Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 Útlönd DV Sest á skólabekk Bandaríkjaforseti skipaöi eiginkonu sinni, Hillary, að fara snemma í rúmiö fyrir fyrsta skóladaginn. Bill Clinton stríð- ir Hillary vegna starfskynningar BUl Clinton Bandaríkjaforseti stríðir HiUary eiginkonu sinni þessa dagana vegna starfskynningar sem hún sækir vegna væntanlegrar setu í öldungadeild Bandaríkjaþings. „Ég vildi að Hillary gæti verið héma en hún er í öldungadeildar- skólanum," sagði Bill við móttöku í Hvíta húsinu í Washington í gær. Forsetinn kvaðst hafa gefið konu sinni góð ráð og meðal annars hafa sagt: „Þetta er fyrsti dagurinn þinn í skólanum. Þú verður þess vegna að fara snemma i rúmið til að fá góðan nætursvefn. Þú þarft einnig að vera snyrtilega klædd. Þetta er jú fyrsti skóladagurinn." Gríni forsetans var vel tekið. Elian Gonzalez Elian fékk aöstoö viö aö biása á kertin á afmæiistertunni í gær. Castro I afmælis- veislu Elians Fidel Castro Kúbuforseti stjóm- aöi afmælisveislu Elians litla Gonzalez sem varð 7 ára í gær. Yfir- höld héldu afmælisveisluna í skóla Elians i Cardenas og var greinilegt að afmælisbarnið skemmti sér vel. Castro lék á als oddi, hann hló að trúöum sem skemmtu og gerði að gamni sínu við skólabörnin og kennara þeirra. „Þetta er afmælisdagur okkar allra og við erum öll hamingjusöm vegna þeirra erfiðleika sem við gengum í gegnum,“ sagði Kúbufor- seti. Móðir Elians og stjúpi drukkn- uðu í nóvember í fyrra á flótta frá Kúbu. Elian var bjargað og komst hann heim til Kúbu með fóöur sín- um sjö mánuðum seinna. UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftlrfarandi elgnum verður háð á þelm sjálf- um, sem hér segir: Langahlíð 23, 68,4 fm 2ja herb. íbúð á 2. hæð t.v. m.m., Reykjavík, þingl. eig. Db. Svövu Kristjánsdóttur, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki Islands hf„ Hellu, og Toll- stjóraembættið, mánudaginn 11. desem- ber 2000 kl, 10,00,__________ Skólavörðustígur 17, kjallaraíbúð, Reykjavík, þingl. eig. Öm Ingólfsson, gerðarbeiðendur Landsbanki íslands hf„ aðalbanki, og Lífeyrissjóðurinn Lífiðn, mánudaginn 11. desember 2000 kl. 10.30. __________________ SÝSLUMAÐURINN f REYKJAVÍK. Forsetaslagurinn enn hjá dómstólum í Flórída: Þingið undirbýr val kjörmanna Hæstiréttur Flórída tekur í dag fyrir kröfu lögmanna Als Gores, for- setaframbjóðanda demókrata, um að niðurstöðu undirréttar um að hafna handtalningu vafaatkvæða í nokkrum sýslum Flórida verði hnekkt. Talið er að niðurstaða Hæstarétt- ar muni endanlega skera úr um það hvor verður næsti forseti Banda- ríkjanna, A1 Gore eða repúblikan- inn George W. Bush, ríkisstjóri í Texas. Frambjóðendurnir þurfa að tryggja sér 25 kjörmenn Flórída til að fá tilskilinn meirihluta kjör- mannanna sem velja forsetann 18. desember næstkomandi. Þing Flórída ákvað i gær að boða til fundar síðdegis á morgun þar sem undirbúa á val á kjörmönnum ríkisins, fari svo að málaferlum vegna úrslita forsetakosninganna verði ekki lokið þegar frestur ríkis- Skammist ykkar Nokkur þúsund manns tóku þátt í mótmælastööu viö Hæstarétt Flór- ída í gær þar sem þess var krafist aö öll atkvæöi í forsetakosningunum væru talin meö. ins til að tilnefna kjörmenn rennur út 12. desember. Demókratar á þingi Flórída mót- mæltu harðlega en sögðust ekki hafa nægilegan styrk til að koma í veg fyrir ætlan repúblikana sem eru í meirihluta. Lögmenn Bush börðust í gær gegn tveimur lögsóknum kjósenda úr röð- um demókrata í Seminole- og Martin- sýslum. Þar er þess krafist að þús- undir utankjörfundaratkvæða verði lýstar ógildar þar sem repúblikanar hafi á ólöglegan hátt leiðrétt umsókn- ir þar um. Bush sigraði í báðum sýsl- unum, samkvæmt opinberum tölum. Lögspekingar telja afar ólíklegt að stefnendur hafi sigur en fari svo mun það kosta Bush þúsundir at- kvæða. Gore myndi þá sigla fram úr Bush og fá fleiri atkvæði í Flórída. Yfirkjörstjórn Flórida lýsti hins vegar Bush sigurvegara þann 26. nóvember, með 537 atkvæða mun. Bændaleiötogi handtekinn Leiötogi frönsku bændasamtakanna, José Bové, var handtekinn í gær þegar hann tók þátt í mótmælum í París í tilefni ráöstefnu um heimsviðskipti. Rússar dæma Bandaríkjamann fyrir njósnir: Bandarísk stjórnvöld hvetja til þess að hann verði látinn laus Mikil reiöi rikir nú í herbúðum ráðamanna í Washington vegna tuttugu ára fangelsisdóms sem bandarískur kaupsýslumaður fékk í Rússlandi í gær. Maðurinn var ákærður fyrir njósnir. Talið er að niðurstaða dómsins eigi eftir að varpa skugga á samskipti Banda- ríkjanna og Rússlands. Kaupsýslumaðurinn Edmond Pope, fyrsti Vesturlandabúinn til að verða sakfelldur fyrir njósnir í Rússlandi siöan kalda stríöið stóð sem hæst fyrir nokkrum áratugum, verður látinn afplána refsingu sína í öryggisfangelsi. Bandarísk stjómvöld hvöttu ráða- menn í Moskvu í gær til að sleppa Pope af mannúðarástæðum. Hann þjáist af sjaldgæfu afbrigði bein- krabbameins og fjölskylda hans hef- ur sagt að fangelsisvist myndu Edmond Pope Bandaríski kaupsýslumaðurinn í búri sínu í réttarsalnum í Moskvu í gær. ganga endanlega af honum dauðum. Áður en dómurinn var upp kveðinn ítrekaði Pope að hann væri saklaus af öllum ákærum og bað um að hann yrði látinn laus. „Ég er þegar búinn að dúsa átta mánuði í rússnesku fangelsi. Ég er ekki njósnari," sagði Pope, sem er 54 ára fyrrum starfsmaður leyni- þjónustu bandaríska sjóhersins. Pope hafði heimsótt Rússland meira en tuttugu sinnum á átta ára tímabili til að rannsaka borgaralega notkun hernaðartækni, fyrst á veg- um Pennsylvaníuháskóla og síðan á vegum eigin fyrirtækis. Hann var ákærður fyrir að stela teikningum af háhraða rússnesku tundurskeyti en hann sagði að tæknin til smíðinnar væri öllum að- gengileg. Pope hefur sjö daga til að áfrýja. Stuttar fréttir í mál gegn drottningu Breska blaðið The Guardian höfð- aði í gær mál til þess að fá breytt 300 ára gömlu lögum um ríkiserfðir í Bretlandi. Blaðið fullyrðir að lögin stríði gegn nýjum mannréttindasátt- mála Evrópu. Samkvæmt lögunum er ættleiddum, þeim sem getnir eru utan hjónabands og þeim sem ekki eru mótmælendatrúar bannað að taka við krúnunni. Lagði blaðið til að lýðveldi tæki við þegar Elísabet Englandsdrottning félli frá. Vinurinn eftirlýstur Danska lögreglan hefur lýst eftir vini bílstjórans sem rændi jafnvirði 400 milljóna króna úr peningaflutn- ingabíl fyrir rúmri viku. Er vinur- inn grunaður um aðstoð við ránið. Ekki er vitað hvar ránsfengurinn er. Rifist um sendinefnd ísraelar og Palestínumenn og ísraelar og Bandaríkjamenn rífast enn um verksvið nefndarinnar sem á að rannsaka upptök ofbeldisins á herteknu svæðunum undanfamar vikur. Ófrjósemisaögerðir Um 40 þúsund kvenna voru neydd til að gangast undir ófrjósem- isaðgerð á árunum 1945 til 1970. Sumar kvennanna voru gerðar ófrjóar án þess að vita af þvi. Vill múr kringum ftalíu Forseti Ítalíu, Carlo Azeglio Ci- ampi, segir þörf á múr gegn ólögleg- um innílytjendum. Stjórnarandstað- an, sem vill gera innflytjendamál að aðalmáli næstu kosningabaráttu, fagnaði ummælum forsetans. Ítalíu- forseta er ekki illa við innflytjendur en hann hefur áhyggjur af glæpa- starfseminni sem margir tengja inn- flytjendum. Loftslagsviðræður Embættismenn frá Bandaríkjun- um og Evrópusambandinu hófu í gær tveggja daga viðræöur í Kanada til að reyna að bjarga Kyotosáttmál- anum um niðurskurð gróðurhúsa- lofttegunda. Öryggisráðið fundar Ricardo Lagos, forseti Chile, varð í gær við kröfu her- foringja um að þjóðaröryggisráð landsins yrði kallað saman vegna fyrir- skipunar dómara um að Augusto Pin- ochet, fyrrverandi einræðisherra, verði settur í stofu- fangelsi. Dómstóll fjallar um lög- mæti fyrirskipunarinnar í dag. Kúariða utan úr geimnum Breskir vísindamenn telja ekki ólíklegt að kúariðubakterían hafi borist með lofsteinum utan úr geimnum. Það gæti skýrt hvers vegna kúariða er skæðari meðal nautgripa á vetrarbeit en annarra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.