxíninnihald í fiskimjöli og lýsi til fóðrunar dýra. Enn sem komið er er ekki verið að tala um manneldisþáttinn," segir Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra. Ekki sett mörk „Það liggja fyrir tvær skýrslur um þessi mál. Þar eru ekki lögð til nein mörk á innihaldi díoxíns í lýsi eöa fiskimjöli eins og framkvæmdastjóm ESB var að reyna að setja fyrir rúmu ári. Hvort komið verður með ein- hverjar tillögur um mörk, þrátt fyrir að þær séu ekki inni í fyrirliggjandi skýrslum, vitum við ekki. Mjölið er kannski ekki eins við- kvæmt fyrir þessari umræðu og lýsið. Díoxín safnast fyrir í fitunni en möguleikar eru þó á að hreinsa lýsið og minnka díoxininnihald. Það er þegar gert varðandi lýsisframleiðsiu til manneldis. Það er sárt fyrir okkur að vera að ræða þetta við lönd sem eru sunnar á hnettinum, þar sem mest af mengun- inni verður til og berst með loft- straumum til norðurs og safn- ast fyrir í fæðu- keðjunni." Eigum rétt á skaðabótum - Munum við þá kreflast skaða- bóta ef ströng mörk ESB koma til með að valda okkur efnahagstjóni? „Það er ekki spuming um að við eigum siðferðislega slíkan rétt. Við höfum haldið þessu á lofti og notað það í kröfum okkar til að fá menn til að vinna þetta af skynsemi en rjúka ekki til eins og til stóð fyrir rúmu ári. Þetta mál hefur verið á dagskrá á nánast öllum fundum sem ég hef átt með sjávarútvegsráðherrum síðasta eitt og hálft árið. Sömu aðilar hafa staðið saman í þessu máli og stóðu saman í kúariðumálinu gagnvart fiskimjöli." - Er líklegt að þetta verði yfirfært á allan sjávarútveg? „Það er ekki verið að gera það núna en ekki er ólíklegt að sú þróun muni eiga sér stað. Eins og er hef ég ekki ástæðu til að hafa af því beinar áhyggjur en það er þó alit hugsanlegt. Við þurfum því að halda okkar sjón- armiðum á lofti en aðalmálið til fram- tíðar er að koma í veg fyrir þessa mengun." -HKr. Árni M. Mathiesen sjáv- arútvegsráð- herra íslenskir mjölframleiðendur: Enn með öndina í hálsinum - þriðja atlagan aö fiskimjöli á tveim árum íslendingar standa nú frammi fyrir hugsanlegu banni á fiski- mjöli og nú vegna díoxín- mengunar. Þeir sluppu með skrekkinn varð- andi bann ESB á notkun fiskimjöls í dýrafóður í vikunni. Þó bann hafl verið sett varðandi fóðrun jórtur- dýra með fiskimjöli, þá eru enn nægir markaðir varðandi fóðrun annarra nytjategunda. Þetta var í annað sinn á tveim árum sem ís- lendingar stóðu með öndina í háls- inum varðandi hugsanlegt bann á notkun fiskimjöls. Nú síðast var það vegna ótta um kúariðusmit, en þann 26. júlí 1999 sluppu menn með skrekkinn er ákvörðun um leyfúegt díoxínmagn í fiskimjöli var frestað á fundi hjá nefnd Evrópusambandsins sem fjallaði um fóður. Þráðurinn verður aftur tekinn upp þann 14. desember og enn standa íslenskir mjöl- og lýsisframleiðendur með öndina í hálsinum, en tíu rnillj- arða árlegur útflutningur er í húfi. Tillögur um bann vegna díoxín- mengunar komu upp í kjölfar dí- oxínhneykslis í Belgíu og mengunar í fóðri kjúklinga og kúa í byrjun sumars 1999. Þaö leiddi til að marg- ar þjóðir bönnuðu innflutning á belgískum vörum, m.a. mjólkurvör- um og á belgísku súkkulaði. Tillög- urnar virtust þó svo fljótfærnislega unnar af nefndinni að eftir kröftug mótmæli margra þjóða var málinu slegið á frest. Byggjum á rökum Aðalfulltrúi íslendinga í fasta- nefnd um fóður er Ólafur Guð- mundsson, en Guðjón Atli Auðuns- son hjá Rannsóknastofnun fiskiðn- aðarins situr fundi úti i Evrópu sem sérfræðingur Islands varðandi dí- oxín. Guðjón segir að íslendingar muni að sjálfsögðu hlíta rökum, en honum sýnist að öll rök varðandi af- urðir héðan séu í lagi. Þau rök bygg- ir íslenska sendinefndin á viðamikl- um gögnum og mælingum sem aflað hefur verið með rannsóknum í fs- lensku umhverfi síðan sumarið 1999. Þá voru engin gögn til en nú liggja fyrir um 50 niðurstöður og byggir Evrópusambandið nú að stórum hluta á íslenskum gögnum. Eftir frestun málsins í fyrra var það sett i áhættumat og úr þvi var málið að koma í lok nóvember. Fyrsti fundur um þær niðurstöður verður 14. desember, en nú er unn- ið að framkvæmdaáætlun sem byggð er á þessum niðurstöðum, en hún verður varla tilbúin fyrr en í janúar. Þá verður þetta væntanlega rætt í þeirri nefnd sem setur endan- leg mörk, að sögn Guðjóns Atla Auðunssonar. -HKr. Guöjón Atli Auðunsson. Finnskir kalkúnar Nóatún býöur í dag kalkúna frá Fmnlandi. Alls veröa seld 9 tonn og kostar hvert kíló 599 krónur. Finnskir kalkún- ar í Nóatúni í dag mun Nóatún hefja sölu á inn- fluttum kalkúnum frá Finnlandi. Alls verða seld um 9000 kg á 599 kr/kg. Markaðsstjóri Nóatúns, Jón Þor- steinn Jónsson, segir að heildsölu- verð á kalkúnum hér á landi sé um 695 kr. og því sé hann á mjög góðu verði þrátt fyrir að íslensk stjórnvöld leggi um 50% tolla og gjöld á vöruna. Margir muna eflaust eftir því þeg- ar Jóhannes í Bónus reyndi að flytja inn kalkúnaleggi um árið með mis- jöfnum árangri. Þessi innflutningur Nóatúns á kalkúnum er í samræmi við samning íslands við Gatt alþjóða- viðskiptastofnunina þar sem kveðið er á um að heimilt sé að flytja til landsins ákveðið hlutfall af lands- framleiðslu í hverri tegund. Innflutningurinn er gerður í nánu samstarfi og undir eftirliti embættis yfirdýralæknis. Að sögn Jóns er ná- Níu tonn af finnskum kalkúnum á jólaborðiö. kvæmlega farið eftir öllum skilyrðum er varða fóðrun á eldistímanum, heil- brigði, verkun og frágang og skilar það sér í vel holdfyiltum gæðafugli. Sem dæmi má nefna að fuglinum hef- ur aldrei verið gefið vaxtaraukandi lyf á eldistímanum og er honum slátr- að í samræmi við ströngustu reglur Evrópubandalagsins um slátrun og meðferð alifugla. -ÓSB Rauntekjur ellilífeyrisþega Félag eldri borg- ara, undir forystu Ólafs Ólafssonar, hefur fengið ríkis- skattstjóra til þess að gera úttekt á því hverjar rauntekjur ellilífeyrisþega eru. í úttekt ríkisskatt- stjóra kemur fram að um 7.390 manns eða 28% ellilífeyrisþega hafa lægri mánaðartekjur að meðaltali en 85.500 krónur fyrir skatta og 11.686 manns eða 44% ellilífeyrisþega hafa um 76.000 krónur fyrir skatta. Lýðskólinn til Danmerkur Skólanefnd Lýöskólans hefur geng- ið frá samningi við danska ríkið og fengið samþykki borgarráðs fyrir styrk, sem þýðir að starfsemi skólans flyst til Danmerkur eftir áramót. Fyrstu nemendur fara utan 4. janúar í 18 vikna nám við Vallekilde-skólann á Sjálandi, allt að 20 manna hópur. - Vísir greinir frá. Frægur kafbátur til íslands? Hugsast getur að tekin verði hér á landi kvikmynd þar sem frægur rúss- neskur kafbátur leikur aðalhlutverk- ið á móti Harrison Ford. í frétt frá Reuters-fréttastofunni segir að kaf- báturinn, sem verið hefur í höfn á Flórída frá 1998, verði dreginn hingað til lands vegna töku á myndinni K-19. Kafbáturinn var í þjónustu sovéska og síðar rússneska flotans frá 1968 til 1992. Klámfengin þjóð Þjóðin hefur tekið einu íslensku klámvefsíðunni fagnandi af marka má upplýsingar sem birtast á klam.is. Þar segir að þá þrjá mánuði sem klámsvæðið hefur verið opið hafi heimsóknir verið rúmlega 75.000 á mánuði eða á þriðja hundrað þúsund alls. 20% seld í Landssímanum 20% hlutabréfa ríkisins í Landssím- anum verða seld á næsta ári. Halldór Ásgrímsson, formað- ur Framsóknar- flokksins, sagði að komið yrði til móts við flokkinn í skýrslu einkavæðingarnefndar. í fréttum RÚV kom fram að grunn- net Landssímans verður selt með honum. Læknadópið vandamál á Vogi „Róandi ávanalyfjum er ávísað mest allra lyfla í okkar heimshluta og röng notkun þessara lyfja er mikið vandamál," segir í nýlegri skýrslu SÁÁ, sem gert hefur nákvæma könn- un á neyslu sjúklinga á Vogi á róandi lyQum. Um 30% allra kvenna i sjúk- lingahópnum og 15% karlanna áttu við vanda að stríða vegna róandi lyfja árið 1998 eða um 320 einstaklingar. - Dagur greinir frá. Rusl til Skagafjarðar Framtíð sorphirðu á Akureyri og í nágrenni var til umræðu á fundi Hér- aðsnefndar Eyjafjarðar í gær. Breytt- ir tímar kunna að vera í vændum. Hugmyndir eru uppi um að leggja niður sorpurðunarstað Eyfirðinga í Glerárdal og flytja ruslið til Skaga- fiarðar, að Kolkuósi. Sölu Orkubús mótmælt Undirskriftalistar með nöfnum 957 íbúa ísafjarðarbæjar voru afhentir bæjar- stjóranum, Halldóri Halldórssyni, nýver- iö. Með afhendingu þeirra er mótmælt fyrirhugaðri sölu á eignarhlut ísafjarðarbæjar í Orkubúi Vestfjaröa. -HKr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.