Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Page 16
16 Menning Allt með sykri og rjóma í bókinni Nærmynd af Nóbelsskáldi - Halldór Lax- ness í augum samtíma- manna - skrifa nokkrir vinir og ættingjar skáldsins um hann og við aðra eru birt viðtöl. Hér heyrist í fólki sem ekki hefur tjáð sig áður um þennan holdgerving 20. aldarinnar á íslandi og er margt af því efni verulega fróðlegt og sumt líka reglulega skemmtilegt. Þar má fyrst nefna grein Sigríðar Halldórsdóttur um föður sinn, hlýlega og kímna mannlýsingu sem gef- ur sjarmerandi mynd af þeim feðginum báð- um. Fyndin er lýsingin á því hvað hann hefur gaman af að dekra við hunda sína, sem reynd- ar er oftar minnst á í bókinni, gaman að vita hvað hann var naskur að kaupa föt á allar konumar sínar og fróðlegt að heyra um „and- stæðumar í upplýsingaflæðinu" frá honum, eins og þegar mjólk var ýmist holl eða beinlín- is banvæn eftir því hvar í heiminum hann var staddur! Skilningsríkur unglingafaðir var hamí lika og vissi hvað börnum á öllum aldri kom. Annar frábær kafli er viðtal Auðar Jóns- dóttur, dóttur Sigriðar, við Solveigu Jónsdótt- ur, dóttur Jóns Helgasonar prófessors í Kaup- mannahöfn sem var einn helsti ráðgjafi Hall- dórs og vinur um langa ævi. Dýrmætt er að fá þar í einu lagi mannlýsingar þeirra beggja, Jóns og Halldórs, og vantar bara að heyra raddir þeirra sem báðar voru sérstakar og minnisstæðar þeim sem heyrðu. Frásögnin af því þegar Jón fann ekki frakkalöfin sín á Nóbelshátíðinni í Stokkhólmi er drepfyndin og svo viknar lesandinn skömmu síðar þegar Þórunn móðir Solveigar fer til dyra og úti stendur maður með ísskáp! Það reyndist vera „ísskápur sem Halldór hafði keypt og sent mömmu þvi hann vissi að hún hafði aldrei eignast þessháttar kostagrip." (130) Frásögn- inni lýkur Solveig á heimsókn i Gljúfrastein þegar Halldór var orðinn gamlaður. Þá las hann upphátt fyrir hana úr Kristnihaldi und- ir Jökli og þegar Solveig hrósaði honum fyrir lesturinn svaraöi hann: „Hvað heldurðu? Heldurðu að ég geti ekki ennþá hermt eftir sjálfum mér?“ (136) Þriðji kaflinn sem má nefna sérstaklega er viðtal Ingu Huldar Hákonardóttur við hjónin Helgu Egilson og Rögnvald Sigurjónsson. Þar fáum við að vita hvaða áhrif Halldór hafði á ungt fólk á fjórða áratugnum, til dæmis sundurgerð hans í klæðaburði, stóri kashmirfrakk- inn og marglitu sokkamir: „Halldór varpaði fjötrum af okkur með því að vera svona djarf- ur...“ (371) Þau minnast líka hvað hann vakti mikið hneyksli með Vefar- anum mikla. Vinnukonan sem las þá bók í sveit- inni hjá Helgu faldi hana undir sæng- inni sinni milli þess sem hún las! Myndirnar eru úr safni DV og sýna Halldór Laxness á heimavígstöðvum. Nærmynd af Nóbelsskáldi færir okkur nær þessu íslenska mikil- Frá ýmsum hlið- um Hið dýrmæta við bók af þessu tagi er að þegar vel tekst til gefur hún les- endum mynd af mikilmenni eins og það kom samtíma sínum fyrir sjónir með kostum þess og göllum. Halldór virð- ist að vísu eindregið ljúfmenni og að mestu laus við galla, samkvæmt þessari bók, þó má sjá á honum ýmsar hliðar, einnig ólik viðbrögð umhverfisins við honum og skemmtilegt samspil hans og hans nánustu, einkum Auðar seinni konu hans. Þar dytti kannski einhverjum í hug að nefna sérhlífni, jafnvel karlrembu. Ýmis atriði í bókinni munu eflaust gagnast þeim sem munu á næstu árum og áratugum freista þess að semja ævisögu Halldórs, en þar hefur hann sjálfur þó lagt mest til. Meðal annarra sem viðtöl eru við í Nærmynd af Nóbelsskáldi eru María, elsta dóttir Halldórs, Jytte Eiberg, dóttir ráðskonu hjá Auði og Halldóri á Gljúfra- steini, Barbara B. Rehbronn, þýsk kona sem réðst í vist að Gljúfrasteini 1960 og hefur haldið tryggð við fjölskylduna síð- an, Hörður Óskarsson prentari, Elías Mar rithöfundur, Sveinn Einarsson leikstjóri og Jón Guðmundsson bóndi á Reykjum, nágranni Halldórs og Auðar. Meðal þeirra sem eiga greinar eru Einar Laxness, son- ur Halldórs og Ingu, fyrri konu hans, Árni Bergmann og Matthías Johannessen. Hólar gefa bókina út. -SA Bókmenntir Grátt gaman Orðabækur eru þarfa- þing, bráðnauðsynlegar nemrnn, kennurum, blaða- mönnum og rithöfundum, svo nokkrir séu til nefndir. Þess utan eru einstaka sér- vitringar sem hafa af þeim unun sjálfra þeirra vegna og þar á meðal yðar ein- lægur. Mér er þó mjög til efs gagnsemi Orðabókar andskotans eftir Ambrose Bierce. Þar ber fyrst til að gengi myrkrahöfðingjans hefur fallið mjög á þessum síðustu og verstu og að bók þessi er komin nokkuð til ára sinna; kom fyrst út 1906 og fyrndar orðabækur verða fljótt haugmatur og engum manni til gagns og gleði. Má segja að slíkum bókum sé best lýst með því að vitna í ritið sjálft: „orðabók kv, tól meinfýsinna bókabéusa til að hefta þróun tungumáls og gera það hrökkt og óþjált. Þessi orðabók er þó mjög notadrjúgur samsetningur." Síðari hluti skilgreiningarinnar er vissu- lega óþolandi sjálfshól en lýsir sennilega höf- undinum nokkuð vel. Ambrose Bierce var banda- rískur blaðamaður, dálka- höfundur og afar misheppn- að ljóðskáld sem tókst á sln- um ferli að skapa sér ein- dæma óvinsældir og andúð fjölmargra. Til að öðlast svo vafasaman frama þurfa menn að vera í senn mein- yrtir og snjallorðir og það var Bierce, en hvort slíkir hæfileikar stuðli að langlífi er hæpnara. Það er lýsandi að dálkur sá sem Bierce var þekktastur fyrir bar nafnið blaður og fátt er steingeldara en blaður gærdagsins. Hallberg Hallmundsson skrifar reyndar greinargóðan formála um ævi Bierce sem ég las með ánægju. En víkjum að sjálfri orðabókinni. Hún geymir einkum hugtakaskýringar setn mest- megnis eru útúrsnúningar á viðurkenndum vanahugmyndum. Sjaldnast verður sá hund- ingsháttur til að opna mönnum nýja sýn eða dýpri skilning en getur oft verið hnyttinn. Dæmi: „tilflnning kv, lamandi sjúkdómur sem stafar af yfirráðum hjartans yfir heilan- um, stundum samfara griðarlegu hlaupi natr- íumklóríðupplausnar úr augunum." Eða: „kynmök h ft, samband sem forsjónin sér um að flón stofni til sín í millum sér til gagn- kvæmrar tortímingar." Af slíku má hafa nokkurt gaman sé í hóf stillt og gæti hentað hugmyndasnauðum í tækifærisræður. Þýðing Hallbergs er viða kjamyrt en eins og hann getur um í eftirmála er fremur um staðfæringu og úrdrátt að ræða en beina þýð- ingu. Bæöi er að margt er fyrnt og staðbund- ið í ritinu og að orðaleikir þýðast illa á önnur mál. Sem betur fer hefur Hallberg og sleppt mörgum kvæðum enda eru þau harla óburð- ugur skáldskapur. Á stöku stað hefur verið gripið til íslenskra kvæða i staðinn og er það yfirleitt til bóta. Frágangur bókarinar er hinn glæsilegasti frá útgáfunnar hendi; fagurrauð bók í eldrauðri kápu og hæfir þeim sem hún er helguð. Geirlaugur Magnússon Ambrose Bierce: Oröabók andskotans. Hallberg Hallmundsson íslenskaöi. JPV FORLAG 2000. FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 ___________________PV Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir Skáldin koma! Á morgun munu skáld og rithöfundar gera víðreist, heimsækja vinnustaði, stofn- anir, skóla - og ekki sist gera strandhögg á stöðum þar sem raddir skálda hljóma sjaldan - undir fyrirsögninni Skáldin koma! Dagskráin hefst formlega í íslandi í bítið á Stöö 2 með upplestri Vigdísai’ Grímsdóttur úr Þögninni. Kl. 8.30 lesa Guðrún Helgadóttir, Guðbergur Bergsson og Pétur Gunnarsson úr nýju bókunum sínum í Kaffivagninum, Grandagarði. Á sama tima byijar Sigurður Skúlason að lesa fyrir nemendur Melaskóla úr Ert þú Blíðfinnur? Ég er með mikilvæg skilaboð og Harry Potter. Klukkan 9.30 verða starfs- menn álversins í Straumsvík heimsóttir af Degi B. Eggerts- syni, Steingrími Hermanns- syni og Sigurjóni Magnús- syni. Klukkan 10, í upphafi ríkisstjómarfundar, mun Vilborg Davíðsdóttir lesa úr Galdri. Klukkan 10 hefst líka dagskrá á Grund. Bald- vin Halldórsson les úr Þjóðsögum Jóns Múla, Vil- borg Dagbjartsdóttir les úr Mynd af konu, fluttur verður kafli úr Nærmynd af Nóbelsskáldi og les- ið úr ljóðaúrvali skagfirskra skálda, Undir blá- himni. Klukkan 12 mæta Bima Anna Bjömsdóttir, Oddný Sturludóttir og Silja Hauksdóttir og lesa úr Dís fyrir starfsmenn Kaupþings. í hádeginu heimsækja Steingrímur og Dagur starfsmenn Olís. —m Klukkan 12.30 hefst dagskrá 1 í húsi Blindrafélagsins í Skóg- j arhlíð. Þar lesa Vigdís Gríms- J dóttir, Guðrún Eva Mínervu- dóttir, Sigmundur Emir Rún- arsson og Sigurður A. Magn- I ússon úr nýjum bókum sínum. Á sama tíma hefst dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur með Sig- urði Pálssyni, Gerði Kristnýju og Mikael Torfa- syni. Klukkan 13 verður upplestur á Landspítalan- um fýrir böm og fullorðna. Þangað koma Kristín Helga Gunnarsdóttir, Guðbergur Bergsson og Steinar Bragi með nýjar bækur sínar og Guðrún Sigfúsdóttir les úr smásagnasafhi Fríðu Á. Sig- urðardóttur. Klukkan 16 verður svo upplestur á Litla- Hrauni þar sem Pétur Gunnarsson, Auður Jóns- dóttir og Þorsteinn Guðmundsson lesa úr nýjum bókum. Því er ekki að treysta að skáldin láti þetta duga. Verið viðbúin óvæntum heimsóknum! Dagskráin er hluti af Stjömuhátíð M-2000. Sálmar lífsins Dægradvöl, Félag áhugamanna um menningu á Álftanesi, býður til tónleika í Bessastaðakirkju í kvöld, kl. 20. Þar munu Sigurður Flosason saxó- fónleikari og Gunnar Gunnarsson orgelleikari flytja dagskrána Sálma lífsins sem mikla athygli hefur vakið. Nýjar þýðingar í kvöld verður lesið úr nýj- um þýðingum á Súflstanum, Laugavegi 18. Bjöm Þór Vil- hjálmsson les úr Ströndinni eftir Alex Garland, Svanur Kristbergsson úr Blýnótt eft- ir Hans Henny Jahnn, Frið- rik Rafnsson úr Öreindun- um eftir Michel Houellebecq, Sigrún Á. Eiríksdóttir úr Inga og Mira eftir Marianne Fredriksson og Brynhildur Bjömsdóttir úr Dóttur gæfunnar eft- ir Isabel Allende. Dagskráin hefst kl. 20 og er aðgangur ókeypis. Útgáfuhátíð Andblæs Tíunda hefti listatímarits- ins Andblæs var að koma út, efhismikið að venju. Að þessu sinni em kynntir 14 myndlistarmenn, auk þess sem birt er viðtal við amer- íska rithöfundinn og fyrrum glæpamanninn Edward Bunker, Ijóð eftir íslensk skáld og ljóðaþýðingar frá ýmsum þjóðlöndum. í tilefhi af nýja heftinu verður haldin upplestr- arhátíð í Norræna húsinu annað kvöld, kl 8.30. Skáld sem eiga ljóð í tímaritinu munu lesa upp og danska skáldið Nicolaj Stochholm kemur til landsins af þessu tilefhi en í heftinu em átta þýdd ljóð úr nýjustu bók hans. Einnig kemur fram tónlistarmaðurinn Gímaldin. Ritstjóri And- blæs er Margrét Lóa Jónsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.