Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 Fréttir íhugar að kæra dæmdan málverkafalsara fyrir eftirlíkingar: Verður að stoppa þennan mann - segir Pétur Gautur um fyrrum eiganda Gallerí Borgar - þvættingur, segir Pétur Þór Myndlistarmað- urinn Pétur Gaut- ur hyggst kæra Pétur Þór Gunn- arsson, fyrrum eig- anda Galleri Borg- ar, fyrir brot á höf- undarlögum. Pétur Gautur staðhæfir að Pétur Þór hafi endurmálað marg- ar mynda sinna sem hann nú sýnir í listamiðstöð- inni í Straumi og á rakarastofu í Hafnarfiröi. Pétur Þór málaði myndimar á meðan hann afplánaði dóm á Kvíabryggju fyrir mál- verkafals en þar sat hann í 6 mán- uði. Á þeim tíma málaöi hann 120 myndir sem flestallar eru keimlíkar myndum Péturs Gauts og félaga hans, Sigurbjamar Jónssonar, en þeir tveir sýndu myndir sínar gjarnan í Gallerí Borg á meöan Pét- ur Þór rak það og seldu vel. „Það verður að stoppa þennan mann. Hvað gerir hann næst?“ spyr Pétur Gautur sem borið hefur sam- an myndir Pétur Þórs og sínar og sér þar lítinn mun á. „Þetta er al- varlegt brot á höfundarrétti og ég íhuga að kæra manninn, þó svo ég hafi verið einn af fáum sem ekki sneri viö honum baki þegar mál- verkafölsunarmálið gekk yfir. Við vorum viðskiptafélagar og góðir kunningjar. En maður lætur ekki stela frá sér,“ segir Pétur Gautur sem vill eiga sínar myndir í friði fyrir öðrum. Pétur Þór hefur selt vel á sýning- um sínum í Straumi og á rakara- stofunni í Hafnarfirði og vísar ásök- unum Péturs Gauts á bug sem þvættingi: „Það eru ekki allir sem þola að ég sé kominn aftur og hafi fengið þús- und manns á opnun og selt fyrir nokkrar milljónir. Sannleikurinn er sá að þegar ég hóf myndlistarnám 1982 málaði ég klassiskar uppstill- ingar sem voru mun líkari myndun- um sem Pétur Gautur gerir í dag en þessar sem ég sýni nú,“ segir Pétur Þór Gunnarsson sem kunni því alls Mynd eftir Pétur Gaut Þessa mynd keypti Pétur Þór af Pétri Gauti handa eiginkonu sinni og hangir hún á vegg á heimili þeirra hjóna. ekki illa að sitja í hálft ár á Kvía- bryggju: „Þetta var engin kvöl og pína. Þarna fékk ég loksins tíma til að gera það sem mér finnst skemmtilegast; að mála.“ Vill eiga sínar myndir sjálfur Pétur Gautur rýnir í sýningarskrá Péturs Þórs Gunnarssonar og viröir fyrir sér meintar eftirlíkingarnar. Prófað þrátt fyrir mótmæli DV. AKRANESI: Þórir Ólafsson. Þórir Ólafsson, skólameistari FVA, sagði í gær að próf- um yrði fram hald- ið eins og stefnt hefði verið að. „Það hefur verið vinnu- | regla við fram- kvæmd prófa að deildarstjórar hafi umsjón með þeim en þeir eru nú í verkfalli eins og aðrir kennarar. Kennarar hafa mótmælt því að próf skuli haldin án aðkomu deildar- stjóra og vilja að þeim sé frestað þar til verkfallið leysist." Þórir segir aö við venjulegar að- stæður hefðu deildarstjórar haft umsjón með prófunum en það ætti ekki við núna. Því hefði verið beitt óhefðbundnum aðferðum til að tryggja að þeir nemendur, sem hafa stundað nám meðan á verkfallinu stendur, gætu gengið undir próf. í framhaldsdeildunum á Snæfells- nesi hafa stundakennarar, sem eru ekki í Félagi framhaldsskólakenn- ara, kennt námsefnið og segir Þór- ir að hann hafi beðið þá um að semja prófin að þessu sinni. Þeir samþykktu það og fór fyrsta prófið fram í gær en prófum mun Ijúka í þessari viku. Um 50 nemendur stunda nám í tveimur framhalds- deildum á Snæfellsnesi. -DVÓ Fjögurra mánaða fangelsi fyrir ölv- unarakstur DV. VESTURLANDI__________________ Héraðsdómur Vesturlands dæmdi í síðustu viku tvítugan Ólafsvíking í fjögurra mánaða fangelsi fyrir ölv- unarakstur um götur Reykjavíkur aðfaranótt síðasta þjóðhátíðardags. Fullnustu þriggja mánaða þeirrar refsingar skal fresta og hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dómsins ef ákærði heldur almennt skilorð. Ákærða var einnig gert skylt að greiða 60.000 króna sekt í ríkissjóð en 14 daga fangelsi komi í hennar stað ef hún verður ekki greidd innan fjögurra vikna. Hinn dæmdi var sviptur öku- réttindum í ár. Ökumaðurinn ók ógætilega aust- ur Sæbraut þessa nótt og hafnaði bifreiðin utan vegar. Ákærði hefur frá árinu 1997 þrisvar gengist undir sátt og fiórum sinnum verið dæmd- ur vegna ýmissa lögbrota: smáþjófn- aðar, skemmdarverka og hraðakst- urs, og var á skilorði sem hann rauf. -DVÓ Veörið í kvöid REYKJAVlK AKUREYRI Sólariag i kvöld 15.37 14.58 Sólarupprás á morgun 11.03 09.46 Síðdegisflóð 15.27 20.00 Árdegisflóð á morgun 03.57 08.30 ^VINDÁTT 10°«-HITI 1$ -10° ^VINDSTYRKUR í metrum á sekúndu >FR0ST HEIÐSKlRT O o ŒTTSKÝJAÐ HÁtF* SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ o w w Q RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA © © -\r EUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR 1 SKAF- RENNINGUR ÞOKA Bjart veður suðvestanlands Norðaustan &-13 m/s en 13-18 við suöausturströndina síðdegis og einnig norðvestan til í kvöld. Bjart veöur suðvestanlands.Hiti 1 til 8 stig, mildast sunnanlands. Hálkublettir á heiðum Skafrenningur er á Steingríms- fjaröarheiöi, Möörudalsöræfum og Vopnafjarðarheiði samkvæmt upplýsingum frá Vegageröinni. Hálkublettir eru á heiöum og fjallvegum. Aö ööru leyti er góö færö. Slydda og rigning norðan og austan til Austan og noröaustan 8-13 m/s á morgun en 13-18 norövestan til. Slydda eöa rigning með köflum norðan og austan til. Rigning eða skúrir suðvestanlands í nótt og á morgun. Hiti 1 til 8 stig, mildast sunnanlands. Laugard m Vindur:' 10-15 m/* Hiti 6° til 0° Sunnuda Vindur: 13-18 mj. Hiti 4" til -3" Mánudagur Vindur ^ ' 13-18 m/. Hiti 4° til -3” Austan og norðaustan 10- 15 m/s. Dálítll rignlng eöa slydda norðan tll, skúrir suðaustanlands en skýjað með köflum á Suövestur- og Vesturlandl. Austan- og norðaustanátt, víða 13-18 m/s. Rlgnlng eða slydda með köflum sunnanlands en snjókoma eða él og vægt frost noröan tll. Austan- og norðaustanátt, víða 13-18 m/s. Rlgnlng eöa slydda með köflum sunnanlands en snjókoma eöa él ög vægt frost noröan tll. rmsh i HB AKUREYRI rigning 2 BERGSSTAÐIR skýjað 3 B0LUNGARVÍK alskýjað 3 EGILSSTAÐIR KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 5 KEFLAVÍK léttskýjað 3 RAUFARHÖFN REYKJAVÍK léttskýjaö 4 STÓRHÖFÐI hálfskýjaö 5 BERGEN skýjaö 8 HELSINKI súld 4 KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 7 ÓSLÓ rigning og súld 8 ST0KKHÓLMUR þokumóöa 6 ÞÓRSHÖFN hálfskýjaö 7 ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 5 ALGARVE þokumóöa 18 AMSTERDAM þokumóöa 8 BARCELONA rigning og súld 11 BERLÍN skýjaö 4 CHICAGO snjókoma -7 DUBLIN skýjað 8 HALIFAX alskýjaö -3 FRANKFURT skýjað 6 HAMBORG léttskýjaö 9 JAN MAYEN snjóél -3 LONDON léttskýjaö 8 LÚXEMB0RG þokumóöa 7 MALLORCA þokumóöa 14 MONTREAL -8 NARSSARSSUAQ alskýjaö -7 NEWYORK skýjaö -1 ORLANDO skýjað 14 PARÍS skýjaö 8 VÍN þokumóöa 7 WASHINGTON alskýjaö -2 WINNIPEG þoka liikm'iannffcmiaiifcirj -15 M9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.